Morgunblaðið - 21.04.1985, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.04.1985, Blaðsíða 26
26 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. APRÍL 1985 fclk í fréttum Hinrik 8. i sveimi? Adeins hugmynd teiknara af fyrirbærinu ... Karl prins leitar að draugum í Buckingham-höll Fregnir herma, að Karl Bretaprins sé búinn að fá óslökkvandi áhuga á draugum og að hann sitji oft að nóttu til í herbergjum í höllinni vopnaður segulbandi og myndavél, bíðandi eftir að draugarnir birtist. Sagt er að Karl hafi séð vofu Hinriks 8 og vænti þess að hitta fyrir frænda sinn, Mountbatten jarl, sem hryðjuverkamenn myrtu fyrir nokkrum árum. Til þessa hefur Karli hins vegar ekki tek- ist að ná öndunum á filmu. Þessar fregnir eru hafðar eftir ónafngreindum vini þeirra Karls og Díönu og vinur þessi fullyrðir að Díönu sé ekkert um drauga- trú Karls gefið. Eitt sinn er Karl sagður hafa stungið upp á því að haldinn yrði miðilsfundur þar sem þess yrði freistað að ná sambandi við Mountbatten, en Karl á oft að hafa sagt við Diönu að hann finni sterklega fyrir nærveru jarlsins. Karli hefur vegnað betur í viðskiptum við aðra drauga hall- arinnar, þannig sá hann Hinrik 8. greinilega eina nóttina, kóng- urinn gamli gekk til og frá fast við Karl i svo sem tvær mínútur áður en hann leystist upp i gufu og hvarf. Draugsi stundi þungan og náði Karl stununum á segul- band. í september í haust komst Karl svo aftur í tæri við aftur- göngu og taldi vist að þar hefði verið á ferðinni Catherine Ho- ward, sem Hinrik 8. lét háls- höggva. Fjölskylduvinurinn sem Karl með Mountbatten, frænda sínum, skömmu iður en sá síðar- nefndi var myrtur af hryðjuverka- mönnum. Díana er sögð lítt hrifin af drauga- áhuga Karls... fyrr var greint frá, segir Karl hafa lýst Catherine fyrir Diönu sem „afar fallegri síðhærðri konu“ og var hún svo raunveru- leg að sjá að hann yrti á hana án þess að átta sig á því að þar færi draugur. Catherine leystist síð- an upp og hvarf eftir nokkur andartök, en Karl var ekki nógu snöggur að munda myndavélina. Ekki eru allir hrifnir af draugaáhuganum o*, höfum við þegar tilgreint Diönu, eiginkonu Karls. í höllinni eru ýmsir, sem telja slíkt ekki sæmandi verð- andi kóngi og hafa þar af leið- andi áhyggjur. Karl er hins veg- ar á öðru máli og segir að það sé afleitt að fólk geti ekki farið opinberlega með skoðanir sínar af ótta við að vera álitið geðveikt og það sé ekkert óheilbrigt við að trúa á drauga og líf eftir dauð- ann. Miðlar hafa varað Karl við því að kafa of djúpt, sérstaklega að fara varlega með „andaglas- ið“ sem Karl er sagður hafa reynt öðru hvoru í samvinnu við Filippus prins. Einn slíkur, Tom Corbett, lagði áherslu að illir andar næðu oft tökum á þeim sem stunduðu andaglas og kynnu ekki með það að fara. Væri oft erfitt að glíma við slíka anda og ekki á færi annarra en kunnáttumanna. Þær kalla ekki allt ömmu sína Bandarísku rokkdrottningarn- ar eiga vaxandi vinsældum óg velgengni að fagna, við greind- um aðeins frá Pat Benatar í blað- inu á fimmtudaginn, en þó þær hafi ekki verið eins lengi í sviðs- ljósinu, þá verður ekki annað sagt en að þær Madonna og Cyndi Lauper hafi staðið fyrir sínu. Þessar stúlkur eru ekki lýsandi dæmi um hina undirokuðu banda- rísku söngkonu fyrir áratug, er óprúttnir umboðsmenn höfðu þær undir hæl af því að þær máttu sín minna en karlarnir og skorti sjálfstraust. Þær hafa því ekki að- eins komið sjálfum sér áfram, heldur rutt brautina fyrir nýjum og djörfum söngkonum. Auðvitað mætti nefna fleiri, Tinu Turner, sem hefur lifað báða tímana, App- oloniu Kotero, Litu Ford og fleiri. En ef Tina og Pat eru frátaldar, eru Cyndi og Madonna trúlega þekktustu nöfnin. Þessar stúlkur semja sína eigin tónlist, haga sér eins og þeim sýnist, ráða sér sjálf- ar, klæða sig eins og þeim hentar og svo framvegis. Við skulum vitna aðeins í stöllurnar tvær, ungfrú Lauper og ungfrú Ciccone (Madonna). Ungfrú Lauper fær orðið fyrst: „Ég er eins og ruslahaugur, ég veit það vel, það ægir öllu saman í fatatísku minni og ekkert af því sem þar er að finna getur talist venjulegur fatnaður. En þetta er spaugilegt, hér áður fyrr var ég allt að því grýtt á götum úti vegna útgangsins á mér. Nú fæ ég ekki frið fyrir fólki sem vill fá að vita hvar ég kaupi fötin.“ Aðspurð hvað hún sé gömul segir Cyndi og er ósátt við spurninguna: „Hvað er ég eiginlega, bíll sem menn spyrja hvaða árgerð sé?“ En þó Cyndi vilji ekki svara vita sumir að hún er 32 ára og því með þeim eldri í nýju bylgjunni. Það gekk á ýmsu í uppvextinum hjá Cyndi, ýmislegt þess eðlis að hún kann betur að meta velgengni sína og ríkidæmi í dag. Hún var rekin úr kaþólskum skóla aðeins 5 ára gömul vegna þess að foreldrar hennar skildu. Þá var hún send í klaustur til að nema fræðin af nunnum, en þeim ber hún afar illa söguna. Eftir reynslu sína fullyrð- ir hún, að fjölskyldan, kirkjan og ríkisstjórnir séu þau öfl sem hvað harðast bæla konur. Eftir að hafa gengið fram af nunnunum i því skyni að láta reka sig úr klaustr- inu flutti hún til móður sinnar en þar voru fyrir eldri systir hennar og yngri bróðir. Móðirin vann 14 stunda vinnudag til að halda þeim á floti. Það var á þessum árum sem Cyndi varð þess áskynja að hún hafði fallega söngrödd, eða þegar þær systurnar stóðu yfir upp- Ungfrú Akureyri Um síðustu helgi fór fram fegurðarsamkeppni á Akureyri. Það var Hrafnhildur Hafberg 9em kosin var Ungfrú Akureyri og jafnframt vinsælasta stúlkan í hópnum svo og ljósmyndafyrir- sætan. Dómarar í keppninni vorn fimm talið frá vinstri: Friðþjófur Helgason Ijósm., Sigurður Sigurðsson framkvæmdastjóri Sjallans á Akureyri, Ólafur Laufdaí veitingamaður, Unnur Steinsson og Alice Johannsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.