Morgunblaðið - 04.05.1985, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1985
Hluti vörubrettanna vid húsnæði
Trésmiðju Þóröar
skál sem raðar þeim í magasín. Til
þess að geta annað þessari fram-
leiðslu urðum við að koma okkur
upp góðum tækjakosti."
Það kom fram í máli Þórðar
Karlssonar að fyrirtækið hefði
fyrir ári smíðað 3.000 bretti fyrir
Eimskip og fékkst það verk einnig
eftir útboð. Þórður sagði ennfrem-
ur að allt það efni sem til þarf í
20.000 bretti væri um 800m3
ósamsett en verður að 3.600m3
þegar búið er að setja þau saman.
Til þess að halda þessu öllu saman
þarf um 1,6 milljónir nagla, það
væri mikið verk ef hver nagli væri
kýldur inn með hamri. Trésmiðja
Þórðar gerir sér vonir um frekari
verkefni á þessu sviði „nýiðnaðar"
enda hefur fyrirtækið komið sér
upp tækjakosti og áunnið sér
reynslu við brettasmíðarnar.
— hkj.
V estmannaeyjar:
Morgu n blaðid/Sigurgei r
Nota 1,6 milljónir nagla
í 20 þúsund vörubretti
Vestmannaeyjum, 29. apríl.
HJÁ Trésmiðju Þórðar hf. í
Vestmannaeyjum hófst í lok
febrúar sl. framleiðsla á 20.000
vörubrettum undir frystan fisk
fyrir Sölumiðstöðvar Hraðfrysti-
húsanna. Verksamningur þessi
kom í kjölfar útboðs SH í des-
ember í fyrra þar sem boðin var
út stpíði á 30.000 vörubrettum.
Framleiðslugeta Trésmiðju
Þórðar er 400—500 bretti á dag
og við þetta verk starfa 6 menn
að staðaldri.
Þórður Karlsson var spurður
nánar um þetta stóra verkefni.
„Við gátum boðið í brettin í sam-
ráði við skipafélagið Víkur og
fengum samning um smíði á
20.000 stk. Vegna þess hvað SH lá
á að fá tilbúin bretti fljótt eftir
áramótin keyptu þeir 10 til 15 þús.
stk. frá útlöndum. Allt það efni
sem við notum í brettin er keypt
frá Portúgal og kemur hingað til-
sniðið í þeim stærðum sem þarf.
Naglar eru sérstaklega búnir til
fyrir okkur í Borgarnesi og koma
þeir til okkar í 200 lítra tunnum
sem síðan er mokað úr í sérstaka Unnið við samsetningu á brettunum, naglastamparnir í forgrunni.
Dalborg í Dalvíkurböfn er unnið var við löndun á 35 tonnum af rækju.
Góður afli á Dalvík
Dalvlk, 1. maí.
AÐ UNDANFÖRNU hefur verið góður afli hjá togurum Dalvíkinga. I
gær kom Björgúlfur inn með 180 tonn af grálúðu og karfa og í dag kom
svo Björgvin með 170 tonn af grálúðu og karfa. Því er mikil vinna í
frystihúsinu á Dalvík þess dagana, þrátt fyrir að hluti aflans fari til
vinnslu í frystihúsinu í Hrísey.
Dalvík:
Ráðstefna um æskulýðsmál
Frá fundi Sjálfstæðisfélags Dalvíkur um æskulýðsmál Lf.v. Gísli Pálsson,
Svanhildur Björgvinsdóttir, Pétur Þórarinsson, Erlendur Kristjánsson og
Sturla Kristjánsson. Á myndina vantar Þórgunni Vigfúsdóttur sem var einn
frummælenda.
Afli netabáta eftir páskastopp
var með ágætum og gekk þorskur
á grunnmið hér út með firðinum,
en það hefur ekki gerst í áraraðir
að slík fiskgengd hafi komið á
þessi mið. Síðustu dagana hefur
afli þó stórlega minnkað, en sumir
netabátanna munu senn fylla
kvóta sinn.
Rækjutogarinn Dalborg hefur
aflað með ágætum undanfarið og
hefur nú landað á tæpum hálfum
mánuði rúmum 70 tonnum af úr-
vals rækju. Að sögn Snorra
Snorrasonar skipstjóra hefur afli
þessi fengist á sunnanverðu Hér-
aðsflóadýpi. Sagði hann að þar
hefði að undanförnu allur rækju-
Stykkishólmun
Ný bensín-
Stjkkishólmi, 26. apríi.
í VETUR hefir verið unnið að bens-
ín- og olíustöð hér í StykkLshólmi,
á-samt stóru þvottaplani. Er þetta á
vegum olíufélaganna.
Húsið stendur við aðalgötu bæj-
arins og er með fyrstu húsum þeg-
ar ekið er í bæinn. Þarna verður
ýmis önnur þjónusta sem fylgir
veiðiflotinn haldið sig og flestir
aflað vel en þó hefði dregið mjög
úr afla nú síðustu daga. Snorri hóf
á sínum tíma fyrstur rækjuveiðar
við miðlínuna milli Grænlands og
íslands, Dohrnbanka, en af þvi
svæði veiddist úrvals rækja að
stærð og gæðum og taldi Snorri að
rækja sú sem fengist hefði í Hér-
aðsflóadýpi minnti sig einna helst
á djúpsjávarrækju. Sagði hann að
í hvert kíló færu 86—120 rækjur.
