Morgunblaðið - 13.07.1985, Blaðsíða 44
OPINN 9.00-02.00
BTT NORT AUS SHfiAR
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR.
Laxveiðileyfi of dýr?
Mikill samdráttur
í sölu veiðileyfa
MIKILL samdráttur hefur orðið í
sölu veiðileyfa að laxveiðiám hér á
landi nú í júlí, en í júlímánuði er
hæsta verð á veiðileyfum. Gildir
hið sama um allt land og og hefur
aðsóknin dregist saman jafnt með-
al íslenskra laxveiðimanna sera út-
lendinga.
Friðrik Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Stangveiðifélags
Reykjavíkur, sagði að hér væri
um mjög óvenjulegt ástand að
ræða. í Norðurá hefði til dæmis
verið búið að taka frá ákveðinn
tíma fyrir útlendinga, sem síðan
hættu við að koma og svipaða
Norræn ráðstefna um fiskeldi:
Úrgangur veldur meng-
un í norsku fjörðunum
„STAÐBUNDIN mengun er vandamál í norsku fiskeldi um þessar mund-
ir,“ segir Árni Helgason fiskifræðingur en hann er nýkominn heim af
norrænni ráðstefnu sem haldin var í Osló um fiskirækt og umhverfis-
vernd. Á ráðstefnunni kom fram að eldisstöðvar hafa margs konar áhrif á
nánasta umhverfi sitt en einnig á Iffríkið allt.
„Staðbundin mengun skapast
vegna of mikiliar fóðurgjafar og
þeirra náttúruskilyrða sem eru í
norsku fjörðunum. Þeir eru lygn-
ir og langir og vatnsskipti eru
mjög hæg. Þannig safnast óétið
fóður á fjarðarbotninn ásamt úr-
gangi frá fiskinum og hefur lagið
orðið allt að 30 sentimetra þykkt.
Vegna þessa fjölgar mjög þeim
lífverum sem sjá um niðurbrot
og lífríkið líkist því sem þekkist í
fúamýrum eða á skólpmenguðum
svæðum í nágrenni við þéttbýli."
„Á þinginu var einnig fjallað
um þá gífurlegu lyfjagjöf sem nú
tíðkast í norrænu fiskeldi. í Nor-
egi þar sem heildarvelta eldis-
manna er um 1 milljarður
norskra króna eða nálægt fimm
milljörðum íslenskra króna, fer
fimmtungur þeirrar upphæðar í
beinan lyfjakostnað. 7—800
grömm af virkum fúkalyfjum eru
gefin hverju tonni, en ómælt
magn fer út I náttúruna með
óétnu fóðri.“
Margt fleira kom fram á þingi
norrænna eldismanna, svo sem
áhrif „genískrar" mengunar en
nánar er fjallað um hana ásamt
öðrum málum þingsins í viðtali
við Árna Helgason fiskifræðing á
bls. 16.
sögu væri að segja frá flestum
veiðistöðum á landinu. „Ég neita
því ekki að verðið er orðið nokk-
uð hátt og svo hafa þrjú síðustu
sumur verið frekar slæm,“ sagði
Friðrik. „Það hefur engin endur-
nýjun átt sér stað meðal erlendra
laxveiðimanna sem hingað sækja
og frekar orðið fækkun. Hér áður
komu hingað fjármálamenn og
iðjuhöldar erlendis frá, en það er
liðin tíð að þeir leiti hingað. Þeir
sem eru hérna núna eru menn
sem hafa komið hingað undan-
farin 10 eða 15 ár. Ég hef orðið
áþreifanlega var við að það er nú
lítil eftirspurn frá útlöndum,"
sagði Friðrik ennfremur.
Friðrik sagði að enginn vafi
léki á að ástandið mætti að sumu
leyti rekja til minnkandi veiði í
ánum undanfarin ár og eins að
einhverju leyti til þess að verð á
veiðileyfum væri orðið óhóflega
hátt. Áðspurður um hvort þetta
yrði til þess að verðið lækkaði
sagði Friðrik: „Vonandi verður
þetta til þess. Við viljum helst
geta boðið okkar félagsmönnum
veiðileyfi á hóflegu og sann-
gjörnu verði.“
Lóósmynd/Þorkel! Valdimarsson
Tómas tekinn afstalli
Styttan af þjóóskáldinu Tómasi Guðmundssyni var tekin af stalli sínum
í Austurstræti í gærdag. Ástæðan var sú, að ráðgert er að fjarlægja
upphækkun í götunni, þar sem styttan var. Verður styttunni síðan
komið fyrir á nýjum stalli í Austurstræti þegar þeim framkvæmdum
lýkur.
Kjaradómur:
Launahækkun
í BHMR 5 % frá 1. júlí
BHMR vildi 9 % hækkun frá 1. júní og áskilur sér rétt til nýrrar meðferðar Kjaradóms
félaga
KJARADÖMUR hefur dæmt, að
laun félaga í Bandalagi háskóla-
manna hjá ríkinu hækki um 5% frá
1. júlí síðastliðnum, en BHMR
krafðist 9% hækkunar frá 1. júní.
