Morgunblaðið - 28.03.1985, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
CITROÉN^
Atvinnubílstjórar
Höfum til afgreiöslu nú þegar tvær dísil-bifreiöir af geröinni
Citroén BX 19 TRD
sem hlotiö hefur mikiö lof atvinnubílstjóra, sem og ann-
arra, fyrir sérstakt og fallegt útlit, frábæra aksturseigin-
leika og síöast en ekki síst lága eldsneytiseyðslu og hag-
stætt verö.
Vél 1905 cc. og 65 hestöfl 4 cyl. • Vatnskæld • 5 gíra • Framdrifin
• Vökvastýri • 5 dyra • Fjarstilltir baksýnisspeglar á báöum
framhurðum • Snúningshraöamælir • Smurolíumælir • Quarts-
klukka • Rafdrifnar rúöur • Reyklitaö gler • Rafdrifnar læsingar á
öllum huröum • Þurrka á afturhlera • Útvarpsioftnet og hátalarar
• Niöurfellanlegt aftursæti • Hilla yfir farangursgeymslu • Diska-
bremsur á öllum hjólum.
Eyösla pr. 100 km 5 lítrar.
Verö til leigubílstjóra frá kr. ca. 483.700.-
Innifaliö er 6 ára ryövarnarábyrgö, skráning, hlíföarpanna undir vól
og fullur eldsneytistankur.
L
OPIÐ LAUGARDAGA KL. 2—5.
(Gengi 1.1. 85)
G/obusi
l AC.Mlll I •) SlMlMlVó
J
A-SALUR
PÁSKAMYND
1985
PLAGESIN THE HEART
(í fylgsnum hjartans)
Ný bandarísk stórmynd sem hefur hlotiö frábærar viötökur um heim
allan og var m.a. útnefnd til 7 Óskarsverölauna.
Sally Field sem leikur aöalhlutverkiö hlaut Óskarsverölaunin fyrir leik
sinn í þessari mynd. Myndin hefst í Texas áriö 1935. Við fráfall eigin-
manns Ednu stendur hún ein uppi meö 2 ung börn og peningalaus.
Myndin lýsir baráttu hennar fyrir lífinu á tímum kreppu og svertingja-
haturs.
Aöalhlutverk: Sally Field, Lindsay Crouse og Ed Harris.
Leikstjóri: Robert Benton (Kramer vs. Kramer).
Sýnd kl. 5, 7, 9.05 og 11.10.
Hækkaö verö.
Morgunblaðið/Bjarni Sighvataaon
Kristín Pálsdóttir hjúkninarfrædingur og þakklátur snáði í hjálparbúðum
Lútherska heimssambandsins.
Astandið versnar á hungursvæðunum:
Eþíópskir embætt-
ismenn til íslands
FJÓRIR eþíópískir embættismenn, þar af einn „kommLssar“ sem fer með öll
vatns- og áveitumál lands síns, eru vsntanlegir til íslands í boði utanríkisráöu-
neytisins 8. aprfl næstkomandi. Munu þeir eiga viðræður við fulltrúa Orkustofn-
unar, verktakafyrirtækja og fleiri aðila um hugsanlega samvinnu við íslendinga
um vatnsöflun í Eþíópíu, að þvi er Árni Gunnarsson, starfsmaður Hjálparstofn-
unar kirkjunnar, sagði í samtali við blaðamann Mbl.
„Hugmyndin er að reyna að
byggja upp vatns- og hitaveitukerfi
í landinu og til þess þurfa þeir að-
stoð, sem við gætum hugsanlega
veitt þeim,“ sagði Árni. „Það hefur
komið til tals að hér yrði um að
ræða norrænt verkefni til lengri
tíma, hjálpa þeim til sjálfshjálpar á
þessu sviði."
Hann sagði að ástandið i landinu
færi nú hríðversnandi enda virtist
sem áhugi alheimsins á hörmungum
þjóðarinnar hefði dvínað nokkuð.
Um tíma hefði litið út fyrir að mat-
ur væri að hætta að berast til lands-
ins en nú hefði ræst úr því.
Þrettán Islendingar, aöallega
hjúkrunarfólk, eru nú við störf á
þurrkasvæðunum í Eþíópíu og líður
vel, að því er Árni sagði. „Þeir hafa
staðið sig mjög vel og unnið gott
starf við afar erfiðar aðstæður,"
sagði hann. „Hjúkrunarfræðingarn-
ir hafa unnið í nokkrum búðum á
hungursvæðunum og tekið þátt 1
uppbyggingu nýrra búða og birgða-
skemma með tveimur félögum úr
Hjálparsveit skáta í Vestmannaeyj-
um. Þess hefur verið farið á leit við
þá tvo, að þeir verði lengur en þá
þrjá mánuði sem þeir voru ráðnir til
upphaflega en það er óvfst hvort það
tekst þótt þeir vildu því það getur
verið erfitt að fá atvinnuleyfi fyrir
þá. Hópurinn sem fór síðar að
heiman hefur verið að byggja upp
heilsugæslustöð í háfjöllunum norð-
ur af höfuðborginni Addis Ababa og
þar var allt i góðu gengi þegar ég
heyrði frá þeim um miðja síðustu
viku.“
Hjón úr Vestmannaeyjum, Arndis
Pálsdóttir og Georg Stanley Aðal-
steinsson, sem störfuðu við fisk-
veiðiverkefnið i Eritreu, eru nú
komin aftur til Eyja. Arndís veiktist
og varð aö koma heim. Ekki er ljóst
hvort eða hvenær þau fara utan aft-
ur.
Frá athöfninni á mánudaginn.
Morgunblaðift/Bjarni