Afli Dalborgar er unninn að jöfnu
í Árveri á Árskógsströnd og hjá
Söltunarfélagi Dalvíkur. Hjá sölt-
unarfélaginu er unnið á tviskipt-
um vöktum frá kl. 3.30—20 dag
hvern. Fréttaritarar
og olíustöð
bensín- og olíustöðvum. Er þetta
mikið og veglegt fyrirtæki og eig-
endum til sóma. Verktakar úr
Grundarfirði, PP-byggingarverk-
takar, hafa unnið þetta verk og
hefir miðað vel áfram og fer nú að
nálgast sá tími að þessi bygging
verði tekin í notkun. — Árni.
LAUGARDAGINN 27. aprfl efndi
Sjálfstæðisfélag Dalvíkur til
ráðstefnu um æskulýðsmál. Góð
fundarsókn var og lýstu fundar-
menn ánægju sinni með umræður
á fundinum og þökkuðu stjórn
Sjálfstæðisfélagsins fyrir að hafa
forgögu um fund þennan.
Frummælendur voru 5, Er-
lendur Kristjánsson formaður
æskulýðsráðs ríkisins, Pétur
Þórarinsson sóknarprestur,
Sturla Kristjánsson fræðslu-
stjóri, Þórgunnur Vigfúsdóttir
nemandi og Gísli Pálsson æsku-
lýðsfulltrúi, en fundarstjóri var
Svanhildur Björgvinsdóttir
kennari. Framsögumenn komu
víða við í erindum sínum og má
segja að þeir hafi komið inn á
flesta þætti þessa viðamikla
málaflokks. Erlendur Krist-
jánsson gerði fundarmönnum
grein fyrir ári æskunnar, en
kjörorð þess er „þátttaka,
þróun, friður". Greindi hann
frá hvað á döfinni væri víða um
land í tilefni ársins. Þá fjallaði
hann um æskulýðsráð ríkisins,
verkefni þess og störf.
Sr. Pétur Þórarinsson sagði
að í allri umfjöllun um æsku-
lýðsmál hætti mönnum til að
draga unglinginn út úr öllu
þjoðfélagslegu samhengi. „Er
unglingurinn sjúkleiki eða
vandamál eða hluti af þjóðfé-
lagi okkar þar sem hvert ald-
ursskeiðið tengist öðru?“ spurði
Pétur fundarmenn. Þá fjallaði
hann um samskipti unglinga og
foreldra, sem hann taldi þurfa
að vera meiri. Hann átaldi fjöl-
miðla á hvern hátt þeir fjölluðu
um unglinga og sagði að þeir
gerðu sér mestan mat úr hinu
neikvæða í fari þeirra. Pétur
Þórarinsson taldi að ekki þyrfti
að örvænta um æsku þessa
lands því hún væri dugleg,
frjálsleg og skemmtileg.
Sturla Kristjánsson tók
skólamál til umfjöllunar. Vildi
hann meina að íslenski grunn-
skólinn vær grundvallaður á
misskilningi. Skólaskylda hér-
lendis hafi verið tekin upp að
erlendri fyrirmynd, en í öðrum
löndum hafi skólaskyldu verið
komið á til að eyða ólæsi en hér
á landi hafi öll skólaskyld börn
verið læs. Því hafi markmið
skólaskyldunnar hér á landi
orðið annað en erlendis. Taldi
hann starf grunnskólans ein-
kennast af því hlutverki að vera
flokkunarvél fyrir fram-
haldsskólann og reyndar lítill
eðlismunur á þessum tveim
skólastigum. „Æskan á þá
kröfu að grunnskólinn ástundi
markvissara uppeldisstarf,
höfði fyrst og fremst til mann-
legra þátta og persónulegra
einkenna í stað þeirrar meðal-
mennskumótunar sem nú er við
lýði,“ sagði Sturla. Til að brúa
rökréttan eðlismun grunnskóla
og framhaldsskóla taldi hann
þörf á nýju skólastigi, mið-
skóla. Miðskóli yrði þannig
tenging frá ræktunar- og þjálf-
unarhlutverki grunnskólans til
alvörunnar og átakanna í fram-
haldsskólanum. Miðskóli væri
tveggja ára skólastig, fræðslu-
skylt og tæki við af grunnskóla
sem þá væri skólaskyldur í 8 ár.
Þórgunnur Vigfúsdóttir fjall-
aði um upplifun sína af að vera
unglingur á Dalvík. Sagði hún
að þótt margt hafi verið vel
gert að undanförnu í æskulýðs-
málum á Dalvík væri enn
margt ógert. Æskulýðs- og
íþróttamál væri málaflokkur
sem sífellt þyrfti að vinna að og
möguleikar unglinga til tóm-
stundastarfa þyrftu að vera
sem fjölbreyttastir og minnti á
að æskan væri framtíð full-
orðna fólksins.
Gísli Pálsson gerði grein
fyrir æskulýðsstarfsemi á
Dalvík. I máli hans kom fram
að starfsemi á vegum æsku-
lýðs- og íþróttafélaga á staðn-
um hefði eflst mjög undanfarið.
Nokkrar framkvæmdir hefðu
átt sér stað á þessu sviði af
hálfu bæjaryfirvalda nú síð-
ustu ár og fyrirhugaðar frekari
framkvæmdir.
Að framsöguræðum loknum
voru frjálsar umræður og fyrir-
spurnir og tóku margir til máls
og ræddu ýmislegt sem fram
kom í framsöguerindum. Að
fundi loknum var fundar-
mönnum boðið að skoða nýtt
æskulýðsheimili á Dalvík sem
tekið var í notkun sl. haust.
Fréttaritarar