Morgunblaðið - 04.05.1985, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1965
Alþjóðlega skákmótið í Borgarnesi:
Karl Þorsteins
er alþjóðlegur
skákmeistari
MorgunblaðiÖ/ól.K.Mag.
Stúlkurnar sjö í prófi hjá Stefáni Baldurssyni og Kjartani Ragnarssyni í Iðnó í g*r, talið frá h«egri: Ylva
Edelstein 17 ára, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir 15 ára, Pálfna Jónsdóttir 16 ára, Birna Björnsdóttir 15 ára,
Helena Jónsdóttir 16 ára, Sif Einarsdóttir 14 ára og Berglind Einarsdóttir 18 ára.
I lokaprófi í Iðnó
SJÖ STÚLKUR mættu í Iðnó í
gær, en þar fór fram lokapróf
vegna vals í hlutverk Önnu í leik-
riti Kjartans Ragnarssonar, Land
míns föður, sem frumsýnt verður í
haust Þetta er eitt viðamesta hlut-
verk leiksins og stúlkan verður að
geta leikið, dansað og sungið.
Leikrit Kjartans er eitthvert
hið viðamesta, ef ekki það viða-
mesta, sem leikfélagið hefur ráð-
ist í. Um 40 manns koma fram í
sýningunni, bæði leikarar og
hljómsveit.
Land míns föður er söngleik-
ur, sem gerist á stríðsárunum.
Leikurinn hefst þann 9. maí árið
1940 og honum lýkur 6. maí 1945.
Hann spannar því öll stríðsárin
og fjallar um áhrif styrjaldar-
innar á íslenskt þjóðfélag, ein-
staklingana jafnt sem heildina.
Karl Þorsteins,
meistari.
alþjóðlegur skák-
Ögri seldi í
Bremerhaven
ÖGRI RE seldi síðastliðinn föstudag
afla sinn í Bremerhaven. Þokkalegt
verð fékkst fyrir hann.
Ögri seldi alls 197,5 lestir, mest
karfa. Heildarverð var 6.287.800
krónur, meðalverð 31.83. í næstu
viku er fyrirhugað að eitt islenzkt
skip selji afla sinn í Þýzkalandi og
þrjú í Bretlandi.
Útstreymi 105 milljónum
meira en innstreymi
„FYRSTU þrjá mánuði þessa árs
greiddum við út 105,3 millj. kr. meira
en inn kom á skyldusparnaðarreikn-
inga. Á árinu 1984 var greitt út tæp-
um 82 millj. kr. meira en inn kom,
þannig að það má kannski segja, að
ein ástæðan fyrir því að eitthvað var
faríð að velta því fyrir sér, hvað hægt
værí að gera í skyidusparnaðar-
málum, sé sú að útstreymi er meira
en innstreymi," sagði Katrín Atla-
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins:
Mótfallinn skyldu-
sparnaði námsmanna
dóttir, forstöðumaður Byggingarsjóðs
ríksins, er rætt var við hana um drög
að nýju frumvarpi félagsmálaráð-
berra, Alexanders Stefánssonar, um
breytingar á lögum um skyldusparn-
að ungs fólks, en Katrín átti sæti í
starfshópi þeim sem vann að gerð
frumvarpsdraganna samkvæmt skip-
an félagsmálaráðherra.
Frumvarpið gerir ráð fyrir hert-
um reglum um undanþágur frá
skyldusparnaði og heimilda til
endurgreiðslna. Námsfólk og fólk
sem stofnar heimili og til hjúskap-
ar fær nú ekki lengur endurgreitt.
Undanþágur verða einvörðungu
veittar þeim sem fjárfesta í íbúð-
um, einstæðum foreldrum og ör-
yrkjum, en þó tímabundið. Katrín
var því spurð hversu hátt hlutfall
endurgreiðslna hefði verið til ein-
stakra hópa, og fer yfirlit um þær
hreyfingar hér á eftir. Katrin tók
fram, að hreyfingar t.d. vegna
skólanáms hefðu verið um átta
þúsund talsins, en ekki væri hægt
að tiltaka hversu margir einstakl-
ingar ættu þar í hlut, því sumir
kæmu jafnvel mánaðarlega og
æsktu endurgreiðslna og væri
hvert skipti því skráð. Hið sama
ætti við um aðrar undanþágur,
sami einstaklingur gæti farið fram
á endurgreiðslur vegna náms,
vegna þungrar fjárhagsbyTðar
o.s.frv.
