Morgunblaðið - 13.07.1985, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JtJLl 1985
9
Nýtízkuleg
bílaþvottastöð
Viö bjóðum forþvott, sápuþvott, 2-þátta bón og
þurrkun.
Stööin getur tekiö bíla sem eru allt aö 225 cm á breidd
og 227 cm á hæö. Viö gefum fólki kost á aö fá nýtt
byltingarkennt efni, Poly-lack, boriö á bílinn meöan þaö
bíöur (20 mín. á bíl).
Poly-lack inniheldur acryl sem gefur bflnum geysifalleg-
an gljáa, skýrir litina og endist lengi.
í Þýzkalandi er þetta efni borið á alla Mercedes Benz
áöur en þeir eru afhentir.
Opnunartími: virka daga kl. 9—7 — helgar kl.
10—7.
Bílaþvottastöðin,
Bíldshöföa 8,
(viö hliðina á Bifreiöaeftirlitinu).
Þaö tekur 3 minutur aö reisa þennan
17 fermetra tjaldvagn.
Viö oskum ykkur goörar feröar og vitum
aö vagninn bregst ykkur ekki.
Veröiö á herlegheitunum er kr. 119.800 stgr.
meö fortjaidi og eldhúsi.
Gisli Jonsson og Co. hf
Sundaborg 11, simi 686644.
Camp-lef
FRÆGUR TJALDVAGN
Viö höfum flutt þennan vagn inn í 3 ár og
okkur vitanlega hefur engin bilun
oröiö í þesum vögnum á þeim tíma.
Spumingar
vakna
Framtak Ingvars Gíslason-
ar, þingmanns Framsókn-
arflokksins, forseta neðri
deildar Alþingis og fyrrum
menntamálaráðherra, þeg-
ar hann tók sér fyrir hend-
ur að veita blaðamönnum
ádrepu, hefur vakið at-
hyglL Það eitt að stjórn-
málamaður taki sér fyrir
hendur að aegja fjölmiðl-
um til syndanna er athygl-
isvert Hafa hvorir tveggju
stjórnmálamenn og blaða-
menn gott af því að íhuga
samskipti sín. Mestu skipt-
ir auðvitað að það sé gert á
réttum og skynsamlegum
forsendum. Grein Ingvars
Gíslasonar vekur margar
spurningar. Að því hefur
áður verið vikið í Stak-
steinum (sl. fimmtudag) og
þá sérstaklega drepið 1 AF
berts þátt Guðmundssonar
í ritsmíðinni. Hér skal vitn-
að til annars kafla í grein
Ingvars
„Bandalag kumpána-
skaparins befur verulegar
luettur í for með sér, eklú
fyrir valdamennina, því að
þeir hafa af þessu hag,
heldur blaðamennina
sjálfa. Út á kunningsskap-
inn og þægilegheitin fá
þessir stjórnmálamenn
(eða valdamenn) milda,
geðuga og mannlega um-
fjölhin í fjölmiðlum. Þeir
eru ógjarnan sýndir nema í
sinni skástu mynd — og
þeir eru ott sýndir — ekki
síst við einhver hátíðleg
tækifæri, ffnir og afslapp-
aðir, eða þá sem frískir
íþróttaunnendur í tóm-
stundum, gáfaðir bók-
menntavinir eða tónlistar-
menn og listmálarar eða
smiðir, sem hafa verkstteði
f kjallaranum hjá sér.
„Verðleikar" þessara
manna eru vel thindaðir og
auðvitað látnir yfirgnæfa
M. sem miður kann að
vera í fari þeirra. Mistök,
sem þeir gera (og oft ber
við) eru afgreidd í góðsem-
istón kumpánaskaparins,
enda færð á reikning
mannlegs hrerskleika, sem
allir viðurkenna að er geð-
felldur eiginleiki hjá hverj-
um sem er.“
Enn um blaöamennsku
í Staksteinum í dag er aö nýju gripiö ofan í
grein Ingvars Gíslasonar um blaöamennsku,
en hún birtist í NT. Þá er einnig vikiö aö því
hvernig NT greip á því, aö því var Ijóstraö upp
í sjónvarpinu aö á litmynd í landkynningar-
bæklingi leyndist Heineken-bjórdós.
Og enn segir Ingvar um
þessa vini blaðanna:
„Þeir óttast ekki að vera
bendlaðir við gerræðisverk
eða spillingu einfaldlega
vegna þess að almenningur
trúir því ekki að þessir
hollvinir fjölmiðlanna,
þessir frísku sundmenn og
golfmeistarar og knatt-
spyrnufrömuðir, bókaorm-
ar, píanóleikarar,
landslagsmálarar og renn-
ismiðir séu viðriðnir ger-
ræðisfull embættisverk eða
sérdrægar ákvarðanir af
einhverju tagi.“
Þegar Ingvar Gíslason
var menntamálaráðherra
sætti hann gagnrýni m.a.
fyrir það, að hann afgreiddi
mál með einhliða yfírlýs-
ingum í þessum dúr. Hér
er það ég sem ræð, ráð-
herrann. Sleppum þvf. En
hverjir eru þessir stjórn-
málamcnn (valdamenn),
sem Ingvar er að tala um?
