Morgunblaðið - 21.06.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1985
21
Bandaríkin:
Fulltrúadeildin samþykkir
framleiðslu á efnavopnum
Washington, 20. júní. AP.
FULLTRÚADEILD Bandaríkjaþings
þykkti í dag tillögu um framleiðslu á
Þó er samþykktin háð tveimur
skilyrðum: annars vegar að fram-
leiðsla á vopnunum hefjist ekki
fyrr en í fyrsta lagi 1987 og hins
vegar að ekki verði byrjað að
framleiða þau nema aðildarríki
Atlantshafsbandalagsins fari
formlega fram á að vopnunum
verði komið fyrir í Vestur-Evrópu.
229 þingmenn samþykktu tillög-
una, en 196 voru henni andvígir.
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
hefur undanfarin þrjú ár lagt hart
að fulltrúadeildinni, þar sem
demókratar eru í meirihluta, að
hún samþykkti framleiðslu á
vopnunum, en hann hafði ekki er-
indi sem erfiði þangað til nú.
Öldungadeildin hefur samþykkt
sams konar tillögu, en þar er ekki
gert ráð fyrir neinum skilyrðum
fyrir framleiðslu vopnanna.
Sérstök nefnd mun fjalla um
það síðar hvort skilyrði fulltrúa-
deildarinnar séu bindandi eða
ekki.
Þess má geta að leiðtogar nokk-
urra aðildarríkja Atlantshafs-
bandalagsins hafa lýst yfir því að
þeir vilji ekki að nýjum efnavopn-
um verði komið fyrir í Evrópu sök-
breytti fyrri ákvörðun sinni og sam-
nýjum bandarískum efnavopnum.
um þess pólitíska vanda sem stað-
setning þeirra hefði í för með sér.
Bandaríkjamenn hafa ekki
framleitt efnavopn frá því 1969, en
stjórn Reagans heldur því fram að
þau séu nauðsynleg til að sporna
við þeirri vaxandi hættu sem stafi
af hernaðarumsvifum Sovét-
GENGI
GJALDMIÐLA
Dollarinn
snarhækkaði
London, 20. júní. AP.
Bandaríkjadollar snarhækkaði
í Evrópu í dag, eftir að Ijóst var að
þjóðarframleiðsla Bandaríkja-
manna hafði orðið mun raeiri á
öðrum fjórðungi þessa árs en gert
hafði verið ráð fyrir. Reyndist hún
vera 3,1 %á þessu tímabili, en var
ekki nema 0,3% á fyrstu þremur
mánuðum þessa árs.
Sterlingspundið féll um nær 3
sent í dag og fengust aðeins
1,2772 dollarar fyrir pundið í
dag á móti 1,3105 dollurum í
gær. Gengi dollarans var að
öðru leyti þannig, að fyrir
hvern dollara fengust 3,0840
vestur-þýzk mörk (3,0190),
2,5655 svissneskir frankar
(2,5272), 9,4050 franskir frankar
(9,2150), 3,4725 hollenzk gyllini
(3,4045), 1.963,60 ítalskar lírur
(1.931,25), 1,3673 kanadískir
dollarar (1,3645) og 248,55 jen
(246,95).
Gull lækkaði og var verðið á
únsunni 318,25 dcllarar síðdegis
í dag, en var 324,75 dollarar á
miðvikudag.
Verkföll
á Spáni
Madrid, 20. júní. AP.
UMFANGSMIKIL verkröll urðu á
Spáni í dag, einkum á iðnaðarsvæð-
unum í uorðurhluta landsins. Það
var verkalýðssamband kommúnista,
sem efndi til þessara verkfalla og
voru þau hin mestu, sem orðið hafa
á Spáni síðan jafnaðarmenn komust
þar til valda fyrir nær þremur árum.
Markmiðið með verkföllunum
var að mótmæla ákvörðun
spönsku stjórnarinnar um breyt-
ingar á því fyrirkomulagi, sem
ríkt hefur varðandi eftirlauna-
greiðslur í landinu.
