Morgunblaðið - 04.05.1985, Síða 46

Morgunblaðið - 04.05.1985, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAÍ1985 Kirkjudagur Safnaðar- félags Ásprestakalls ÁRLEGUR kirkjudagur Safnadarfé- lags Ásprestakalls er á sunnudaginn kemur, 5. maí. Dagskrá kirkjudagsins verður flutt í Áskirkju og tengd guðs- þjónustu sem hefst klukkan 14. Félagar úr Lúðrasveitinni Svani munu leika nokkur lög. Þá mun kirkjukór Áskirkju syngja undir stjórn Kristjáns Sigtryggssonar, organista. Á þessu ári eru tuttugu ár liðin frá stofnun kirkjukórs Áskirkju og dagskrá kirkjudagsins helguð þeim tímamótum. Flytur kórinn sálmalög eftir íslenzka höfunda auk kunnra erlendra sönglaga úr sálmasjóði kirkjunnar. Einsöng með kórnum syngur Elín Sigur- vinsdóttir, söngkona. Eftir samveruna í kirkjunni verður kaffisala i Safnaðarheimili Áskirkju og veizlukaffi á boðstól- um eins og jafnan á kirkjudaginn. Rennur ágóði kaffisölunnar til kirkjubyggingarinnar, sem þrótt- mikið starf safnaðarfélagsins átti drýgstan þátt í að reisa og prýða. I sumar er í ráði að ganga frá bílastæðum ofan kirkjunnar og upphitaðri göngu- og akbraut að kirkjudyrum og stétt við inngang- inn, sem verður til mikilla bóta. Eg vænti þess að sem allra flest sóknarbörn og vinir og velunnarar Áskirkju leggi leið sína til hennar á kirkjudaginn og njóti þess sem fram verður reitt og styðji gott málefni og samfagni hinum ágæta kór kirkjunnar þakklátum huga. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Þóra Siguröardóttir sýnir í Nýlistasafni NÚ STENDUR yfir í Nýlistasafninu sýning á verkum Þóru Sigurðardótt- ur, en Þóra stundaði nám við Mynd- lista- og handíðaskóla íslands á ár- unum 1975 til 1981. Á sýningunni eru pastelteikn- ingar, grafík og fleira. Nýlista- safnið er opið frá klukkan 16—20 virka daga, en um helgar er opið frá klukkan 14—20. Sýningunni lýkur sunnudaginn 5. maí. Kitt verkanna á sýningunni Morgunblaðið/Bjarni Asa Svavarsdóttir, Kjartan Bjargmundsson og Gísli Halldórsson æfa gleðileik Olafs Hsuks Símonarsonar f Iðnó. Leikfélag Reykjavíkur: Gleðileikur Ólafs Hauks Símonarsonar síðasta verkefnið ÆFINGAR standa nú yfir á síð- asta verkefni leikársins hjá Leikfé- lagi Reykjavikur. Er það nýr ía- lenskur gleðileikur eftir Ólaf Hauk Símonarson. Þetta leikrit hefur að undanförnu verið sýnt á Húsavík undir stjórn Þórhalls Sig- urðssonar, en það er einmitt hann sem setur upp sýningu Leikfélags- ins nú. f frétt frá Leikfélagi Reykja- vlkur er gleðileikurinn kynntur þannig: „Leikurinn fjallar í stuttu máli um ástarflækju ungra hjóna sem hafa leitast við að lifa í „opnu“ og frjálslegu hjóna- bandi, en slíkt getur reynst erf- itt til lengdar, ástin lætur ekki að sér hæða. Við sögu koma einnig, auk hjónanna, ung menntakona sem býr á heimili þeirra, tannlæknirinn Nói, sem er heimilisvinur, og vaxtarrækt- artröllið Hallur ásamt fleiri spaugilegum persónum." Með stærstu hlutverk í sýn- ingu Leikfélagsins fara Kjartan Bjargmundsson, Ása Svavars- dóttir, Gísli Halldórsson, Val- gerður Dan, Jón Hjartarson og Margrét Ólafsdóttir. Jón Þóris- son gerir leikmynd, en leikstjóri er, sem fyrr sagði, Þórhallur Sig- urðsson. Frumsýning er fyrir- huguð um miðjan maí. Revíu þeirri, sem verið hefur í æfingu hjá Leikfélaginu eftir Eddu Björgvinsdóttur, Jón Hjartarson og Hlín Agnarsdótt- ur og upphaflega átti að verða lokaverkefni leikársins, hefur verið frestað þar til síðar í vor. Stefnt er að þvi að sýna hana þá í Austurbæjarbíói. Útivist um helgina Á SUNNUDAG eru tvær ferðir hjá Útivist. Kl. 10.30 er ný ferð, en þá verður gengið undir Festarfjalli á stórstraumsfjöru. Þar er aðeins hægt að ganga þegar mjög er lág- sjávað. Áfram verður gengið að Is- ólfsskála og Selatöngum. Að Sela- töngum er einmitt ferðin kl. 13. Þar er margt að sjá t.d. eru þar með merkustu minjum um útræði fyrri tíma. Einnig verða skoðaðar refa- gildrur og sérkennilegar hraun- borgir í Katlahrauni. Brottför er frá BSl, bensínsölu. Á þriðjudags- kvöldið verður myndakvöld hjá Útivist, það síðasta á vetrinum. Þar verða kynntar sumarleyfis- ferðir. (FerWétafM Ottri-t) Guðmundur Ómar Svavarsson meö eina mynda sinna. Guðmundur Ómar sýnir í Hafnarborg GUÐMUNDUR Ómar Svavarsson opnar málverkasýningu í Hafnar- borg, Hafnarfirði, í dag, laugardag, klukkan 14. Á sýningunni er 31 mynd, unnar í olíuvatnsliti og kol. Sýningin verður opin daglega frá klukkan 14—19 nema sunnudag frá klukk- an 14—22 til 19. maí. HINN MANNLEGI ÞATTUR/EFTIR ÁSGEIR HVÍTASKÁLD Hvalir og