Morgunblaðið - 28.03.1985, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.03.1985, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985 Þriggja daga fundur prófasta á íslandi: Fyrsti fundurinn í nýja Kirkjuhúsinu ÁRLEGUR fundur biskups íslands með prófóstum landsins, 15 Ulsins, hófst í þriðjudag klukkan 10.30 ár- degis í Dómkirkjunni í Reykjavík með athðfn, þar sem séra Bjartmar Kristjinsson var settur inn í pró- fastsembetti í Eyjafjarðarprófasts- dæmi. Fundurinn stendur yfir í þrji daga og lýkur því í dag. Fundurinn var settur um kl. 14 i nýjum fundarsal Kirkjuhússins að Suðurgötu 22 í Reykjavík, en eins og kunnugt er hefur biskupsemb- ættið flutt aðsetur sitt þangað, en var áður til húsa að Klapparstíg 27. Var á fundinum tekin í notkun stór og falleg fundarbjalla, sem hjónin Gyða Jónsdóttir og Ottó A. Michaelsen gáfu embættinu í til- efni flutninga þess. Dr. Páll Sigurðsson dósent, formaður Kirkjueignarnefndar, flutti í gær erindi um álitsgerð nefndarinnar, en fyrirhugað er að prófastar haldi fund með prestum prófastsdæmis sins um efni skýrslunnar og semji álitsgerðir. 1 dag hófst fundurinn kl. 9.30 með morgunbænum séra Sigurðar Guðmundssonar vígslubiskups og umræðum Hallgríms Snorrasonar hagstofustjóra um embættis- skýrslur presta. Eftir hádegisverð í boði prófastafélagsins var fund- ur félagsins og síðan gáfu stofnan- ir á vegum kirkjunnar yfirlit yfir starfsemi sína. í dag hefst fundurinn með morgunbænum séra Ólafs Skúla- sonar víglsubiskups kl. 9 og siðan hefur séra Bragi Friðriksson pró- fastur framsögu um umsjónar- störf og verkstjórn prófasta. Síðdegis kynnir séra Jón Ein- arsson prófastur hugmynd um leikmannaráðstefnu, sem felur í sér að fulltrúar úr hverju pró- fastsdæmi komi saman til ráð- stefnu. Yrði hér um nýjung að ræða, en starfsháttanefnd lagði á sínum tíma fram hugmyndir um slíka ráðstefnu. Hinum árlega fundi íslenskra prófasta lýkur í kvöld með altar- isgöngu f Dómkirkjunni í Reykja- vik og kvöldverðarboði biskups- hjónanna í Biskupsgarði. HorgunblaðiA/RAX Þriggja daga fundur prófasta hófst i gærmorgun f Dómkirkjunni ( Reykjavfk. í fremri röð fri vinstri eru: Sr. Þórarinn Þór, sr. Bjartmar Kristjinsson, herra Pétur Sigurgeirsson biskup íslands, sr. Siguróur Guðmundsson vfgshibiskup og sr. Olafur Skúlason vígslubiskup. í aftari röð eru, talið fri vinstri: Sr. Sváfnir Sveinbjarnarson, sr. Sveinbjörn Sveinbjörsson, sr. Kristinn Hóseasson, sr. Ingiberg Hannesson, sr. Sigmar Torfason, sr. Lirus Þ. Guðmundsson, sr. Jón Einarsson, sr. Róbert Jack, sr. Hjilmar Jónsson og sr. Bragi Friðriksson. Á myndina vantar sr. Fjalar Sigurjónsson sem var upptekinn við embættisstörf í prófastsdæmi sínu er myndin var tekin. £ Wfy- PORT SALUT á ser langa og merkilega sögu. eöa allt frá 13. öld er munkar i samnefndu klaustri hófu tilraunir meö hann. Osturinn er mjúkur meö sterkum bragö- og lyktareinkennum auk mjúkrar skorpu sem ýmsum þykir hiö mesta hnossgæti. Bragögæöi ostsins njóta sín best sé hann látinn standa utan kælis i 1—2 klst. fyrir neyslu. v orAH Mr.lSTAK/\n^ Hlifar Karisson er ostamelstarl Mjólkursamlags K.