Morgunblaðið - 02.07.1985, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 2. JÚU 1985
25
Á rhigvellinum í Salzborg hinn 12. júní sl., Sveinn Sæmundsson, Oddrún
Kristjánsdóttir, Eibl, Sigrún Hinriksdóttir, Leifur Magnússon, Sigfús Erl-
ingsson, Kristín Ingimundardóttir, Sigurður Helgason, Mr. Hermann,
Hannes Jónsson, Matthías Bjarnason og dr. Oppitz.
Flugfreyjurnar sem voru með í ferðinni frá vinstri: Sigurlfn E. Scheving,
Emmy Kremmer, Hólmfríður Benediktsdóttir, Anna Þorláksdóttir, Sólveig
Baldursdóttir og Kolbrún Jónsdóttir.
Heiður Helgadóttir NT, Sveinn Ssmundsson Flugleiðum, Einar Örn Stef-
ánsson sjónvarpinu, Ernst, bílstjórinn okkar, og undirrituð.
Ljósm. greinarhöfundur
sem láta sig skíða- og vatnaíþrótt-
ir nokkru varða, svo sem Zeller-
vatn og i annan stað Kaprun með
skíðalöndum á Kitzsteinhorn. í
Pingau eru hæstu fjöllin, þar er
vatnsaflsstöð í 2000 metra hæð og
þar eru Krimmelfossarnir svo
dæmi séu tekin af skoðunarverð-
um hlutum.
Síðast en ekki síst ber að geta
um Lungau-fylkið, sem er syðst og
þykir mörgum helsti kosturinn
þar um slóðir að smátt er þar um
steinsteypuskóg, eiturgufur eða
iðnaðarsvæði, heldur öðrum svæð-
um fremur rómantískt og býsna
ósnortið.
Þjóðlegar hefðir
varðveittar
Já, það er mikil veisla fyrir aug-
að að heimsækja þetta land, hitt
er annað að við félagarnir höfðum
að þessu sinni hvorki tima né að-
stæður til þess að skoða nema brot
af því sem augað girnist í sjóðum
Salzborgarsvæðis. Og þó að við
sæjum að vísu í hnotskurn undra-
land með töfrum hvítra tinda, sem
stóðu upp úr skógum og byggð
hlíða og dala og fengjum í huga
fáein blik úr dýrmætri sögu og
minjum, þá bar a.m.k. undirrituð
heim með sér hvað eftirminni-
legustu myndina frá móttökum
fólksins, lífi þess, háttum og
þokka og sérstakri gestrisni. Týr-
ólasöngvar og jóðlið ómar að sögn
innfæddra oft í eyrum og í minn-
um geymist hversu þjóðlegar
hefðir eru rækilega varðveittar.
Fjöldi fólks, hvort heldur því er
mætt á strætum borganna eða
stigum upp til fjalla, er klæddur
þjóðbúningum, svo maður gæti
haldið sig vera á ferli öldum áður
en Díorarnir felldu knébuxurnar
og svunturnar úr tísku. Eða mat-
urinn! Þeir hafa líklega aldrei
Vorum við komin á flug beint í átt-
ina að himinhvolfinu og engin
hræðsluóp, bænir eða stjarfi gátu
stöðvað stólana ...
fengið smekk fyrir matarkúra
Austurríkismenn, því hvort held-
ur borið er á borð á klassahóteli
eða krá, þá er það álíka vel útilátið
og fjallabóndinn hefur trúlega
veitt ostaskökur og brauðhleifa til
langlúinna og þurfandi af göngu i
Ölpunum. Og ég verð að viður-
kenna að sú hugsun hvarflaði að
mér um borð í vél Austrian Airlin-
es að hefði ég dvalið dögum lengui
í slíku yfirlæti, hefðu allar áætl-
anir varðandi æskilegar línur far-
ið enn rækilegar úr skorðum en
orðið er. Og svo er bara að slá botn
í þessa stuttu frásögn af góðum
dögum á nýjum áningarstað
Flugleiða. Lúðrablásturinn er
þagnaður á vellinum og ræðuhöld-
in hljóðnuð, en nú er það almenn-
ings, sem á afgangs í buddunni, að
ákveða hvort Salzborg verður á
draumakortinu í auknum mæli
eða ekki, þegar útþráin grípur
næst.
GREINARHÖFUNDUR GUÐBJÖRG R. GUÐMUNDSDÓTTIR
Hrafninn flýgur
á almennan
markað í
Bandaríkjunum
Kvikmynd Hrafns Gunnlaugsson-
ar, Hrafninn flýgur, hefur verið tek-
in til dreifingar á almennum mark-
aði í Bandaríkjunum. Erlendar
kvikmyndir eiga yflrleitt erfitt upp-
dráttar í Bandaríkjunum og eru til-
tölulega fáar slíkar teknar til sýn-
inga í almennum kvikmyndahúsum
þar á ári hverju.