Endurgreiddur skyldusparnaður
til þeirra sem keyptu eða byggðu
húsnæði á árinu 1984 og ekki höfðu
náð 26 ára aldri nam 211,6 millj. kr.
eða 39,2% og er það langstærsti
hópurinn. Vegna skólanáms voru
greiddar út 94,3 millj. kr. eða
17,5%. 82,6 millj. kr. voru endur-
greiddar til þeirra sem náðu 26 ára
aldri, eða 15,33%. Stór þáttur er
ennfremur til þeirra sem undan-
þágur fengu vegna þungra fjár-
hagsbyrðar eða 12,3%, samtals 66,6
millj. kr. Hjúskapur og stofnun
heimilis var ástæða fyrir 7%
endurgreiðslna eða 37,6 millj. kr.
Inngreiddur skyldusparnaður nam
samtals 509,4 millj. kr. en út var
greidd 591 millj. kr.
Katrín sagði aðspurð í lokin, að
með nýju reglunum væri reiknað
með að ná höfuðstólnum á núll eða
jákvæðum, en erfitt væri að reikna
dæmið til hlítar af fyrrgreindum
ástæðum þar sem sami aðili gæti
notið undanþáguheimilda á fleiri
en einu sviði.
Skyldusparnaður ungs fólks fyrstu þrjá mánuði ársins:
„Er í sjöunda himni“ sagði Karl eftir
að hafa náð þriðja og síðsta áfanganum
KARL Þorsteins varð í gærkvöldi
alþjóðlegur skákmeistari þegar
hann gerði jafntefli við Sævar
Bjarnason á alþjóðlega skákmót-
inu í Borgarnesi. „Ég er í sjöunda
himni yfir því að albjóðlegur meist-
aratitill er í höfn. Eg hef stefnt að
þessu á annað ár. Nú mun ég ein-
beita mér að prófum í Háskóla ís-
lands en sfðan taka þátt í alþjóð-
lega skákmótinu í Vestmannaeyj-
um,“ sagði Karl Þorsteins í gær-
kvöldi í samtali við Mbl.
„Af sigrum mínum í Borgar-
nesi veitti sigurskák mín gegn
Margeiri Péturssyni mér mesta
ánægju. Ég er í góðri æfingu og
meiri stöðugleika gætir í tafl-
mennsku minni en áður. Ég hef
aðeins tapað einni skák í mótinu,
en var áður brokkgengari," sagði
Karl Þorsteins. Nú bera fimm ís-
lenzkir skákmenn nafnbót al-
þjóðlegs meistara; Karl Þor-
steins, Margeir Pétursson, Jón L.
Árnason, Jóhann Hjartarson og
Haukur Angantýsson.
Önnur úrslit í gærkvöldi urðu:
Magnús Sólmundarson vann
Hauk Angantýsson, Margeir
Pétursson vann Dan Hansson.
Jafntefli gerðu Tékkarnir Mokry
og Jansa, Bandaríkjamennirnir
Lombardy og Lein og Curt Han-
sen og Guðmundur Sigurjóns-
son.
Staðan í mótinu fyrir síðustu
umferð er: 1. Jansa 7. 2. Curt
Hansen 6'Æ og biðskák. 3. Mokry
6Vfe 4.-5. Karl og Guðmundur 6.
Margeir 5l/i og biðskák. 7. Lein 5
og biðskák. 8. Lombardy 4% og
biðskák. 9. Sævar Bjarnason 4 og
biðskák. 10. Magnús 3. 11.—12.
Haukur og Dan Hansson 1 'k
vinning. Síðasta umferð verður
tefld í dag í Hótel Borgarnesi.
ÞINGFLOKKUR Sjálfstæðisflokksins hefur ýmsar athugasemdir fram að
færa við tillögur Alexanders Stefánssonar félagsmálaráðberra í húsnæð-
ismálum, samkvæmt því sem Halldór Blöndal alþingismaður upplýsti
blm. Mbl. í gær.
