Morgunblaðið - 13.07.1985, Síða 39

Morgunblaðið - 13.07.1985, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR13. JÚLl 1985 39 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 14—15 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Okur hjá Sambandinu Þorsteinn Jónsson, Stýrimanna- stíg 10, skrifar: Nýlega kom ég inn í verslunina Torgið við Austurstræti og spurði eftir bakpoka. Afgreiðslustúlkan kom með poka, ef poka skyldi kalla. Það var drusla sem kostaði á níunda hundrað krónur. Ég kom úr annarri verslun og þar fékkst bakpoki með grind og öllu saman. Hann kostaði ekki nema rúmar 700 krónur. Ég vil með þessum fáu línum vara fólk við Sambandsdíkinu, sem leggja ætti niður i eitt skipti fyrir öll. Og nú notfærir það sér að verðlagseftirlit hefur verið af- numið. P.S.: Ég er tilbúinn að sanna þessi ummæli mín fyrir dómstól- unum hvenær sem er, verði þess óskað. Sól — andleg vellíöan Það er ekki ailtaf auðvelt að henda reiður á hvað sé gott fyrir okkur og hvað ekki. Þrátt fyrir aðvaranir um hið gagnstæða á undanförnum árum, eru sem sé nokkuð margir sérfræðingar nú sam- mála um að sólin geri okkur gott. Það er ekki bara að okkur líði betur þegar við er- um orðin fallega útitekin, heldur lítum við hraustlegar út og skapið verður léttara. Og þegar lundin er létt er auðveldara að fást við vanda- málin í daglega amstrinu. En það er vissara að fara varlega af stað. Enginn verður brúnn eða léttur í lund ef líkaminn brenn- ur og hleypur upp í blöðrum. Eins og með svo margt annað í lífinu — kapp er bezt með forsjá. Hver og einn hefur sinn smekk H.H. skrifar: Ég hef lesið það í blöðum að Kæru Wham- og Duran Duran- aðdáendur. Hvernig væri nú að þið hættuð þessu stríði á milli ykkar? Hver einasti maður hefur sinn tónlist- arsmekk og það ætti ekki að skipta máli fyrir neinn, hver held- ur upp á hvern. Þó ég sjálf sé Dur- an Duran-aðdáandi finnst mér margar aðrar hljómsveitir góðar og ég ætla ekki að segja að Duran Duran sé best því hún er það ekki. Og mér finnst að sjónvarpið mætti sýna meira með öðrum hljóm- sveitum. Svo með Listahátíðina. Haldið þig að hljómsveit eins og Duran Duran mundi koma hingað til lands? Nei, kæru vinir, við höf- um hreinlega ekki nógu stóra höll sem þeir gætu spilað í. U2-, Prince- og Frankie goes to Hollywood-aðdáendur séu að kvarta yfir því að það sé ekki nóg með þeim í sjónvarpinu, en hvern- ig væri þá að þið tækjuð ykkur saman og skrifuðuð í blöðin eða þá í sjónvarpið og biðjið þá um eitthvað með þeim. Kæru aðdáendur. Hættið nú þessu stríði um hver er best og hafið ykkar eigin tónlistarsmekk. Ég held að allir séu bara jafn góð- ir. En ég er sammála mörgum krökkum að það mætti koma meira með hljómsveitum eins og U2, Spandau Ballet, Prince og Frankie goes to Hollywood, þetta eru mjög góðar hljómsveitir og hættið nú þessu væli og hlustið þá bara á ykkar uppáhaldshljómsveit eins og ekkert sé að. Ánægð með þáttinn „Fagurt galaði fuglinn sá“ R.