Morgunblaðið - 21.04.1985, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. APRÍL 1985
B 27
Cyndi og
Madonna ...
Madonna að leita að frægðinni,
skipti um hljómsveitir eins og sokka
uns vinur hennar einn kom henni á
spena hjá Sire-hljómplötuútgáf-
unni. Þar með voru hjólin farin að
snúast, Madonna fór loks að slá í
gegn þegar hún fékk öllu að ráða
ein, en samstarfsfólkið hafði til-
lögurétt. „Einn af kostum mínum er
að ég get notað fólk, látið það
gera fyrir mig allt sem ég vil.
En ég er ekki ánægð þó ég sé
orðin heimsfræg, ég vil meira,
ég vil verða best, stórstjarna
og standa jafnfætis sjálfum
guði ef það er hægt. Þá vil ég
stjórna heiminum," segir Ma-
donna óðamála ...
þvottinum og reyndu
að gleyma leiðind
unum með því að
Hún fór að heiman og lagði
ýmislegt fyrir sig, en loks fór
hún að syngja í næturklúbbum.
Stofnaði hljómsveitina Blue
Angel sem gekk ekki upp og það
var ekki fyrr en hún stóð uppi auralaus eftir
hljómsveitarævintýrið að hún mannaði sig upp í að
semja eigin lög og gefa út hljómplötu upp á eigin
spýtur. Það var platan „She’s so unusual" og þar með
var tónninn gefinn. Nú segir Cyndi og hefur ráð á því:
„Mér er alveg sama hvað fólk segir um mig, ef því
líkar ekki við mig þá er það þeirra höfuðverkur."
Madonna Louise Ciccone er bæði yngri (24 ára) og
þokkafyllri söngkona, en samt eiga þær margt sam-
eiginlegt, ekki síst fjölhæfnina og sjálfstraustið. Frá
því á skólaárunum hefur hún ætíð sýnt á sér naflann
og er nafli þessi orðinn æði frægur og eitt af einkenn-
um Madonnu. í menntaskóla kom hún fram í lélegri 8
millimetra spólu þar sem verið var að spæla egg á
naflanum á henni. Eins og hjá Cyndi Lauper var æsk-
an fremur erfið og það gilti að geta bjargað sér. „Þeg-
ar ég var lítil stúlka ætlaði ég að verða nunna þegar ég
yrði stór, svo liðu árin og ég uppgötvaði stráka. Þá
fauk nunnudraumurinn. Eg reyndi eitt og annað og
fékk mitt besta tækifæri er ég söng bakraddir hjá
Patrick Hernandez (Sá er song „Born to be alive“ á
sínum tíma). Eftir að hafa ferðast með honum og
föruneyti hans um Bandaríkin og Evrópu fór
Talið fri vinstri: Þórdís Rúnarsdóttir, Hulda Ringsted, Ásta Einarsdóttir, Katrín Kristjánsdóttir og Nanna S.
Kristjánsdóttir. Fremst má sjá sigurvegarann, Hrafnhildi Hafberg, og til hliðanna eru þau Hermann Gunnarsson
kynnir og Heiðdís Jónsdóttir, Ungfrú Akureyri í fyrra.
Hér sjáum við Heiðdísi Jónsdóttur, sem var fulltrúi Akureyrar sl. ár í keppninni um Ungfrú ísland, óska Hrafnhildi
til hamingju með sigurinn. í baksýn má sjá Kristjönu Geirsdóttur (Jönu) sem sá um skipulagningu keppninnar og
Hermann Gunnarsson sem var kynnir um kvöldið.
---SERVERSLUN MED GJAFAVORUR----
Dönsk
listasmíð
Viö bjóöum nú í fyrsta skipti á íslandi
handunna lampa eftir danska leirkera-
smiöinn Aksel Larsen, sem er einn af
fremstu leirkerasmiöum Dana.
Lamparnir fást í mörgum stæröum,
geröum og litbrigðum.
Tilvaliö til fermingargjafa