„Þessi frumvörp hafa ekki
komið til umræðu í þingflokki
Sjálfstæðisflokksins," sagði Hall-
dór í gær, „og þessi frumvörp fela
bæði í sér ýmis atriði sem ágrein-
ingur er um milli flokkanna. Hús-
næðisráðherra var kunnugt um
að ágreiningur er um þessi atriði.
Það hefur verið starfandi nefnd á
vegum þessara flokka, að frum-
kvæði Sjálfstæðisflokksins, sem á
að taka til meðferðar þau atriði i
húsnæðisstefnunni sem ágrein-
ingur er um. Hún hefur hist á
nokkrum fundum og framsókn-
armenn hafa þar sett fram sín
áhersluatriði. Þar er ekki drepið
á neitt af því sem í þessum frum-
vörpum stendur. Þetta kemur af-
skaplega á óvart, og bendir til
þess að fulltrúar félagsmálaráð-
herra hafi ekki starfað af fullum
heilindum í þeirri nefnd."
Halldór sagði að þetta mál yrði
tekið upp á fundi nefndarinnar
nk. mánudag, og þar sagðist hann
mundu leggja áherslu á sjónar-
mið Sjálfstæðisflokksins varð-
andi skyldusparnað o.fl. „Við get-
um ekki fallist á það að skyldu-
sparnaði skuli haldið fyrir náms-
mönnum,“ sagði Halldór, „okkur
finnst óeölilegt að námsmenn
sem eru að reyna að vinna fyrir
sér, skuli ekki fá að njóta sinna
tekna, í staðinn fyrir að taka lán
til framfærslu sinnar. Auk þess
leggjum við áherslu á að ríkis-
stjórnin, og þar af leiðandi fé-
lagsmálaráðherra, reyni að
standa við þau loforð sem gefin
hafa verið í húsnæðismálum og
að betur verið komið til móts við
þá sem eru að reyna að eignast
sína fyrstu íbúð, en gert hefur
verið."
Frumvarpsdrögin um skyldusparnað:
Tilfærslur frá þeim
sem verst eru staddir
segir formaður Stúdentaráðs, Guðmundur Jóhannsson
„MÉR finnst þetta hljóti að koma
verst niður á þeim sem sízt skyldi.
Þetta verða tilfærslur á fjármunum
frá þeim sem hvað verst eru staddir í
húsnæðismálum, það er unga fólkinu
innan við 25 ára, sem margt er bæði í
námi og að stofna heimili," sagði
Guðmundur Jóhannsson, formaður
Stúdentaráðs Háskóla íslands, er
hann var spurður álits á frumvarps-
drögum þeim, sem félagsmálaráð-
herra, Alexander Stefánsson, sendi
þingflokkum stjórnarliðsins f fyrra-
dag varðandi breytingar á lögum um
skyldusparnað.
I frumvarpsdrögunum er gert
ráð fyrir hertum reglum um und-
anþáguheimildir til að fá endur-
greiddan skyldusparnað. Sam-
kvæmt þeim fá m.a. námsmenn og
þeir sem stofna heimili og ganga í
hjúskap ekki þessar undanþágur,
eins og verið hefur.
Guðmundur sagði að stjórn
Stúdentaráðs hefði ekki fjallað um
málið og þvi væri hann aðeins að
lýsa sínum persónulegu skoðunum.
Hann sagði ennfremur: „Ég tel
þetta ósanngjarnt og vanhugsað.
Þetta kemur fyrst og fremst og
verst niður á þeim sem reyna að
vinna sjálfir fyrir sínu námi. Ef
þeir námsmenn fá ekki greiddan
skyldusparnað hugsa ég að ásóknin
í námslánin aukist. Þá skilst mér
að þeir sem hafa keypt íbúðir til
eigin þarfa fái endurgreiðslurnar,
en það eru einmitt þeir sem verða
að búa í leiguhúsnæði og eru hvað
verst settir. Þetta kemur þvf ekki
til með að bæta kjör þeirra."