Morgunblaðið - 21.04.1985, Side 16
16 B
MOBGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. APRlL 1985
Skákbækur:
Sjálfsgagnrýni Anatolys
Karpov ristir ekki djúpt
Skák
Margeir Pétursson
Anatoly Karpov:
Learn from your Defeats.
Útg. Batsford 1985.
Er ég frétti af nafni þessarar
bókar og því að hún hefði að
geyma tapskákir Karpovs frá því
hann varð heimsmeistari 1975
hugsaði ég mér gott til glóðar-
innar, því þarna hlyti að vera á
ferðum tímamótarit. Sjálfur
heimsmeistarinn viki sér niður
af stallinum og viðurkenndi mis-
tök sín, orsakir þeirra og afleið-
íngar. Ég bjóst við að þarna
fengist svar við ýmsum spurn-
ingum, svo sem þeim hvers
vegna jafn ægisterkur skákmað-
ur og Karpov þyfti að tapa endr-
um og eins og undir hvaða kring-
umstæðum mest hætta væri á
afleikjum.
Eftir lestur bókarinnar er ég
einna helst á því að hinn af-
kastamikli þýðandi, Bandaríkja-
maðurinn Éric Schiller, hafi
klúðrað nafni bókarinnar í þýð-
ingunni, því eftir innihaldi bók-
arinnar að dæma hefði hún átt
að heita: Hefndin er sæt.
Vissulega eru allar 32 tap-
skákir Karpovs á árunum
1975—1984 í bókinni (nýlega
hafa þrjú töp gegn Kasparov
bæst við), en það er farið yfir
þær á hundavaði, höfundur læt-
ur sér nægja að benda á tapleik
sinn og segir síðan álit sitt á
stöðunni, áður en hann lék af
sér. Það sem heimsmeistarinn
ieggur hins vegar áherzlu á eru
vinningsskákir hans gegn hinum
sömu mönnum og hann tapar
fyrir, og þá skortir hvorki skýr-
ingar né lýsingarorð. Fyrir að-
eins fimm töp hefur Karpov ekki
náð að hefna sín, þau eru gegn
filippeyska stórmeistaranum
Torre og fjórum lítt þekktum
skákmönnum: Azmaparashvili
(Sovétríkjunum), Hartmann
(V-Þýzkalandi), Garcia-Palermo
(Argentínu) og hinum landflótta
Rússa Igor Ivanov.
Tilgangur heimsmeistarans
með bókinni virðist því ekki vera
sá að auðga skákbókmenntirnar,
skákskýringarnar hafa t.d.
margar hverjar birst áður, held-
ur sá að sýna skákheiminum
fram á að hann láti engan eiga
inni hjá sér og hafi getað gert
upp sakirnar við alla sterkustu
stórmeistarana, þó hann hafi
einstöku sinnum orðið að láta í
minni pokann gegn þeim. Það
ber því nokkuð á sjálfshóli í bók-
inni, en það kann að vera slakri
þýðingu að kenna.
Raymond Keene:
An Opening Repertoire For White.
Útg. Batsford 1984.
Þekktasti skákrithöfundur
heims um þessar mundir, enski
stórmeistarinn Raymond Keene,
hefur sent frá sér enn eina bók-
ina. Þrátt fyrir að Keene sé ekki
í hópi öflugustu stórmeistaranna
njóta skrif hans mjög almennrar
viðurkenningar í skákheiminum,
enda nær hann að sameina
skemmtilegan stíl og vandaðar
skýringar. Þá er Keene allra
manna fróðastur um skáksögu
og skákbækur. Nýja bókin ætti
að vera kærkomin þeim skák-
mönnum sem eiga í vandræðum
með byrjanir og eru sífellt slegn-
ir út af laginu vegna þess að þeir
hafa ekki eytt nægilegum tíma í
utanbókarlærdóm. Bók Keene er
skrifuð fyrir þá sem vilja leika 1.
Um Karpov hafa verið ritaðar
óteljandi verðskuldaðar lof-
greinar og því algjör óþarfi fyrir
hann sjálfan að bæta þar um
betur. Aðeins minni háttar
spámenn grípa til sjálfshóls,
þegar þeim finnst lofið skorta.
Karpov segir t.d. um tapskák
sína gegn Timman í Bugojno
1978: „Afleiðingar þessa taps
voru ekki hræðilegar og ég náði
að deila efsta sætinu með Boris
Spassky, en ég ætla ekki að af-
saka mig. Timman tefldi skákina
frábærlega vel. Mér leið illa og
gat ekki hugsað skýrt — það má
sjá af skákinni." Karpov tapaði
sem sagt vegna þess að hann var
illa upplagður, en Timman varð
samt að tefla af snilld til að
d4 í fyrsta leik og í henni er
fjallað um allar varnir svarts
gegn þeirri byrjun.
Keene kemur síðan með uppá-
stungur um það hvernig skuli
svara hverri vörn og velur gjarn-
an afbrigði sem eru fremur lítið
tefld og til þess fallin að koma
andstæðingum á óvart. Verður
ekki betur séð en að skákmenn á
hvaða stigi sem er verði allvel
brynjaðir með hvítum eftir að
hafa tileinkað sér þennan fróð-
leik.
