Morgunblaðið - 04.05.1985, Side 33
anre MOHGUNfiLADIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAI 1985
tT »4
Sýnir ótrúlega
fjölbreytta fram-
leiðslu og þjónustu
— segir Henry Þ. Granz, fram-
kvæmdastjóri Borgarnesdaga
„TIL AÐ kynna fyrir fólki það sem við höfum uppá að bjóða, sem við
vitum að er margt, enda er ótrúlega fjölbreytt framleiðsla og þjónusta í
Borgarnesi,“ sagði Henry Þ. GrSnz, framkvæmdastjóri Borgarnesdaga
’85 sem haldnir eru í Laugardalshöll um helgina, þegar hann var spurður
um tilgang Borgarnesdaganna.
Henry kvaðst vera þess full-
viss að sýningin heppnaðist vel,
sagði að vísir menn teldu opnun-
ina gefa vísbendingu um hvað á
eftir kæmi á slíkum sýningum.
Hann sagði að opnunin á
fimmtudag hefði heppnast vel.
Hátt í þúsund manns hefðu séð
sýninguna við opnunina og þann
stutta tíma sem hún var opin þá
um kvöldið og fólkið hefði kunn-
að að meta það sem boðið var
uppá. Heriry sagði að fólk væri
undrandi á því hvað jafn lítill
bær og Borgarnes hefði fram að
færa í framleiðsluvörum, þjón-
ustu og menningu.
„Ég vil endilega hvetja fólk til
að heimsækja okkur á Borgar-
nesdögum. Ég veit að allir verða
ánægðir og sjá ýmislegt sem þeir
hafa ekki vitað um áður,“ sagði
Henry Þ. Gránz.
„Víst er fiskur í Borgarnesi,” segir fisksali bæjarins, Þóróur Pálsson, en hann býður uppá fjölbreytt úrval
sjávarrétta á Borgarnesdögum.
Bás Prjónatofu Borgarness á Borgarnesdögum ’85.
Morgunblaöiö/Júlíus
BORGARNESDAGAR
■ ■
YFIR 20 SÝNENDUR
Eftirtalin fyrirtæki, félög og stofn-
anir taka þátt í Borgarnesdögum
’85 í Laugardalshöll:
BIFREIÐA- OG TRÉSMIÐJA
BORGARNESS, BTB
Pyrirtækið var stofnað 1946. Fyrirtækið
starfar á sviði framleiðslu og þjónustu. Eink-
um er unnið að raflögnum í bifreiði og viðgerð-
um á landbúnaðarvélum, svo og ýmiss konar
járnsmíði. Þá rekur BTB verslun með vara-
hluti og efni til raflagna. Þá sér fyrirtækið um
bílamálun. Fyrirtækið sér um smíði á húsum á
sendi- og vöruflutningabíla, ásamt framleiðslu
á hurðum fyrir iðnaðarhúsnæði, bifreiða-
geymslur o.fl. og er leiðandi fyrirtæki á þvf
sviði hér á landi.
BLIKKSMIÐJA MAGNÚSAR
THORVALDSSONAR
Blikksmiðja Magnúsar Thorvaldssonar hóf
starfsemi sína árið 1967. Fyrirtækið tekur að
sér alla almenna blikksmíði og framleiðir
ennfremur sorpskápa og pokahengi á veggi.
Ennfremur framleiðir blikksmiðjan milli-
veggjastoðir úr stáli, sem þekktar eru vfða um
land. Þá hefur fyrirtækið nýlega gert tilraunir
með framleiðslu á leiktækjum á leikvelli. Loks
má geta þess, að hjá blikksmiðjunni hefur sfð-
astliðin fimm ár verið unnið að þróun uppfinn-
ingar eigandans, Magnúsar Thorvaldssonar, á
svonefndum Magn-húsum, sem er ný gerð
timbureiningahúsa, sem eru 1 senn einföld og
auðveld í uppsetningu.
BORGARNESHREPPUR
Borgarnes varð löggiltur verslunarstaður 22.
mars 1867. Hreppurinn varð sjálfstætt sveitar-
félag 28. maf 1913. Sveitarfélagið rekur skrif-
stofu, áhaldahús, leikskóla, íþróttamiðstöð,
grunnskóla, rafveitu, höfn og vatnsveitu. Einn-
ig er hreppurinn aðili að rekstri heilsugæslu-
stöðvarinnar f Borgarnesi, Tónlistarskóla
Borgarfjarðar og Brunavörnum Borgarness og
nágrennis. Þá er Borgarneshreppur eignaraðili
að Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar, Dval-
arheimili aldraðra f Borgarnesi og Hótel Borg-
arnesi.
