Morgunblaðið - 28.03.1985, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
N ATO-ráðherrar
standa einhuga saman
Yfir sextíu demókratar
studdu MX-áætlunina
— er atkvæðagreiðslan fór fram í fulltrúadeild Bandaríkjaþings
Lúiembori;, 27. mars. AP.
VarnarmálaráAhcrrar NATO-
landanna samþykktu einróma á fundi
sínum í Lúxemborg í dag, að hvetja
Bandaríkjastjórn til að slá í engu af
við rannsóknir sínar á varnarkerfi
gegn kjarnorkuvopnum í geimnum,
þar eð „varnir og öryggi Vesturlanda
væru í veði“. Caspar Weinberger,
varnarmálaráðherra Bandaríkjanna,
sagðist vera „sérstaklega ánægður
með viðhorf hinna ráðherranna og
Bandaríkjastjórn liti á þau sem
traustsyfirlýsingu Vesturlanda við
stefnu Reagans í afvopnunar- og frið-
armálum.
Það studdi afstöðu ráðherranna,
að tímabært væri fyrir Bandaríkin
að gera umræddar rannsóknir
vegna þess að Sovétmenn hefðu
þegar hugað að slíku. Sovétmenn
hafa verið andvígir rannsóknum
Bandaríkjamanna og ítrekað lýst
yfir að áætlanir Bandaríkjamanna
í þessum efnum hljóti að eyðileggja
afvopnunarmöguleika á viðræðun-
um í Genf.
Þá samþykktu ráðherrarnir allir
sem einn, að haldið skyldi áfram að
koma fyrir 572 meðaldrægum
kjarnorkueldflaugum sem banda-
lagið ákvað og byrjað er á. Carr-
ington lávarður, framkvæmda-
stjóri NATO, greindi frá þvi, að
þegar hefði 134 slíkum flaugum
verið komið fyrir, síðast fyrstu 16
flaugunum í Belgíu.
Washington, 27. marz. AP.
REAGAN Bandaríkjaforseti lýsti at-
kvæðagreiðslunni um MX-flaugarn-
ar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings
sem „atkvæðagreiðslu í þágu friðar,
öruggari framtíðar og betri árangurs
í afvopnunarviðræðunum í Genf“.
Kom þetta fram í tilkynningu, sem
forsetinn gaf út, eftir að þingdeildin
hafði samþykkt MX-áætlun forset-
ans með 219 atkvæðum gegn 213.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar
voru mikill ósigur fyrir Thomas P.
O’Neil, einn helzta leiðtoga demó-
krataflokksins í fulltrúadeildinni,
en þar eru demókratar í meiri-
hluta. Reagan forseta tókst hins
vegar að vinna marga þingmenn
demókrata á sitt band, áður en til
atkvæðagreiðslunnar kom.
Les Aspin frá Wisconsin, for-
maður hermálanefndar deildar-
*
Alaborg:
Orkuverið fékk
undanþáguna
Álaborg, 27. mars. Frá Ásbirni Blöndal, frétta
riUra Mbl.
ORKUVERINU í Alaborg hefur nú
verið veitt undanþága frá verkfall-
inu fyrir starfsmenn við kolamötun
og er starfsemi þegar hafin. Má
vænta þess, að innan þriggja sól-
arhringa verði ástandið í borginni
orðið eðlilegt aftur.
Það sem olli þvi, að undanþágan
var veitt, var að áhrifamönnum í
verkalýðshreyfingunni þótti sem
hér væri farið út fyrir þann
ramma verfalla, að slagurinn
standi milli launþega annars veg-
ar og atvinnurekenda hins vegar. í
öðru lagi er svo, að ríkisstjórnin
hefur lagt fram ákveðna tillögu til
lausnar vinnudeilunni. Og í þriðja
lagi vó þungt þrýstingur frá
íbúum Álaborgar almennt, auk
alls kyns félagasamtaka.
Talið er, að það sé fyrst og
fremst að þakka starfi hjálpar-
samtaka, að ekkert alvarlegt slys
henti af völdum hitaleysisins.
innar, var einn af 61 þingmönnum
demókrata, sem snerust gegn
O’Neil. Hann sagði í lokaumræð-
unni um MX-flaugarnar nú, að
„með því að greiða atkvæði gegn
MX-áætluninni, væri í raun og
veru verið að hjálpa Sovétríkjun-
um“.
Jim Wright, formaður þing-
flokks demókrata, sagði hins veg-
ar, að hann myndi greiða 10 sinn-
um atkvæði með MX-áætluninni,
ef hann teldi, að hún gæti greitt
fyrir samningaviðræðunum í
Genf. En Reagan forseti hefði
hvorki getað sýnt fram á nauðsyn
MX-flauganna né heldur hefði
hann gert grein fyrir því, hvernig
aflað skyldi fjár til þeirra á sama
tíma og hallinn á ríkissjóði
Bandaríkjanna væri 200 milljarð-
ar dollara.