Megum við fá meira að
heyra? Er smiðurinn með
verkstæðið í kjallaranum
(rennismiðurinn) kannski
Steingrimur Hermannsson,
forsætisráðherra og for-
maður Framsóknarflokks-
ins?
Bjórdósin
Flest er hey í harðind-
um. Þetta hefur sannast í
fréttaleysi síðustu daga á
bjórdósinni, sem sjón-
varpsmenn fundu á mynd f
landkynningarbæklingi og
sýndu eins og litla leyni-
lögreglusögu í fréttatíma á
þriðjudagskvöldið. Rann-
sóknastarfsemin leiddi það
meðal annars f Ijós, að dós-
in var ulan af Heineken-
bjór sem upprunninn er í
Hollandi. I fímmtudags-
blaði NT eru birtar niður-
stöður á rannsóknum
blaðsins í þessu máli, á
þremur stöðum í blaðinu.
Fram kemur í samtali
við Birgi Þorgilsson, ferða-
málastjóra, að hann hafí
ekki séð bjórdósina voða-
legu á myndinni, fyrr en
houum hafí verið bent sér-
staklega á hana. Var þá bú-
ið að prenta myndina í
50.000 eintökum. Og NT
spyr, hvort ekki eigi að
eyðileggja bæklinginn.
Birgir segir að það verði
STlR
eklri gert: „Ég sé ekki að
þessi eina dós eyðileggi
málefni af þessu tagi.“
í NT er frá því skýrt að
Iceland Review, sem prent-
að er í Hollandi, hafí látið
Ferðamálaráði í té 30.000
prentuð eintök af hinni
umræddu mynd með bjór-
dósinni. Vekur þetta sér-
staka athygli rannsókn-
armanna NT, þeir benda á
að Heineken-bjór sé fram-
leiddur f Hollandi og
spyrjæ „Hver borgaði
prentunina, Heineken eða
Ferðamálaráð?"
Og í þriðja sinn skal
vitnað í umsögn NT um
bjórdósina en þar segir í
ritstjórnardálki:
„Hér er að sjálfsögðu
um að ræða klúður Ferða-
málaráðs og starfsmanna
þess. Enn eitt dæmið um
kæruleysi manna sem ekki
bera ábyrgð á neinu ...
Vera má að einhverjum
fínnist hér gert mikið úr
smá mistökum, en að
opinbert apparat, Ferða-
málaráð, skuli dreifa til út-
lendinga bækling þar sem
tviskinnungur okkar er svo
rækilega afhjúpaður — að f
óspilltu vatni í bjórlausu
landi skuli vera tómar
bjórdósir á floti — er síð-
asta sorL“
Sleppum kæruleysi þess
sem þennan texta ritar
gagnvart tungunni, kjör-
gripnum, sem hann hefur
til að lýsa skoðun sinni.
Lítum einnig fram hjá
þeirri röngu fúllyrðingu að
menn geti ekki fengið
Heineken löglega bér á
landi, meira að segja hjá
sjálfu ríkinu sem rekur Frt-
höfnina. Gefum Haraldi J.
Hamar, ritstjóra Iceland
Review, siðasta orðið um
þetta mál. Hann segir m.a.
í athugasemd í NT í gær
„Hvort á umræddri
mynd er bjórdós eða ekki
— þá lít ég þessa örðu
sömu augum og prentvillu
eða stafabrengl f texta.
Hvernig slikt getur orðið
dagblaði tilefni til að taka
menn fyrir með dylgjum,
glósum og aðdróttunum
um embættisglöp er ekki
hluti af minni löngu
reynslu f blaðamennsku.
En hvert blað verður auð-
vitað að fínna sér þann
vettvang, sem það tehir sér
best hæfa.“
Áhöfn „Hennar". Talið frá vinstri Jóhann Reynisson, Ingi Ásmundsson, Stefán Stephensen og Sigurður Blöndal.
„Hún“ komin heim úr
fimm vikna siglingu
Á þriðjudagsmorgun lagðist skútan
eftir fimm vikna ferð til Skotlands og
Áhöfnina skipuðu fjðrir menn,
þeir Ingi Ásmundsson og Stefán
Stephensen, eigendur skútunnar,
auk þeirra Sigurðar Blöndals og
Jóhanns Reynissonar. Heiðurinn
af smiði „Hennar", sem er 28 fet,
„Hún“ að bryggju í Reykjavíkurhöfn,
Færeyja.
eiga þeir Ingi og Stefán.
Samkvæmt upplýsingum Sig-
urðar Blöndals gekk ferðin framar
öllum vonum og var veðrið, sem
vissulega skiptir miklu máli í för-
um sem þessum, vel viðunandi.
„Reyndar ætluðum við að dveljast
næturlangt á eyjunni St. Kilde, en
sakir suð-vestanáttar, var ekki
hægt að leggjast þar að bryggju.
Við erum þó hæstánægðir með
ferðina og værum allir tilbúnir til
að leggja aftur upp i svona leið-
angur,“ sagði Sigurður.