Laun hækka um 2,4% þann 1. ágúst
næstkomandi og 4,5% 1. október,
eins og deiluaðilar höfðu náð sam-
Siglufjörður:
Hestamenn villast
í þoku og slyddu
— Snjókoma víða á hálendi í gær
HESTAMENN frá Siglufirði, sem voru á leið á hestamannamót í Ólafs-
firði á fimmtudaginn, urðu að snúa við vegna slyddu og þoku f Héðins-
firði. Hestamennirnir lögðu af stað úr Siglufirði um klukkan 14.00 og
komu aftur til baka, blautir og hraktir, um klukkan 22.00 um kvöldið.
Víða snjóaði á landinu í gær, einkum fyrir vestan og á hálendinu og þykir
það nokkrum tíðindum sæta í júlímánuði.
„Við fórum Hólsskarð, en þá saman og við gátum ekki áttað
er farið fyrir Héðinsfjörð og
ofan í Skeggjabrekkudal í ólafs-
firði,“ sagði Birgir Gunnarsson,
sem var í hópi hestamannanna.
„Þegar við komum upp úr Hóls-
skarðinu skall á svartaþoka og
slydda, en þannig háttar til, að
jökulbunga er þarna fyrir Héð-
insfirðinum svo að allt rann
okkur á hvert við fórum. Þegar
við vorum komin fyrir Héðins-
fjörðinn gátum við ekki áttað
okkur á hvar Skeggjabrekkudal-
urinn var og snerum því við.“
Birgir sagði að siglfirskir
hestamenn hefðu oft farið þessa
leið áður, en aldrei orðið frá að
hverfa, að minnsta kosti ekki á
þessum árstima. Sagði hann það
ef til vill til marks um veðrátt-
una að menn kæmust ekki leiðar
sinnar í júlímánuði. „Hér er nú
leiðindaveður og grátt ofan í
miðjar hlíðar," sagði Birgir.
Norðanstrekkingurinn, sem
verið hefur á landinu að undan-
förnu hefur valdið snjókomu í
fjöllum fyrir vestan og norðan
og í gaerdag hafði veðurstofan
fregnir af snjókomu á Gjögri og
Hveravöllum og víðar á hálend-
inu. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins vöknuðu ferða-
langar, sem nú gista í tjöldum
víða á hálendinu, við það í
gærmorgun, að jörð var alhvít.
komulagi um. Kjaradómur dæmdi
að persónuuppbót í desember verði
20% af desemberlaunum í 127.
launaflokki 8. þrepi og að tímakaup í
dagvinnu í hverjum launaflokki
verði 0,615% af mánaðarkaupi mið-
að við 4. launaþrep. Aðilar höfðu
orðið ásáttir um þessa þætti.
Ágreiningur milli BHMR og
ríkisvaldsins var um hækkun
launa, orlofsfjár og gildistíma
hækkana. BHMR krafðist þess að
laun hækkuðu um 9% frá 1. júni
síðastliðnum. þeirri kröfu hafnaði
ríkið — taldi að launabreytingar
launþega innan ASÍ, BSRB og
BHMR yrðu áþekkar frá október
1984 til júlí 1985 ef samningum
BHMR yrði ekki breytt fyrr en 1.
ágúst. Ríkið krafðist að breyt-
ingar tækju ekki gildi fyrr en 1.
júlí. Sem fyrr segir dæmdi Kjara-
dómur 5% hækkun frá 1. júlí. Þá
gerði BHMR kröfu um að lág-
marksupphæð orlofsfjár miðaðist
við 1. þrep í 127. launaflokks.
Kröfu BHMR var hafnað.
Kjaradómur telur, að hækkanir
í júní síðastliðnum til kennara,
hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra
umfram þorra félagsmanna BSRB
veiti BHMR ekki rétt til endur-
skoðunar á aðalkjarasamningi, en
samningar á hinum almenna
vinnumarkaði og þorra félags-
manna BSRB geri það hins vegar.
Kjaradómur klofnaði í úrskurði
sinum um hækkun launa. Jón
Finnsson, ólafur Nilsson og Pétur
Ingólfsson mynduðu meirihluta
um 5% hækkun frá 1. júlí. Tveir
skiluðu séráliti, Benedikt Blöndal
vildi hækka laun um 3% frá 1. júlí
og Jón G. Tómasson um 2%.
Morgunblaðinu barst í gær
fréttatilkynning frá stjórn
BHMR. Þar segir meðal annars:
„Meirihluti dómenda úrskurðar
um tvö meginágreiningsefni. Hið
fyrra er krafa BHMR um hlið-
stæða meðalhækkun launa BHMR
félaga frá 1. júní og önnur heild-
arsamtök launafólks hafa fengið í
nýgerðum samningum. BHMR
metur þessa meðalhækkun 9% ...
Síðara ágreiningsefnið varðar
kröfu BHMR um hækkun frá 1.
júní. Fjármálaráðherra vill miða
við 1. júlí. Á þessa kröfu fjármála-
ráðherra fellst Kjaradómur, þrátt
fyrir að samningar allra þessara
heildarsamtaka miðist við 1. júní.
Eru vandfundin rök fyrir þessari
málsmeðferð.
BHMR fullyrðir að launahækk-
un samkvæmt fyrrgreindum
samningum hafi orðið mun meiri
að meðaltali en dómendur telja og
ekki lægri en 9%. BHMR fullyrðir
að þetta muni koma berlega í ljós
á næstu vikum og mánuðum.
BHMR áskilur sér allan rétt til að
krefjast þá nýrrar meðferðar á
málinu í Kjaradómi."