Morgunblaðið - 28.03.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
31
Fjölmiðlabylting-
in er yfðar vanda-
mál en á íslandi
— eftir Ragnheiði
Valdimarsdóttur
Ég undirrituð er nýkomin heim
frá ráðstefnu FISTAV, alþjóð-
legra samtaka útvarpsstarfs-
manna, sjónvarpsstarfsmanna og
kvikmyndagerðarmanna, í Aþenu,
þar sem 100 fulltrúar frá 33 lönd-
um komu saman til þess að fjalla
um sameiginleg mál okkar: Þróun
sjónvarpsframleiðslu á tímum
fjölföldunar og gervihnattadreif-
ingar, vandamál höfundaréttar
vegna fjölföldunar o.fl. Ég kynnt-
ist þarna fólki frá öllum heims-
hornum og sjónvarps- og út-
varpsmálum þeirra. Fólkinu
fannst athyglisvert að heyra frá
okkur hér á Islandi með aðeins
eina sjónvarpsstöð, enga erlenda
sem er óvenjulegt, og fannst mér
margir öfunda okkur.
Á Ítalíu ríkir algjört frelsi, enda
eru þar 60.000 útvarps- og sjón-
varpsstöðvar. Þeir sýna 2.000
bíómyndir í sjónvarpi á degi
hverjum og loka að meðaltali
þremur kvikmyndahúsum dag-
lega. Framleiðslan eykst vissulega
en verður stöðugt lélegri.
I Hollandi eru aftur á móti að-
eins tvær sjónvarpsrásir, þær eru
án auglýsinga, en Hollendingar ná
auk þess útsendingum tíu erlendra
stöðva. Enginn spyr hvort þeir
vilji þetta sjónvarp, sem er fullt af
auglýsingum og erlendu afþrey-
ingarefni. Stjórnvöld í Hollandi
segja að þeim komi þetta ekki við,
en börnin í Hollandi skilja ensku
og taka erlenda efnið oft fram yfir
hið innlenda. Menn geta gert sér i
hugarlund hvaða afleiðingar þetta
hefur á tungu og menningu þjóð-
arinnar.
Sænski fulltrúinn áleit rikisút-
varp og sjónvarp vera i hættu
statt í dag. Uppi eru háværar
raddir þar í landi, sem telja ekkert
lýðræði að láta ákveða allt sem
þeir heyri og sjái. Auglýsinga-
stöðvar eru svarið og þeirra aðal-
markmið er að græða peninga.
Breski fulltrúinn tók í sama
streng og sá sænski. Hann er í
33.000 manna stéttarfélagi, en fé-
lagsmenn þess óttast um atvinnu-
öryggi sitt vegna fjölföldunar og
gervihnattadreifinga og flóðs af
ódýru tilbúnu efni frá Bandaríkj-
unum. í Grikklandi er aðeins rík-
issjónvarp, sem þó ekki er lýðræð-
islegt því að ríkisstjórnin misnot-
ar það í áróðursskyni. Slík mis-
notkun er sannarlega versti kost-
urinn.
Ragnheiður Valdimarsdóttir
Allir töluðu um mikilvægi þess
að ríkisstjórnir styrktu kvik-
myndagerð til þess að varðveita
menningu og tungu þjóðanna. Jap-
anski fulltrúinn upplýsti að í
Tókýó væru um 200 einkastöðvar.
Ríkisstjórnin setur reglur um
rekstur þeirra, sem oft gleymast,
dagskráin er að stórum hluta
ruddaleg og skaðleg fyrir almenn-
ing. Kanadíski fulltrúinn sagði
mér að Shogun hefði verið nýlega
í einni af 50 stöðvum Kanada. Þar
voru sýndar 12 mínútur af Shog-
un, síðan auglýsingar o.s.frv. Kær-
ir fólk sig um slíkt sjónvarp?
Við fslendingar stöndum á
tímamótum, kröfur um frelsi fjöl-
miðla eru mjög háværar í dag og
við þurfum að íhuga vel stöðu
okkar. Mjög dýrt er að reka út-
varps- og sjónvarpsstöðvar og
hvort sem teknanna er aflað með
auglýsingum eða afnotagjöldum
koma þær úr vösum almennings á
einn eða annan hátt. Við megum
ekki gleyma hvað við erum fá-
menn þjóð. Hollendingar láta sér
nægja tvær sjónvarpsrásir og
hvað eru þeir mörgum sinnum
fleiri en við?
