Morgunblaðið - 04.05.1985, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1985
5
Ávarp biskups:
40 ár frá
styrjaldarlokum
í Evrópu
PRÓFASTAR og prestar landsins
munu minnast þess við guðsþjón-
ustur á sunnudaginn, 5. maí, að í
næstu viku verða liðin 40 ár frá því
að styrjaldarátökum í Evrópu lauk,
8. maí 1945. Þá hafði seinni heims-
styrjöldin staðið á sjötta ár.
Friðardeginum fyrir 40 árum
var fagnað hér á landi með
ósegjanlegri gleði, eins og þeir
muna sem þátt tóku í atburðum
dagsins. Meðal hátíðahalda var
guðsþjónusta í Dómkirkjunni að
loknum útihátíðahöldum á Aust-
urvelli við Alþingishúsið.
Á þessum tímamótum er vert
að minnast þess og þakka, að
böli og blóðsúthellingum seinni
heimsstyrjaldar var aflétt og þá
er og tilefni til að biðja þess, að
önnur eins ógn og skelfing eða
útrýming alls mannkyns nái
ekki fram að ganga, eins og nú
horfir.
Leitum friðar þar sem hann er
að finna: „Ef einhver óskar lífs,
þráir lífdaga til þess að njóta
hamingjunnar þá varðveit tungu
þína frá illu og varir þínar frá
svikatali, forðast illt og gjörðu
gott. Leita friðar og legg stund á
hann.“ (Davíðssálm. 34:13.) „Lát-
ið frið Krists ríkja í hjörtum yð-
ar,“ (Kól. 3:15) er hvatning lífs-
ins á þessum tímamótum.
Fyrir atbeina hans er það
hægt sem segir í fornum griða-
málum íslenskum: „Vér skulum
vera sátt og sammála og í huga
góðum.“ Pétur Sigurgeirsson
Jón Nordal
Áskell Másson
Árni Haröarson
Musica Nova tónleikar:
Verk eftir þrjú
íslensk tón-
skáld frumflutt
FIMMTU og síðustu tónleikar Mus-
ica Nova á þessu starfsári veröa í
Norræna húsinu á morgun, 5. maí,
og befjast þeir klukkan 17.00.
Á tónleikunum verða frumflutt
verk eftir þrjú íslensk tónskáld,
þau Mist Þorkelsóttur, Áskel
Másson og Jón Nordal.
Verkið eftir Mist nefnist „Dans“
og var það samið á þessu ári fyrir
einleiksgítar. Það er Páll Eyjólfs-
son sem leikur.
Þá verður flutt eftir Jón Nordal
„Ristur". Það er samið fyrir klar-
inett og píanó og eru flytjendur
Sigurður I. Snorrason og Anna
Guðný Guðmundsdóttir.
Að lokum verður frumflutt
„Duo“ eftir Áskel Másson. Verkið
er samið fyrir gítar og slagverk,
Joseph Fung og Roger Carlsson
leika.
Árni Harðarson samdi árin
1982—83 þrjú sönglög við texta
breska ljóðskáldsins Mervyn
Peake. Lögin hafa ekki verið flutt
hérlendis áður. Sigrún Vala
Gestsdóttir sópran mun syngja
þau við undirleik Hrefnu Egg-
ertsdóttur.
Sigrún mun einnig við undirleik
Hrefnu syngja þrjú lög eftir Alb-
an Berg, sem á þessu ári á hund-
rað ára fæðingarafmæli.
Að lokum flytur Roger Carlsson
„Time“ eftir japanska konu, Min-
oru Miki á Marimbu.
AUt
fram
stre^mir...
Ár og dagar líöa
Nú eru 30 ár frá því aö fyrstu plaströrin frá Reykjalundi
voru tekin í notkun og gerbreyttu veitumálum íslendinga.
Ekkert vatnsiagnaefni hefur reynst betur íslenskum aöstæðum.
Eins og ný liggja rörin á sínum stað
- 30 ár eins og dropi í hafið.
30 áfallalaus ár
og ekki verður séð fyrir endann á verkefnum,
endingu eða möguleikum
röranna frá Reykjalundi.
REYKJALUNDUR
Reykjalundur, sími 666200
Mosfellssveit