BAUÐGERÐ KAUPFÉLAGS
BORGFIRÐINGA
Kaupfélag Borgfirðinga stofnaði brauðgerð
árið 1941 og var hún fyrst til húsa f elsta
húsnæði félagsins „Sölku“. Árið 1951 var
starfsemin flutt í nýtt hús við Egilsgötu og
jókst þá starfsrými og vélakostur mikið, auk
þess sem framleiðslan varð fjölbreyttari.
BYGGINGAFÉLAGIð BORG HF.
Byggingafélagið Borg hf. var stofnað árið
1976. Fyrirtækið hefur staðið fyrir margs kon-
ar verkum, auk þess sem það hefur byggt og
selt einbýlishús, raðhús og fjölbýlishús. Bygg-
ingafélagið Borg hefur sérhæft sig f fram-
leiðslu glugga, faga og útihurða.
BORGARPLAST HF.
Borgarplast var stofnað árið 1971 af sex ein-
staklingum. Framleiðslan var I fyrstu ein-
göngu einangrunarplast. Auk einangrunar-
plasts eru nú framleidd pfpueinangrun og
drenplast, auk þess sem Borgarplast selur
ýmiskonar byggingarefni. Á vegum fyrirtækis-
ins er rekið útibú f Kópavogi, þar sem fram-
leiddur er margs konar plastvarningur, svo
sem vörupallar, fiskiker og fleira.
FERÐAMÁLASAMTÖK
VESTURLANDS
Ferðamálasamtök Vesturlands voru stofnuð
fyrir rúmum þremur árum, fyrst slíkra sam-
taka á Islandi. Samtökin hafa frá stofnun unn-
ið að því að Vestlendingar sameinist f átaki um
að kynna náttúrufegurð og ferðamannaþjón-
ustu á Vesturlandi.
FISKBÚÐ ÞÓRÐAR
PÁLSSONAR
Fiskbúð Þórðar Pálssonar sér Borgnesingum
og nærsveitamönnum fyrir fiskmeti. Búðin
hefur lengi verið þekkt fyrir góða vöru og fjöl-
breytta.
HÓTELBORGARNES
I Hótel Borgarnesi eru 36 herbergi, þar af 20
með baði. Morgunverður er framreiddur í
kaffiteriu. 1 hótelinu eru veitingasalir fyrir
ráðstefnur, dansleiki og veislur, fyrir allt að
300 manns.
KAUPFÉLAG BORGFIRÐINGA
Kaupfélag Borgfirðinga var stofnað árið
1904 f Deildartungu f Reykholtsdal. Félags-
svæðið nær yfir 5 hreppa í Borgarfjarðarsýslu,
norðan Skarðsheiðar alla Mýrasýslu, 8 hreppa,
og 5 hreppa í Hnappadals- og Snæfellsnessýslu
allt vestur í Breiðuvfk. I Borgarnesi rekur
kaupfélagið kjörbúð, vefnaðarvörudeild, búsá-
halda- og bókabúð, bygginga- og járnvörudeild,
fóðurvörudeild, slátur- og frystihús, reykhús,
frystihólf, rafmagnsverkstæði, bifreiðaverk-
stæði, varahlutaverslun, yfirbyggingarverk-
stæði, brauðgerð, bensfnafgreiðslu og verslun,
mjólkursamlag, bifreiðastöð, kjötvinnslu og
tryggingar. Auk þess starfræktir kaupfélagið
verslun á Akranesi og Hellissandi og verslun,
veitingahús og bensínafgreiðslu á Vegamótum
á Snæfellsnesi.
KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ KAUPFÉ-
LAGS BORGFIRÐINGA
Kjötiðnaður hófst hjá Kaupfélagi Borgfirð-
inga árið 1951. Nú er verið að byrja á nýrri
pökkun á frystu og fersku kjöti. Sala á fram-
leiðslu stöðvarinnar hefur aukist mjög á hðf-
uðborgarsvæðinu á undanförnum árum, t.d. á
hinu vinsæla Borgarneshangikjöti. Þá hefur
sala á þorramat fimmfaldast á sfðustu þremur
árum. Árið 1984 tók kjötiðnaðarstöðin á móti
440 lestum af afurðum til meðhöndlunar að
meira eða minna leyti.
