Morgunblaðið - 28.03.1985, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
Slitlag — 200 bfla umferð:
Sparar árlega
15—20 % af
kostnaði
— sagði Matthías Bjarnason samgönguráðherra
Matthías Bjamason samgöngu-
riðherra nuelti í fyrradag fyrir Vega-
áctlun 1985—1988 í Sameinuóu
þingi. Þaó kom fram í máli ráóherr-
ans aó meó þessari áætlun vaeri
stefnt aó því aó ná markmiðum, sett-
um í langtímaáætlun í vegageró, að
verja 2^—2,4% af vergri þjóóar-
framleióslu til vegamála. í ár, 1985,
gengu 1,9% vergrar þjóóarfram-
leióslu til vegamála en 2,4% þrjú þar
næstu árin. Þrátt fyrir efnahagslegar
þrengingar, sem þjóóin hefur gengió
I gegn um, „hefur til þessa verió
hægt aó mestu að framkvæma í ný-
byggingum þaó, sem í upphafi var
áætlað".
Ráðherra tíundaði nokkrar töl-
ur, sem hann taldi sanna arðsemi
vegaframkvæmda, ekki sízt var-
anlegrar vegagerðar, þ.e. upp-
byggðra vega með varanlegu slit-
lagi:
• Fólksbifreið, sem fer af malar-
vegi yfir á bundið slitlag, sparar
15% í eldsneyti, 38% í sliti á bíl og
33% í viðhaldskostnaði, þegar til
lengri tíma er litið. Hjá vörubif-
reið er sparnaðurinn enn meiri.
• Arðsemi fjárfestingar í slitlagi
á vegum með 200 bíla umferð á
dag er 15—25%, með 500 bíla um-
ferð 36—60% og með 750 bíla á
dag 50—90%. Efri og neðri mörk
arðsemi miðast við það, hvort far-
ið er af vondum eða góðum mal-
arvegi yfir á bundið slitlag.
• Á sl. ári vóru 163 km vega lagðir
bundnu slitlagi. Með þeirri um-
ferð, sem á þeim hefur mælzt,
sparast árlega 40—70 m.kr., sem
eru 15—30% af kostnaði við slit-
lagslögn. Árlegur sparnaður í eld-
neytisnotkun er 400—750 þúsund
lítrar, í afskriftum 25—50 bílar, í
varahlutum 7—15 bílar og í við-
gerðum 10—20 þúsund klukku-
stundir.
• Áætlað er að árlegur akstur á
vegakerfi landsins sé tæplega 500
milljónir kílómetra. Af þeim eru
220 m.km. á malarslitlagi.
Ráðherra sagði enga goðgá að
taka erlend lán til vegagerðar,
sem félli undir mesta arðsemi.
Góður vegur með 300 bíla umferð
á dag sparaði árlega 15—30% af
útlögðum erlendum kostnaði við
gerð hans.
STI TTAR MNGFRÉTTIR
200 iðnaðarmenn
frá Akureyri starf-
andi á Stór-Reykja-
víkursvæðinu
Atvinnuástand á
Norðausturlandi
Kolbrún Jónsdóttir (BJ) og
Steingrímur J. Sigfússon (Abl.)
flytja tillögu til þingsályktunar,
sem felur það í sér verði hún sam-
þykkt, að ríkisstjórnin vinni til-
íögur til úrbóta I atvinnumálum
Norðausturlands. Taka skal tillit
til: 1) hvern veg koma megi í veg
fyrir „frekari brottflutning fólks
og atvinnuleysi á svæðinu", 2)
samvinnu við atvinnumálanefndir
í kjördæminu, 3) fjármögnun at-
vinnuppbyggingar með stofnun
þróunarsjóða í stjórn heimaaðila,
4) uppbyggingu iðngarða.
í greinargerð segir að um 200
iðnaðarmenn frá Akureyri starfi
nú á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Þjóðleikhúsið
og landsbyggðin
Karvel Pálmason (A) spyr
menntamálaráðherra, hve margar
leiksýningar Þjóðleikhúsið hafi
fært upp á Vestfjörðum, Norður-
landi og Austurlandi sl. fimm ár;
og hve marga leikstjóra eða leik-
ara Þjóðleikhúsið hafi látið leik-
félögum úti á landi í té á sama
tíma.
Niðurgreiðslur til kart-
öfluverksmiðja
Eiður Guðnason (A) spyr land-
búnaðarráðherra: 1) hve hárri
upphæð munu niðurgreiðslur eða
framleiðslustyrkir til kartöflu-
verksmiðja nema á þessu ári?, 2)
hvernig var upphæðin ákveðin og
við hvað miðast hún?, 3) er þess að
vænta að verð á unnum kartöflum
til neytenda lækki sem nemur
niðurgreiðslunni eða framleiðslu-
styrkjunum?
Hve margir luku vél-
stjóranámi?
Skúli Alexandersson (Abl.) spyr
menntamálaráðherra, hve margir
nemar hafi verið innritaðir til vél-
stjóranáms 1976—1978 og hve
margir hafi lokið námi. Hann spyr
einnig sams konar spurningar
varðandi vélgæzlunám. Óskað er
skriflegra svara, sundurliðaðra
eftir skólum.
Morgunblaðiö/Friöþjófur
Maríanna Friójónsdóttir
Réttarstaða fólks f óvígðri sambúð:
10% sambúðar óvígð
Kafli úr jómfrúræðu Maríönnu Friðjónsdóttur
Maríanna Friðjónsdóttir (A),
sem situr nú á þingi í fjarveru Jóns
Raldvins Hannibalssonar, flutti
sína fyrstu þingræðu í fyrradag.
