Morgunblaðið - 21.04.1985, Page 34
34 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. APRlL 1985
íc i i mi i\virMyNDANN/i
Kvikmyndahátíð ’Sö:
maurar
— ný mynd „Þar sem grænu maurana dreymir“
verður sýnd á kvikmyndahátíð
Listahátíðar í vor en hún er eftir
Þjóðverjann Werner Herzog
Mynd eftir þýska kvikmyndaleikstjórann Werner Herzog, „Þar sem
grænu maurana dreymir" (Wo die gríinen Ameisen trðumen), veröur
sýnd é Kvikmyndahátíö í vor. Þar sem flestar leiknar kvikmyndir
Herzogs hafa veriö sýndar hér á landi (einu sinni eöa oftar) þótti stjórn
hátíöarinnar engin ástæöa til aö sleppa augunum af þeim ágæta
manni, segir í kynningu frá Kvikmyndahátíö, sem þessi grein byggir á.
Þaö hlýtur aö vera svolítið sér- arleysi viö töku myndarinnar „Fitz-
geraldo", sem segir frá manni, sem
byggja vill óperuhús í miöjum
frumskógi. Sú mynd kostaöi raun-
ar nokkur mannslíf, en þaö fór ekki
hátt, þar sem „aöeins“ var um indí-
ána aö ræöa. Þaö sem fór hins
vegar hærra var aö leikarar og
samstarfsmenn hröktust einn af
öörum frá tökustaö. Til dæmis var
leikarinn Jason Robards fluttur af
tökustaö nær dauöa en lífi og Mick
Jagger varö aö hætta þáttöku
þegar Herzog varö aö byrja uppá
nýtt eftir margra mánaöa þrotlaus-
ar tökur. Yfirleitt er því svo háttaö
aö tilstandiö i kringum myndir
hans vekur ekki minni athygli en
myndirnar sjálfar og stundum
meiri.
Kvikmyndir hans eru oftast nær
hægar og Ijóörænar, fallegar og
framandi. Sögurpersónur hans eru
ýmist neöanmálsfólk og utan-
garösmenn eöa furöufuglar og
ævintýramenn. Einn af helstu túlk-
endum þessara persóna er Klaus
Kinski, sem Herzog sjálfur hefur
stakur kvikmyndaleikstjóri, sem
gerir myndir út um aliar trissur
nema heima hjá sér. En útþrá
Werners Herzog er ekkert eins-
dæmi meöal þýskra kvikmynda-
leikstjóra. Hann er, líkt og Wim
Weners, heimshornaflakkari og
unir ekki lengi á sama staö. Ef þeir
sjást á götum heimaborgar sinnar
er viöbúið aö erindi þeirra sé
brýnt. Flökkueöli þessara tveggja
meistara þýskrar kvikmyndagerö-
ar hefur m.a. borið þá til íslands.
Þeir eru ásamt Fassbinder,
Schlöndorf og Kluge þekktustu
fulltrúar þeirrar uppvakningar sem
var í þýskri kvikmyndagerö seint á
sjöunda áratugnum og í byrjun
þess áttunda og nefnd var „Neuer
deutscher Film', þýska nýbylgjan.
Herzog hefur orö á sér fyrir aö
fara ótroönar slóöir og þykir
skrattanum þrárri. Hann hikar ekki
viö aö leggja sjálfan sig og aöra í
bráöa lífshættu sé þaö í þágu
kvikmyndalistarinnar, en mörgum
ofbauö fífldirfska hans og ábyrgö-
Úr myndinni „Þar sem grænu maurana dreymir".
nefnt mesta ieiksnilling vorra tíma.
Kinski, sem sumir þekkja betur
sem föður ungrar og fallegrar leik-
konu eöa sem skúrk í þriöja klassa
bandarískum hasarmyndum, lék
aöalhlutverkiö í Herzogmyndum
eins og „Aguirre, reiö Guös“,
„Nosferatu" og í fyrrnefndri ævin-
týramynd um ofurhugann Fitzger-
aldo.
