Morgunblaðið - 26.05.1985, Page 11

Morgunblaðið - 26.05.1985, Page 11
MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1985 ÞRÁSETA Kennslustund í kergju Fáar þjóðir hafa eins mikla nautn af vinnu og Japanir. Japanskt máltæki segir að standi nagli út verði að reka hann inn. Eigi að siður ber það við, að þessir miklu hagleiks- menn á sviði þjóðfélagsmála rekist á nagla sem illmögulegt virðist að reka inn með eðli- legum hætti. Og þar sem þjóðfé- lagið gerir ekki ráð fyrir slíku verður niðurstaðan oft fáránleg. Eitt slíkt dæmi varðar kenn- ara nokkurn, 39 ára að aldri. Hann starfar í skóla fyrir fötluð börn í bænum Zentsuji á sunn- anverðri Shikoku-eyju, þ.e.a.s þar er hann ráðinn til kennslu, þó að lítið hafi borið á henni á siðastliðnum tveimur árum. Meðan á skólatíma stendur situr hann nefnilega í bifreið sinni á bílastæði skólans en er á fullum launum. Yfirvöld hafa ekki vilj- að skýra frá nafni hans og vita í rauninni ekki hvernig þau eiga að snúa sér i þessu undarlega máli. Hann mætir stundvíslega á hverjum morgni og skráir sig á viðvistarskrá kennara. Þvínæst fer hann aftur út i bílinn. Þar situr hann til kl. 5 siðdegis en til hádegis á laugardögum. Hann hefur haft. þennan hátt- inn á frá því i maí 1983. Þá var hann kennari við framhalds- skóla i annarr borg, en var færður um set í von um að hann léti láta af uppteknum hætti. Það gerði hann þó ekki og hið opinbera verður að greiða hon- um tæpar 40 þúsund krónur mánaðarlega fyrir að vera í fýlu. Síðustu tvö ár hafa skólayfir- völd og fræðsluráð sárbeðið manninn um að fara aftur að kenna. Hann segist ekki gera það nema með því skilyrði að hann fái vinnustofu í skólanum til einkaafnota. Hann hefur tvisvar sinnum kvartað yfir því að framhjá sér hafi verið gengið við stöðuhækkun og hann á í stöðugum útistöðum við sam- starfsmenn sína og granna. Foreldrar nemenda eru að vonum æfir vegna þessarar framkomu kennarans og hafa lagt fast að fræðsluráði að að- hafast eitthvað í málinu. Fræðsluráð hefur lýst yfir fyrir sitt leyti að við svo búið verði ekki lengur látið standa. En þeg- ar undirritaður hafði samband við skólann fyrir skömmu til að spyrjast fyrir um málið, fengust þau einu svör, að þeir sem önn- uðust málefni starfsmanna skól- ans yrðu ekki viðlátnir þann daginn. — PETER MCGILL tannlæknaskýrslunni upp í röntg- en- og heilaskoðanir. Höfundar kortsins eru þrír ung- ir menn, sem allir eru hinir mestu snillingar i tölvufræðunum þótt enginn þeirra hafi neitt próf upp á það. Foringinn í hópnum er 19 ára gamall, Douglas Becker að nafni, en hann fékk til liðs við sig tvo félaga sína, 23 ára gamla, sem hætt höfðu námi eftir fall I menntaskóla. Með hugmyndina fullbúna fóru þeir síðan til sjúkra- tryggingafyrirtækisins „Blue Cross and Blue Shield" í Maryland og þar var henni tekið tveim hönd- um. „Þetta var stórkostlegt," sagði John Anderson, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins. „Þeir fengu þessa hugmynd, fullunnu hana og komu með hana til okkar. Að sjálfsögðu tókum við henni fagn- andi því að við erum alltaf að reyna að bæta félagsskírteinin." Fyrir margan manninn getur nýja kortið verið nokkurs konar björgunarhringur því að læknar hika oft við að meðhöndla sjúkl- inga nema þeir þekki sjúkrasögu þeirra og viti fyrir vfst, að þeir séu tryggðir. Meðal þess, sem minnið í kort- inu geymir, er mynd af sjúklingn- um, mynd af eiginhandaráritun hans, sjúkratryggingarupphæðin og að sjálfsögðu öli sjúkrasagan. Læknar á sjúkrahúsum og heimil- islæknar viðkomandi geta skoðað öll þessi gögn en þeir, sem aðeins fást við sérhæfð svið eins og t.d. tannlæknirninn og augnlæknir- inn, geta aðeins skoðað það, sem þeim kemur við, nema fram á ann- að sé farið. Þannig er einnig um lyfsala, sem geta kynnt sér þau lyf, sehi sjúklingurinn hefur áður fengið. — ALEX BRUMMER Afleiöingarnar geta oröiö hrikalegar ef hitastigið hækkar um þrjár til fjórar gráður eins og ýmsir vísinda- sjá: veðurfar menn óttast B 11 Örin: Þrettán milljónir tonna af