Á. skrifar: Mig langar að lýsa ánægju minni með nýja þáttinn, sem er á rás 1 á laugardagseftirmið- dögum og heitir því skemmtilega nafni „Fagurt galaði fuglinn sá“. Það var mál til komið að út- varpið kæmi með einhvern mús- ikþátt, sem hinn almenni borg- ari hefði ánægju af. Hingað til hefur maður aðallega heyrt ann- aðhvort þrautleiðinlegar sinfóní- ur eða gargandi popp-músik. í þessum þætti er mjög smekklega vaiin hljómlist með lögum, sem flestir kannast við. Ekki spillir stjórnandinn, Sig- urður Einarsson, sem fléttar í þáttinn léttu ívafi. Auk þess hef- ur hann mjög þægilega rödd, lausa við allan sjálfbirging. Bjóðið Árna með Reyni Guðrún skrifar: Nú er hann Reynir búinn að fara hringinn og hefur heillað alla landsmenn og vona ég bara að hann gleymist ekki strax og ekki tilgangurinn með göngunni. En margir spyrja líka hver hafi fengið þessa frábæru hugmynd. Ég hef heyrt að það sé maður að nafni Árni Leósson, bygginga- meistari á Selfossi og hann byggir jafnframt íþróttaleikhúsið að Sól- heimum, og á hann þakkir skilið fyrir svo góða hugmynd. Ég las það í blaði sem heitir Hreyndís að Árni og kona hans, Halldóra, hafi gefið allan uppslátt við sökkla á Iþróttaleikhúsinu. Hvernig væri að Ferðaskrif- stofa rikisins og Smyrill byðu Áma með Reyni til Færeyja, hann þarf jú að hafa einhvern með sér. Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 14 og 15, mánudaga til fostudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnLs, sem vel er þegið, eru ibendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frisagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þitt- arins, þó að höfundar óski nafn- lcyndar.____________________________ Rósailmur allt árið Með hækkandi sól blómstra líka rósirnar. Það er bráðgóð hugmynd að útbúa sér ilm- krukku. Leggið lag af rósa- blöðum í glerkrukku með þéttu loki og stráið yfir það örþunnu lagi af salti. Síðan aftur lag af rósablöðum með salti og þannig áfram þar til krukkan er svo til full. Geymið krukkuna á köldum stað og eftir um það bil hálf- an mánuð er ilmurinn tilbúinn. Takið þá lokið af og út streymir yndislegur rósailmur sem dreifir sér um herbergið. ■c Hreinar hendur eftir garðvinnu Gott ráð fyrir þá sem hafa verið að vinna í garðinum er að nudda venjulegri matar- olíu á fingurna, úða þar á eft- ir uppþvottalög yfir hend- urnar og vel inn undir negl- urnar. Skola svo úr köldu vatni, það opnar húðina svo moldin nær ekki að festast. Loks eru hendurnar þvegnar með handsápu og volgu vatni og góður handáburður borinn á að lokum. /// 1 * E-vítamín og æðakölkun E-vítamín er að finna til dæmis í grænmeti, jurtaolíu, ýmsu korni og eggjum. Fái líkaminn ekki nóg af þessu bætiefni getur það komið fram í linum vöðvum, blóðleysi og hjarta- og æða- sjúkdómum. Það eru ekki allir læknar sem viðurkenna E-vítamínskort nema í sambandi við einstaka sjaldgæfa sjúkdóma eða hjá börnum, sem fæðast fyrir tímann. En hugsanlegt er að E-vítamín sé eitt allra þýðingarmesta bætiefnið, þvi margt bendir til að það vinni gegn æðakölkun og krabbameini. Þeir dagsskammtar af E-vítamíni, sem mælt er með, eru trúlega of litlir. í fjölda- rannsóknum hefur verið sýnt fram á að lítið magn af E-vítamíni í líkamanum auki hættuna á blóðtappa, krabbameini og hugsanlega einnig hersli, gigt, asma, ofnæmi og fjölda annarra þrátlátra sjúkdóma. Fyrir nokkrum árum fékk E-vítamín á sig miður gott orð vegna þess að það var auglýst sem leiðin til auk- „ innar lífs- og kynorku. Þetta hefur aldrei verið sann- að. E-vítamín er á sama hátt og A-vítamín nauðsynlegt til að vinna á ómettuðum fitusýrum i blóðinu og auka nýtingu málmsalta. Yfirleitt er mælt með neyzlu 10 milligramma af E-vítamíni á dag, og þann skammt ætti að vera auðvelt að fá með venjulegu mataræði. En þeir sem vilja tryggja sig enn betur, geta að skað- lausu margfaldað þann skammt með vítamíntöflum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.