Morgunblaðið - 04.05.1985, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1985
45
Videoleigur
athugið!
Súpur
Matarmiklar, Ijúffengar og fljótlagaðar. Bregöið út af vananum og
bjóðið upp á súpu einu sinni í viku sem aðalmáltíð. Til dæmis þessa:
„Fiskisúpa hússins“
(fyrir 4)
Notaðu þetta sem grunn-
uppskrift að fiskisúpu „þíns húss“,
hafðu það grænmeti og þann fisk
sem þú vilt hverju sinni. Mín upp-
skrift er svona:
4—5 stórar kartöflur
2 laukar (miðlungs)
2 msk. smjör
lítil dós tómatar
1 fiskteningur (fisk-bouillon)
2 tsk. salt
lk tsk. pipar
1 tsk. timian
1 hvítlauksrif (kramið)
450—500 gr. beinlaus fiskur
(ýsa, karfi eða lúða)
safi úr 1 appelsínu
saxað grænmeti (ferskt eða þurrk-
að)
rúmlega 1 lítri vatn.
Afhýðið kartöflurnar og skerið í
teninga. Grófsaxið laukinn. Bræð-
ið smjörið í potti, brúnið þetta í
2—3 mínútur. Leysið fisktening-
inn upp í vatninu, bætið í pottinn
ásamt tómötum og öllu kryddinu.
Látið sjóða í lokuðum potti í um
það bil 20 mínútur. Skerið þá
fiskinn i litla bita og látið malla
með súpunni í 5 mínútur í viðbót.
Rétt áður en súpan er borin á borð
er appelsínusafanum bætt út í og
einhverju „grænu“, steinselju,
blaðlauk, graslauk, dilli, (1—2
msk. eftir smekk). Framreidd
sjóðandi heit með grófu brauði og
smjöri (hvítlaukssmjör er afar
gott).
Súpa vikunnar (fyrir 4)
Um það bil 400 gr. reykt pylsa eða kjötafgangar, 2 msk. smjör, 1
msk. hveiti, 1 stór laukur, 6 dl vatn, 2 súputeningar, 1 poki (mið-
stærð) djúpfryst grænmeti (blandað).
Saxið laukinn og
steikið í smjöri í potti.
Dreifið hveitinu yfir
og hrærið. Þynnið með
vatninu og tætið súpu-
teninginn út f. Skerið
pylsuna (eða kjötaf-
gangana) í „stafi“
(lengjur) og látið í
pottinn með grænmet-
inu. Látið malla f 5—6
mínútur.
Smakkið til og berið
fram með brauði og
smjöri.
Gott ráð:
Ef þeyta á saman egg er
bæði fljótlegt og þægilegt að
nota til þess „hveitihristar-
ann“.
Þau eru komin myndböndin frá Warner Home Video meö íslenskum texta.
Takmarkað upplag. Hafið samband við sölumenn í símum 22214, 23698 og
651288.
Hamrasel sf.
„Teppaland opnar
DUKALAND
Teppaland hefur nú fært út kviarnar svo
um munar og opnaö Dúkaland á
jarðhæðinnl.
í Dúkalandi fást allskonar gólfefni, önnur
en teppi, mörg hver frá heimsþekktum
framleiðendum.
Aðaláhersla er lögð á hverskyns gólfdúka
en einnig eru á boðstólum parket, grá-
steinn og marmari, ásamt öðrum stein-
tegundum, keramikflisar, korkflisar og
linoleumdúkar.
Dúkaland er þvi verslun sem almennir
neytendur, fagmenn og hönnuðlr eiga
erindi i.
Verið velkomin i Dúkaland.
Að sjálfsögðu býður Dúkalandallt sem þarf
til dúka- og flisalagna, s.s. lim, sparsl,
grunna, bætiefni, fúgur, verkfæri og ræsti-
efni að ógleymdri ráðgjöf, tilboðsgerð
og lögn.
Dúkaland
Grensásvegi 13
P.S. Leitið tilboða i gólfpakka (öll gólfefni) hjá Dúkalandi og Tepplandi.