Morgunblaðið - 13.07.1985, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ1985
ZÖ
Ferðalagið tóm-
legt ef engir
eru hittir að máli
^ Borgarfiröi, 29. jújní.
Á BRENNISTÖÐUM í Flókadal eni húsráóendur Vigdís Sigvaldadóttir og
Árni Theodórsson. Hafa þau verið með ferðamannaþjónustu í um 10 ir. Þar
eru til staðar 3 herbergi og einnig tvö sumarhús, sem eru i bökkum Geirsár
fyrir neðan bæinn. Var Vigdís spurð að því, hvað það veri helzt sem
útlendingarnir sæktust eftir þegar þeir kæmu til dvalar.
Heimilisfólkið þarf líka að borða
og verða gestirnir eins og einir af
heimilisfólkinu, enda er reynt að
láta fólkið finna að til þess er ætl-
azt.
Hvað með fslendinga?
— íslendingarnir, sem koma,
eru einnig að leita eftir því sama
margir hverjir og útlendingarnir.
Eins og við vitum þá er visst djúp
á milli dreifbýlis og þéttbýlis —
beinlínis alið á því. Það getur ver-
ið jákvætt fyrir þéttbýlisfólk að
koma á sveitabæ sem þennan —
gæti verið helgarferð — og kynn-
azt aðstæðum, viðhorfum og sjón-
armiðum sveitafólks, sem það hef-
ur ekki átt kost á áður. Þannig
getur það betur sett sig inn í að-
stæður og líf sveitafólksins og
dæmt betur um á eftir.
Einn faðirinn tók sig tii og kom
með börnin sín til að fá að kynnast
sveitalífinu. Hann hafði tekið eftir
því, að malbiksbörnin, sem alin
eru upp þar alla sína ævi, skildu
ekki einföldustu orð eins og „mel-
ar“ og „mýrar", þegar þau voru að
lesa í sögubók. Þess vegna þótti
honum kjörið að fara með þau og
geta dvalið um stund í dreifbýlinu
til þess að þau gætu skilið söguna,
sem þau höfðu verið að lesa, —
sama þótt þau væru fluglæs.
Er þetta skemmtileg aukabú-
grein?
— Á meðan fólk stoppar í
nokkra daga og maður kynnist
því, þá er gaman að þessu og þetta
verður persónulegra allt saman.
Auk þess fáum við heiminn heim
til okkar þegar við ræðum við út-
lendingana. Það eru ekki bara við
sem fræðum aðra, sögðu þau Árni
og Ingibjörg að lokum.
I Fljótstungu er stutt í hellana
frammi í hrauni, Stefánshelli,
Víðgelmi og Surtshelli, auk veiði í
ám og vötnum. Eins og tveggja
manna herbergi eru til staðar, og
stutt að fara í gönguferðir eða út-
reiðartúra.
— Pþ
— Þetta er ferðafólk sem vill
kynnast fólkinu á bænum persónu-
lega. Sýnir fólkið best að þá vináttu
launar það með bréfum, pökkum og
kortum sem það sendir til okkar að
utan. Býður okkur heim til sín og
vill þannig endurgjalda það sem
gert er fyrir það hérna.
Þegar ferðast er í ókunnu landi
þá hlýtur það að vera keppikefli
hvers og eins að hitta einhvern og
sjá hvernig það býr. Annars er
ferðalagið tómt ef engir eru hittir
að máli.
Fólkið hefur gaman af að skoða
og kanna forna lifnaðarhætti.
Finnst fólki undarlegt, hversu mik-
il ættfræði er stunduð á Islandi og
gerlegt skuli vera að rækja ættir
manna allt til landnámsaldar og
Noregs. Þetta finnst varla úti, þar
sem ættarnöfn koma í veg fyrir að
hægt sé að rekja ættir langt aftur.
Er auðvelt að eiga við þessa ferða-
menn?
— Þetta er sérstaklega elskulegt
fólk, undantekningarlítið. Það er
gaman að gefa þvi íslenzkan mat,
sérstaklega er það ánægt með
mjólkurafurðirnar, skyrið einkum.
Þá þykir því lambakjöt og lax vera
góður, en ég býð varla svið og slát-
ur.
Þetta var svolitið erfitt í fyrstu
að hafa þessa gesti inni á heimilinu
— tók þetta svolítið alvarlega — en
síðan lærðist það að ef fólkinu líður
vel þá er allt i lagi og engar áhyggj-
ur þarf að hafa af fólkinu. Því líður
bezt ef það er eins og eitt af heimil-
isfólkinu.