Bókin er því tilvalin fyrir þá
sem láta sér nægja skemmri
skírn í fræðunum og vilja spara
sér vinnu við undirbúning.
í bókarlok er skemmtilegur
kafli þar sem Keene velur þá tíu
skákmenn sem hafa teflt bezt
með drottningarpeðsbyrjun, 1.
d4. Listi hans er svohljóðandi: 1.
Kasparov, 2. Aljekín, 3. Botvinn-
Karpov
sigra. Ef þetta er ekki að afsaka
sig, hvað er það þá?
Áður hefur Batsford gefið út
tvær bækur um Karpov. Önnur
hefur að geyma allar skráðar
skákir hans til 1975, en hin allar
skákir hans frá 1975—77. í bók-
um þessum eru einnig æviatriði
og mótaskrár og þær eru því
merkar heimildir um afrek og
skákstíl Karpovs. Nýja bókin er
hins vegar hroðvirknislega unn-
ik, 4. Pillsbury, 5. Petrosjan, 6.
Korchnoi, 7. Portisch, 8. Resh-
evsky, 9. Rubinstein, 10. Gligor-
ic.
Fischer og Karpov eru ekki
gjaldgengir á listanum, því aðal-
vopn þeirra er 1. e4. Þá fylgir ein
skák með hverjum þessara tíu
skákmanna.
Við skulum líta á eina skák af
þessum tíu, þar beitir Banda-
ríkjamaðurinn Harry Nelson
Pillsbury strategískri hugmynd
sem síðar hefur verið kennd við
hann og er nothæf í ýmsum stöð-
um sem koma upp eftir 1. d4.
Hvítt: Pillsbury
Svart: Marco
París 1900
Drottningarbragð
1. d4 — d5, 2. c4 — e6, 3. Rc3 —
Rf6, 4. Bg5 — Be7, 5. e3 — 0—0,
6. Rf3 — b6, 7. Bd3 — Bb7, 8.
cxd5 — exd5.
Nú á dögum er 8. — Rxd5 mun
vinsælla.
9. Re5
Upphafið á dæmigerðri Pills-
bury-árás. Hvítur hyggst leika
f2-f4 og blása til kóngssóknar.
9. — Rbd7, 10. f4 — c5, 11. 0—0
— c4?
in og hvorki sæmandi heims-
meistara né virtu útgáfufyrir-
tæki. Nær hefði verið að halda
áfram þar sem frá var horfið í
hinum bókunum tveimur. Móta-
skrá í lok bókarinnar er meira
að segja gölluð, þar vantar mót
sem Karpov hefur teflt á og töl-
fræðilegar upplýsingar þar því
rangar.
Þeir einu sem gætu haft gam-
an af bókinni eru heitustu að-
dáendur Karpovs og yfirvegaðr-
ar taflmennsku hans. Eftir lest-
ur bókarinnar hljóta þeir að efl-
ast í þeirri trú að meistarinn
tapi aldrei nema fyrir óheppni,
því Karpov virðist hafa haft góð-
ar stöður í næstum öllum tap-
skákunum.
Þrátt fyrir allt þetta er óneit-
anlega mikill heiður fyrir skák-
menn að eiga skák í bókinni, en
það á einn íslendingur, Friðrik
ólafsson stórmeistari, sem vann
Karpov í Buenos Aires 1980.
„Hefndarskákin" var siðan tefld
á Ólympíuskákmótinu á Möltu,
nokkrum vikum seinna. Friðrik
ólafsson er reyndar eini íslend-
ingurinn sem nokkru sinni hefur
unnið ríkjandi heimsmeistara.
Svartur varð að halda press-
unni á miðborðið.
12. Bc2 — a6, 13. Df3 — b5, 14.
Dh3 — g6, 15. f5 — b4, 16. fxg6!
Ef nú 16. — bxc3 þá 17. g7!
16. — hxg6, 17. Dh4! — bxc3, 18.
Rxd7 - Dxd7, 19. Hxf6 - a5, 20.
Hafl - Ha6
21. Bxg6! — fxg6, 22. Hxf8+ —
Bxf8
Hér lýsti Pillsbury yfir máti í
sex leikjum, eins og venja var að
gera í gamla daga. Mátleiðin
hefst á 23. Hxf8+! Svartur gafst
því upp.
Keene kann að
útskýra hlutina
seiðandi
sólskinseyjan
A
mmmmm !!
Þetta er fímmta árið sem við bjóðum upp á Mallorkaferðir — Gististaðirnir Royal
Playa de Palma, Royal Torrenova og Royal Jardin del Mar — eru íslendingum að
góðu kunnir — og allt er gert til að gera farþegum okkar dvölina sem ánægju-
legasta.
Verð í 20 daga með V2 fæði
— frákr. 31.400,-
Brottfarardagar: maí júní júlí ágúst sept. okt.
8,27 17 8,29 19 9,30 21
Ath.: sumar brottfarirnar eru þegar þétt bókaðar.
Umboð • Itlandi tyrir
DINERS CLUB
INTERNATIONAL
FERÐASKRIFSTOFA,
IÐNAÐARHÚSINU HALLVEIGARSTlG 1,
SÍMAR 28388 - 28580