Morgunblaðið - 13.07.1985, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚLl 1985
5
Samband ungra sjálf-
stæðismanna 55 ára
UNGIR sjálfstæðisraenn héldu hatíðlegt 55 ara afmæli Sambands ungra
sjálfstæðismanna með hátíðarstjórnarfundi laugardaginn 6. júlí síðastlið-
inn á Þingvöllum. Heiðursgestur var
formaður SUS.
Samband ungra sjálfstæð-
ismanna var stofnað 27. júní
1930 í Hvannagili á Þingvöllum.
Eftir að stjórnarfundi lauk,
héldu fundarmenn að minnis-
varða forsætisráðherrahjónanna
Bjarna Benediktssonar og frú
Sigríðar Björnsdóttur og dótt-
ursonar þeirra. Geir H. Haarde
formaður SUS lagði þar blóm-
Torfi Hjartarson, en hann var fyrsti
sveig frá ungum sjálf-
stæðismönnum. Um kvöldið var
snæddur kvöldverður á hótel
Valhöll, og var formaður Sjálf-
stæðisflokksins, Þorsteinn Páls-
son, meðal gesta.
Ákveðið hefur verið að 28.
þing Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna verði haldið á Akureyri
dagana 30. ágúst til 1. septem-
ber. Vörður, félag ungra sjálf-
stæðismanna á Akureyri annast
skipulagningu i samvinnu við
önnur félög i fjórðunginum. Mál-
efnaundirbúningur er i höndum
stjórnar sambandsins.
Geir H. Haarde hefur ákveðið
að gefa ekki kost á sér til endur-
kjörs, en hann hefur gengt emb-
ætti formanns undanfarin fjög-
ur ár. Búist er við að um 200
manns sæki þingið, en það var
síðast haldið á Akureyri 1971.
Geir H. Haarde formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna ræðir við
Torfa Hjartarson í Hvannagjá, en Torfi var fyrsti formaður SUS, sem
stofnað var 1930.
Bjarni Sigurðsson
Doktor í
kirkju
réttarsögu
HINN 3. júlí síðastliðinn varði Bjarni
Sigurðsson frá Mosfelli, dósent frá
guðfræðideild Háskólans-doktorsrit-
gerð sína við lagadeild Kölnar-
háskóla f V-Þýskalandi. Ritgerðin
fjallar um íslenska kirkjuréttarsögu
frá upphafi til vorra daga. Hefur
Bjarni unnið að ritgerðinni um all-
nokkurt skeið og farið utan í náms-
ferðir vegna þess. Var hann t.d. við
framhaldsnám í Köln veturinn
1968—69.
Bjarni Sigurðsson er fæddur 19.
maí 1920. Foreldrar hans voru
Vilhelmína Eiríksdóttir og Sigurð-
ur Þorkelsson er lengi bjó á
Straumi i Straumsvík, sunnan
Hafnarfjarðar. Að loknu stúd-
entsprófi vorið 1942 frá MA, hóf
Bjarni nám í lagadeiid Háskóla ís-
lands og lauk embættisprófi 1949.
Það sama ár hóf hann blaða-
mennskustörf á Morgunblaðinu og
meðfram starfi sínu á blaðinu
stundaði hann nám í guðfræðideild
Háskólans og lauk guðfræðiprófi
vorið 1954. Sumarið, það sama ár,
tók hann prestsvígslu og varð sókn-
arprestur á Mosfelli i Mosfellssveit
og Lágafellskirkju.
Auk þess að vera prestur Mos-
fellsprestakalls og Lágafells má
geta þess að hann gegndi Braut-
arholtssókn á Kjalarnesi, hann var
Þingvallaprestur í þrjú ár og Við-
eyjarkirkju þjónaði hann einnig. Á
fyrstu prestskaparárum hans til-
heyrði núverandi Árbæjarsókn
Lágafellssókn.
Hann var prestur Mosfells- og
Lágafellssókna til ársins 1976 er
hann varð lektor við guðfræðideild-
ina og þar hefur hann starfað síð-
an.
Kona Bjarna Sigurðssonar er
Aðalbjörg Guðmundsdóttir frá
Kirkjubóli í Norðfirði. Þeim varð 5
barna auðið og eru fjögur þeirra á
lífí.
föstudag og laugardag
að Höfðabakka 9
Við kynnum:
Opel Corsa
Opel Kadett GL
Opel Kadett GSI
Opel Kadett Caravan
Opel Ascona
Opel Rekord
Á jsessari kröftugu sýningu getur þú
kynnst á einu bretti þvf besta f
bílaflota okkar. Pú skoðar,
reynsluekur, færð góð ráð og
gagnlegar upplýsingar. Þú færð með
öðrum orðum svar við því hvers
vegna svo margir velja Opel bifreiðar
einmitt þessa dagana.
Sýningin er opin föstudag
kl. 9.00-18.00 og laugardag
kl. 13.00-17.00.
Við bjóðum hagstæðari greiðslu-
skilmála en gengur og gerist og
tökum jafnvel gamla bflinn þinn upp
f þann nýja!
Sjáumst á alvöru bílasýningu
BÍLVANGUR sf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300