Morgunblaðið - 04.05.1985, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1985
Skuldir nema
nú um 20 millj.
„Gerum endurnýjað átak til þess að halda
úti öflugu blaði,“ segir forsætisráðherra
Fjárhagsstaða NT mjög erfið:
FJÁRHAGSSTAÐA NT, áður Tímans, málgagns Fram-
sóknarflokksins, hefur aldrei verið verri en nú, því blaðið
skuldar nálægt 20 milljónum króna. Húseign Framsóknar-
flokksins á Rauðarárstíg 18 hefur verið veðsett fyrir 10
milljónir króna, en það er sá hluti hússins sem er í í eigu
Framsóknarflokksins, en ekki séreign Reykjavíkurfélaga
Framsóknarflokksins.
Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins gerðu
forráðamenn Framsóknarfé-
lagsins í Reykjavík það að
kröfu sinni, þegar ljóst var að í
fjármálalegt stórslys stefndi
með rekstur NT, að gerður yrði
sameignarsamningur um hús-
eignina Rauðarárstíg 18, þann-
ig að ekki væri hægt að veð-
setja eignarhluta Reykjavíkur-
félaganna fyrir skuldum NT.
Var það gert, en eignarhluti
Framsóknarflokksins hefur
hins vegar verið veðsettur í
topp, eða fyrir 10 milljónir
króna.
Segja forystumenn i Fram-
sóknarfélagi Reykjavíkur að
Framsóknarflokknum hafi
ekki borið nein skylda til þess
að halda áfram að ausa fé í NT
eftir að fyrirtækinu hafi verið
breytt í hlutafélag. Enda segj-
ast þeir ekki líta þannig á aö
NT hafi verið málgagn þeírra
undanfarið ár.
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra og formaður
Framsóknarflokksins, sagði í
samtali við blm. Mbl. í gær að
það hefði verið ljóst frá því að
verkfalli prentara lauk í haust,
að það hlyti að koma til upp-
stokkunar á NT, þar sem verk-
fallið hefði reynst blaðinu
geysilega kostnaðarsamt.
Sagðist Steingrímur telja að
tap blaðsins á verkfallinu
hefði verið í kringum 6 millj-
ónir króna. Steingrímur sagði
að þegar ákveðið hefði verið að
stofna hlutafélag í kringum
rekstur blaðsins, þá hefði hann
lýst því yfir að stjórn þess fé-
lags yrði að vera algjörlega
ábyrg fyrir rekstri félagsins
fram að næsta aðalfundi og
sagði hann það alrangt að
hann hefði verið meira og
minna flæktur í rekstur blaðs-
ins á þessum tíma.
Aðspurður hvort Framsókn-
arflokkurinn hefði ekki að-
stoðað við rekstur blaðsins
með því að veita veð, sagði
Steingrímur: „Vissulega höf-
um við veitt veð fyrir lánum,
sem er náttúrlega út af fyrir
sig alvarlegt að þurfa að gera
þegar búið er að stofna hluta-
félag. En auðvitað getur flokk-
urinn aldrei annað en viður-
kennt, sem stærsti hluthafinn
í þessu hlutafélagi, með 40%
eign, að hann á þarna mikilla
hagsmuna að gæta. Að vísu
hefur mér ekki þótt sem NT
hafi verið nógu markvisst
málgagn Framsóknarflokks-
ins, en engu að síður var
ákveðið að veita þessi veð.“
Aðspurður um hvort Fram-
sóknarflokkurinn liti á þessar
10 milljónir sem tapað fé sagði
Steingrímur: „Það vona ég
ekki, en ég skal þó ekkert um
það fullyrða."
Steingrímur var spurður
hvert yrði framhaldið varð-
andi útgáfu NT og hvað Fram-
sóknarflokkurinn myndi gera í
málinu: „Aðalfundur verður
fljótlega haldinn, og það verð-
ur áreiðanlega gert endurnýj-
að átak til þess að halda úti
öflugu blaði."
Yfir helmmgur rit-
stjórnar NT á förum
— „spámaður“ talar úr leiðara blaðsins: Þessi dagur er liðinn
TVeir til viðbótar sögðu upp í gær:
YFIR helmingur 39 starfsmanna ritstjórnar dagblaösins
NT hefur nú sagt upp störfum eða verið sagt upp. í gær
sögðu upp tveir úr hópi reyndustu blaðamanna þar, þeir
Jón Guðni Kristjánsson, trúnaðarmaður blaðamanna á
NT, og séra Baldur Kristjánsson, sem undanfarið ár hefur
verið helsti Jeiðarahöfundur blaðsins ásamt með ritstjóran-
um.
Baldur sagðist í gær vilja
með uppsögninni skipa sér í
sveit þeirra blaðamanna er
segðu upp til að lýsa vanþókn-
un á vinnubrögðum stjórnar
útgáfufélagsins Nútímans hf.
„Ég hef starfað hér í umboði
ritstjóra blaðsins. Með brott-
för hans sýnist mér sá starfs-
grundvöllur vera brostinn,"
sagði Baldur.
Af 39 starfsmönnum rit-
stjórnar eru aðeins átján, sem
eftir sitja þegar hinir láta af
störfum á næstu þremur mán-
uðum. Uppsagnirnar fylgja
flestar í kjölfar uppsagnar rit-
i stjóra blaðsins, Magnúsar
ólafssonar, sem sagði upp sl.
þriðjudag vegna deilna við
stjórn Nútímans hf. um rekst-
ur blaðsins og fjárhagsvanda.