sprengjum. __________________________________________________________ f úttekt Víetnam er enn flakandi í sárum egar þess var minnst, að tíu ár voru liðin frá því að Víet- namstríðinu lauk með falli Sai- gon-borgar, birtu stjórnvöld þar skýrslu um ástand umhverfismála í landinu og kemur þar fram, að langt sé í frá, að landið sé búið að jafna sig á sprengjuregninu i styrjöldinni. Landsmenn voru líka varaðir við og sagt, að ef þeir lærðu ekki að fara betur með minnkandi náttúruauðæfin stefndi i stórslys fyrir þjóðina. Skýrslan var unnin að nokkru leyti fyrir sænskt fé og einnig starfaði að henni ráðgjafi frá Al- þjóðlegu náttúruverndarsamtök- unum, sem aðsetur hafa i Sviss. Er skýrslan framlag Vietnama til þess átaks í umhverfismálum, sem samtök um allan heim byrjuðu ár- ið 1980. í skýrslunni segir, að í stríðinu hafi Bandaríkjamenn dreift 72 milljónum lítra af skordýraeitri yfir landið og varpað á það 13 milljónum tonna af sprengjum. Sýru var kastað á kalksteininn og risastórar jarðýtur sópuðu jarð- veginum og skóginum ofan af berginu undir. Síki og flóðgarðar urðu illa úti í sprengjukastinu og svo var einnig um mangrófenin og skógana og jafnvel villt dýr eins og fílinn, sem annars hefði mátt nota til flutninga. Komist er að þeirri niðurstöðu í skýrslunni, að 135.000 hekturum af gúmmíviðarekrum og 20 millj- ón rúmmetrum af viði hafi verið eytt og að enn séu 1,7 milljónir ekra ónothæfar vegna dioxíneitr- unar. í Víetnam eru enn 25 millj- ónir sprengjugíga, sem upp úr þyrluðust þrír milljarðar rúm- raetra af mold, ár hafa brotist úr fyrri farvegi sínum og áveitu- skurðirnir gegna ekki þvi hlut- verki, sem þeim var upphaflega ætlað. í skýrslunni er viðurkennt, að á þessa eyðiieggingu hafi verið auk- ið með óheftri fólksfjölgun og FERDALÖG Dýrt spaug að æja í Osló Niðurstöður alþjóðlegrar verð- lagskönnunar, sem birtar voru fyrir skömmu, leiða í ljós að dýrast er fyrir útlendinga að dveljast í Lagos, höfuðborg Níg- eríu, en þá koma Tókýó, Teheran og Kairó. Það var fyrirtækið Business Int- ernational sem hafði veg og vanda af þessari könnun. Hún fór fram í janúar síðastliðnum og fram- kvæmd hennar var þannig að rannsakað var verð á sambæri- legum vörutegundum í 98 borgum. Samkvæmt niðurstöðum könn- unarinnar er verðlag í Lagos 46% hærra en í New York og er ástæð- an einkum svimandi hátt svarta- markaðsverð, sem veldur því með- al annars að kíló af hrísgrjónum kostar um það bil 700 krónur. Eins og fyrr segir er verðlag næsthæst í Tókýó og Teheran, en þar í borg er mun dýrara fyrir ferðamenn að framfleyta sér en þá innfæddu, því að þeir siðarnefndu fá skömmtunarseðla en hinir ekki. í könnuninni segir, að sterk staða Bandaríkjadals hafi haft þau áhrif að verðlag hafi hækkað í bandarískum borgum en lækkað að sama skapi annars staðar fyrir bandaríska þegna. Verðlag er hærra í Osló en í nokkurri annarri höfuðborg í Evrópu, en næst koma Zúrich og Genf í Sviss og þá Vín- arborg og síðan Stokkhólmur. Óvíða er verðlag hagstæðara fyrir ferðamenn en í Lundúnum. Hins vegar er Lissabon sú borg í stórkostlegri rányrkju á auðlind- um landsins. Fyrir 40 árum var 50% meira af skógi í Víetnam en nú er og árlega fara 200.000 hekt arar forgörðum í skógareldum og stanslausri ásókn eftir timbrinu. Nokkuð er um, að reynt sé að planta út nýjum trjám, en talið er, að aðeins sé staðið við lítinn hluta áætlana þar að lútandi. — IAIN GUESTI Evrópu þar sem verð er lægst, en Rio de Jeneiro á þá heimsmetið þótt verðbólga þar á siðasta ári hafi verið 219%. Þegar bornar eru saman niður- stöður þessarar könnunar og ann- arrar sambærilegrar sem gerð var fyrir árið 1983 kemur í ljós að í Buenos Aires jókst verðbólgan á þessu tímabili um 865%, en 453% í Tel Aviv. I Evrópu var verðlag hinsvegar yfirleitt stöðugt með fáeinum und- antekningum. Til dæmis var 22% verðbólga í Aþenu á síðastliðnu ári og 10% í Rómaborg. í Lundún- um reyndist hún 6%, en hvergi minni en í Frankfurt eða aðeins 2,5%.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.