Morgunblaðið - 04.05.1985, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1985
41
Eiðar:
Prestafélag Austurlands
starfrækir sumarbúðir
Kgilsstödum, 29. apríl.
PRESTAFÉLAG Austurlands
mun starfrækja nú í sumar
sérstakar sumarbúöir fyrir
börn á aldrinum 9—13 ára á
Eiðum, en allt frá sumrinu
1968 hefur félagið starfrækt
slíkar búöir í Barnaskólanum
á Eiðum.
Sumarbúöir þessar eru ætl-
aðar börnum af Austurlandi
og fer innritun fram nú í maí-
mánuði hjá sóknarprestunum
og æskulýðsfulltrúa þjóðkirkj-
unnar á Reyðarfiröi, sem jafn-
framt gefa allar nánari upplýs-
ingar.
Að sögn sr. Vigfúsar Ingv-
ars Ingvarssonar hefur aðsókn
að sumarbúðunum farið vax-
andi hin síðari ár, einkum
Fæddur 7. júní 1920
Dáinn 24. apríl 1985
Okkur langar til þess að minn-
ast afa okkar í fáum orðum. öll
höfum við barnabörnin verið með
annan fótinn á Skriðustekknum
frá því að við munum fyrst eftir
okkur. Sjaldan fórum við þaðan án
þess að afi segði okkur eina af
þeim fjölmörgu sögum sem hann
kunni og oft fengum við eitthvert
góðgæti á meðan á sögunni stóð.
1 okkar augum var afi sá maður
sem að allt vissi og allt gat. Mörg
skiptin sátum við nokkur i kring-
um hann og horfðum á hann gera
einn af mörgum göldrum sem
barna af Héraði, og hafa færri
komist að en vildu. Hver hóp-
ur dvelur 7—8 daga í búðunum
í senn og er dvalargjald kr.
3.100-3.500.
Á Eiðum er nú nokkuð góð
aðstaða fyrir sumarbúðir. Þar
er íþróttasvæði UÍ A, sundlaug
og kirkja. Umhverfið býður
upp á tækifæri til að kynnast
náttúrunni og leyndardómum
hennar með skoðunarferðum.
Áform eru uppi um eflingu
og frekari uppbyggingu
sumarbúðastarfs Prestafélags
Austurlands á Eiðum og hefur
skáli verið reistur við Eiða-
vatn í því augnamiði, sem nú
er fokheldur. Þar hefur enn-
fremur verið sáð í íþróttavöll
og sumarbúðabörn hafa plant-
hann kunni, þá var oft glatt á
hjalla og mikið hlegið. Þar sem
hann vann við að keyra út öl hjá
Ölgerðinni, þá tók hann okkur
elstu börnin gjarnan með í ferð-
irnar og alltaf var hann hress og
kátur hvað sem á bjátaði.
Á heitum sumardögum var oft
safnast saman í garðinum á
Skriðustekknum og farið í marga
góða leiki og oftast var það afi
sem stjórnaði. Erfitt er að sætta
sig við að aldrei framar munum
við fá að njóta návistar hans og
heyra hann segja okkur sögur.
Ávallt munum við minnast hans
sem góðs manns sem var í senn afi
okkar og góður vinur.
að þar trjám undanfarin sum-
ur.
- Ólafur
Veiðimaðuriim
kominn út
TÍMARITIÐ Veiðimaðurinn kom
nýlega út, 41. árgangur, blað núm-
er 117. Efni blaðsins er fjölbreytt
að vanda, skýrsla yfir veiðina á
landinu 1984, aflaskýrslur úr ein-
stökum laxveiðiám svo sem Sog-
inu, Svartá, Laxá í Aðaldal og Ell-
iðaánum, grein eftir Orra Vigfús-
son um gáruhnútinn svokallaða,
viðtal við Þorvald Jónsson, gaml-
an laxabana, fólksíður, veiðisögur
og fleira.
Útgefandi er Stangveiðifélag
Reykjavíkur, en ritstjórar eru
Víglundur Möller og Magnús
Ólafsson.
Við þökkum þær góðu stundir
sem við höfum notið með honum
og munum aldrei gleyma.
Barnabörn
Vinabæjarmót
í Danmörku
StykkÍHhólmi, 29. ipríl.
VINABÆR Stykkishólms í Dan
mörku er Kolding. Undanfarin ár
hefír verið unnið að því að treysta
vinabæjartengslin milli þessara
staða og hefír talsvert áunnist í þeim
efnum.
Fyrstu dagana í maí á að vera
vinabæjarmót í Kolding og í til-
efni þess fara héðan 4 hrepps-
nefndarmenn ásamt konum sínum
til að taka þátt í þessu móti.
Árni
Guðmundur Eysteins-
son — Kveðjuorð
Svanberg Olesen
sjómaður - Minning
Svanberg Olesen fæddist i
Danmörku 28. júní 1961, sonur
hjónanna Sven Olesen og Ingi-
bjargar Svanbergsdóttur frá ísa-
firði. Við fæðingu hlaut hann
vöggugjafir góðar og afmælt
æviskeið sem nú er á enda runnið.
Á fyrsta æviári hans var sú
ráðabreytni að foreldrar hans
slitu samvistir og móðirin fluttist
með son sinn út til æskustöðva á
ísafirði. Þar ólst hann upp með
henni og síðan í fóstri afa og
ömmu.
