Morgunblaðið - 04.05.1985, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1985
Hópurínn sem fer vestur í ágúst ásamt leiðbeinendum og stjórnendum ASSE.
Ævintýraár í Ameríku
— Rætt við Stefaníu Harðardóttur um skiptinemasamtökin ASSE
„MIKILVÆGAST er að krakkarnir fái upplýsingar um, að þeir eigi kost á
því að komast í tæplega ársdvöl til Ameríku. Skilyrðin eru þau, að vera 16 til
18 ára að aldri, hafa meðmæli frá umsjónarkennara, skila ritgerð á ensku og
hafa ákveðna lágmarkseinkunn út úr skólanum.“
Þetta eru orð Stefaníu Harðar-
dóttur, sem sér um skipulagningu
námsdvalar í Bandaríkjunum.
„Ævintýraár í Ameríku" er náms-
dvölin kölluð en hún er á vegum
ASSE, sem eru skiptinemasamtök
Ameríku og Skandinavíu. Stefanía
segir, að hægt sé að velja á milli
Bandaríkjanna og Kanada og f ág-
úst næstkomandi fari hópur 48
unglinga vestur um haf. Þar gangi
þeir í skóla og búi hjá þarlendum
fjölskyldum rétt eins og meðlimir
þeirra, en dvölin tekur alls yfir 11
mánaða tímabil. Þetta er fyrst og
fremst námsdvöl og ekki háð nein-
um tilteknum trúarbrögðum.
Stefanía segir, að námsdvölinni
fylgi töluverð ábyrgð. Unglingarn-
ir þurfi að stunda landkynningu,
bæði í skólum og á fundum ýmissa
félagasamtaka. Þess vegna séu
gerðar heilmiklar kröfur til þeirra
áður en haldið sé vestur. Tvö nám-
skeið séu haldin hér heima, en sfð-
an fái þeir upplýsingar sendar f
pósti meðan á dvölinni stendur.
„Fyrsti hópurinn er i Bandaríkj-
unum nú og hefur vegnað mjög
vel. Við höfum gott samband við
þessa unglinga og fylgjumst með
því hvernig þeim reiðir af. Einnig
höfum við gott samband við for-
eldra þeirra og þetta gengur allt
vel. Eiginlega er eini vandinn í
þessum samskiptum sá, að það
vantar fjölskyldur hér á landi til
að taka við skiptinemum, þar sem
sú fjölskylda, sem sendir frá sér
barn þarf ekki að taka annað f
staðinn. Það er mikil ásókn amer-
ískra unglinga f að kynnast ís-
landi, en til þessa höfum við ekki
getað komið öllum fyrir, sem þess
hafa óskað,“ sagði Stefanía.
ASSE-ísland er til húsa í Braut-
arholti 4. Námsdvalarkostnaður
er um 125.000 krónur og er innifal-
ið flug á áfangastað og til baka,
fararstjórn og aðstoð meðan á
ferðum stendur, fæði og húsnæði
meðan á dvölinni stendur, skóla-
vist i „high schooT og námsbækur
og undirbúningsnámskeið fyrir
brottför.
Sýning Þóru
Sigurðardóttur
Myndlist
Valtýr Stefánsson
í Nýlistasafninu við Vatnsstig
stendur nú yfir lítil en geðþekk
sýning. Það er ung listakona,
Þóra Sigurðardóttir, sem gert
hefur þær snotru myndir, er þar
hanga á veggjum. Það mun vera
í fyrsta skipti, sem þessi unga
listakona heldur einkasýningu
og ekki rekur mig minni til að
hafa séð verk hennar á samsýn-
ingum áður. Það er því frumraun
hvað sýningar snertir, sem hér
er á ferð.
Það eru fimmtán númer í sýn-
ingarskrá, og ekkert þeirra er
olfumálverk og er það nokkuð
sérstakt. Þama er grafík, sem er
síðan handlituð, pastel og lituð
ljósrit. Verkin virðast unnin f
myndröðum, og fer ekki mikið
fyrir stórum myndverkum á
þessari sýningu. Yfirleitt eru
þetta litlar myndir, en gefa samt
nokkuð góða hugmynd um að
þarna er á ferð manneskja sem
hefur næmt auga fyrir litum og
nær, í sum þessara verka, þýðum
og ljúfum tónum. Ef ég væri
spurður, hvert væri einkenni
þessarar sýningar, yrði svarið:
Litameðferðin.
Myndröð fyrir enda innri salar
vakti sérstaka eftirtekt hjá mér
er ég leit þarna við. Það er eggið
sem er meginþráðurinn í þeirri
myndröð, sem unnin er f pastel
og er mjög snotur. Það verður
ekki sagt um verk þessarar ungu
listakonu, að þau séu veigamikil
að neinu leyti, en eins og áður er
sagt eru þau aðlaðandi og snot-
ur. Það er meir en oft verður
sagt um sýningar nú á dögum, og
ég hnýti hér við, að það væri
heldur óraunhæft, ef allt það
sem á boðstólum er i borginni á
sviði myndlistar væri fyrsta
flokks. Það væri heimsmet og
meira en það.
Þóra Sigurðardóttir má vel
una við þann árangur, sem hún
birtir með þessari sýningu sinni
í Nýlistasafninu. Auðvitað verð-
ur næsta sýning öðruvísi, en
hvernig? Enga spádóma hér.
Fæst orð hafa minnsta ábyrgð.
Það var gott að líta inn hjá Þóru
í góða veðrinu og ég færi henni
þakkir mfnar.
e
HAGSTÆÐINNKAUP p,
0 LÆKKAÐ VÖRUVERÐ £
rt Tilboösverö á pústkerfum í Mazda og Volvo vegna hagstæðra innkaupa |J
^ Lækkun allt að 25% gegn staðgreiðslu rt
Lækkun allt að 25% gegn staðgreiðslu
T.d. kostar pústkerfi I Volvo 142 og 242 kr. 3.600
Dmiðað við að keypt sé heilt sett p
Gæðavara úr álseruðu efni sem gefur 70%-80% betri endingu gegn ryði
0
0
0
0
D
D
T.D. KOSTAR PÚSTKERFI í
MAZDA 323 ÁRG. 77-80 KR. 3.538,- MAZDA 323 ÁRG. 81-84
MAZDA 626 ÁRG. 78-82 KR. 3.800,- MAZDA 929 ÁRG. 73-78
MAZDA 929 ÁRG. 79-82 KR. 3.200,-
KR. 4.706,-
KR. 4.100,-
HVER BYÐUR BETUR?
0
0
0
0
0
0
Bílavörubú&in
FJÖDRIN
Skeifunni 2
82944
Púströraverkstæöi
83466