Morgunblaðið - 13.07.1985, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1985
41
Isiandsmotið í knattspyrnu:
Mikið skorað af mörkum
MIKID helur verið skorað af
mörkum þaö sem af er íslands-
móti 1. deildar, og er þaö talsvert
önnur og skemmtilegri saga en
hægt var aö segja fyrir ári. Alls
hafa veriö skoruö 146 mörk núna
en eftir níu umferðir í fyrra voru
þau orðin 103.
Nú er Islandsmótiö hálfnaö og
búiö er aö leika 45 leiki sem þýöir
aö þaö hafa veriö skoruö 3,24
mörk aö meöaltali í leik í sumar en
í fyrra var meöaltaliö 2,28, eöa
tæplega einu marki færra en meö-
altaliö í ár.
I ár hafa fæst verið skoruö 10
mörk í umferð en í fyrra voru tvær
umferðir þar sem aöeins voru
skoruö sex mörk. Flest mörk í
einni umferö i ár eru úr síöustu
umferöinni, þeirri níundu, en þá
• ómar Torfason hofur átt sinn
þátt í aö mö.kin aru oröin mörg f
1. deild í sumar.
uröu mörkin 21.1 fyrra uröu mörk-
in flest 18.
I fyrstu umferöinni voru skoruö
17 mörk, 19 í annarri og 13 í þeirri
þriöju. Fjóröa umferöin bar með
sér fæst mörk, eöa 10 talsins, en í
jseirri fimmtu uröu mörkin 17 og 15
í sjöttu umferö. Nítján mörk voru
skoruö í sjöundu umferö og 15 í
þeirri áttundu og síöan kom metiö
hingaö til í níundu og síöustu um-
ferö, 21 talsins.
Aöeins einum leik hefur lyktaö
meö markalausu jafntefli í sumar,
leik Vals og ÍA, en í fyrra haföi
fimm leikjum lyktaö meö marka-
lausu jafntefli, þannig aö sjá má aö
mörkin hafa verið nokkuö fleiri auk
þess sem þeim hefur veriö jafnar
skipt á milli leikja.
Meistaramótin
í golffi
NÚ UM helgina fara fram um allt
land meistarakeppnir allra
golfklúbba landsins og má full-
yröa aö kylfingar um allt land
veröa önnum kafnir um helgina
því það er mikill fjöldi sem tekur
þátt í þessum mótum og mun
fjöldi þeirra kylfinga sem elta litlu
hvítu kúluna um helgina vera um
fimm hundruð.
I stærri klúbbum landsins hófst
þetta mót nú í víkunni því þar er
fjöldinn svo mikill aö ekki veitir af
fimm til sex dögum til aö hægt sé
aö Ijúka mótinu.
Golfvellir landsins eru flestir í
mjög góöu ásigkomulagi um þess-
Grótta vann
EINN leikur var í A-riöli 4. deildar
á fimmtudaginn, Víkverji og
Grótta léku á gervigrasvellinum (
Laugardal. Gróttan kom, sá og
sigraöi því leikmönnum liösins
tókst að skora fjögur mörk en
Víkverjar skoruöu ekkert. Þaö
voru þeir Ottó Hreinsson, Sverrir
Herbertsson, Valur Sveinbjörns-
son og Bernhard Peter sem skor-
uöu mörkin.
ar mundir, enda veöurfar veriö ein-
staklega hagstætt fyrir golfvelli
þaö sem af er sumri og mikiö er
starfaö á golfvöllum landsins til
þess aö halda þeim sem allra best-
um.
Allir bestu kylfingar landsins
munu vera meöal þátttakenda á
þessum mótum og þrátt fyrir aö
aöstæöur séu óhagstæöar víöa
um land vegna veöurs þá er ekki
aö efa aö margir munu leika mjög
vel.
• Magnús Jónsson. G8. Vinnur
hann um helgina?
Morgunblaðið/Julius
• Ekki vitum viö hvort þessi unga dama fer til Englands en eitt er víst
aö hún haföi gaman af PGL-skólanum hér heima. Hérna er þaö einn
kennarinn sem þakkar henní þátttökuna.