Hún spuróist fyrir um, hvaó liði
störfum nefndar, sem gera átti til-
lögur um hvernig réttindum fólks í
óvígóri sambúó yrói bezt fyrir kom-
ið, sérstaklega með tilliti til eigna
og erfóaréttar. Orðrétt sagði Marí-
anna m.a.:
„Nú eru rúmlega fjögur ár lið-
in frá því að þessi þál.tillaga sem
Alþýðufl. lagði fram, var sam-
þykkt hér í þingsölum og enn
bólar ekkert á niðurstöðum
nefndarinnar. í óvígðri sambúð
ríkir í reynd margháttuð réttar-
óvissa, ekki sízt með tilliti til
eigna- og erfðaréttar. Hjóna-
bandið er hins vegar sem stofnun
verndað af löggjafanum á marg-
an hátt. Um það gilda ítarleg lög,
t.d. um stofnun og slit hjúskapar,
lög um réttindi og skyldur hjóna
svo og sérstök ákvæði í erfðalög-
um, svo að nokkur atriði séu
nefnd. Óvígð sambúð nýtur hins
vegar lítillar réttarverndar, jafn-
vel þótt hún sé algengt form á
sambúð karls og konu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofu íslands frá árinu 1983
má telja að um 10% allra þeirra
sem eru í sambúð á annað borð
séu í óvígðri sambúð. En þó er
víst að fjöldinn er enn meiri því
að Hagstofan getur einungis
stuðzt við upplýsingar sem fólk
gefur ef það tilkynnir óvígða
sambúð, eða ef það hefur sameig-
inlegt lögheimili og barn á fram-
færi. Það er óviðunandi hve mikil
óvissa ríkir um réttarstöðu fólks
í óvígðri sambúð."
Það er nú oft svo að óvígð sam-
fllMftGI
búð stendur jafnvel áratugum
saman og eignamyndun hefur
orðið veruleg á þeim tíma.
Eignamyndunin er sameiginlegt
framlag beggja sambúðaraöila
ýmist beint eða óbeint. Síðan rísa
upp við sambúðarslit mikil
vandamál, sérstaklega ef aðeins
annar aðilinn er þinglýstur eig-
andi eignanna. Er þá oft farin sú
leið að í stað þess að senda annan
aðilann — í mörgum tilvikum
konuna — slyppa og snauða út á
götuna, þá eru benn dæmd
ráðskonulaun eða sambærileg
þóknun fyrir störf hennar í þágu
heimilisins. En það liggur í aug-
um uppi að ef um mikla eigna-
myndun hefur verið að ræða á
sambúðartímanum getur sú fjár-
hæð verið hverfandi lítil í sam-
anburði við það að um helm-
ingaskipti á eignum væri að
ræða, eins og tíðkast um sam-
búðarsiit hjóna. Einnig má
benda á, að í óvígðri sambúð
skapast engin erfðatengsl milli
sambúðarfólks og því nýtur sá er
lengur lifir ekki erfðaréttar
nema sérstök erfðaskrá hafi ver-
ið gerð. Þeir sem búa í óvígðri
sambúð eiga því ekki gagnkvæm-
an erfðarétt og ekki rétt til að
sitja í óskiptu búi. Erfðaréttinn
verður að tryggja með erfðaskrá
og er ekki víst að fólk gæti að því
að gera þær ráðstafanir í tíma,
jafnvel þótt fullur vilji hafi verið
fyrir slíku.
Af því sem hér hefur verið rak-
ið má ljóst vera að brýnt er að
ekki dragist úr hömlu að leggja
fram tillögur um úrbætur á því
hvernig réttindum og skyldum í
óvígðri sambúð verður bezt fyrir
komið. Því spyr ég hæstvirtan
dómsmálaráðberra, hvort hann
hyggist leggja fram á yfirstand-
andi þingi frumvarp sem tryggi
réttarstöðu þessa fólks?"
f síðari ræðu harmaði Marí-
anna að svör ráðherra bentu ekki
til þess að skjótra úrbóta væri að
vænta. Eðlilegt væri að sam-
ræma löggjöf um þetta efni
löggjöf á Norðurlöndum, en nú
liggur fyrir sænska þinginu,
sagði hún, frumvarp til laga um
réttarstöðu fólks í óvígðri sam-
búð.
Menntamálaráðherra:
Fyrirskipa ekki frí
í framhaldsskólum
Nota mátti genginn tíma til verkefnisins
Ragnhildur Helgadóttir menntamálariðherra kvað ekki ástæðu til að
ráðuneyti hennar fyrirskipaði frí í framhaldsskólum, eftir þriggja vikna hlé á
kennslu, til að sinna söfnunarverkefni, enda nauósynlegt aó nýta hvern dag
sem eftir væri skólaárs til skólastarfs og undirbúnings nemenda undir
vorpróf. í þessari afstöóu felst enginn dómur um verkefnið sjálft, söfnun í
þágu barna í S-Afríku, sem vel mátti sinna meðan skólastarf var stöðvað.
Raunar féll fyrri tímasetning þessa verkefnis innan þessara 3ja vikna, sem
skólarnir störfuðu ekki eóa takmarkað, og það vinnulag, aó sinna því ekki
þá, vekur spurningar.
Ráðherra kvað fjarvistir nem- starfshlé, komi ekki til greina.
enda til að sinna ákveðnum Það var Steingrímur J. Sig-
verkefnum geta verið samnings- fússon (Abl.) sem veittist að
atriði skólastjóra og viðkomandi ráðherranum utan dagskrár í
nemenda, hér eftir sem hingað neðri deild Alþingis í gær í til-
til, en krafa um að ráðuneytið efni framangreindrar afstöðu
fyrirskipi frídag, strax og skóla- hans.
starf hefst eftir þriggja vikna