Morgunblaðið - 26.05.1985, Síða 27

Morgunblaðið - 26.05.1985, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, StlWWJPAGffft.afr Mfá'lVW B 27 Fní Higgins (Sunna Borg) og Pickering ofnrsti (Marinö Þoreteinason) í My Fair Lady hjá Leikfélagi Akureyrar. sama tíma höfum við sýnt nýtt barnaleikrit eftir ólaf Hauk Sím- onarson, „Köttinn, sem fer sínar eigin leiðir“. Fyrir útsjónarsemi Messíönu Tómasdóttur féll leik- mynd barnaleikritsins inn í leik- mynd söngleiksins um Bdith Piaf og því gátu báðar sýningarnar gengið í húsinu á sama tíma. XI Ef við snúum okkur nú að að- stæðum atvinnuleikhússins hér á Akureyri. — Þetta gamla hús þjónar hlut- verki sínu að ýmsu leyti vel. Helst er þörf á að bæta aðstöðuna að tjaldabaki. Það þarf að byggja við suðurhlið húsins og samræma þá viðbyggingu, og einnig gömlu við- bygginguna að norðan, uppruna- legum svip þess með hliðstæðum burstum og þeim, sem fyrir eru. Viðbyggingin við leiksviðshliðina myndi gera okkur kleift að vera með aðra leikmynd í gangi vegna tveggja verkefna, leikmuna- geymsla fengist og jafnframt myndi búningsaðstaða leikara batna verulega. Þetta er framtíð- ardraumur, sem ég veit að mun rætast. Akureyrarbær hefur gert vel við leikhúsið. Við greiðum enga leigu, en bærinn sér um allt viðhald og rúmlega það. Á sl. ári fengum við t.d. fullkominn ljósa- útbúnað, tölvustýrt ljósaborð og vandað ljósakerfi. Á þessu ári kom síðan nýtt hljómkerfi, sem hefur sannað ágæti sitt í Piaf-sýning- unni. Hvað starfslið varðar, þá þarf að fjölga fastráðnum leikurum. Þeir eru aðeins fimm um þessar mundir og þess vegna erum við alltaf með fjölda lausráðins fólks. Þessir fimm leikarar þurfa að inna af hendi alltof mikla vinnu, eru bókstaflega ofkeyrðir. Kjör þeirra eru þó sambærileg við það sem gerist í hinum atvinnuleik- húsunum. Nú eru horfur á að fast- ráðnum leikurum verði fjölgað. Þá virðist mér eðlilegt, að leikarar hér fái tækifæri til þess að starfa annað slagið við hin leikhúsin. Fram að þessu höfum við verið þiggjendur hér á Akureyri og all- margir leikarar komið hingað að sunnan til þess að taka þátt í sýn- ingum. Ég hefi nú skrifað leikhús- stjórunum í Reykjavík og óskað eftir gagnkvæmum skiptum á leikurum og vænti þess að þeir taki þeirri málaleitan vel og drengilega. XII Hefur þú í hyggju að gegna starfi leikhússtjóra um langt skeið? — Nei, ég er þeirrar skoðunar, að ekki sé hollt fyrir leikhúsið að hafa sama leikhússtjórann of lengi. Satt best að segja held ég að íslendingar séu flestir allt of bundnir við störf og dvalarstað. Menn eiga ekki að velja sér ævi- starf á þann hátt, að þeir reyri sig við sama básinn, jafnvel þótt hann þrengi að þeim, stöðvi þroska og veiti enga lífsfyllingu. Það er öll- um hollt að geta tekið sig upp, jafnvel farið í nám, þótt þeir séu ekki ungir lengur, og skipt siðan um starf í samræmi við aukna reynslu og þekkingu. 