Morgunblaðið - 21.07.1985, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 21.07.1985, Blaðsíða 27
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ 1985 pitrgMi Útgefandi uhlahil* hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Agúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, simi 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjaid 360 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 30 kr. eintakiö. Vísindalegar hvalveiðar Eftir töluverð átök ályktaði Alþingi á þann veg hinn 2. febrúar 1983, að samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um takmörkun hvalveiða, sem kunn- gerð var með bréfi til ríkisstjórn- arinnar dags. 2. september 1982, verði ekki mótmælt af íslands hálfu. Sú samþykkt Alþjóðahval- veiðiráðsins, sem hér um ræðir mælir fyrir um að hvalveiðar í atvinnuskyni skuli stöðvaðar 1986—1990. Jafnframt fari fram endurmat á hvalastofnum fyrir árið 1990. Samþykkt Alþingis frá 2. febrúar 1983 byggðist á þeirri stefnumörkun, að hvalveiðar í at- vinnuskyni skyldu aflagðar i samræmi við ákvörðun Alþjóða- hvalveiðiráðsins, hins vegar skyldu rannsóknir á hvalastofn- um auknar enda yrðu þær grund- völlur ákvarðana um veiðar eftir 1990. í samæmi við þetta hefur verið unnið að þessu máli af hálfu ís- lenskra stjórnvalda. Hvalveiðum í atvinnuskyni verður hætt hér við land á næsta ári en Hafrann- sóknastofnunin hefur gert sér- stakan þjónustusamning við Hval hf. um að afla þeirra hvala sem nauðsynlegir eru til að stunda fyrirhugaðar rannsóknir, er í því efni talað um 200 dýr á ári. Það er um helmingur af leyfilegri veiði síðustu tveggja ára og rúm- ur þriðjungur af meðalársveiði á síðustu tveimur til þremur ára- tugum. Talan 200 byggist á mati vísindamanna og hafa þeir sagt, að lágmarksfjöldi dýra þurfi ár- lega að skiptast þannig að veidd- ar verði 80 langreyðar, 40 sand- reyðar og 80 hrefnur, ef tekið er mið af greinargerð Hafrann- sóknastofnunar frá 24. maí. Á ársfundi Alþjóðahvalveiði- ráðsins sem lauk á föstudaginn var ekki horfið frá þeirri stefnu, sem mörkuð var með samþykkt- inni frá 1982. Ráðið er enn þeirr- ar skoðunar að leyfa beri vísinda- legar hvalveiðar. Á fundinum var lögð fram tillaga um að sala á hvalkjöti sem fæst við rann- sóknaveiðar skuli bönnuð. Sú frá- leita hugmynd náði ekki fram að ganga. Tvær þjóðir, íslendingar og Suður-Kóreumenn, hafa lýst því yfir, að þær ætli að nýta sér heimildir í samþykktum Alþjóða- hvalveiðiráðsins um veiðar í vís- indaskyni. Um þessa stefnumót- un hefur verið einhugur meðal þeirra íslensku sérfræðinga sem ijalla um hafrannsóknir og nátt- úruvernd. Náttúruverndarráð hefur lýst sig i aðalatriðum hlynnt því, að ráðist verði í hvalarannsóknir samkvæmt áætlunum Hafrannsóknastofn- unar. Náttúruverndarráð telur að vísu „nauðsynlegan rökstuðning" skorta fyrir því að þörf sé að veiða einmitt þann fjölda hvala, sem tilgreindur hefur verið. Lík- ur benda til þess, að áhugamenn um verndun hvala muni einmitt gagnrýna, hve marga hvali þurfi að drepa og finna að því, hvaða tegundir hvala á að veiða. Þeir sem lengst ganga fram til vernd- ar hvalnum munu auðvitað reyna með öllum ráðum að koma i veg fyrir að nokkrar vísindalegar hvalveiðar verði stundaðar frá Is- landi. Sjónarmið þessara afla urðu hins vegar undir á fundi Al- þjóðahvalveiðiráðsins í vikunni. Þrjár þjóðir, Norðmenn, Jap- anir og Sovétmenn, ætla ekki aö hlíta banni Alþjóðahvalveiðiráðs- ins um veiöar í atvinnuskyni frá og með 1. janúar næstkomandi. Þessar þjóðir lofa hins vegar að draga saman seglin á næstu tveimur til þremur árum en stjórnvöld þeirra efast um vís- indalegar forsendur fyrir hval- veiðibanninu. Hvort Norðmenn geta haldið stefnu sinni til streitu eftir að hrefnan hefur verið frið- uð af Alþjóðahvalveiðiráðinu er óvíst. Friður hefur