Morgunblaðið - 21.04.1985, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 21.04.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. APRÍL 1985 B 3 Ein af mörgum njósnamyndum Þjóöverja frá Austfjördum. Mynd- in sýnir Reyðarfjöró og Eskifjörö og er tekin með 200 miliimetra linsu. um, og jafnframt elstu lóðrétt teknu loftmyndir sem nú eru þekktar af nær öllu því landsvæði sem þær sýna. Myndirnar eru því ómetanleg heimild um ástand landsins, umsvif herliðsins og áhugaefni þýska hersins í miðri styrjöldinni. Ýmsir kynnu að furða sig á því hvers vegna þessar myndir hafa lent hjá okkur og til hvers við hyggjumst nota þær. Og það er eðlilegt að ég svari slíkum vanga- veltum með því að nefna þau helstu verkefni sem gamlar loft- myndir eru notaðar við og tengj- ast starfsemi okkar. Þar eru kannski efst á blaði ýmis land- fræðileg mál, eins og athuganir á landbroti, uppblæstri, stærð jökla, gróðureyðingu og útbreiðslu hrauna. Einnig má nefna landa- merkjamál og rannsóknir á byggð- aþróun og framkvæmdum. Yfir- borð landsins tekur stöðugum breytingum af völdum manna og náttúru og að sama skapi eykst gildi loftmynda eftir því sem lengra líður frá töku þeirra. Arið 1980 var hafist handa hjá Landmælingum Islands um gerð á nýju heildarskráningarkerfi fyrir loftmyndir af íslandi, en stofnun- in átti þá orðið um 100 þúsund loftmynda safn frá hinum ýmsu tímum. En að frumkvæði Ágústs Guðmundssonar, deildarstjóra fjarhönnunardeildar, var jafn- framt ákveðið að leita upplýsinga um eldri myndir, sem gætu leynst í söfnum erlendis, og þessi sending Bretanna er niðurstaðan af þeirri viðleitni. Við höfum notið aðstoð- ar ýmissa aðila, bæði hér heima og erlendis, við áframhaldandi öflun upplýsinga og vil ég þar sérstak- lega nefna ungan þýskan jarð- fræðing, Ulrich Munzer að nafni. En við vitum að fleiri myndir eru til í erlendum söfnum, og telj- um bráðnauðsynlegt að halda áfram markvissri upplýsingasöfn- un á þessu sviði. Ég lít svo á að gamlar loftmyndir séu meðal merkustu gagna um landið og því sé ekkert síður mikilvægt að þjóð- in eignist þær sem flestar á sama hátt og handritin okkar fornu. Að því verðum við að vinna,“ sagði Þorvaldur Bragason. — GPA Þýsku njósnamyndimar: Ómetanleg heimild um ástand landsins og umsvif herliðsins — segir Þorvaldur Bragason hjá fjarkönnun- ardeild, en hann hefur unnið að skráningu og flokkun þýsku njósnamyndanna Loftmyndatökudeild þýska flughersins, STABIA í Luftflotte 5, hafði bæki- stöövar í Noregi á stríðsárunum og stundaði þaöan könnunarflug og loft- myndatöku, meðal annars á íslandi í þvi skyni að fylgjast með hernaðarupp- byggingu og ferðum skipalesta við landið. Talið er að hinar rösklega 2000 loftmyndir, sem Bretar lánuðu fjarkönnunardeild Landmælinga fslands, séu teknar á vegum flugsveitar innan STABIA, sem hafði aðsetur í Stavanger. Álitið er að njósnaflugvélarnar hafi verið af gerðinni Junkers 88 og að í hverrri fiugvél hafi verið tvær Reihenbildner-ljósmyndavélar með mismun- andi linsulengd, sem „skutu" samtímis á íslenskt landsvæði. Myndirnar eru teknar á 12 dögum, á tímabilinu frá 2. maí til 15. október 1942, en líkur benda til að STABIA hafi tekið hér mun fieiri myndir á þessu ári, eins og Þorvaldur Bragason landfræðingur, og starfsmaður Fjarkönnunardeildar mun