Morgunblaðið - 26.05.1985, Qupperneq 30
30 B
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAl 1985
fólk í
fréttum
Kvöldklæönaður
keppenda um titilinn
Fegurðardrottning
Islands 1985
Á föstudagskvöldið komu stúlkurnar 13,
sem keppa um titilinn Fegurðardrottning
íslands 1985, fram í kvöldklæðnaði og á
sundbolum í Broadway. Við birtum hér
myndir af þeim í kjólunum sem þær voru í
en þeir voru hver öðrum fallegri. Á morgun
er svo úrslitadagurinn. í»á verður Ungfrú
ísland 1985 valin og Ungfrú Reykjavík
1985 og meðal gesta verða Peter Stringfell-
ow, eigandi ensku skemmtistaðanna
Hippodrome og Stringfellow’s, Davíð
Oddsson borgarstjóri og ekki má gleyma
Rod Stewart sem ætlar að krýna Fegurðar-
drottningu íslands 1985.
Helga Melsteð
„Frænka mín, Sonny Lisa,
hannaöi og saumaði kjólinn
minn.“ Helga Melsteð í hand-
saumuöum hvítum pallíettu- og
taftkjól. Hún bar við kjólinn
einn hvítan stóran eyrnalokk.
Hólmfríður
Karlsdóttir
„Kjóllinn er frá Maríunum,"
sagði Hólmfríður Karlsdóttir.
Hvítur satínkjóll með slaufu að
aftan og styttri að framan.
Skartgripirnir sem hún bar voru
semelíuhálsmen frá móður
hennar og demantshringur frá
unnustanum.
Arnbjörg
Finnbogadóttir
„Anna Margrét Jónsdóttir vin-
kona mín hannaði kjólinn og hún
og mamma hennar, Marin Sam-
úelsdóttir, saumuðu hann í sam-
einingu.“ Arnbjörg Finnboga-
dóttir í hvítum satínkjól, síðari
að aftan með klauf aö framan og
með stykki um mjaðmir sem var
bundið yfir klaufina. Skartgrip-
irnir eru úr silfri frá Jens.
Sigríður A.
Þrastardóttir
„Vinkona mín, Guðríður Ólafs-
dóttir, saumaði kjólinn en sjálf
hannaði ég hann.“ Sigríður A.
Þrastardóttir i dökkbleikum sat-
ínkjól, flegnum í bakið með plís-
eraðri klauf. Hún fékk sína
skartgripi, hring, armband, háls-
festi og eyrnalokka úr hvítagulli
með demöntum hjá Kjartani
Ásmundssyni.
Hrafnhildur
Hafberg
Kjóllinn er hannaður af Maríu
Lovísu. Hrafnhildur Hafberg í
hvítum satínkjól með hvíta satín
samkvæmishanska. Kjóllinn er
með víðu pilsi og öðru stuttu
lausu yfir. Hann er síðari að aft-
an en að framan. Hún ber sem-
elíusteina frá Tískuverzlun
Steinunnar, Akureyri.
Rósa María
Waagfjörð
„Þessi kjóll er saumaður hjá
Maríunum, en hugmyndin er
mín að mestu leyti." Rósa María
Waagfjörð í silfurgráum sat-
ínkjól með samkvæmishanska í
sama lit, rykkta eins og kjóllinn.
Kjóllinn er með klauf að framan,
stórri slaufu að aftan og við
hann bar hún semelíusteina frá
Bylgjunni.
Halla
Einarsdóttir
„Þennan kjól fékk ég hjá Marí-
unum.“ Halla Einarsdóttir í
dökkbleikum pífukjól úr tafti.
Kjóllinn er fleginn í bakið með
samkvæmishönskum í sama lit.
Við kjólinn bar hún semelíu-
steina.