Magnús Olafsson ritstjóri
sagði í gær að óvíst væri
hversu lengi enn hann myndi
sinna ritstjórastörfum á blað-
inu. Hann gerði sér vonir um
að það yrði ljóst fljótlega eftir
helgina en minnti á, að venju-
legast væri að ritstjóri blaðs
léti af störfum um leið og hann
segði upp.
í forystugrein NT í gær, sem
ber yfirskriftina „Þessi dagur
er liðinn" segir m.a.: „Á tímum
umbrota og ólgu er gott að
lyfta huganum upp fyrir
gráma hversdagsins og huga
að þvi sem er gott og varan-
legt. Þess vegna talar spámað-
urinn til okkar úr leiðara NT í
dag. Spámaðurinn Almústafa,
hinn útvaldi og elskaði, sem
beið í 12 ár í borginni eftir
skipi sínu sem bera skyldi
hann heim til lands feðranna.
En er hann sá skipið koma
settist að honum tregi og hann
hugsaði:
„Hvernig ætti ég að geta yf-
irgefið fólkið í borginni rór í
skapi og án saknaðar?
Langir voru dagar þján-
inganna í þessari borg og lang-
ar voru nætur einsemdarinnar
Það er ekki skikkja mín, sem
ég hef afklæðst í dag, heldur er
hörund mitt flegið af mér.
Það er ekki hugsun mín, sem
ég skil að baki, heldur hjarta,
sem varð ríkt af hungri og
þorsta.
Þó get ég ekki dvalist leng-
ur.“
Síðar í forystugreininni seg-
ir: „Og áfram lætur Almústafa
hugann reika:
„Hið sanna sjálf dvelst ofar
fjöllum og svífur á vængjum
vindanna.
Það er ekki eitthvað, sem
skríður inn í hlýju sólskins-
blettanna eða grefur holur inn
í myrkrið í leit að öryggi ...
Ég kveð ykkur, syni og dætur
Orphalesu. Þessi dagur er lið-
inn.“
Þegar Magnús ólafsson, rit-
stjóri og ábyrgðarmaður
blaðsins, var spurður hvernig
bæri að túlka þessa forystu-
grein NT sagði hann: „Það er
hlutverk lesandans að túlka
það.“
Baldur Kristjánsson sagði:
„Það verður hver að skilja það
fyrir sig. Það liggur nokkuð
ljóst fyrir finnst mér — á
svona degi er ekki viðeigandi
að skrifa leiðara um byggða-
mál.“
>hell
Morgunblaöið/Bjarni
Olíugejmir fluttur
í Örfirisey
OLÍUGEYMIR Skeljungs, sem verið hefur í Skerjafirði, var í gær flutt-
ur út í Örfirisey. Björgunarskipið Goðinn dró olíugeyminn úr Skerjafirði
á flóðinu klukkan sex í gærmorgun og síðdegis var geymirinn kominn í
Örfirisey.
Olíugeymirinn er 16 metra hár og meðan beðið var flóðs var geymir-
inn dreginn austur að Sætúni og síðan aftur að örfirisey. Allt gekk að
óskum, en til stóð að geymirinn yrði fluttur síðdegis á fimmtudag. Frá
því var horfið vegna óhagstæðs veðurs.
Öldugata 11, hið nýja hús Félags einstæðra foreldra. Morgunbl«ðið/Bjarni
FEF kaupir Öldugötu 11:
Nýtt neyðar- og
bráðabirgðahúsnæði
einstæðra foreldra
FÉLAG einstæðra foreldra gerdi í g«r, föstudag, kaupsamning um húseign-
ina Öldugötu 11 og ætlar að reka þar neyðar- og bráðabirgðahúsnæði fyrir
einstæða foreldra og börn þeirra með svipuðu sniði og það hefur gert
undanfarin fjögur ár í Skeljanesi 6. Á Öldugötu 11 er ætlunin að búa út
híbýli fyrir tíu fjölskyldur. Með húsnæðinu í Skeljanesi getur FEF því veitt
fyrirgreiðslu tuttugu fjölskyldum samtímis.
öidugata 11 verður afhent FEF 1.
ágúst nk. og að sögn Jóhönnu
Kristjónsdóttur, formanns Félags
einstæðra foreldra, verða þá gerðar
snarlega nauðsynlegar breytingar
og allt húsið verður tekið í notkun
fyrir veturinn. Varðandi hús FEF í
Skeljanesi 6 sagði Jóhanna, að i þau
fjögur ár sem eru frá því heimilið
opnaði hefðu búið þar 92 einstæðir
foreldrar með samtals 125 börn.
Hámarks verutími í Skeljanesi hef-
ur verið sex mánuðir, en í nokkrum
tilvikum hefur verið veitt undan-
þága til lengri búsetu þar.
Félag einstæðra foreldra er og
um þessar mundir að hefja sölu á
happdrættismiðum til að hægt
verði að gera nauðsynlegar breyt-
ingar á Öldugötu 11 um leið og hús-
ið verður afhent. Vinningar eru
m.a. myndsegulband, útvarp með
segulbandi, mínútugrill, tölvur,
djúpsteikingapottar o.fl. Allir vinn-
ingarnir eru frá Heimilistækjum sf.
Dregið verður í happdrættinu 18.
júní. Miða má vitja á skrifstofu
FEF í Traðarkotssundi 6.
Jóhanna sagði, að það gæfi auga-
leið, að FEF hefði farið út I að
kaupa annað hús vegna þess hve
húsnæðisvandi einstæðra foreldra
væri mikill og ekki hefði tekizt að
sinna nema hluta umsækjenda
þessi fjögur sl. ár. Hún sagðist
vænta þess að félagar og margir
velunnarar FEF legðu fram lið sitt,
þar sem málið væri hið brýnasta og
bezta.