Morgunblaðið - 28.03.1985, Page 46
46
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
t Maöurinn minn og faöir, THEODÓR FRIÐRIKSSON (Tjái), •jómaöur, Hraunbæ 100, lést 26. mars á Hrafnistu. Jaröarförin veröur auglýst siöar. Helga Þorsteinsdóttir, Adolf V. Theodórsson.
t Maöurinn minn, PÁLL SIGURGEIRSSON, bifvélavirki, Efstasundi 8, andaöist i Landakotsspitala þriöjudaginn 26. mars. Ingibjörg Ólafsdóttir.
t Móöir okkar og tengdamóöir, GUÐRÚN PETRÍNA KRISTJÁNSDÓTTIR fré Höfn, andaöist á eltiheimilinu á Þingeyri 26. mars. Dastur og tengdasynir.
t Eiginmaöur minn, faöir okkar, fósturfaöir, tengdafaöir og afi, JÚLÍUS ÁRNASON fré Kolbeinsvik é Ströndum, Brekkustíg 14, Sandgeröi, sem lést 24. þ.m. veröur jarösunginn frá Hvalsneskirkju, laugar- daginn 30. mars. kl. 14.00. Steinunn Guómundsdóttir, Birgir Júlfusson, Agnes Svavarsdóttir, Halla Júliusdóttir, Arný Viggósdóttir, Siguröur Jóhannsson, Andrea Andrésdóttir, Haraldur Jóhannesson og barnabörn.
t Útför móöur okkar og tengdamóöur, RANNVEIGAR GUDMUNDSDÓTTUR, Laufósvegi 38, sem andaöist föstudaginn 22. mars sl., fer fram frá Dómkírkjunni föstudaginn 29. mars kl. 10.30 f.h. Guömundur Sigurjónsson, Ellen Bjarnadóttir, Sigriöur Sigurjónsdóttir, Friörik Guómundsson, Katrin Sigurjónsdóttir, Jón Magnússon, Kjartan Sigurjónsson, Bergljót Jónsdóttir, Unnur Bjarnadóttir.
t Útför konunnar minnar, VALGERDAR HANNESDÓTTUR, Dalbraut 21, er lóst 13. mars hefur fariö fram i kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Þökkum innilega auösýnda samúö. Sérstakar þakkir til starfsfólks Borgarspitalans fyrir frábæra aö- hlynningu. Fyrir mina hönd, barna okkar, tengdabarna og barnabarna. Guölaugur Guömundsson.
t HELGI KRISTJÁNSSON, vörubflstjóri Stórholti 26, Reykjavfk, veröur jarösunginn frá Frikirkjunni föstudginn 29. mars. kl. 13.30. Ragna Ingimundardóttir, Ingimundur Helgason, Svava Björgólfsdóttir, Davfö Helgason, Auöur Ragnarsdóttir, Þóröur Helgason, Þórunn Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
t Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, HALLGRÍMUR GUÐMUNDSSON, Hrafnistu, sem lést 19. mars í Landspítalanum, veröur jarösunginn frá Frikirkjunni i Reykjavík föstudaginn 29. mars nk. kl. 15.00. Fyrir hönd aöstandenda Óskar Hallgrfmsson, Rakel Sæmundsdóttir, Kristfn Haltgrfmsdóttir, Hilmar Vilhjélmsson.
Fjóla Eyfjörð Gunn-
ardóttir — Minning
Frænka okkar, Fjóla Eyfjörð
Gunnarsdóttir, lést í Landspítal-
anum Í9. mars sl. aðeins 12 ára að
aldri eftir \ xk árs baráttu við erf-
iðan sjúkdóm sem ber svo marga
ofurliði. Þrátt fyrir miklar fram-
farir á sviði læknavísinda, eru
ekki ennþá fundin ráð til þess að
stemma stigu við þeim sjúkdómi
nema að litlu leyti. Hann fellir
marga, jafnt unga sem aldna. Við
dauðanum mátti því búast. En
samt ber hinn óboðna gest óvænt
að garði fyrir þá sem misst hafa.
Foreldrar Fjólu voru Þuríður
Guðmundsdóttir og Gunnar Ást-
valdsson, Fjóla var elst fjögurra
barna þeirra. Fjóla frænka bjó yf-
ir öllum þeim kostum sem prýða
ungt fólk. Hún var skemmtileg í
umgengni, glöð og atorkusöm.
Aðeins 7 ára uppgötvaðist
sjúkdómurinn og var hún flutt
fársjúk á spítala og síðan hefur
hún staðið í stöðugri baráttu. Hún
bar veikindi sín ótrúlega vel. Er
hún var spurð um líðan sína svar-
aði hún ávallt: „Það er ekkert að
mér, mér líður vel,“ og gladdi hún
okkur í hvert skipti er við ræddum
við hana. Sýndi þetta glöggt æðru-
leysi hennar.
Fjóla fékk sér oft göngutúr til
langömmu sinnar, Fridu, sem bjó
stutt frá henni og að vanda spjöll-
uðu þær saman yfir tebolla. Fyrir
rúmu ári lést langamma hennar
og oftar en einu sinni hafði Fjóla
orð á því að hún væri viss um að
langamma biði sín með tebolla
handa sér.
Elsku Þurý, Gunni, Turid Rós,
Gunnar Örn og Kári litli og aðrir
aðstandendur, við vottum ykkur
innilega samúð okkar.
Fríöa, Solla og Sigga
Vertu sæl, vor litla, hvíta lilja,
lögð í jörð með himnaföður vilja,
. leyst frá lífi nauða:
ljúf og björt í dauða
lést þú eftir litla rúmið auða.