Herzog frumsýndi „Þar sem
gænu maurana dreymir“ á kvik-
myndahátíöinni t Cannes á síðasta
ári. Ekki vann myndin til verölauna
— þau eftirsóttu féllu reyndar í
skaut landa hans, Wenders, en víst
vakti hún talsveröa athygli. Hún er
tekin í Ástralíu og fjallar um bar-
áttu frumbyggja viö iönjöfra og
auöhringa sem komast vilja yfir
land þeirra fyrstnefndu og reisa
þar verksmiöjur. Frumbyggjarnir
beita friösamlegum baráttuaöferö-
um af ætt setuverkfalla. Málstaöur
Kvikmyndahátíð ’85:
Væntanlegar myndir
þeirra er heilagur því landiö er heil-
agt samkvæmt trúarbrögðum
þeirra. Þetta er landiö „þar sem
grænu maurana dreymir". Þrátt
fyrir heilagan málstaö er barátta
frumbyggjanna vonlaus.
Kvikmynd Herzogs sýnir árekst-
ur tveggja heima, tvennskonar trú-
arbragöa og ólíkra viöhorfa nútíö-
ar og fortíöar. Myndin hefur fengiö
misjafnar viötökur gagnrýnenda
og áhorfenda. Þykir mörgum sem
frásögnin sé of einföld og jafnvel
ódýr, en engum blandast þó hugur
um aö hugsunin aö baki hennar er
bæöi falleg og göfug.
Charles Bronson og ómissandi félagi hans í gegnum tíöina.
Kvikmyndahátíð Listahátíöar í Reykjavík veröur haldin dagana
18.—26. maí eins og fram hefur komiö. Á hátíðinni verða hátt í 25
myndir og er þegar búið aö ákveða fjölmargar þeirra. Gestur hátíöar-
innar veröur franski leikstjórinn J.L. Godard, en hann er einn upp-
hafsmanna frönsku nýbylgjunnar í kvikmyndagerö. Á hátíöinni veröa
sýndar þrjár myndir eftir Godard, er þar fyrst aö nefna nýjustu mynd
hans Je vous salue María sem hefur vakið m.a. mikla hneykslun
manna í Frakklandi og voru sýningar á myndinni bannaöar í Versölum.
Hinar tvær myndirnar sem sýndar verða á hátíöinni eftir Godard eru
Prenom Carmen sem gerö var á síöasta ári og einnig Suve qui peut la
vie en sú mynd er nokkuö eldri.
Frá Þýskalandi veröa sýndar
þrjár myndir en þær eru:
Der stand der dinge eftir Wim
Wenders, en hann fékk gullbjörn-
inn í Cannes á síöasta ári fyrir nýj-
ustu mynd sína París-Texas. Der
stand der dinge er gerö áriö 1983.
Der fall Bacheimer — Keine zeit
fíir tranen sem er ettir Hark Bohm,
en hann var einn aöalleikari Fass-
binder um árabil. Þessi mynd er
gerö á síöasta ári og fjaliar um
dómsmál sem kom upp í Þýska-
landi áriö 1983 þegar kona skaut
moröingja barnsins síns í réttarsal.
Wo die Griinen ameisen tráum-
en eftir Werner Herzog og var lok-
iö 1984. Myndin fjallar um frum-
byggja í Ástralíu og baráttu þeirra
viö iönjöfra sem vilja komast yfir
land þeirra til aö reisa þar verk-
smiðjur.
*
Frá Bretlandi kemur myndin The
Gold Diggers eftir Sally Potter.
Þetta er mynd sem er eingöngu
gerö af konum og er Julie Christie
í aöalhlutverki. Myndin var tekin
aö hluta til hér á landi áriö 1983.
Önnur bresk mynd á hátíðinni er
Number One eftir Les Blair.
