Morgunblaðið - 26.05.1985, Page 17

Morgunblaðið - 26.05.1985, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, 3UNNUDAGUR 26. MAl 1985 B 17 QuAmundur Emilsson hefur vsriö söngstjóri Söngsveitarinnar í þrjú ár og stjómar hér æfingu í Meiaskólanum. Söngsveitina Fflharmónfu skipa nú um 40 manns, konur og karlar, á öllum aldri og úr öllum státtum. Núvsrsndi stjórn, söngstjóri, raddþjálfari og undirlsikari. Frá vinstri: Sigrún Andrásdóttir radd- þjálfari, Elín Möller gjaldkeri, Astríöur Guömundsdóttir, Vil- helmína Ólafsdóttir undirleikari, Sigurbjörg Gröndal, Guðmundur Emilsson söngstjóri, Margrét örnólfsdóttir, Emma Eyþórsdótt- ir. Fremstar á myndinni eru Anna María Þórisdóttir ritari og Dóro- thea Einarsdóttir formaóur. Fyrstu stjómina skipuöu þau Sigurlaug Bjarnadóttir ritarí, Lúövík Albertsson gjaldkeri, Rolf Markan vara- formaður, Siguröur Þóröar- son vararitari, og Aóalheióur Guðmundsdóttir formaóur. Róbert A. Ottósson var fyrsti stjómandi söngsveitarinnar og mótaói starf hennar frá upphafi. Myndin er tekin stuttu áóur en Carmina Bur- ana var frumfiutt 23. apríl 1960, og heldur Róbert á köku sem bökuö var af því tilefni. til að takast á við þetta verkefni, og fá einsöngvarana hingað heim. Stærsta sönghlutverkið er í höndum Sigrúnar Hjálmtýs- dóttur — Diddú — og er þetta í fyrsta sinn sem hún syngur opinberlega með Sinfóníu- hljómsveit íslands að því er ég best veit.“ Margrét Örnólfsdóttir einn af stofnfélögum og í stjórn Söngsveitarinnar „Ég byrjaði haustið 1959, þá rétt orðin 18 ára. Valdimar bróðir var í framkvæmdanefnd félagsins Fílharmónía og var duglegur að smala. Eitt sinn var ég að syngja heima fullum hálsi, það var söngur selstúlkunnar að mig minnir, og þá gall við í Valdimar; „hva, þú getur bara alveg sungið líka!“ Eg átti svo söngelskar systur að þær höfðu alveg stolið senunni. Ég var dregin í raddprófun heima hjá dr. Róbert og byrjaði í söng- sveitinni, við vorum tvær lang- yngstar og gerðum fyrst heil- mikið sprell á æfingu. í söng- sveitinni voru þá um 40 manns og síðan hef ég sungið í henni með nokkrum hléum, var eitt ár í Vestmannaeyjum og hef verið nokkrum sinnum löglega afsök- uð vegna barneigna og þesshátt- ar. Eitt sinn ákvað ég að hætta alveg, það var 1981. En um ára- mótin 1982—83 frétti ég að það ætti að fara að syngja 9. sinfóní- una og hún tældi mig, ég varð að syngja hana enn einu sinni og síðan hefur ekkert orðið úr því að ég hætti. Æfingar eru tvisvar í viku og þetta er því dálitið tímafrekt, en ég er líklega hald- in ólæknandi sönggleði, syng alltaf, sama í hvaða skapi ég er, og þar að auki hef ég mikla anægju af að vera í margmenni, innan um fólk, og ég hef eignast marga ágæta vini hérna." Ragnar Árnason fyrrverandi formaöur Ég byrjaði í söngsveitinni í febrúar ’69. Ég hef alltaf haft talsverðan áhuga á tónlist, en þegar ég fór að syngja í söng- sveitinni hafði ég lítið sem ekk- ert sungið frá því ég var í Menntaskóla. Það vannst lítill tími til þess meðan ég var í námi erlendis og á fyrstu árun- um eftir að ég kom heim. Aðdragandi þess að ég fór í söngsveitina var að ég var með í Þingeyingakórnum ásamt Aðal- geir Kristjánssyni sem var þá í söngsveitinni. Aðalgeir notaði tækifærið og smalaði liði yfir í söngsveitina þar sem kórinn vantaði karlaraddir, við æfðum í ár áður en tónleikar voru haldn- ir í mars ’70. Þessi fyrsti vetur er mér minnistæðastur, enda held ég að við höfum staðið okkur þar mjög vel miðað við aðstæður." Ragnar hefur verið formaður Filharmóníu lengur en nokkur annar, fyrst 1970—1972, þá 1976—1978 og að lokum 1982-1983.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.