„Það er kominn tími til þess, að
við hættum að sýna hvor öðrum,
hve harðskeyttir við erum,“ sagði
Wright, er hann ræddi um afvopn-
unarviðræðurnar í Genf. „Það er
kominn tími til þess, að við látum
Flugræningi
gefst upp
IsUnbul, 27. mare. AP.
FLUGRÆNINGI, sem talinn var sýr-
lenskur, gafst upp í gærkvöldi á flug-
vellinum í Istanbul í Tyrklandi. Hann
hafði rænt Boeing 727-farþegaþotu í
eigu Lufthansa með 142 farþegum og 9
manna áhöfn. Þotan var í áætlunar-
flugi milli Miinchen og Aþenu. Hann
hafði krafist þess að þotan flygi til Líb-
ýu.
Þotan fékk lendingarleyfi á al-
þjóðaflugvellinum i Istanbul þar
sem hún var að verða eldsneytislaus,
en þegar hún var lent, umkringdu
hermenn þotuna þegar í stað og yfir-
völd neituðu að ganga að kröfum
ræningjans, sem hélt fólkinu í prís-
und með hnífi og brotinni flösku.
Fljótlega sleppti hann öllum farþeg-
unum og sex af níu áhafnarmeðlim-
um. En eftir að hafa reynt til þraut-
ar í nokkrar klukkustundir að fá
kröfum sínum sinnt, gafst hann upp.
í sameiningu skynsemina ráða og
náum samkomulagi um frið fyrir
allt mannkyn."
Veður
víða um heim
Lagit Hæst
Akureyri +« alskýjaö
Amsterdam 2 6 rigning
Aþena 12 19 skýjaö
Barcelona 16 skýjaö
Berlin 2 12 skýjaö
BrUssel 1 7 rigning
Chtcago 0 19 rígning
Oublín 3 8 heiöskírt
Feneyjar 13 þokum.
Franklurt 6 12 rigning
Genf 7 16 skýjaö
Helainki 1 1 skýjaö
Hong Kong Jerúsalem 20 24 skýjaö vantar
Kaupm.höfn 2 4 rigning
Las Palmas 23 léttskýjaö
Ltssabon 8 16 skýjaö
London 3 8 skýjaö
Los Angeles 12 19 rigning
Luxemborg S rigning
Malaga 21 skýjaö
Mallorca 19 léttskýjaö
Miami 21 22 skýjaö
Montreal +7 8 skýjaö
Moskva +3 5 skýjaö
New York 0 15 heiöskírt
Osló Paría 0 3 skýjaö vantar
Peking 2 13 heiöskírt
Reykjavlk +5 snjókoma
Rio de Janeiro 22 34 skýjaö
Rómaborg 3 20 heiöskirt
Stofckhðimur 1 2 skýjaö
Sydney 16 24 skýjaö
Tókýó 6 11 rígning
Vínarborg 3 15 heiöskirt
Þórshöfn 1 snjóól
Myrkur, melatonin og
miðsvetrarsvefnleysi
UM NOKKURRA mánaða skeið á vetri hverjum verða þeir Norðmenn,
sem búa fyrir norðan beimskautsbaug, lítillar dagsbirtu aðnjótandi. Frá því
seint í nóvember fram yfir miðjan janúar kemur sólin aldrei upp yfir
sjóndeildarhring og dagsbirtan er aðeins dálítil skíma í klukkutíma eða
svo. Myrkrið hefur þó ekki þau áhrif á fólkið, sem þarna býr, að það syfji
og síst af öllu á kvöldin, þvert á móti heldur það vöku fyrir því á nóttinni.
Astæðan fyrir þessu er sú, að
birtuleysið veldur lífefnafræði-
legri röskun í hvatakerfi líkam-
ans og setur úr skorðum 24
stunda hrynjandina þar sem
skiptast á svefn og vaka. Það er
a.m.k. álit vísindamanna við
Asgárd-geðsjúkrahúsið í Tromsö
þar sem miklar rannsóknir hafa
farið fram á svefninum og svefn-
venjum manna.