myndast innan- lands um þá stefnu sem íslensk stjórnvöld hafa mótað á grund- velli samþykkta Alþjóðahval- veiðiráðsins. Ráðið sjálft hefur nú staðfest réttmæti hinnar ís- lensku stefnu. Útlendir áhuga- menn um náttúruvernd eru þess- ari stefnu hins vegar andvígir. Sumir talsmenn þeirra hafa hót- að að segja íslenskum fyrirtækj- um, sem stunda allt annað en hvalveiðar, stríð á hendur vegna áformanna um að nýta heimildir Alþjóðahvalveiðiráðsins. Hvort sá þrýstingur á eftir að verða meira en orðin tóm mun koma i ljós. Óbilgirni þeirra sem kenna sig við náttúru- og umhverfis- vernd hefur oft spillt málstað þeirra sjálfra. Við allar ákvarð- anir íslenskra stjórnvalda er í senn nauðsynlegt aö huga að samstöðu innlendra aðila um stefnuna og því að illt er að egna óbilgjarnan. Ályktun Alþingis frá 2. febrúar 1983 er stuðningur við verndun hvala. Náttúruverndarráð hefur dregið í efa, að nauðsynlegt sé að veiða 200 hvali vegna rannsókna. Ýmsar þær tegundir sem ætlunin er að veiða hér svo sem steypi- reyður og hrefna eru friðaðar. í þessu máli eins og öðrum verða embættismenn að lúta samþykkt Alþingis. Við megum alls ekki gefa höggstað á okkur með því að fara í kringum þær samþykktir sem leyfa vísindalegar hvalveið- ar. Það gæti stefnt miklum hags- munum svo sem á Bandaríkja- markaði í hættu fyrir minni hagsmuni; engri þjóð, síst af öllu smáþjóð, líðst það að byggja stefnu sína og ákvarðanir á tvö- földu siðgæði. Eyjar blár að var Þingeyingurinn Einar Benediktsson sem lýsti Vestmanna- eyjum á þann hátt að þær væru sem safírar greyptir í silfurhring eins og hann komst að orði. Það þarf mikið skáld til að lýsa náttúrufegurð Vestmannaeyja, svo mik- ið listaverk sem Eyjarnar eru. Það er eftirminnilegt að kynnast þeim og þá ekki síður því fólki sem eyjarnar byggir. ísland markar djúp spor í lunderni þjóðarinnar, svo sérstakt sem það er. Það á ekki sízt við um Vestmannaeyjar sem gefa íbúum sínum svipmót vina- legrar náttúru og ógnvekjandi umhverf- is þar sem eru þrítugir hamrar, ókleif björg og lífshættulegt haf sem hefur krafizt margra mannslífa. En þó eru eyjarnar grænar og vinalegar og eftir- minnilegur unaður ferðalöngum sem kynnast þeim. Eldgosið heyrir fortíðinni til og leiftr- in frá Eldfelli eru ekki lengur sá ógnvaldur sem áður var. Það var í raun og veru kraftaverk að enginn skyldi far- ast í þeim náttúruhamförum þegar Eld- fell varð til og fyrir það getur íslenzka þjóðin verið forsjóninni ævinlega þakk- lát. En því meiri hefur fórnin verið á hafinu umhverfis eyjarnar þar sem 500 sjómenn hafa orðið til á síðustu 100 ár- um, eða 5 sjómenn að meðaltali á ári. Þetta hlutfall er eins nú og áður var. Hrikaleg og ægifögur náttúra eyjanna krefst blóðfórna nú sem áður, tækni og þekking hafa ekki komið í veg fyrir það. í upphafi Islandsbyggðar urðu Vest- mannaeyjar umgjörð mannlegra átaka og harmleiks, enn eru þær umgjörð mik- illa átaka og ógnlegra örlaga. Sjálfar bera þær merki mikilla náttúruhamfara á síðustu áratugum og er Surtsey minn- isstæður vitnisburður þess, en þó eink- um Heimaey sjálf þar sem eldsumbrotin vöktu heimsathygli og minna á þau átök sem islenzka þjóðin hefur þurft að sætta sig við í umhverfi sínu. Heimaey stækkaði verulega til austurs og þar sem áður voru grænar aflíðandi hlíðar í sjó fram eru rústir af 400 húsum undir hrauni, en eftirstöðvar hússins Blátinds gægjast undan hraunjaðrinum eins og til að minna okkur á að gleyma ekki lífsháskanum, en þar skammt frá eru einnig rústir húss við Kirkjubæjarbraut þar sem vikurinn hefur fyllt öll herbergi eins og tii að minna á smæð mannsins andspænis miklum örlögum og þeirri nákomnu hættu sem við búum við i landi okkar. Þessar minjar má aldrei eyðileggja. Þær verða með tímanum merkustu fornleifar landsins. Á þessu hrauni þar sem nú eru gerðar