Hrafninn flýgur var sem kunn-
ugt er sýnd á Filmex, alþjóðlegri
kvikmyndahátíð i Los Angeles i
vor, og einnig hjá American Film
Institute. Að undanförnu hefur
hún verið sýnd vestra í kvik-
myndahúsum og klúbbum, sem
sérhæfa sig í sýningum listrænna
kvikmynda og hlotið lofsamlega
dóma í mörgum blöðum.
„The best little film out of Ice-
land,“ eða „besta litla myndin frá
Islandi", segir einn gagnrýnandi
og i LA Times segir annar að í
Hrafni Gunnlaugssyni búi efnivið-
ur í leikstjóra á heimsmælikvarða.
Af flugi hrafnsins annars stað-
ar er það að frétta að myndin hef-
ur nú verið sýnd i Stokkhólmi i 35
vikur samfleytt og einnig er verið
að sýna hana i Japan og á Ind-
landi.
Sænska kvikmyndastofnunin
sér um dreifingu á Hrafninn flýg-
ur og samdi hún við Bandaríkja-
menn. En almenn dreifing þar
hefur m.a. i för með sér að sett
verður enskt tal við myndina og
fengnir til þess amerískir atvinn-
uleikarar og að hinn bandaríski
dreifingaraðili mun verja miklu fé
til kynningar á henni á almennum
markaði.
Sænskir
fræsa mal-
bikið í Rvík
BORGAKRÁÐ samþykkti nýveriö
að heimila gatnamálastjóra að taka
tilboði sænska fyrirtækisins Clean-
osol í að fræsa malbik á umferðar-
götum í borginni.
Tilboðið hljóðar upp á 6 til 6,50
sænskar krónur á hvern fermetra,
en heildarkostnaður við fram-
kvæmdirnar, með ferðakostnaði
og aðflutningsgjöldum, áætlast 4,5
milljónir íslenskra króna.
Prentvillur
leiðréttar
TVÆR prentvillur voru í frétt um
sjónvarpshnattasjónvarp Sky
Channel í blaðinu á sunnudaginn.
Rétt nöfn tveggia eigenda Kapal-
sjónvarps hf. — lslenska sjónvarps-
félagsins eru Unnur Friðþjófsdóttir
og Eyjólfur K. Sigurjónsson. — Beð-
ist er velvirðingar á villunum.
Sláttur hafinn
í Skagafirði
Bæ á MofrtjLstrond, 1. júlí.
SLÁTI'UR er nú vída hafinn í Skaga-
fírði og sumstaðar jafnvel farið að
hirða.
Grasspretta er með besta móti á
þessum árstíma.
Sunnudaginn 30. júní buðu kvenfé-
lögin öldruðu fólki úr öllum Skaga-
firði til veislu og skemmtanahalds i
Höfðaborg á Hofsósi. Þar voru um
200 gestir sem nutu helgistundar hjá
sr. Sighvati á Hólum og óleymanlegs
söngs Jóhanns Más Jóhannssonar,
sem af mörgum er talinn nálgast
bróður sinn, Kristján. Aldraða fólkið
í Skagafirði naut þarna ánægjulegr-
ar dagstundar þennan dýrðlega
sumardag, sem var í gær.
— Björn
Sl-#TL'
Viðs
sssA?-*
LO«*ior‘: ...•••
G»l»nt ' .....
Lancer • • ‘..
CoH • ’ ’'' ’84 •
SSS&--
smorsiur,:....
G»l»nt ’ .....
L«ncer • • •..
Colt .........
GoK •:o0-’84
Br^.uklo*-r,:
Golt .........
jett« • • •;
pa***1 "
Colt • ‘- ’ ’.
L*nce.r ■"...•••
G»l»nt ■’ ....
Styrisen"arl:...
GoH^Z ..-•
je«* - ^»r ...
EfZ--::
AlWr° "......
Minl ••••
Spindilk010^ .
vWl20?Jck -
•SKSS-""
HtggdeY1*',: ...
GoHtr- ••;;;...
JetM*- • ....
P.K0* .........
L-aOOtr- ••....
ccit't-.; .....
G«l»ntftÍ, ....
G»lan,Rover •• ••
B»n9*R
v.tn*d*lurí;84 ..••
Ran9«Bover. :::•••
■80
1.220
v
i
SAMAVERÐ UM LAND ALLT!
Ái W
RAIMGE ROVER
í| IHEKLAHF
| Laogavegi 170 -172 Sími 21240