Ógerlegt að
venjast myrkrinu
í Tromsö, sem er rúmlega 300
km fyrir norðan heimskautsbaug,
búa 45.800 manns og fjórðungur
íbúanna á jafnan erfitt með svefn
á veturna. 5% að auki þjást af
þunglyndi á þessum tíma. „Rann-
sóknir okkar sýna, að það er ekki
hægt að venjast vetrarmyrkr-
inu,“ segir dr. Trond Bratlid, for-
stöðumaður svefnrannsókna-
stöðvarinnar. „Þeir, sem hér eru
bornir og barnfæddir, þjást ekki
síður af miðsvetrarsvefnleysinu
en þeir, sem flust hafa hingað frá
Suður-Noregi.“
Það er ekki aðeins svefnleysið,
sem hrjáir fólkið, heldur er það
líka fullt af sleni á daginn og at-
huganir leiða í Ijós, að jafnvel
þegar það sefur dýpstum svefni
er það mjög óvært. Konur þjást
fremur af þessu en karlmenn og
ungt fólk frekar en þeir, sem mið-
aldra eru eða eldri. Oft virðist
einnig sem miðsvetrarsvefnleysið
leggist í ættir og virðist þá engu
máli skipta hvort fólk á ættir sín-
ar að rekja til norðurhjarans eða
suðrænni slóða.
„Miðsvetrarsvefnleysið kom yf-
ir mig eins og þjófur á nóttu ef
svo má segja þegar ég fluttist til
Tromsö fyrir 40 árum og maran
hefur vitjað mín á hverjum ein-
asta vetri. Ég ligg andvaka fram
undir klukkan fjögur eða fimm á
morgnana og örvæntingarfullur
kvíðinn eykst með hverjum tím-
anum, sem líður, af því að ég veit,
að brátt þarf ég að fara á fætur
og koma mér í vinnuna," segir
Marit Ostensen, 64 ára gamall
sjálfboðaliði í tilraunum Bratlids.
Melatonin-skortur
Dr. Trond Bratlid og sam-
starfsmaður hans, Thormar Han-
sen, telja að það, sem valdi
miðsvetrarsvefnleysinu sé skort-
ur á hvata eða hormóni, sem heit-
ir melatonin og verður til í heila-
köngli. Áður var talið, að melat-
onin væri eitt af náttúrulegum
svefnlyfjum líkamans, en svo
mun ekki vera. Það hefur hins
vegar róandi áhrif, ekki ósvipuð
valíum. Framleiðsla þess fer eftir
Ijósmagninu, sem augað nemur,
vex jafnt og þétt yfir daginn og er
í hámarki milli miðnættis og
óttu. Melatonin stjórnar við-
brögðum líkamans við álagi og
breytilegum aðstæðum og auð-
veldar honum að slaka á og sofna.
Komið hefur í ljós, að þeir, sem
þjást af miðsvetrarsvefnleysi,
hafa á kvöldin minna melatonin
Bratlid og Hansen við tilrauna-
störf á rannsóknarstofunni.
en eðlilegt er og það getur valdið
því, að eðlileg hrynjandi lík-
amsstarfseminnar fer úr skorð-
um.
Tilbúið ljós hefur áhrif á mela-
toninframleiðslu í dýrum en
menn þurfa sinn birtuskammt
daglega. Að sumarlagi er hann
um 2500 lux (Ijósmagnseining) en
á veturna fyrir norðan heim-
skaustbaug aðeins um 500 lux. Til
samanburðar má nefna, að þótt
rafljósin séu björt á heimilunum
fer Ijósmagn þeirra sjaldan yfir
300 lux. Ein tilraun þeirra
Bratlids og Hansens var þannig,
að þeir böðuðu nokkra svefnleys-
issjúklinga í Ijósi álíka sterku og
dagsbirtan í 30 mínútur daglega í
fimm daga og gættu þess sér-
staklega, að litróf ljóssins væri
allt frá útfjólubláu til innrauðs
ljóss. Læknuðust þeir þá að
mestu af svefnleysinu og mela-
toninframleiðslan jókst.
Líf og fjör en lítill svefn
Til þessa hefur vísindamönnum
ekki tekist að finna neitt ráð við
miðsvetrarsvefnleysinu, sem tek-
ur svefnpillum fram. íbúarnir í
Tromsö hafa hins vegar sínar að-
ferðir við að auðvelda sér and-
vökunæturnar. Þar í bæ stendur
næturlífið með miklum blóma á
veturna og hægt að velja á milli
margra veitingahúsa, flóðlýstra
skíðabrauta og næturklúbba með
nöfnum, sem minna á suðrænar
sólarstrendur.
„Heimskautsnóttin er yndisleg-
ur tími. Myrkur úti en hlýtt og
bjart inni,“ segir Bibbi Vikan,
einn svefnleysissjúklinganna,
hjúkrunarkona, sem fluttist til
Tromsö fyrir fjórum árum. Með
vorinu ætlar Bibbi þó að setjast
aftur að í Suður-Noregi þar sem
henni verður þó svefnsamt á vetr-
arnóttunum.
— SS (Heimild: Time.)