Ég sé ekki frelsið, sem á að fel-
ast í því að gefa útvarpsrekstur
frjálsan, þegar við höfum ekki efni
á að reka fleiri stöðvar sómasam-
lega og tel því frelsinu og jafnrétt-
inu betur fullnægt innan ríkisút-
varpsins en í höndum fjársterkra
einkaaðila.
Reykjavík 25. mars 1985.
Ragnheidur Valdimarsdóttir hefur
starfað sem dagskrórklippari hjá
íslenska sjónvarpinu í 15 ár.
Firmakeppni TR:
Búnaðarbankinn vann
A-SVEIT BúnaAarbanka íslands sigr-
aði í stofnanakeppni Taflfélags
Reykjavíkur, sem lauk á mánudag.
Sveitin hlaut 20'/2 vinning af 28 mögu-
legum. Margir kunnir skákmenn eru í
sveitinni, Jóhann Hjartarson, Margeir
Pétursson, Hilmar Karlsson, Guð-
rnundur Karlsson og Stefán Þormar,
sem var varamaður.
I 2.-3. sæti urðu sveitir Flugleiða
og Útvegsbanka íslands með 17Ví>
vinning. Flugleiðasveitina skipuðu
Karl Þorsteins, Elvar Guðmunds-
son, Björn Theódórsson, Stefán Þór-
isson og varamenn voru Hörður
Jónsson og Andri Hrólfsson. Sveit
Útvegsbankans skipuðu Björn
Þorsteinsson, Gunnar Gunnarsson,
Jóhannes Jónsson og Bragi Björns-
son, varamenn voru Jakob
Ármannsson og Ólafur Helgason. I
4.-5. sæti urðu sveitir Háskóla ís-
lands og Iðnskólaútgáfan með 17
vinninga. Meðal kappa í sveit Há-
skólans var Friðrik Ólafsson.
22 sveitir tóku þátt í a-riðli
keppninnar. I B-riðli voru 24 sveitir
skráðar til leiks.
Rýmingarsala á varahlutum
Næstu daga seljum viö ýmsa varahluti í eldri
geröir Ford-bíla á hlægilega lágu verði. Þar
á meöal drifsköft, fjaðrir, bodyhluti og
margt fleira. Missiö ekki af góöu tækifæri til
aö hressa uppá gamla bílinn.
GfftT&foSveinn Egilsson hf,
Skeifunni 17, sími 685100.
VITU SPARA?
_______________BÆTT STJÓRNUN MEÐ BOS
SAFE framleiðslustýring sparar litlum og meðalstórum fyrirtækjum allt aó 15—20% í birgðahaldi!
SAFE framleiðslustýring sparar verkstjóravinnu allt aó 50%!
SAFE framleiðslostýringu er hægt að byggja upp í 15 áföngum, aUt eftir stærð og eóli fyrirtækisins
SAFE framleiðslustýring er ekki háð einru sérstakn tölvutegund.
SAFE framleiðslostýring hefur hlotið meðmæli Félags íslenskra íðnrekenda
SAFE framleiðslustýring er notuð af fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum, m.a. Sápugerðinni
Fngg hf.. Hörpu hf., Trésmiójunm Víöi hf„ Plastprent hf„ Kristjám
Siggeirssyni hf„ Slippfélaginu hf. o.fl.
SAFE framleiðslustýring notar BOS stýrikerfið
BOS BORGAR SIG
Hringið eóa komið í heimsókn og fáið nánan upplýsingar.
Tölvumiðstöðin hf
Höfðabakka 9 — Sími 685933
Studio
Verslanir — Fyrirtæki
Viö höfum unniö fyrir eftirtalin fyrirtæki:
Trillan, Axel Ó, Baby Björn, Mílanó, Tölvu-
spil, Pharma, Vatnsvirkinn, Nesval o.fl., o.fl.
Viö gerum auglýsingar í rás 2 fyrir þig, eftir
þinni ósk fyrir kr. 4.000. Leggöu inn nafn
og símanúmer á augl.deild Mbl. merkt:
„G — 3300“. Við höfum samband.