PGL í Englandi
í ÁGÚST gefst ungum knatt-
spyrnumönnum kostur á að láta
ævintýraferö sem marga dreymir
um rætast því Knattspyrnuskóli
PGL, í samráöi við Flugleiöir og
Útsýn, gangast fyrir ódýrum ferö-
um til Englands þar sem knatt-
spyma veröur æfö og horft á
leiki.
Þaö veröa tveir hópar sem fara
utan, sá fyrri fer 10. ágúst og dvel-
ur ytra til 17. ágúst en þá fer síöari
hópurinn út og veröur til 25. ágúst.
Farið veröur á Wembley og annaö
hvort til Liverpool eöa Manchester,
nú eöa á báöa staðina. Einnig
verður farið á leik hjá Manchester
Utd. eöa Liverpool þannig aö nóg
veröur aö gera hjá þeim sem fara
þessa ferö.
Rétt er aö taka þaö fram aö eft-
irlit veröur meö nemendum allan
daginn og íslenskur fararstjóri
verður með í för. í fyrri feröina er
ætlaö aö veröi krakkar á aldrinum
10—13 ára en i hina síðari krakkar
frá 14 ára til 16. Veröi hefur veriö
stillt í hóf, fyrir 12—16 ára kostar
23.900 en 10 og 11 ára þurfa aö
greiða 17.600.
Þess má geta aö í fyrra voru
farnar svona feröir og tókust þær
mjög vel, enda ekkert slor fyrir
unga og áhugasama knattspyrnu-
menn aö dvelja i Englandi þar sem
allar stórstjörnurnar úr sjón-
varpinu leika knattspyrnu og ekki
spillir þaö fyrir aö eiga þess kost
aö fara á einn leik hjá goöunum.
Fjölmargir krakkar tóku þátt í
PGL-skólanum hér heima og er
ekki aö efa aö marga langar til aö
komast í skólann i Englandi þar
sem frægir knattspyrnumenn
munu kenna krökkunum hvernig
hægt er aö ná langt í þessari vin-
sælu íþrótt.
HVERTSEM
TILEFNIÐ ER
ÞÁ ER ÁTTHACASALURINN SNJÖLL LAUSN
Jón vann
júlímótið
Á SUNNUDAG fór fram júlímót 15
ára og yngri, úrslit uróu þessi:
Án forgjafar:
1. Jón Þór Rósmundsson 77
2. Heimir Þorsteinsson 78
3. Böövar Bergsson 86
Meö forgjöf:
1. Heimir Bjarnason 97+36=81
2. Björgvin Björgvinss. 78+15=91
3. Ástráöur Sigurösson 127+36=91
Reynir
vann HV
REYNIR frá Sandgeröi tók á móti
HV í A-riöli 3. deildar í fyrrakvöld
í Sandgerói og sigraöi 2:1. Það
voru þeir Ævar Finssson og Ari
Haukur Arason sem skoruöu
mörk Reynis í fyrri hálfleik. Ari er
nú búinn aö skora átta mörk (
deildinni og er langmarkahæstur
í Reyni. í síöari hálfleik minnkaöi
Magnús Ingvason muninn meö
ööru marki sinu í sumar.
Átthagasalurinn Hótel Sögu er sniðinn fyrir öll hugsanleg mannamót. Hann hentar jafnt stórum sem
smáum hópum, allt frá 20 tll 200 manns og starfsfólk okkar kappkostar að uppfylla hvers konar óskir
um veitingar og þjónustu.
e Smá og stór afmæli • Hádegisverðarboð e Útskriftarveislur
e Fermingarveislur • Kafflsamsæti e Fundlr
e Skírnarveislur • Kvöldverðarboð e Ráðstefnur
e Ættarrmót • Brúðkaup e Vinasamsæti
e Erfidrykkjur e Árshátíðir e o.fl. o.fl.
Við veitum allar frekari upplýsingar um verð og þjónustu og gefum góð ráð. Hafðu samband við
veitingadeildina i síma 29900.
Við leysum málið.
GILDIHF