Þ. á Húsavik og hefur starfaö þar frá þvi aö hann lauk mjólkurfræölnámi i Danmörku árlö 1977. Stefnumörkun um sveitarstjórnar- lög fyrir landsfund Stjórn Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi endurkjörin á aðalfundi AÐALFUNDUR Kjördæmisráðs Sjilfstæðisflokksins í Reykjanes- kjördæmi var haldinn í Kópavogi laugardaginn 16. mars. Formaður setti fundinn, fundarstjóri var kos- inn Richard Björgvinsson og fund- arritarar Guðni Stefinsson og Ásthildur Pétursdóttir. í skýrslu formanns kom fram að í kjördæminu störfuðu niu fulltrúaráð og 25 sjálfstæðisfélög með 4.513 félagsmenn og hafði þeim fjölgað um 10,4% frá aðal- fundi í apríl 1984. Þá gat formað- ur þess, að á starfsárinu hefðu verið haldnir tveir formanna- fundir í kjördæminu, sem tókust mjög vel. í skýrslu gjaldkera kom fram að fjárhagur kjör- dæmisráös væri góður. Aðalmál fundarins voru sveit- arstjórnarmál. Jón Gauti Jóns- son bæjarstjóri f Garðabæ var framsögumaður og ræddi m.a. um framkomið frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga. Til máls tóku auk frummælanda Al- bert K. Sanders, Páll V. Daní- elsson, Gísli Ólafsson, Sigurgeir Sigurðsson, ólafur G. Einarsson, Þorgeir Ibsen, Matthías Á. Mathiesen, Árni Grétar Finns- son og Salome Þorkelsdóttir. Fundurinn samþykkti, að „full- trúaráðin tilnefni 2—3 fulltrúa í nefnd, sem vinni með formanni og varaformanni sveitarstjórn- ar- og byggðanefndar Sjálfstæð- isflokksins til undirbúnings stefnumörkunar i þessum mála- flokki fyrir landsfund". Stjórnin var öll endurkosin, en hana skipa Gísli Ólafsson form., Erna Mathiesen varaform., Þor- valdur Ó. Karlsson ritari, Bragi Mikaelsson gjaldkeri, Jón Bjarni Þorsteinsson, Guðjón Þorláksson og Kristrún Helgadóttir. { varastjórn voru kosnir: Jón Hákon Magnússon, Jón Sv. Jónsson, Þórarinn J. Magnússon, Kristján Einarsson, Guðni Stef- ánsson, Sigurður Bjarnason og Björn Pálsson. Endurskoðendur Gísli Ólafsson formaður kjördæm- isriðsins. voru kosnir Þorgeir Ibsen og Edvald Júlíusson. 1 flokksráð voru kosin: Stella Baldvinsdóttir, Keflavík, Rich- ard Björgvinsson, Kópavogi, Björn Finnbogason, Garði, Jón Ólafsson, Kjalarnesi, Halldór Guðmundsson Njarðvík, Sævar Óskarsson, Grindavík, Þór Gunnarsson, Hafnarfirði, Björn Pálsson, Garðabæ, Magnús Er- lendsson, Seltjarnarnesi, Bragi Micaelsson, Kópavogi, Ellert Ei- ríksson, Garði, Erlingur Krist- jánsson, Hafnarfirði og Þorvald- ur Ó. Karlsson, Garðabæ. Vara- menn í flokksráð voru kjörnir: Sigurður Steindórsson, Keflavík, Arnór Pálsson Kópavogi, Sigurð- ur Bjarnason, Sandgerði, Krist- ján Oddsson, Kjósarsýslu, Albert K. Sanders, Njarðvík, Guðjón Þorláksson, Grindavík, Haraldur Sigurðsson, Hafnarfirði, Guðmar Magnússon, Seltjarnarnesi, Guðni Stefánsson, Kópavogi, Benedikt Sveinsson, Garðabæ, Sigurður Garðarsson, Keflavík, Finnbogi F. Arndal, Hafnarfirði og Ásgeir Þórðarson, Garðabæ. Fundinn sátu um 100 fulltrúar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.