Morgunblaðið - 04.05.1985, Side 12

Morgunblaðið - 04.05.1985, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAl 1985 Verktakasamband íslands: Bjóða ber út allar vegaframkvæmdir STJORN Verktakasambands íslands hefur bent á mikilvægi verkframkvæmda Ld. vegaframkvæmda og fagnar sérhverri hugmynd sem flýtir framkvæmdum sem áætlað hefur verið að byrja á eftir mörg ár enda er varanleg vegalagning þjóðfélagslega hagkvæm, segir í frétt frá sambandinu. „Það hefur verið eitt af helstu baráttumálum Verktakasambands- ins að draga ur þeim miklu sveifl- um sem verið hafa í verktakaiðnaði og hefur verið varað við afleiðing- um mikilla sveiflna en nú er mikill samdráttur t.d. í virkjunarfram- kvæmdum og fé til vegagerðar hef- ur verið skorið niður miðað við langtímaáætlun. í einu könnuninni sem gerð hefur verið til að kanna leiðir til bættrar nýtingar þess fjár sem varið er til opinberra framkvæmda var komist að þeirri niðurstöðu „að útboð á mannvirkjagerð á vegum ríkisins sé hagkvæmasta og eðlilegasta að- ferðin við opinberar framkvæmd- ir“. 1 lögum sem samþykkt voru á grundvelli þessarar könnunar, iög um skipan opinberra framkvæmda nr. 63/1970 13. gr. segir: „Verk skal að jafnaði unnið skv. tilboði á grundvelli útboðs. Ef verk er þess eðlis eða aðstæður slíkar að öðru leyti, að útboð telst ekki munu gefa góða raun, er heimilt, að feng- inni umsögn samstarfsnefndar, að opinberar framkvæmdir, sbr. 22. gr. að víkja frá útboði, sbr. þó 2. mgr.“ I 21. gr. 3. mgr. er tekið fram: „Heimilt er að fela einstökum ríkisstofnunum umsjón nánar skilgreindra flokka opinberra framkvæmda, enda hafi þessar stofnanir aðstöðu til að annast þetta verkefni." Verktakasambandið hefur ávallt talið að stofnanir væru skyldar að bjóða út verk í samræmi við 13. gr. þó svo þeim hafi verið falin umsjón opinberra framkvæmda. Með lög- um frá árinu 1984 voru öll tvímæli tekin af þvi við 3. mgr. 21. gr. var bætt: „Engu að síður skal verk að jafn- aði unnið skv. tilboði á grundvelli útboðs, skv. 13. gr. laganna." Niðurstaðan er sú að Vegagerð ríkisins ber að bjóða út alla vega- gerð en nægir verktakar eru til í landinu til að takast á við meiri- háttar verkefni í vegagerð." Páll Lýð88on formaður Norræna félagsins á Selfossi tekur við treyju kvennakórsins Lyran frá Finnlandi. Selfoss: Finnskt-íslenskt kóra- samsæti og söngur .SelfoHBÍ. 26. oprfl. FINNSKI hákólakórinn Lyran kom við á Selfossi í gærkvöldi á ferð sinni um Suðurland. Það var Norræna félagið á Sel- fossi og Samkór Selfoss sem höfðu forgöngu um móttökur og buðu til RITSTJÓRNIN FLUTT Ritstjórn tímarita Frjáls framtaks hf. er nú flutt í nýtt húsnæði í Ármúla 38 og jafnframt hefur ritstjórnin fengiö nýtt símanúmer 685380 ABC, barnablaö — ritstjóri Margrót Thorlacius Átangar — ritstjóri Sighvatur Blöndahl Á veiðum — ritstjóri Olafur Jóhannsson Bíllinn — ritstjóri Sighvatur Blöndahl Fiskifréttir — ritstjóri Guðjón Einarsson Frjáls verslun — ritstjóri Sighvatur Blöndahl Blaöamenn: Anna Kristine Magnúsdóttir Charles Egill Hist Eiríkur S. Eiríksson Jóhanna Birgisdóttir Jóhannes Tómasson Þorgrímur Þráinsson Gróður og garöar — ritstjóri Sighvatur Blöndahl Iðnaðarblaðiö — ritstjóri Steinar J. Lúövíksson íþróttablaöið — ritstjóri Steinar J. Lúövíksson Nýtt líf, tískublaö — ritstjóri Gullveig Sæmundsdóttir Sjávarfréttir — ritstjóri Guöjón Einarsson Við aem fljúgum — ritstjórar Steinar J. Lúðvíksson og Sæ- mundur Guövinsson Auglýsingadeildir blaðanna, afgreiösla, skrif- stofa Frjáls framtaks og ritstjórn íslenskra fyrir- tækja verður áfram í Ármúla 18, sími 82300. Frjálst framtak hf. kvöldverðar og söngskemmtunar í gagnfræðaskólanum. Kórarnir skiptust á söng og þessi heimsókn finnsku kvenn- anna var hin líflegasta. Þær sungu undir borðum finnskar snapsvísur sem þær nefndu svo. Eftir hangi- kjöt og tilheyrandi sungu kórarnir til skiptis, Samkórinn undir stjórn Helga Kristjánssonar og Lyran undir stjórn Lenu von Bonsdorff. Að loknum söng skiptust kór- arnir á gjöfum, Samkórinn færði Lyrunni plötu sína og fána og Lyr- an gaf Samkórnum tvær plötur. Páli Lýðssyni formanni Norræna félagsins gáfu finnsku konurnar treyju með merki kórsins og Sel- fosskaupstað kristalsvasa eftir Alvar Alto. Fararstjóri finnsku kvennanna lýsti ánægju sinni með móttökur á lslandi sem hún sagði hvarvetna hafa verið hinar innilegustu og kvaðst vonast til að sjá Samkórs- fólkið á finnskri grund. Hvort svo verður skal ósagt látið en fram- undan hjá Samkórnum eru tón- leikar 4. maí í Selfossbíói. Sig. Jóns. Kvenfélagið í Hólminum hefur byggingu skrúðhúss Stjkkishólmi, 26. aprfl. KVENFÉLAGIÐ Hringurinn í Stykkishólmi hefir nú hafið fram- kvæmdir með að byggja 40 fm hús í skrúðgarði félagsins og Hólmara, Hólmgarði. Er þessi bygging fyrir- huguð sem birgðageymsla og einnig skáli til smásamkomu- og funda halda og veitinga að sumri til þegar garðurinn er opinn öllum vegfarend- um. Fyrsta skóflustungan var tekin síðasta vetrardag af Auði Júlíus- dóttur sem hefir verið áhuga- og vinnusöm við að auka fegurð garðsins. Þegar fréttaritari kom í Hólmgarð í morgun var þar komin stærðar skurðgrafa til að grafa fyrir grunninum og virtist verkið ganga vel, enda grafan ekkert að dunda við þetta. Við óskum kven- félaginu farsældar og til hamingju með þetta framtak. — Árni. VJterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiöill!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.