■k
Frá Póllandi er ein mynd sem
heitir The Day of the Humming
Bird eftir leikstjórann Rydzewski.
*
Einnig kemur mynd frá
Ungverjalandi sem heitir Diary for
My Children og er eftir konu sem
heitir Marta Meszaros.
★
Frá Ítalíu koma væntanlega
tvær myndir. Önnur er eftir Taviani
bræöur og heitir La Notte Di San
Lorenzo og er frá árinu 1982. Hin
er eftir Ettorjo Scola og heitir Le
Bal.
*
Frá Japan veröur myndin Sich-
inin no Samurai eftir meistarann
Kurosawa og veröur hún sýnd í
fullri lengd.
★
Frá Austurríki veröur ein mynd á
hátíöinni og heitir Die Erben eftir
Walter Bannert. Myndin fjallar um
uppgang ný-nasista í Evrópu.
Þessa mynd var erfitt að sýna í
Þýskalandi vegna þess aö ný-
nasistar hótuöu sífellt aö sprengja
upp bíóhúsin þar sem fyrirhugaö
var aö sýna myndina.
★
Ákveöiö hefur veriö aö sýna
tvær myndir frá Bandaríkjunum og
er önnur þeirra Stranger than
Paradise eftir Jim Jarmush og hin
Heavy Traffic eftir Ralph Bakshi.
★
Á kvikmyndahátíö veröur kynnt-
ur leikstjóri frá Júglóslavíu sem
heitir Slobodan Sijan og veröa
tvær myndir eftir hann kynntar á
hátíöinni sem heita The Marathon
Family og How I was Systematic-
ally Destroyed by Idiots.
★
Ein mynd frá Suöur-Ameríku
veröur á hátíöinni, en hún er frá
Kúbu og heitir Alsino Y El Condor
og er eftir leikstjórann Miguel Litt-
in.
Fieiri myndir hafa ekki veriö
ákveönar enn sem komiö er en lík-
lega veröur dagskráin endanlega
tilbúin í lok apríl. — ai.
BRONSON
Stjörnubíó sýnir von bráöar nýja mynd meö gamla brýninu Charles
Bronson í aöalhlutverki — nefnist hún lllska mannanna (The Evil That
Men Do).
Charles kallinn Bronson er ekki
eins tíður gestur hér á landi og
hann var fyrir nokkrum árum, þeg-
ar hann lék í aö minnsta kosti
tveimur myndum á ári. Líklegasta
skýringin er aldurinn, kappinn eld-
ist eins og annaö fólk, fæddur —
ég trúi því ekki heldur — áriö
1921.
Leikstjóri myndarinnar er J. Lee
Thompson en hann hefur sérhæft
sig í bandarískum spennumyndum
á undanförnum árum, eftir aö hafa
gert myndir eins og Byssurnar frá
Navarone í Englandi. Thompson
hefur mörgum sinnum áöur stjórn-
aö Bronson í mynd og má þar
nefna „Ten To Midnight" sem hef-
ur veriö ofarlega á vinsældalistum
myndabandaleiga.
■ ■ ■ ■
ST JORNUG JOFIN
STJÖRNUBÍÓ: NÝJA BÍÓ:
í fylgsnum hjartans ★★* *'/2 Skammdegi ★*
The Natural **1/4 LAUGARÁSBIÓ:
The Karate Kid ★** Dune ★★*
TÓNABÍÓ: Rear Window ****
Sér grefur gröf **’/i BÍÓHÖLLIN:
HÁSKÓLABÍÓ: Dauöasyndin **Vi
Vígvellir *** REGNBOGINN:
AUSTURBÆJARBÍÓ: The Sender *+'Æ
Lögregluskólinn ** Hótel New Hampshire ★*★
Greystoke **,A Huldumaöurinn *V4
Æöisleg nótt meö Jackie ** SV.
Einkenni-
legur maður
og grænir