Lögreglan handtók forsprakka
verkfallsmanna í Aragon, Katal-
óníu og Taragona, eftir að verk-
fallsverðir höfðu komið í veg fyrir,
að verkamenn, sem vildu vinna,
kæmust til verksmiðja sinna.
Verulegar truflanir urðu á
flugsamgöngum, bæði innanlands
og milli landa. Ferðir járnbrauta
fóru einnig víða úr skorðum.
magn fannst einnig í hinum skáp-
unum eða samtals 700 kg af marijú-
ana.
Mikill fíkniefna-
fundur í Svíþjód
Stokkhólmi, 19. júní. Frá frétUritnra Mor^unbladsins.
S/ENSKA lögreglan hefur komið upp um cina stærstu marijúana-sendinguna til
Svíþjóðar til þessa. Var þarna um 700 kfló að ræða að verðmæti um 35 millj. s.
kr. (um 165 millj. ísl kr.). Það sem vekur ekki hvað minnsta athygli er, að þessi
fundur átti sér stað í stöðvum lögreglunnar.
Engir lögreglumenn liggja þó
undir grun. Einhverjir þeirra
kunna þó að verða grunaðir um
skort á ímyndunarafli. Upphaf
þessa máls er það, að lögreglan í
Stokkhólmi lagði í vetur hald á hús-
gögn hjá húsgagnasala einum, sem
grunaður var um fíkniefnasölu.
Maður þessi, sem er sænskur, flutti
sl. haust inn gám fullan af hús-
gögnum frá Thailandi.
Þegar lögreglan fékk vísbendingu
frá Thailandi um fíkniefnasending-
una, var þegar búið að skipa upp
gáminum. í vörugeymslu húsgagna-
salans í Stokkhólmi fannst síðan
vottur af marijúana og við nánari
leit fann lögreglan þar 300 kg af
fíkniefninu.
Þetta lét lögreglan sér nægja,
enda strax álitlegur fundur. Hald
hafði hins vegar verið lagt á öll
húsgögnin, þar á meðal tíu skápa,
sem ekkert hafði fundizt í. Var
þeim síðan komið fyrir í kjallara í
lögreglustöðinni í Stokkhólmi.
Manni einum, sem starfar hjá lög-
reglunni, fannst þó eitthvað grun-
samlegt við skápana og í síðustu
viku tók hann sig til og tók einn
þeirra í sundur. Fundust þar þá
strax 70 kg af marijúana. Sama
Mannskæðir bar-
j'
dagar milli Iraka
og Irana
Bagdad, 20. júní. AP.
ÍRAKAR segjast hafa fellt fjölda ír-
anskra hermanna og tekið marga til
fanga í hörðum bardögum í dag.
Talsmaður íraska herráðsins
fullyrti í dag, að þrír herflokkar
írana hefðu ráðizt á stöðvar íraka
andspænis Qasr-E Shirin. frökum
hefði hins vegar tekizt að tvístra
írönsku hermönnunum gersam-
lega. „Flestir þeirra voru drepnir
og brunnin lík þeira lágu eins og
hráviði á vígvellinum," sagði tals-
maðurinn. Jafnframt hefðu marg-
ir íranskir hermenn verið teknir
til fanga.
íranska fréttastofan IRNA
skýrði svo frá, að íranski herinn
hefði í dag ráðizt fram í þremur
fylkingum og lagt til atlögu við
íraka á svæðinu við Qasr E-Shirin
og fellt þar 250 hermenn íraka.