LOFTORKA SF.
Fyrirtækið Loftorka var stofnað 1962 og var
fyrsta verkefnið gatnagerð f Borgarnesi. Jarð-
vinna er snar þáttur í rekstri fyrirtækisins, en
framleiðsla á vörum fyrir byggingariðnað sæk-
ir stöðugt á. Nú framleiðir Loftorka allar
stærðir af steinrörum, fittings, holræsabrunna
og keilur, auk hleðslusteina. Einnig eru fram-
leiddir forsteyptir bitar og súlur í peningshús,
flórbitar og grindur. Fyrir fjórum árum hóf
Loftorka framleiðslu á svonefndum samloku-
einingum, sem eru einangraðir, steinsteyptir
húshlutar.
MJÓLKURSAMLAG
BORGFIRÐINGA
Mjólkursamlag Borgfirðinga hefur verið
starfrækt frá árinu 1932. Samlagssvæðið nær
yfir Borgarfjarðardali, uppsveitir Borgarfjarð-
ar og sunnanvert Snæfellsnes vestur í Breiða-
víkurhrepp. Mjólkursamlagið sér um pökkun á
mjólk og undanrennu fyrir heimamarkað, en
um 20% af mjólkinni fer á heimamarkað. Að
auki sér samlagið öllu suðvesturlandi fyrir ým-
iss konar mjólkurvöru, svo sem sýrðum rjóma
og vörum unnum úr honum, svo sem ídýfum.
Þá fer skyrið, sem framleitt er í Borgarnesi
víða, en það er svonefnt pokaskyr, sem pakkað
er í plastpoka. Þá framleiðir mjólkurbúið
ennfremur ávaxtagrauta undir merki Mjólk-
ursamsölunnar.
PRJÓNASTOFA
BORGARNESS HF.
Prjónastofa Borgarness var stofnsett árið
1970. Fyrirtækið framleiðir og flytur út alls
konar prjónafatnað úr íslenskri ull, undir
merkinu Eider Knit Ltd.
LEIKFANGAIÐJA SONJU,
LAXÁRHOLTI
Leikfangaiðja Sonju I. Elíason framleiðir
margs konar uppstoppuð leikföng og tusku-
brúður.
SAFNAHÚS BORGARFJARÐAR
Nú eru starfrækt í Borgarfirði bókasafn,
byggðasafn, héraðsskjalasafn, listasafn og
náttúrugripasafn. Söfnin búa við ófullnægj-
andi húsakost, en nú liggja fyrir fullbúnar
teikningar að safnahúsi Borgarfjarðar og hef-
ur húsinu verið valinn staður á Gíslatúni við
Borgarbraut.
Bókasafn: í Héraðsbókasafni Borgarfjarðar
eru nú tæplega 22 þúsund bindi, þar af eru um
8.000 bindi i geymslu vegna mikilla þrengsla.
Útlán úr safninu eru mjög mikil.
Byggðasafn: Safnið var stofnað árið 1960 af
Ungmennasambandi Borgarfjarðar, Kvenfé-
lagasambandi Borgarfjarðar, Búnaðarsam-
bandi Borgarfjarðar, Borgfirðingafélaginu i
Reykjavík og Kaupfélagi Borgfirðinga. Inn-
skráðir munir f safnið eru nú 2.374.
Héraösskjalasafn: Héraðsskjalasafn Borgar-
fjarðar var stofnað 1961 og er sameiginlega
rekið af Mýra- og Borgarfjarðarsýslum. Safnið
hefur aukist mjög af ýmiskonar efni er varðar
heimildir um fólk, jaröir og héraðið í heild á
þessari öld og fyrr. í safninu eru nú 180 hillu-
metrar.
Listasafn: Listasafn Borgarness var stofnað ár-
ið 1971 með gjöf Hallsteins Sveinssonar, er
hann gaf Borgarneshreppi 100 listaverk. Síðan
hefur hann gefið safninu mörg listaverk og
veitt því fjárstuðning. Safnið á nú um það bil
300 listaverk.
Náttúrugripasafn: Náttúrugripasafn Borgar-
fjarðar var stofnað árið 1972 og er safnið sam-
eign Mýra- og Borgarfjarðarsýslna og Borg-
arneshrepps. Upphaflega var safnað fuglum og
steinum, en árið 1973 var keypt til safnsins
einkasafn Kristjáns Geirmundssonar frá Ak-
ureyri, en í því safni var óvenju mikið af ýms-
um fágætum fuglum, islenskum og flækingum.