Því til hans, sem börnin ungu blessar,
biðjum hann að lesa rúnir þessar,
heyrum, hvað hann kenndi:
Hér þótt lífið endi,
rís það upp í Drottins dýrðarhendi.
Vertu sæl, vor litla ljúfan blíða,
lof sé Guði, búin ertu að stríða.
Upp til sælu sala
saklaust barn án dvala.
Lærðu ung við engla Guðs að tala.
(M. Joch.)
Amma og afi
Ég þakka Fjólu minni fyrir þær
stundir sem við áttum saman og
færi henni mína hinstu kveðju
með sálmi eftir Hallgrím Péturs-
son:
t
Útför
SIGRÍDAR ÁRNADÓTTUR STEFFENSEN
fer fram á morgun, föstudaginn 29. mars, kl. 16.30 i Fossvogskirkju.
Eiginmaöur og börn hinnar látnu,
Björn Steffensen,
Theódóra,
Sigþrúöur,
Helga og
Björn.
t
Bálför
JÓNS ÞÓRARINS HALLDÓRSSONAR
frá Bolungarvfk,
Drápuhlfö 6,
Reykjavfk,
sem andaöist 22. mars sl., fer fram frá Fossvogskapellu 29. mars
kl. 15.00.
Guömunda Oddsdóttir,
Halldór G. Jónsson, Svava Svavarsdóttír,
Svavar Halldórsson, Sigrföur D. Sverrisdóttir,
Ásdls G. Halldórsdóttir, Sigurgeir Arnþórsson
og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma,
SIGRÚN GUDMUNDSDÓTTIR,
Borgarheiöi 20,
Hveragaröi,
áöur til heimilis aö Hlföartungu, Ólfusi,
veröur jarösungin frá Langholtskirkju föstudaginn
29. mars kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á liknarstofnanir.
Siguröur Jónsson,
Magnea G. Siguröardóttir,
Jón G. Sigurösson, Kolbrún Jónsdóttir
Aðalheiöur Siguröardóttir, Sigfús Jóhannesson
og barnabörn.
t
Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og jaröarför,
ELÍSABETAR EINARSDÓTTUR
frá Holti.
Sérstakar þakkir færum viö hreppsnefnd Mosvallahrepps og Kven-
félagi Mosvallahrepps. Ennfremur þökkum viö af alhug öllu starfs-
fóiki Sólvangs fyrir einstaka umönnun.
Jón Ólafsson frá Holtí,
Ragnhildur Jónsdóttir, Skúli Sigurösson,
Sigríöur Jónsdóttir,
Guörún Jónsdóttir, Hjalti Þóröarson,
Friörik Páll Jónsson, Ragnheióur Guömundsdóttir,
Einhildur Jónsdóttir, Heiöar Sigurósson.
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga’ og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unun og eilif sæla
er þín hjá lambsins stól.
Dóttir, í dýrðar hendi
Drottins, mín, sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfriði
ætíð sæl lifðu nú.
Alda Tóta frænka
Fyrstu kynni okkar af Fjólu
voru fyrir sjö árum þegar við
fluttum í nýbyggt hús við Flyðru-
granda. Strax við komuna heilsaði
okkur þessi litla ljóshærða stelpa.
Ekki leið á löngu þar til hún kom í
heimsókn. Hún var félagslynd og
athafnasöm. Oft kíkti hún rétt að-
eins inn fyrir dyrnar til þess að að
segja hæ.
En eftir að hún veiktist urðu
þessar stundir lengri og þá komu í
ljós hinar óvenjulegu gáfur henn-
ar og þroski. Það kom okkur oft á
óvart hvað hún stóð okkur framar
á sumum sviðum, þrátt fyrir mik-
inn aldursmun.
Hún átti við erfiðan sjúkdóm að
stríða í nær fimm ár en henni leið
alltaf vel að eigin sögn. Sama
hversu veik hún var þá bar hún
alltaf mikla umhyggju fyrir fjöl-
skyldu og vinum.
Trú hennar hefur eflaust átt
ríkan þátt í jákvæðu lífsviðhorfi
hennar.
Nú er Fjóla farin frá okkur en
við munum alltaf minnast hennar.
Við vottum foreldrum Fjólu,
Þuríði og Gunnari, systkinum og
öðrum ástvinum dýpstu samúð.
Bcta og María
Nú, þegar við kveðjum Fjólu
hinsta sinni, minnumst við hennar
full aðdáunar á því einstaka þreki
sem hún sýndi í baráttunni við
þann sjúkdóm er að lokum batt
endi á jarðvist hennar.
Sjúkdómsstríðið var langt og
erfitt en alltaf var Fjóla jafn glað-
lynd og hýr. Glaðværð hennar
hafði góð áhrif á okkur og létti
okkur störfin. Fjóla var einstök
stúlka. Einstaklega ljúf og góð
enda elskuð af öllum sem kynntust
henni. Við kveðjum hana með
miklum söknuði um leið og við
þökkum henni samfylgdina.
Foreldrum hennar, sem aldrei
æðruðust í erfiðleikunum, systkin-
um, ættingjum og vinum vottum
við dýpstu samúð.
Björn kennari og 6. bekkur D
Melaskóla.
Því til hans, sem börnin ungu blessar.
Biðjum hann að lesa rúnir þessar, heyrum,
hvað hann kenndi: Hér þótt lifið endi,
rís það upp í Drottins dýrðarhendi.
(Matthias Jochumsson)
Þakkið Drottni, því hann er góð-
ur, því að miskunn hans varir að
eilífu. Já, við þökkum Drottni því
hann leysti hana frá þjáningum og
við þökkum samfylgdina við Fjólu
litlu, sem við nú kveðjum aðeins
tólf ára að aldri. En þó að árin
hafi aðeins orðið tólf markar sam-
fylgd hennnar djúp spor í huga