1 leikhúss- heiminum öllum ríkir næsta lítið öryggi, að því leyti að leikarar sjá ekki fyrir, hvað þeirra bíður. Hér á landi eru leikstjórar t.d. fæstir fastráðnir. Auk leikhússtjórastarfsins hefi ég í tvö ár sinnt þáttagerð fyrir RÚVAK. Það aukastarf hefur veitt mér mikla ánægju. Þættin- um valdi ég nafnið Kotra og hefi ég haft ákveðin þemu að byggja á. Fyrst var það ljóðabókin Spámað- urinn eftir Kahlil Gibran og síðan Hávamál. Þessi aukavinna mín er raunar ágætur skóli. Ég verð að fara á Amtsbókasafnið til þess að afla mér fanga. Þangað er mjög gott að koma og margt hefur þar borist á fjörur mínar við lestur í kyrrðinni. Þar ríkir til dæmis dag- ur ljóðsins alla tíð. Þótt ég verði að lesa leikrit vegna starfsins í leikhúsinu, þá nýt ég þess að sökkva mér niður í skáldsögur og ljóð, þegar næði gefst heima. Hér verðum við að láta staðar numið, svo tölvan grípi ekki aftur í taumana af óvæntri ertni. En Húnvetningar eru yfirleitt engir meðalmenn og mér er vel ljóst, að Signý hefði haft frá mörgu fleiru forvitnilegu og fróðlegu að segja. Þegar Bjarni frá Gröf fjallaði um veislugleði Húnvetninga, þá er víst að hann hafði í huga bæði andleg og tímanleg veisluföng: „Húnvetninga lifir lenska, löngum er þar veislan fríð. Það hefur aldrei meðalmennska mótað þeirra árshátíð.” Og segja má með sanni, að engin meðalmennska setji svip á störfin í leikhúsinu á Akureyri. a íineis l’ílll 3 vikur í ólympíuborginni Brottför 24. júní Kennsla í öllum hugsanlegum og óhugsan- legum íþróttagreinum, hressandi útivist, spennandi frönsk menning, glampandi sólskin og geislandi líf og fjörl Þessi ferð er einstök í sinni röð. Þú slæst í för með Jónínu Benediktsdóttur og Jóni Páli Sigmarssvni og kynnist sannkölluðum ævintýraheimi hollrar hrevfingar og skemmtilegra iþrótta; McCill háskólanum i Montreal i Kanada Þar nýtur þú gistingar og fagurs umhverfis og velur það sem þér hentar af tugum iþi óttagreina þar sem þú færð handleiðslu færustu kennara og afreksmanna. Þess á milli baðarðu þig í sólinni, dólar á milli kaffihúsa, veitingastaða og verslana, upplifir heimsviðburði í listalífinu, gleymir þér í skemmtigörðum eða tivolíi eða lætur þig einfaldlega fljóta í sundlauginni skammt frá háskólanum, hugsandi um ókomin afrek og ævintýri. Það gildireinu hvort þú ert í góðri líkamlegri þjálfun eða ekki. Þú velur það sem þér hentar og verður aldrei minna en meistari i hollri hreyfingu! Þetta er frábært tækifæri fyrir hresst fólk af öllum stærðum og gerðum, einstaklinga, fjölskyldur, starfsfélaga og hópa. úr nógu er að velja= Yoga Karate Aeroblc Vaxtarrækt Júdö Aerobic dans Sigllngar colf sund Segibrettaslgllngar Tal Chl Jassballett Leikfimi SJálfsvöm fyrlr konur veggtennis Skylmlngar Lyftlngar Tennls o.fl. o.fl. Hjölrelðar Badmlnton l/nsni W! j, Ifrli Skoöunarferðir og skemmtilegar uppákomur Farið verður í léttar kynnisferðir um nágrennið og m a.n'*' æsispennandi hraðbátaferð um flúðir Lachine fljóts. Nánari upplýsingar Jónína Benediktsdóttir fararstjóri ferðarinnar verður á aðalskrifstofunni i Austurstræti á þriðjudaginn og fimmtudag- inn milli kl. 15.00 og 16.00 og veitir allar nánari upplýsingar um íþróttanámskeiðin og ferðina. Verðkr. 29.650" innifalið: Flug Keflavik-Toronto- Keflavík, lestarferð Toronto - Montreal - Toronto, gisting, hraðbátaferð og islensk fararstjórn. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SiMAR 21400 « 23727

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.