Morgunblaðið - 21.04.1985, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.04.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. APRÍL 1985 B 21 legra gilda og pólitískrar hugs- unar breyttist og átti eftir að hafa áhrif jafnt á kennara sem nemendur þeirra. Einn kostur- inn við söguna er einmitt hve vel hún speglar þessar breytingar og spennu, sem af þeim hlutust, í lokuðu samfélagi eins og Bam- fylde-skóla. I myndaflokknum eldist Dav- id Powlett-Jones um 18 ár, frá 22 ára aldri til fertugs eða frá einni styrjöld til annarrar. Við fylgjumst með einkalífi Davids og þeim þremur konum, sem áhrif höfðu á hann á þessu tíma- bili og við kynnumst prestinum Algy Herries sem á eftir að hjálpa honum yfir margar tor- færurnar í skólastarfinu. Á meðal vinsælustu verka rit- höfundarins R.F. Delderfields er skáldsagan A Horseman Riding By, en eftir henni hefur BBC einnig gert myndaflokk. Af leik- ritum hans eru kannski Worm’s Eye Wiew og Peace Comes to Packham hvað þekktust. Eins og áður sagði eru leikar- arnir í þáttunum ekki sérlega þekktir hér á landi. Einn þeirra, John Duttine, sem fer með hlut- verk söguhetjunnar, ætti þó að vera íslenskum sjónvarpsáhorf- endum að góðu kunnur frá því bresku þættirnir Aðkomumaður- inn eða The Outsider voru sýndir í sjónvarpinu síðasta sumar. Þeir voru um ungan blaðamann, sem tók að sér að gerast rit- stjóri fyrir litlu bæjarblaði úti á landsbyggðinni. Duttine hefur leikið mikið í sjónvarpi en hann er að líkind- um hvað þekktastur fyrir leik sínn í Til þjónustu reiðubúinn. Fyrir leik sinn í þeim þáttum var hann kosinn Besti sjón- varpsleikari ársins. —ai Okkar hlutverk er að veita þér þjónustu. Hér að neðan kynnistu hvernig við förum að því. Þjónusta. Meðalstór fólksbíll er samansett- ur úr allt að 10.000 hlutum. Það gefur augaleið, að þessir hlutir þurfa mismikið viðhald, t.d. er oftar skipt um kerti en aftursæti. Til þess að fylgjast með eftir- spurn á einstökum varahlutum, notum við tölvu, sem skráir sam- stundis allar breytingar á birgðum, svo sem sölu og innkaup. Tölvan gerir vikulegar pantana- tillögur, sem við förum yfir og samræmum breytilegum þörfum eftir árstíma. Á þennan hátt kapp- kostum við að hafa ávallt fyrir- liggjandi nægilegt magn þeirra varahluta, sem löng reynsla hefur kennt okkur að þörf er fyrir. Ef við eigum ekki varahlutinn, sem þig vantar, pöntum við hann án nokkurs aukakostnaðar fyrir þig- Verð. Við kappkostum að halda vöru- verði í lágmarki án þess að slaka á kröfum um gæði. Til að lækka vöruverð, pöntum við varahluti í miklu magni í einu og flytjum til landsins á sem hag- kvæmastan hátt. Síðan setjum við vörurnar í tollvörugeymslu og af- greiðum þær þaðan með stuttum fyrirvara eftir þörfum hverju sinni. Þannig lækkum við flutnings- kostnað og innkaupsverð vörunnar. Vörugæði. Til að tryggja gæðin, verslum við eingöngu með viðurkenndar vörur með ársábyrgð gagnvart göllum. Afgreiðsla. í varahlutaverslun okkar eru sér- hæfðir afgreiðslumenn ávallt reiðu- búnir til aðstoðar, hvort sem þig vantar varahluti eða upplýsingar viðkomandi viðhaldi bílsins. Landsbyggðin. Ef þú býrð úti á landi, getur þú snúið þér til umboðsmanns okkar í þínu byggðarlagi eða hringt í okkur í síma (91)13450, (91)21240 eða (91) 26349 og við sendum vara- hlutina samdægurs. Okkar markmið er: VÖRUGÆÐI, ÁBYRGÐ og GÓD ÞJÓNUSTA. Sættir þú þig við minna?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.