Morgunblaðið - 26.05.1985, Síða 36
36 B
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1985
... að kela örlítið.
TM Rea. U.S. Pat. Off.—all rights reserved
»1985 Los Angeles Times Syndicate
Með
morgimkaffinu
I'ú sleppir ekki takinu meðan ég
labba eftir hjálp!
HÖGNI HREKKVISI
miÉi
\ j \ >
eftirlvstur
- „PAPI " "
^EKKVÍSI
„ HAMN VILL FA EiNA STeKKUN
OG þfZJÁH PASSAA\yNPlR."
Gjöf Alþingis til æskunnar
V.G. skrifar:
Kæri Velvakandi.
Ég treysti á velvilja þinn að þú
ljáir línum þessum rúm í dálkum
þínum. Það undrar mig stórum að
á sama tíma og áfengi er að gera
hluta þjóðarinnar að afbrotafólki
skulu alþingismenn telja það eitt
helsta mál er þurfi nauðsynlega að
koma í höfn sé bjórfrumvarpið.
Ég sá í Mbl. 22. maí sl. að 87%
unglinga neyttu áfengis. Vilja
þingmenn koma neyslunni upp í
100%? I allan vetur hefur verið
eins og framhaldssaga hve óbæri-
legir erfiðleikar steðji að þjóðinni.
Hvað er svo bjargráðið? Jú, sterk-
ur bjór handa öllum.
Ég er það roskinn að ég hef
fylgst með störfum Alþingis I um
hálfa öld en á öllum þeim tíma
man ég ekki eftir að þingmenn úr
öllum flokkum hafi sameinast svo
dásamlega um nokkurt málefni
eins og um bjórinn. Takið eftir
því.
Einn þingmaðurinn lét hafa það
eftir sér í blaðaviðtali í fyrra að
honum þætti bjórinn góður. Nú
spyr ég: Kjósum við menn á Al-
þingi til þess að berjast fyrir eigin
hagsmunum eða smekk? Þessir
bjórmenn virðast allir geta verið í
sama flokknum ef svo ber undir,
en hörmulegt er að slík samstaða
virðist einkum eiga sér stað þegar
neikvæð málefni eru á dagskrá,
t.d. fyrrnefnt bjórfrumvarp og út-
burður ófæddra barna.
Með tilliti til hinn ómannúðlegu
fóstureyðingalaga vil ég þakka
Þorvaldi Garðari Kristjánssyni
fyrir þau skilningsríku skrif um
þau mál, ásamt ýmsum öðrum.
Það hryggir mig óumræðilega að
það skuli hafa verið konan — móð-
irin — sem barðist fyrir frjálsri
fóstureyðingu. Vitur maður sagði
fyrir löngu síðan að í flestum til-
fellum hefði minnihlutinn rétt
fyrir sér.
Feimnismál hjá sumum ráðamönnum
Húsmóðir skrifar:
Það er að vísu leiðinlegt að ólaf-
ur Þórðarson skyldi brigsla
starfsbræðrum sínum um ósæmi-
legt athæfi í sambandi við bjór-
málið, en þeir sem eru mótfallnir
bjórnum, hljóta þó að virða hann
fyrir það að hann hafði hug og dug
til að taka harkalega á þessu máli
sem virðist vera eins og feimnis-
mál hjá sumum ráðamönnum.
Þeir slá úr og í ef minnst er á það
og drepa því á dreif svo að enginn
veit hvar þeir standa eða hvernig
þeir muni viðsnúast þegar á reyn-
ir.
Það er ömurleg tilhugsun ef
ráðamenn þjóðarinnar vilja
steypa henni út í bjórdrykkju, til
viðbótar því áfengisvandamáli
sem fyrir er og mörg heimili eru
að kikna undir. Það er ekki nóg að
kosta miklu til skólagöngu og
hverskyns menntunar barna
okkar ef þau verða svo áfenginu að
bráð. Ég veit ekki hvers vegna eða
hver leyfði sölu á svokölluðu bjór-
líki og rekstur á öllum þeim krám
sem spruttu upp í sambandi við
það og virðast blómstra, öllum til
óþurftar og mörgum til stórskaða.
Það er hræðileg ógæfa fyrir ís-
lenska þjóð ef hún hefur kallað
yfir sig ráðamenn sem vilja
drekkja henni í áfengi. Það verður
erfiðara og langvinnara dauða-
stríð heldur en í Drekkingarhyl til
forna.
Þessir hringdu . .
Fyrirmyndar-
þjónusta
Margrét hringdi:
Við viljum vekja athygli á því
hvað matur og þjónusta er góð í
„Kvosinni“. Við fórum út að
borða saman sex húsmæður og
höfum varla rekið okkur á jafn-
góða þjónustu á neinum veit-
ingastað í Reykjavík. Maturinn
var til fyrirmyndar. Hann var
góður, vel heitur og framreiddur
alveg samkvæmt okkar ósk. Og í
sambandi við þjónustu, þá þurft-
um við ekki að bíða lengi ef við
óskuðum einhvers frekar.
Fáránleg
könnun
KJ. hringdi:
Ég get alls ekki orða bundist
um svo heimskulega hugmynd,
sem könnun um áfengis- og
fíkniefnamál meðal barna og
unglinga og að tíunda hina háu
prósentutölu I yngstu aldurs-
flokkunum sem reynt hafa þessi
efni.
Vita ekki þessir menn sem
standa að slíkum könnunum að
börn og unglingar á þessum
aldri vilja allir vera eins og
finnst þeim þeir hreint afbrigði-
legir ef þeir eru ekki eins og hin-
ir.
Engir hópar eru eins áhrifa-
gjarnir og þessir barna- og ungl-
ingahópar, svo að könnunin get-
ur aðeins komið illu til leiðar.
Mér er nær að halda að ein-
hverja sprenglærða fræðinga
þessa lands hafi vantað ein-
hverja vinnu og því gert þessa
könnun en ég er hrædd um að
það hafi verið á kostnað þeirra
er síst skyldi. í könnuninni var
talað um óreglu barna og ungl-
inga, sem jafn sjálfsagðan hlut
og óreglu fullorðinna, sem er
fáránlegt. Gerið í framtíðinni
könnun á áfengis- og eiturlyfja-
málum fullorðinna ef ykkur sýn-
ist svo en látið börn og unglinga
liggja á milli hluta I slíkum
könnunum.