Hann var kallaður Svenni, at-
hafnasamur og fjörmikill, fríð-
leiksbarn og þroskaðist brátt. Afi
og amma, þau Svanberg Sveins-
dóttir og Þorbjörg kona hans,
studdu hann fyrstu fetin og
kenndu honum. Þeim var hann
alla tíð nátengdur.
Undir brúnum vestfirsku fjall-
anna vaknaði spurningin um það
sem býr hinum megin og drenginn
greip útþrá sem engu eirði. Úr
fjallahringnum er opin, bjóðandi
leið út á hafið. Það togaði f hann
með þúsund þráðum, fullnægði
þránni og það tók hann að lokum
til sín. Hann hóf sjómennsku ung-
ur, fyrst á varðskipum, svo á fiski-
skipum.
Leiðir hans lágu til Austfjarða.
Þar var móðir hans, bræður og
stjúpfaðir sem hann tók tryggð
við. Þangað hafði líka flust ung
stúlka, Unnur Bjarnadóttir frá
Vestmannaeyjum. Þeim var skap-
að að lifa saman þar til dauðinn
skildi þau að. Þau bundust heituin
og eignuðust tvo syni, Guðmund
Heiðar og ívar Má. Þótt ung væru,
bjuggu þau í eigin húsnæði sem
heimilisfaðirinn hafði snemma
lagt grunn að. Þar sýndi hann
ráðdeild og atorku. Hjónin voru
hraust og bjartsýn.
Seint í janúar í vetur lagði tog-
arinn Hólmanes út frá heimahöfn
á Eskifirði. Engan gat grunað að
einn af áhöfninni ætti nú að inna
af hendi það skyldugjald sem allir
menn verða að greiða með lífi
sínu. En hafið var óþolinmótt og
stormurinn eirðarlaus. Ótrúar
öldur hrifu einn úr hópnum. Það
var Svenni frændi minn. Honum
varð ekki auðið grafar í grænum
reit, stuttri en starfsamri ævi
hans var lokið og ástvinirnir
reyndu sáran söknuð.
Seint verður kveðin sátt við svo
miskunnarlausan dauða og sakar-
afl skortir við sonar bana. Þrátt
fyrir allt er bjart yfir minning-
unni og hún mun ævinlega vaka
með þeim sem lifa.
á.s.
SVAR
MITT
eftir Billv Craham
Fjögurra ára sonur minn sagði í gær: „Mamma, ef Guð hefur
skapað mig og alla menn, hver skapaði þá Guð?“ Hvað segið þér
við slíkri spurningu?
Ég verð að viðurkenna, að ég hef oft heyrt þessa
spurningu, en aldrei vitað til, að fjögurra ára barn hafi
spurt hennar. En ef hann er svo kotroskinn að spyrja
svona gæti verið, að hann skildi, að spurningin er 1
samræmi við venjulega rökhyggju okkar, er við tölum
um orsök og afleiðingu.
Við menn lítum í kringum okkur og segjum: Þetta hús
er til, en smiður smíðaði það! Þetta úr er til, en úrsmiður
smíðaði það! Þannig er þessu háttað meðal okkar manna.
Við hugsum á sama veg um alheiminn. Við getum sagt:
Alheimurinn er til, en að baki hans er skaparinn — en
hver skóp skaparann? Hér rekst mannleg rökhyggja á
vegg — því að Guð er orsök allra hluta og hann hefur
hvorki upphaf né endi.
í Opinberunarbókinni segir: „Ég er alfa og ómega (a og
ö), upphafið og endirinn ... hann sem er og var og kem-
ur, hinn alvaldi„ (21,6; 1,8). Þetta eilífa eðli Guðs eigum
við erfitt með að skilja með takmarkaðri hugsun okkar,
því að við gerum ráð fyrir byrjun og endi, en Guð er
eilífur: Hann hefur alltaf verið og hann verður alltaf.
Hann sagði við börn ísraels í 5. Mós. 32,40: „Ég lyfti
hendi minni til himins og segi: Svo sannarlega sem ég
lifi eilíflega." Allt, sem við sjáum, finnum og heyrum,
mun taka enda — það eru allt „afleiðingar" hans, sem er
orsökin. En orsökin, Guð, hefur lifað og mun lifa að
eilífu.
KÓR ÖLDUTÚNSSKÓLA
1965—1985
AFMÆLISTÓNLEIKAR
í Haf narf jaröarkirkju ídag, laugardaginn 4. maíkl. 16.00.
Dvöl í orlofshúsum Iðju
löjufólagar, sem óska eftir aö dvelja í orlofshúsum fé-
lagsins í Svignaskaröi sumariö 1985, veröa aö hafa sótt
um hús eigi síðar en föstudaginn 17. maí.
Umsóknareyöublöö liggja frammi á skrifstofu félagsins
Skólavöröustíg 16.
Dregiö veröur úr umsóknum á skrifstofu félagsins 20.
maí kl. 16.00 og hafa umsækjendur rétt til aö vera
viöstaddir.
Þeir félagar, sem dvaliö hafa í húsunum á 3 undanförn-
um árum, koma aöeins til greina ef ekki er full bókaö.
Leigugjald veröur kr. 2.500 á viku.
Sjúkrasjóöur löju hefur eitt hús til ráöstöfunar handa
Iðjufélögum, sem eru frá vinnu vegna veikinda eöa fötl-
unar, og veröur þaö endurgjaldslaust gegn framvísun
læknisvottorös.
Stjórn lóju