Morgunblaðið - 26.05.1985, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1985
B 15
*
Islensku hjálpar-
liðarnir geta sér
gott orð:
Neyðar-
kall frá
Eþíópíu
Engin lendingargjöld
borguð af íslensku
hjálparvélunum
EVRÓPSKAR hjálparstofnanir í
Eþíópíu hafa sent frá sér neyðarkall
og óskað eftir fé til kaupa á útsæði.
I>ar hefur rignt duglega að undan-
förnu og eru akrar orðnir hæfir til
erju — en sáðkorn er ekki til, að því
er Árni Gunnarsson starfsmaður
Hjálparstofnunar kirkjunnar sagði í
samtali við blm. Morgunblaðsins.
Hann sagði óljóst hversu mikla hjálp
hjálparstofnunin gæti veitt, það ylti
á undirtektum almennings hér á
landi.
Fleiri íslenskir hjálparliðar eru
nú á leið suður til Gþíópíu til
hjálparstarfa á vegum Lútherska
heimssambandsins og Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar. Árni sagði
að íslendingarnir, sem þar hafa
verið undanfarna mánuði, hafi
getið Sér afburða gott orð og hefði
verið óskað eftir að þeir yrðu leng-
ur eða að aðrir eins yrðu sendir í
staðinn. „Þörfin er geysilega mikil
og þvi verðum við að vona að við
getum haldið áfram að leggja
okkar af mörkum til fólks í
Eþíópíu, sem býr við ótrúlega ör-
birgð," sagði Árni.
í Morgunblaðinu á föstudag
sagði frá nokkrum tekjum stjórn-
valda suður þar af hafnargjöldum
skipa, sem komið hafa með hjálp-
argögn. Engin slík gjöld hafa ver-
ið innheimt af íslenskum hjálp-
arvélum sem farið hafa suðureftir,
að því er Árni sagði. „Það liggur
fyrir samþykkt ríkisstjórnar
Eþíópíu um að innheimta ekki
þessi gjöld af hjálparflugvélum.
Mér hefur þó skilist að einhverjir
hafi borgað þessi gjöld engu að
síður enda hugsa vafalaust ein-
hverjir sem svo, að ekki muni um
einn kepp í sláturtíðinni og að
greiðsla lendingargjalda gæti ef
til vill líka verið þróunaraðstoð.
Um hafnargjöld veit ég ekki en
mér koma fréttir af þessu tagi á
óvart."
Bæklingar um
Reykjavík
fyrir ferðamenn
Á VEGIIM samstarfsnefndar um
ferðamál í Reykjvík hefur verið unn-
ið að ýmsum kynningarmájum fyrir
ferðamenn í Reykjavík. Á vegum
nefndarinnar er nú verið a drcifa
cftirtöldum bæklingum:
Bæklingi á ensku með upplýs-
ingum um Reykjavík; götukorti af
Reykjavík með upplýsingum á ís-
lensku og ensku; upplýsingabækl-
ingi á íslensku og ensku um söfn
og sýningar í Reykjavik; kynn-
ingarbæklingi á ensku ætluðum til
dreifingar erlendis. Einnig hefur
verið gefið út veggspjald með
mynd af Reykjavík.
í Umferðarmiðstöðinni
v/Hringbraut er tekið við farangri
ferðamanna til geymslu. Opnun-
artími hefur nú verið lengdur og
verður opið um helgar í sumar.
Opnunartíminn verður þannig;
opið virka daga frá kl. 7.30—21.30;
laugardaga kl. 7.30—14.30; sunnu-
daga kl. 17.00-19.00.
(Fréttatilkynning.)
Sædýrasafnið
• > T • -- ' V '
Sædýrasafnið er opið alla daga frá kl.
10—19. Fáar sýningavikur.
MYNDLISTASKOLINN
Á AKUREYRI
Inntökupróf
Irintökupróf í Myndlistaskólann á Akureyri fyrir skóla-
áriö 1985—1986 veröur haldiö dagana 3.-6. júní
nk.
Umsækjendur láti skrá sig á skrifstofu skólans fyrir
29. maí.
Skólastjóri.
Drekkum mjólk
' Mjólk: Nýmjólk. léttmjólk, eða undanrenna.
Til þess að bein líkamans vaxi eðlilega í œsku og haldi sfyrk
sínum á efri árum þurfa þau daglegan skammt af kalki.
Mjólkin er rfkasti kalkgjafi sem völ er á. Líkaminn framleiðir
ekki kalk sjálfur en verður að treysta á að daglega berist
honum nœgilegt magn til að halda eðllegri líkamsstarfsemi
gangandi.
99% af kalkinu fertil beina og tanna; hjá bömum og unglingum
til að byggja upp eðlilegan váxt; hjá fullorðnu fólki til að viðhalda
styrknum og hjá ófrfskum konum og brjóstmceðrum til viðhalds
eigin líkama auk vaxtar fóstursins og mjólkurframleiðslu f
brjóstum.
Kalkið gegnir því veigamiklu hlutverki og skortur á því getur haft
slœmar afleiðingar. Algengasta einkennið er beinþynning,
hrömunarsjúkdómur sem veldur stökkum og brothœttum
beinum auk breytinga á líkamsvexti.
Með daglegri mjólkumeyslu má vinna gegn kalkskorti og
afleiðingum hans, byggja upp sterk bein hjá bömum og
unglingum og viðhalda styrknum hjá fullorðnu fólki.
Afleiðingar
beinþynningar
HÆÐ
160
Helstu heimildr: Bækínqunnn Kak og beinþynning efbr dr. Jón
Óttar Ragnarsson og Nutrition and Phyécal Rlness, 11. úlg.,
efbr Briggs og Calciway. Holt Ftenharrt and
Winslon, 1984.
ALDUR
Hvernig beinþynning leikur útlitið
A. Eðlileg lögun og eðlileg hœð
B. Bogið bak og minni hœð
C. Herðakistill og enn minni hœð
MJÓLKURDAGSNEFND