Morgunblaðið - 26.05.1985, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1985
B lð
Afmælis-
tónleikar
Karlakórs
Selfoss
Á SUMARDAGINN fyrsta bélt
Karlakór Selfoss sína árlegu vor-
tónleika. Fóru þeir fram í íþrótta-
húsi bæjarins og var húsið þéttsetið
áheyrendum, sem fögnuðu tónleik-
unum.
Söngstjóri kórsins er Sigfús
Ólafsson, og er þetta annað árið í
röð, sem hann stjórnar kórnum.
Þetta voru nokkurs konar af-
mælistónleikar, þar sem kórinn er
20 ára, var stofnaður 2. marz 1965.
Að þessu sinni flutti kórinn 16
lög eftir innlenda höfunda sem og
erlenda. Einsöngvari á tónleikun-
um var Anna Júlíana Sveinsdóttir.
Vakti söngur hennar fögnuð
áheyrenda sem og karlakórsins í
heild. Allir fyrrverandi stjórnend-
ur kórsins voru mættir á þessum
tónleikum, svo og lagahöfundar,
svo sem Skúli Halldórsson og
Pálmar Þ. Eyjólfsson. Voru þeir
allir kallaðir fram og þeim þakkað
með lófaklappi. Undirleikari á pí-
anó var Þórlaug Bjarnadóttir.
Áheyrendur komu að vítt og
breitt um allt Suðurland eða allt
austan undan Eyjafjöllum og frá
Reykjavík.
Að lokum klöppuðu áheyrendur
kórnum, undirleikaranum, ein-
söngvaranum svo og stjórnanda
kórsins, Sigfúsi ólafssyni, lof og
þökk fyrir tónleikana.
Það mun áætlað að karlakór
Selfoss fari í söngferðalag til
frænda vorra Færeyinga á kom-
andi vori.
Kynnir á tónleikunum var
Magnús Karvel Hannesson, sveit-
arstjóri.
ÓJ.
Egilsstaðin
Ua sýnir í
kaffihúsinu
Tjarnarbæ
ÞANN 24. mars síðastliðinn opnaöi
listmálarinn Úa (Unnur A. Svavars-
dóttir) sína fyrstu einkasýningu und-
ir listaraannsnafni í kaffihúsinu
Tjarnarbæ á Egilsstöðum. Þetta er f
9. sinn sem Unnur sýnir málverk
sín.
Úa stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands í 2 vetur
og hefur auk þess sótt einkatíma.
Myndir Úu verða til sýnis í kaffi-
húsinu Tjarnarbæ frá 24. mars til
5. júní. Kaffihúsið er opið frá
morgni til kvölds.
Áttræðis-
afmæli
ÁTTRÆÐUR verður á annan í
hvítasunnu Jón Þórðarsor. bóndi í
Hagakoti í ögursveit við Djúp.
Jón hel'ur búið í Hagakot! áratug-
uni saman, góðu búi.
2
z
SPORTSKÓR
Leður
Stærð: 34—45
Litur: Hvítir Verð: kr. 895,-
Litur: Hvitir Verð: kr. 1.280,-
LEVIS
Leður
Litur: Hvítir og ljósdrappir
Stærð: 35—41 Verð: kr. 1.450,-
Stærð: 42—45 Verð: kr. 1.640,-
LEVIS
Litur: Hvítir og gráir
Verð: kr. 1.195,-
LEVIS
Leður
Stærö: 34—42 Litur: Hvítir
Verð: ki*. 1.680,-
Leður
Stærð: 40—45
Litur: Hvítir
Verð: kr. 1.995,
LEVIS
Nælon
Stærð: 40—45 Litur: Hvítir
Verð: kr. 1.545,-