villimannseðli Síðari hluti Við höldum áfram þar sem við vorum í miðjum hvalveiðitúr með Færeyingum. Þar sem stór báta- skari var að elta og smala stórri hvalahjörð. Mennirnir um borð í hraðbrátn- um voru hundvotir. Það draup úr hári drengjanna á gúmmíbátnum og þeir skulfu af kulda. Maður í stafni slippsbátsins kastaði hamri stöðugt í sjóinn. Ég mundaði myndavélina. Grindin fór að koma tíðar upp; farin að þreytast. Hryggurinn bognaði er hvalirnir létu sig líða niður og sporðblaðið lá þvert. Við nálguðumst hina bát- ana og mér skildist að báðir flokk- arnir væru komnir saman núna. Nú röðuðu bátarnir sér í langa lfnu og var engin undankomuleið fyrir grindina. Ég hef aldrei séð slíkan bátafjölda á sjó. Og í hverj- um bát voru einum of margir menn. Flestallir karlmenn kaup- staðarins voru hér saman komnir. Stundum reyndu hvalirnir að kafa undir bátana en þá var kast- að allt hvað af tók. Ég var með grjót í bandi og kastaði svo gusað- ist framan í mig. Einhver undar- . )eg öfl höfðu náði valdi á mér. Einn bátur var fremstur og var hann með færeyska fánann í skut. Það var bátur formannsins og hann stjórnaði þessari aðför. j Hann var með lúður og kallaði til * mannanna. Bannaði þeim að fara í of nálægt og passaði að enginn færi að stinga þá að óþörfu. En mennirnir voru orðnir æstir og stundum fóru þeir fram fyrir formanninn, sem jós þá yfir þá skömmum. Það var hans hlutverk að sjá til þess að drápið færi manneskjulega fram og ef vel var gert, þá tókst að reka hvalina alla upp á land þar sem hægt var að lífláta þá með einum hnífskurði. Ef það tókst töluðu Færeyingarnir um gott grindardráp, en annars var það slæmt. Hægt og sígandi var hvalahjörðin rekin í átt að vík, rétt við Þórshöfn, þar sem lítil á rann til sjávar. Nú var orðið mjög þétt á milli bátanna og mennirnir orðnir mjög æstir, margir voru komnir fram fyrir formanninn. Formaðurinn kallaði sífellt á menn um að stinga ekki strax. Við drógum okkur aft- ur úr, skipstjórinn vildi ekki taka þátt í drápinu. Allt i einu heyrðust öskur, einhver hafði stungið og sást gusugangur í sandfjörunni. Hvalahjörðin var nú afkróuð á litlu svæði og kraumaði nú þar í eins og suðupotti. Þetta hafði eitthvað ekki tekist rétt; því hval- irnir syntu ekki allir upp á land. Hjartað í mér fór að slá hraðar og ég bað um að vera settur í land. Ég hljóp eins og fætur toguðu á steinum í fjörunni, hélt um myndavélina svo hún dinglaði ekki. Allt var morandi í kvenfólki; þær stóðu í öllum brekkum og á steinum. Er ég kom í sandfjöruna, lafmóður og titrandi í hnáliðun- um, var sjórinn litaður blóði og gusaðist hátt í loft frá sporðum hvala sem verið var að stinga. Ég byrjaði að taka myndir. Færey- ingarnir óðu út í með kaðal á milli sín og sá fremsti hélt á krók sem hann síðan hjó í særðan hval sem mannaflinn dró síðan upp í flæð- armálið. Annar dró stóran hníf úr tréhulstri og beið þar til hvalurinn var rólegur augnablik, skar hann þá skurð þvert, rétt fyrir aftan öndunaropið. Blóð spýttist út, hvalurinn tók einn dauðakipp og var síðan samstundis látinn. Ég titraði og skalf af spenningi og var of æstur til að finna til með skepn- unum. Auðvitað var filman búin þegar mest gekk á. Litlir pollar stóðu hálfir í sjó og fylgdust með. Erlendir atvinnu- ljósmyndarar óðu um. Mér sýndist annar hver maður vera með myndavél. Mennirnir í bátunum stungu hvalina með spjótum sínum, öðru hvoru sást sporður eða höfuð koma upp úr eldrauðum sjónum. Hver hvalurinn á fætur öðrum var dreginn á land. Sumir á bátunum kræktu í þá og reyndu að teygja sig út fyrir borðstokkinn og skera Hvalur aflífaður með einni hnífsstroku. þvert. Mennirnir voru komnir í slíkan ham að þeir hræddust ekk- ert, veiðimannseðlið hafði náð tökum á þeim og mér líka. Maður um borð í litlum hvítum árabát hafði krækt í hval sem var þrisvar sinnum stærri en bátur- inn. Hvalurinn tók á rás með bát- inn. Tveir fullorðnir og tveir drengir voru um borð og ríghéldu sér i spottann. Báturinn svínhall- aði, kastaðist til og skall utan í aðra báta. Annar drengurinn flúði fram í stafn. Menn í öðrum bátum stungu hvalinn sem djöflaðist svo að komu boðaföll. Eitt skiptið kom hvalurinn hálfur upp úr og stang- aði annan bát svo glumdi í og klið- ur heyrðist frá áhorfendaskaran- um. Hvað eftir annað munaði að- eins hársbreidd að litli báturinn færi á hliðina en alltaf héldu mennirnir í spottann. Ég hitti Færeying sem talaði ís- Hvalsunginn tístir ekki lengur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.