útskýra hér á eftir. Þorvaldur hefur haft veg og vanda af því að skrá myndirnar og fiokka og lauk við skýrslu um verkið í fyrravor. Glataðar filmur „Þjóðverjar skráðu á filmurnar raðnúmer í hlaupandi röð frá ársbyrjun til ársloka, en fyrstu myndirnar sem við höfum, það er að segja frá 2. maí, hafa raðnúm- erið 40, þær næstu, sem eru teknar þremur mánuðum síðar, eru núm- er 62, en eftir það fylgja númerin nokkurn veginn myndatökudögum upp í 87, síðasta daginn, 15. októ- ber. Við sjáum að hér vantar mik- ið inn í, og samkvæmt heimildum er því miður líklegt að stór hluti filmanna sé glataður." Þorvaldur benti jafnframt á, að í skýrslum sem hernámsliðið lét gera á stríðsárunum eru m.a. heimildir um óþekktar flugvélar sem sáust við ísland, og þar kemur fram að á 100 dögum árið 1942 er getið um yfir 200 óþekktar flugvél- ar við landið. Rennir það einnig stoðum undir þá kenningu að Þjóðverjar hafi tekið mun fleiri myndir. Þorvaldur hefur borið upplýs- ingar úr skýrslunum saman við myndatökutíma og staðsetningu þýsku loftmyndanna, og fundið samræmi þar á milli sex daga af þeim tólf, sem myndirnar eru teknar á. í hin sex skiptin er einskis getið í skýrslum hernáms- liðsins, og svo virðist sem flugvél- anna hafi ekki orðið vart í þeim tilfellum. Upplýsingar á myndunum Á hverri mynd eru upplýsingar um númer myndavélar, mynda- númer og brennivídd linsunnar sem notuð hefur verið, auk þess klukka sem sýnir nákvæman myndatökutíma, og dagsetning hefur síðar verið skrifuð inn á. Eins og áður sagði voru yfirleitt teknar myndir á tvær myndavélar samtímis. Alla 12 dagana voru teknar myndir með gleiðri linsu, um 200 millimetra, og að auki voru í sex daga notaðar mjög lang- ar linsur, 750 millimetra, og fjóra daga myndavélar með linsulengd um 500 millimetra. Tvo daga var aðeins tekið á eina myndavél. Að- eins ein filma hefur verið tekin á hverja myndavél í ferð. Samtals gera þetta 22 filmur og á þeim hafa hinar 2.062 myndir verið, eða Stækkuð mynd af herstöðinni í Hvítanesi. sí^sllllli ur Þorvaldur unnið nákvæma lýs- ingu á flugleið vélanna dagana tólf. Hann telur líklegt að flugvél- arnar hafi komið inn yfir landið á strjálbýlum svæðum suðaustan- lands, flogið inn yfir hálendið og síðan farið ýmist austur eða vest- ur eftir því í hvorum landshlutan- um skilyrði til myndatöku voru betri. í tvo daga af tólf voru tekn- ar myndir bæði af Austurlandi og Suðvesturlandi sama daginn, en annars var átta daga myndað yfir Suðvesturlandi, en sex daga yfir Austurlandi. Sex sinnum af átta hefur myndatakan á Suðvestur- landi hafist austur af Hvalfirði, en í þrjú skipti af sex var flogið úr vestri út yfir Austfirði. Þáttur Landmælinga íslands „Það er mikill fengur að þessum myndum, bæði í landfræðilegu og sagnfræðilegu tilliti," sagði Þor- valdur. „Þetta er stærsti flokkur njósnamynda af Islandi frá síðari heimsstyrjöldinni sem vitað er Þorvaldur Bragason landfræðingur að meðaltali innan við 100 nýtan- legar myndir á filmu. Frá hálendi á haf út Út frá þessum upplýsingum hef- Þjóðverjar höfðu að vonum mikinn áhuga 4 skipalestum sem höfðu viðdvöl í Hvalfirði. Á þessari yfirlitsmynd af innri hluta fjarðarins hafa þeir merkt við 18 skip og rammað sérstaklega af herstöðina í HvítanesL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.