Með bros á vör í Kaupmannahöfn
JANNI Spies, 22 ára og ríkasta stúlka Danmerkur, sést hér ásamt vini
sínum, sænska leikaranum og leikstjóranum Gunnari Hellström, sem
er 58 ára að aldri. Mikið er nú rætt um samband þeirra Gunnars og
Janni í Danmörku, en hún er ekkja Simons Spies og því erfingi að
miklum hluta af auðæfum hans. „Við ætlum ekki að giftast, við ætlum
ekki að trúlofast, við erum bara góðir vinir,“ sagði Janni, er fréttamenn
flykktust að henni og Gunnari, hvert sem þau fóru í Kaupmannahöfn.
Þangað kom Gunnar á sunnudag frá Los Angeles, þar sem hann hefur
stjórnað ýmsum kunnum sjónvarpsþáttum, þar á meðal mörgum Dall-
as-þáttum.
Veður
víða um heim
L»g»t Htest
Akureyri 8 skýjaó
Amsterdam 9 18 rigning
Aþena 20 32 heiöskírt
Barcelona 21 léttsk.
Berlin 12 20 skýjaó
Brtlssel 8 20 rigning
Chícago 9 22 heiðskírt
Dublin 9 18 heiósklrt
Feneyjar 8 16 rigning
Frankfurt 12 22 rigning
Genf 11 16 rigning
Helsinki 13 20 skýjað
Hong Kong 28 26 rigning
Jerúsalem 17 24 heióskjrt
Kaupmannah. 18 skýjaó
Las Palmas 24 léttsk.
Lissabon 16 22 heióskirt
London 12 20 skýjaó
Los Angeles 18 27 heióskirt
Lúxemborg 11 rigning
Malaga 24 rigning
Mallorca 24 rigning
Miami 6 16 rigning
Montreal 12 21 skýjaó
Moskva 9 22 skýjaó
New York 19 26 skýjað
Osló 10 22 heióskírt
París 11 19 heióskirt
Peking 20 30 skýjaó
Reykjavík 13 skýjað
Ríó de Janeiro 15 27 heiðskirt
Rómaborg 11 27 skýjaó
Stokkhólmur 11 21 skýjaó
Sydney 9 16 rigning
Tókýó 17 22 skýjað
Vínarborg 8 17 rigning
bórshöfn 9 þoka
Vestur-þýskur dómstóll:
Uppsetning Pershing-
eldflauga ólögleg
Frankfurt, 20. júní. AP. C-J
Frankfurt, 20. júní. AP.
SAMKVÆMT dómi vestur-þýsks héraðsdómstóls, sem kvcðinn var upp í
gær, braut ríkisstjórnin lög árið 1983 með því að samþykkja uppsetningu 108
bandarískra eldflauga af Pershing 2-gerð í Þýskalandi.
Dómarinn, Christoph Jahr,
sagði að ríkisstjórnin hefði látið
undir höfuð leggjast að sinna hin-
um lagalegu hliðum málsins þegar
hún samþykkti uppsetningu eld-
flauganna. Því væri ákvörðunin í
raun ólögleg, enda hefði Sam-
bandsþingið þurft að samþykkja
ákveðin lög áður en unnt hefði
verið að koma eldflaugunum fyrir
á þýskri grund.
Lögfræðingar vestur-þýsku
stjórnarinnar geta áfrýjað dómn-
um til æðri dómstóls. Samt er tal-
ið að dómsúrskurðurinn hafi eng-
in áhrif á uppsetningu eldflaug-
anna, en nú hefur um það bil
helmingi þeirrra verið komið
fyrir.
Dómarinn sýknaði einnig í dag 6
mótmælendur, sem handteknir
voru skammt frá Frankfurt 1983 í
mótmælaaðgerðum gegn stefnu
stjórnarinnar í eldflaugamálinu.
@%ávl(cll <g). @f. <g).
Er meö nýjustu tískuklippingar sem einnig voru
sýndar á hárgreiðslusýningu okkar í Broadway í vor.
Einnig tískupermanent og litanir.
Veriö velkomin.
Sóley Herborg Skúladóttir
hárgreiðslumeistari
Laugaveg 82, á horni Barónsstígs II hæö. Sími 14477