SAUMASTOFA PÁLÍNU
HJARTARDÓTTUR
Saumastofa Pálinu var stofnuð haustið 1983.
Hugmyndin var að framleiða leikfðng og
gjafavöru úr taui. Enn sem komið er hefur
framleiðslan verið lítil og aðallega framleiddar
eldhúsgrýlur og trúðar. Fyrirhugað er að hefja
fjölbreyttari framleiðslu, m.a. á taudúkkum
með höfuð og útlimi úr plasti.
SHELLSTÖÐIN
Shellstöðin í Borgarnesi var opnuð 1964.
Stöðin hefur frá upphafi séð um dreifingu á
bensini og olíu á öllu Vesturlandi fyrir Olíufé-
lagið Skeljung hf., að undanskildu svæðinu
sunnan Skarðsheiðar. Shellstöðin hefur frá
upphafi haft með höndum umboð fyrir Al-
mennar tryggingar hf. og síðar fyrir Flugleiðir
hf. í júni 1983 opnaði stöðin í nýjum húsakynn-
um við Brúartorg, þar sem nú er rekin fjölþætt
þjónusta við ferðamenn.
SKILTAGERÐ BJARNA
STEINARSSONAR,
MÁLARAMEISTARA
Skiltagerð Bjarna hefur starfað um tveggja
ára skeið. Fyrirtækið hefur málað skilti og
auglýsingar fyrir fjölmörg fyrirtæki í Borg-
arnesi og víðar. Fyrirtækið gerir tiliöguupp-
drætti að merkingum, sé þess óskað, og enn-
fremur föst tilboð í verk. Þjónusta skiltagerð-
arinnar felst m.a. í málun auglýsinga og merk-
inga á bifreiðir, málun skreytinga á bíla, mál-
un merkinga og auglýsinga utan á hús fyrir-
tækja og stofnana, gerð götuskilta og umferð-
armerkja og hvers konar aðra skiltagerð og
auglýsingamálun.
SPARISJÓÐUR MÝRASÝSLU
Sparisjóöur Mýrasýslu er eina peningastofn-
unin i héraðinu. Viðskiptasvæði sjóðsins er,
auk Mýrasýslu, Borgarfjarðarsýsla innan
Skarðsheiðar og sunnanvert Snæfellsnes,
ennfremur í litlum en vaxandi mæli sveitirnar
utan Skarðsheiðar. Sparisjóðurinn var stofn-
aður árið 1913. Stærstu útlánaflokkar við
sparisjóðinn eru nú landbúnaður, íbúðabygg-
ingar og iðnaður ýmiss konar. Á sýningunni
kynnir sparisjóður Mýrasýslu nýtt innláns-
form með lánsréttindum vegna fbúðabygginga
og sýnir ýmsa þjónustu, sem tölvutæknin gefur
möguleika á.
TRÉSMIÐJA ÞORSTEINS
THEODÓRSSON AR
Trésmiðjan hóf starfsemi sína árið 1962:
Fyrirtækið hefur starfað sem verktaki f bygg-
ingariðnaði og framleiðir margvfslegar inn-
réttingar. Tækjakostur fyrirtækisins hefur
nýlega verið endurnýjaður.
VÍRNET HF.
Vírnet hf. var stofnað árið 1956. Upphaflega
var í ráði að framleiða vírnet, eins og nafnið
bendir til, en frá því var horfið. Framleiðsla
var hafin á nöglum og var það meginþáttur
framleiðslunnar um árabil. Árið 1978 var hafin
framleiðsla á galvaniseruðu bárujárni og árið
1983 hófst framleiðsla á lituðu klæðningar-
stáli. Helstu nýjungar hjá fyrirtækinu á seinni
árum voru þegar keyptar voru vélar til völsun-
ar á trapisulöguðu klæðningarstáli. Jafnframt
var keypt beygjuvél af GRO-KO-gerð, með
einkaleyfisrétti fyrir ísland. Vél þessi beygir
trapisuvalsaö stál þvert á báru. Þessi nýjung
opnar hönnuðum ýmsar nýjar og áður ófærar
leiðir við hönnun og húsakæðningar, auk ann-
arra nota.