Þetta er skemmtilegt og skapar
góð kynni manna á meðal. Fólkið
er fljótt að falla inn i fjölskyldulíf-
ið og krakkarnir hafa fengið góða
þjálfun i að tala erlend tungumál.
Þetta er einstaklega notalegt og
skemmtilegt fólk sem hefur komið
hingað. Mest eru þetta Þjóðverjar
og Frakkar, sem koma. Heiðarlegt
og snyrtilegt og langflestir minútu-
menn.
Nú hefur sveitabæjunum fjölgað
sem hafa þessa þjónustu. Finnst þér
að þeir séu orðnir of margir og of litið
komi í hlut hvers og eins?
— Já, þeir eru orðnir of margir
bæirnir, ef fólk ætlar sér að treysta
á þetta yfir sumarið. Ef fólk er bú-
ið að undirbúa sig með dálitlum til-
kostnaði, varðandi húsnæði og
fleira, þá er seinlegt að hafa upp í
þá fjárfestingu. Það kemur of litið
inn miðað við alla fyrirhöfnina.
Þetta er ekki svo stöðugt sem gistir
að nokkru nemi. Það er þvi hæpið
að leggja út i mikla fjárfestingu, en
ef allt er til staðar, þá getur þetta
gengið, annars ekki, sagði Vigdís
Sigvaldadóttir að lokum.
— PÞ
Vigdís Sigvaldadóttir ásamt dóttur sinni Þóru.
Brennistaðir f Flókadal.
Morgunblaðiö/rttur Porateinsson.
Þftð er ekki á hverjum bæ, sem grísir leika sér meó hundunum á bæjarhell-
unnL
Landmælingar
íslands:
Opna versl-
un og gefa
út ný kort
LANDMÆLINGAR íslands hafa
nýverið opnað sérstaka kortaversl-
un á Laugavegi 178 og er gengið
inn frá Bolholti.
Verslun þessi þó lítil sé veitir
viðskiptavinum stofnunarinnar
betri möguleika til yfirsýnar
þcirra korta, sem stofnunin fram-
leiðir og selur. Hún er með sjálfs-
afgreiðslusniði.
I tengslum við opnun verslun-
arinnar hefur verið sett á mark-
að nýtt ferðakort af íslandi auk
nýs sérkorts af Landmanna-
laugum/Þórsmörk. Hið nýja
ferðakort er í vasabókarbroti
með gormkili, sem ætti að auð-
velda mjög alla notkun þess.
Hér er um að ræða fyrsta vísi að
vegaatlas fyrir íslands. Sérkort-
ið af Landmannalaugum/Þórs-
mörk er viðbót við sérkortaflokk
stofnunarinnar en í honum má
m.a. finna kort af Hornströnd-
um, Skaftafelii og Húsavík/-
Mývatni. Á kortum sem þessum
er megináhersla lögð á göngu-
leiðir og annað það er gagnast
má áhugafólki um útivist og
náttúruskoðun. Margir hafa
spurst fyrir um slíkt kort af
Landmannalaugum/Þórsmörk
og er því von Landmælinga ís-
lands að því verði vel tekið.
(FrétUtilkynning)
Vegalagning viö Hvalstöðina
^ Hamrar, Rejkholtsdal, 5. júlí.
Á MILLI brekknanna sitt hvoru megin við Veitingaskálann Þyril í Hval-
firði — oft nefndur Olíustöðin í Hvalfirði — hefur Hagvirki lagt nýjan
veg skammt frá veitingaskálanum. Sagði Jón Kristjánsson, veitingastjóri
Þyrils, að þetta væri alger bylting. Losnuðu menn við þá slysagildru sem
verið hefði við Þyril, þar sem rútur og flutningabflar hefðu íagt sitt hvoru
megin við götuna og menn ekið greitt fram hjá. Yrði lagt ottadekk á nýja
veginn í ágúst og einnig planið fyrír framan Þyril og innkeyrslu. Værí
jafnframt gott að losna við ryk og skít með þessum framkvæmdum.
— Pþ
tóOOO
Níu íallegir litir aí barustáli og einnig ólitað
Við aígreiðum það klippt 1 allar lengdir að
oskum kaupenda með stuttum íyrirvara. Allir
fylgihlutir íyrirliggjandi, s.s. þakpappi, kjöljarn
og afellur saumur, þettingar og slett eíni.
= HEÐINN =
Storasi 6 210 Garðabœ
Hagstœtt verð