Morgunblaðið - 21.04.1985, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. APRÍL1985
B 15
, ■ . ,,,. .. .,
Þjónusta
við lands-
byggðina
FYRIRTÆKJUM og einstakling-
um úti á landi stendur nú til boða
að láta Scndibíla hf. útrétta fyrir
sig í Reykjavík. Hægt er að láta
sækja smávöru og stærri hluti
sem þarf að koma á BSÍ, í flug-
fragt eða á einhverja af vöruflutn-
ingamiðstöðvunum.
Viðkomandi þarf að vita verð-
ið á þeim hlut sem kaupa á,
hringir þá í Sendibíla hf. og
lætur í ljós óskir sínar, fær gef-
inn upp áætlaðan kostnað við
akstur sendingarinnar og legg-
ur síðan heildarupphæðina á
reikning Sendibíla hf. með C.
gíróseðli.
Iðnaðarráðherra:
Ætlar að
segja upp
örkusölu-
samningum
við Áburðar-
verksmiðjuna
IÐNAÐARRÁÐHERRA hefur í
hyggju að láta segja upp gildandi
samningum um orkusölu til
Áburðarverksmiðjunnar í Gufu-
nesi, en þetta fyrirtæki nýtur nú
mun hagstæðara verðs á orku en
aðrir stórir orkukaupmenn.
„Það er ekkert vit til í orku-
málum á fslandi," sagði Sverrir
Hermannsson, iðnaðarráðherra,
á fundi Félags ísl. rekstrar-
ráðgjafa á miðvikudagskvöld og
sagði orkumálin erfiðasta mála-
flokkinn sem við væri að glíma í
iðnaðarráðuneytinu eftir
margra ára óstjórn og ofstjórn í
þessum málaflokki.
Sverrir nefndi sem dæmi um
vitleysuna orkusölusamninginn
við Áburðarverksmiðjuna, sem
þyrfti ekki að greiða nema 6,4 til
7,5 mills fyrir rafmagnið meðan
til dæmis Sementsverksmiðja
ríkisins greiddi um 72 mills.
Kvaðst Sverrir ætla að láta
segja upp samningum um orku-
söluna til Áburðarverksmiðj-
unnar.
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Jltagpssilrlitfrifr
ísáll hf.:
Undirbýr álaeldi í Þorlákshöfn
HLUTAFÉLAGIÐ ísáll undirbýr
byggingu og rekstur álaræktar-
stöðvar í Þorlákshöfn. Hönnun
stöðvarinnar er á lokastigi en beð-
ið er eftir leyfi landbúnaðarráðu-
neytisins til innflutnings á glerál
(álaseiðum).
Fimm einstaklingar standa að
ísáli hf., Ragnar Halldórsson,
forstjóri ÍSAL, Rolf Johansen,
stórkaupmaður, Jón Ingvarsson,
forstjóri fsbjarnarins, ólafur
Stephensen, forstjóri sam-
nefndrar auglýsingastofu og
Árni Gunnarsson, fyrrverandi
alþingismaður. Rætt hefur verið
um samvinnu við erlenda aðila
um byggingu stöðvarinnar.
Ragnar Halldórsson sagði í sam-
tali við blaðamann Mbl. að
stefnt væri að því að hefja ála-
eldið í vor. Það færi þó eftir því
hvaða skilyrði landbúnaðarráðu-
neytið setti fyrir leyfi til inn-
flutnings glerálsins varðandi
sóttkví og fleira.
Ragnar sagði að stefnt væri að
byggingu stöðvar sem framleiddi
100 tonn af áli á ári, með mögu-
leikum til stækkunar ef vel
gengi. Állinn yrði fluttur út enda
virtist góður markaður vera
fyrir hann. Stofnkostnaður er
áætlaður um 40 milljónir. Ragn-
ar taldi að eldið væri ábatasamt
eins og málin stæðu í dag.
COROLLA1600
Það þarf hugrekki til að endurhanna bíl sem nýtur
jafn mikilla vinsælda ogToyota Corolla,
- bíl sem í mörg ár hefur verið mest selda
Toyota Corolla 1600 sannar
að enn má bæta það sem best
8
©
I
hefur verið talið. Viðhönnun
hennar hefur þess verið gætt, að
hún hafi til að beraalla þá kosti sem öfluðu eldri gerðum vinsælda, en
aðaláherslan hefur verið lögð á að auka innanrými,draga úr eldsneytis-
eyðslu ogbæta aksturseiginleika. Til þess að ná þessum árangri hefur
Corolla verið búin þverstæðri vél og framhjóladrifi, hjólabil hefur
verið aukið, gólf lækkað, sætum breytt og dregið hefur verið úr loft-
mótstöðu (0.34 Cd á Corolla Liftback).
TOYOTA
Nybyiavegi 8 200Kopavogi S 91-44144