Morgunblaðið - 26.05.1985, Side 4
-4- 'fi
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1985
Stúlkurnar í sex efstu sætunum í Fegurðarsamkeppni íslands árið 1959. Frí vinstri: Sigríður Jósteinsdóttir (6. sæti),
Þuríður Guðmundsdóttir (5. sæti), Sigurbjörg Sveinsdóttir (4. sæti), Edda Jónsdóttir (3. sæti), Sigríður Geirsdóttir (1.
sæti) og Ragnheiður Kristín Jónasdóttir (2. sæti). Keppnin var haldin undir berum himni í Tívolí og greinilega hefur
ekki verið blankalogn í þetta sinn.
Fegurðarsamkeppni var fyrst haldin á íslandi árið 1950, en þá
var Kolbrún Jónsdóttir kjörin fegurðardrottning Reykjavíkur.
Engin keppni var árið 1951, en ’52 og ’53 sigra Elín Snæbjörns-
dóttir og Sigríður Jóna Árnadóttir í þessari keppni. I>að var
Fegrunarfélag íslands sem stóð fyrir þessum keppnum reyk-
vískra fegurðardrottninga.
Árið 1954 er fyrsta fegurðar-
Jrottning íslands kosin í Tivolí, en
,>að var Ragna Ragnars. 1955 sigr-
aði Arna Hjörleifsdóttir og hún
tók siðar þátt í keppninni Ungfrú
alheimur, fyrsta íslenska fegurð-
ardrottningin sem fór utan til
keppni. Árið 1955 markaði þvi að
vissu leyti tímamót, því upp frá
bví gátu íslenskar fegurðardísir
vænst þess að fá eitthvað út úr því
að hreppa titilinn fegurðardrottn-
ing íslands. Þetta ár komu stúlkur
fyrst fram í baðfötum.
Ágústa Guðmundsdóttir sigraði
keppninni árið 1956, en þar sem
hún var gift gat hún ekki tekið
:>átt í Miss Universe-keppninni, og
Guðlaug Guðmundsdóttir fór utan
sem fulltrúi íslands það ár.
Árið 1957 er Bryndís Schram
kosin fegurðardrottning íslands,
<>g Sigríður Þorvaldsdóttir 1958.
Sigríður náði fyrst íslenskra feg-
irðardrottninga raunverulegum
irangri í keppni erlendis, en hún
komst f 15 stúlkna úrslit í keppn-
nni am Ungfrú alheim.
Árið 1959 fór fegurðardrottning
Islands, Sigríður Geirsdóttir, á
Miss International-keppnina, sem
þá var haldin i fyrsta sinn á
^angasandi í Kaliforníu, og náði
þar þriðja sæti. Hún var einnig
kjörin Miss photogenic, eða Ung-
frú „myndræn", vinsælasta stúlk-
an og auk þess í fegursta þjóð-
búningnum. Árinu á eftir, 1960,
lék fegurðardrottning þess árs,
Sigrún Ragnars, það eftir Sigríði
aö vera kjörin vinsælasta stúlkan
i sömu keppni, og hafnaði auk þess
í fimmta sæti í aðalkeppninni.
Árið 1961 komst Fegurðar-
drottning íslands, Maria Guð-
mundsdóttir, í undanúrslit í Miss
International-keppninni og sú sem
varð í öðru sæti, Kristjana Magn-
úsdóttir, komst i 15 stúlkna úrslit
í Miss Universe.
Árið 1962 er „stóra árið“ í sögu
íslenskrar fegurðarsamkeppni, en
stúlkurnar sem hrepptu fyrsta og
annað sætið í keppninni um Ung-
frú ísland, Guðrún Bjarnadóttir
og Anna Geirsdóttir, náðu báðar
frábærum árangri í erlendum
keppnum. Guðrún varð númer
þrjú í keppninni um Ungfrá Norð-
urlönd, númer fimm í Ungfrú Evr-
ópu-keppninni, og sigraði síðan
árið eftir í Miss International-
keppninni á Long Beach. Anna
varð hins vegar í öðru sæti í
keppninni um Miss Universe og
var auk þess kosin besta ljós-
myndafyrirsætan eins og systir
hennar Sigríður þremur árum áð-
ur.
Árið 1963 varð Thelma Ingvars-
dóttir fegurðardrottning íslands
og 1964 vann hún keppnina um
Ungfrú Norðurlönd. Arið 1964
varð Pálína Jónasdóttir Ungfrú
ísland og Elísabet Ottósdóttir I
öðru sæti, eða Ungfrú Reykjavík.
Elísabet komst í 15 stúlkna úrslit í
Miss International-keppninni.
Árið 1965 sigraði Sigrún Vign-
isdóttir í fegurðarsamkeppni ís-
lands og Kolbrún Einarsdóttir
1966. Árið 1967 var engin fegurð-
arsamkeppni haldin á landinu, en
Guðrún Pétursdóttir var kjörin
fulltrúi fslands á allar erlendu
keppnirnar. Jónína Konráðsdóttir
Ungfrú Astralía krýnir Guðrúnu Bjarnadóttur Miss International árið 1963.
Einar Jónsson framkvæmdastjóri í
Tívolí og maðurinn i bak við Feg-
urðarsamkeppni íslands um iratuga-
skeið er þarna með Sigrúnu Ragn-
ars, fegurðardrottningu íslands irið
1960.
sigraði 1968, en Helen Knútsdótt-
ir, sem varð í öðru sæti, keppti
fyrir íslands hönd í erlendum
keppnum það ár. María Baldurs-
dóttir varð Ungfrú ísland árið
1%9 og náði þriðja sæti í keppn-
inni um Miss Scandinavia.
Árið 1970 hófust sýslukeppnirn-
ar svokölluðu, undankeppni sem
fram fór um allt land fyrir sjálfa
úrslitakeppnina. Erna Jóhannes-
dóttir hreppti titilinn það ár, en
stúlkan í fimmta sæti, Anna
Scheving, komst í undanúrslit í
Miss World-keppninni í London.
Árið 1971 var Guðrún Valgarðs-
dóttir kjörin Ungfrú ísland, en
þetta ár kom upp deila á milli
framkvæmdaaðila Miss Universe
og Miss International, sem leiddi
til þess að það þurfti að halda sér-
staka keppni fyrir væntanlega
þátttakendur í Miss International,
bæði í yngri og eldri flokki. Henný
Hermannsdóttir, sem hafði árinu
áður sigrað í keppninni um Miss
Young International, sá um þessa
keppni hér og sigurvegarar urðu
þær Matthildur Guðmundsdóttir í
eldri flokki og Helga Eldon í yngri
flokki. Helga komst í undanúrslit í
keppninni um fulltrúa ungu kyn-
slóðarinnar í Japan.
Árinu á eftir hafði tekist að
leysa deiluna, þannig að hægt var
að velja keppendur í Miss Young
International í Fegurðarsam-
keppni fslands. Þórunn Símonar-