mikilvæg- ar tilraunir með hitaveitu úr hraunhita mun austurbærinn verða endurbyggður og þar munu Vestmannaeyingar hasla sér aftur völl, hvað sem allri fortíð líð- ur. Á annað hundrað neðansjávar eldgig- ar eru við eyjarnar en úr Eldfelli einu runnu 230 milljónir rúmmetra af hrauni á fimm mánuðum og eyðilögðu um 400 af 1.345 húsum Eyjamanna. Heildar- magn gosefna var 250 milljónir rúm- metra. Engum datt í hug að við nútíma- menn ættum eftir að upplifa slíkar náttúruhamfarir. Eyjarnar eru 15 tals- ins og að mestu leyti byggðar úr neðan- sjávareldgosum undanfarin 10.000 ár. Þær voru í raun og veru afskrifaðar sem eldgosasvæði þangað til jörðin rifnaði og eldtungurnar sleiktu himin og haf. Þá voru 5.000 ár frá því Helgafell gaus og 10.000 ár frá því náttúran hófst handa um að hlaða upp þessi ösku- og basaltlög handa milljónum bjargfugla og fólki sem er reiðubúið að finna kröft- um sínum viðnám í skemmtilegu sam- býli við lunda, langvíu, súlu, ritu og fleiri fuglategundir. Hafa eyjaskeggjar myndað fallegt, hlýtt og manneskjulegt samfélag í þessum grasi grónu berg- köstulum. Eftirminnilegt mann- líf og stórhugur einkaframtaks Ferðamönnum verður margt eftir- minnilegt þegar þeir koma til Vest- mannaeyja. Saga eyjanna minnir á upp- haf Islandsbyggðar. Þar eru mörg skemmtileg örnefni frá gamalli tíð og sögur tengdar þessum örnefnum eru enn í heiðri hafðar. I stað þess að hraunið lokaði höfninni austur af Hringskersgarði milli austurbyggðar, Heimakletts og Yztakletts, myndaði það einhverja beztu höfn sem um getur við norðanvert Atlantshaf þótt brimsúgur brjóti nú hraunið niður og höfnin grynnist sífellt, en á því verður ráðin bót með nútímatækni. Mikil umsvif hafa kallað á góða höfn og þess sér stað í Vestmannaeyjum. Þar eru merkileg fyrirtæki sem vinna úr bezta hráefni sem úr sjó fæst og skapa gífurleg gjald- eyrisverðmæti. Það er gaman að gera sér grein fyrir því átaki sem gert hefur verið við stækkun Vestmannaeyjahafn- ar, þar standa vinnsluhús arðbærra hlutafélaga framsýnna einkarekstrar- manna sem hafa tekið áskorun hafsins og breytt hráefni í mikil verðmæti. Þar eru einhverjar stærstu fiskvinnslu- stöðvar landsins, þúsund tonna skipa- lyfta og önnur fyrirtæki sem bera stór- hug og viljastyrk einkarekstrarmanna fagurt vitni. 2% landsmanna, 15% verðmæti Eyjarnar sjálfar hafa orðið til úr miklum átökum. Basalt og móberg tak- ast á við brimrótið og í þessum átökum hafa eyjarnar skirzt. Þær hafa vísað eyjaskeggjum veginn og sýnt þeim hvernig horfast á í augu við erfiðleika og breyta hættulegri lífsbaráttu í mik- ilvæg störf fyrir land og þjóð. Af nábýli við óblíð náttúruöfl hefur Vestmanna- eyingum aukizt þrek. Þeir hafa skírzt í þeim eldi sem hefur mótað umhverfi þeirra, skírzt í því sama brimróti sem hefur sorfið bergsyllurnar, meitlað bergið og mótað með þeim eftirminni- lega hætti sem náttúrufegurð eyjanna ber gleggst vitni um. Það er engin til- viljun að Vestmannaeyjar hafi verið stærsta verstöð landsins um langt skeið, eða að þaðan hafi komið mestu afla- verðmæti frá einum stað á landinu, allt að 15% aflaverðmætis í útflutningi þótt íbúarnir séu einungis tæp 2% lands- manna. Eyjaskeggjar hafa talið það eft- irsóknarvert hlutskipti að vinna jafn- mikilvæg störf fyrir þjóðarbúið og þess- ar tölur bera vott um. Þeir eru sjálfir sérstæðir en þó einkum sjálfstæðir. Þeir hafa sótt afl þeirra hluta sem gera skal í eigin styrk. Þegar þeir komust ekki á þjóðhátíð 1874 efndu þeir til eigin þjóð- hátíðar í Herjólfsdal og þar hefur hún verið haldin æ síðan við mikla athygli. Nábýlið við bæ landnámsmanns eyj- anna, Herjólfs Bárðarsonar, hefur í senn verið hvatning og skemmtileg við- miðun í mikilvægri baráttu fyrir frelsi í orði og verki. Og þá ekki síður örlagarík reynsla þegar 242 af 500 íbúum eyjanna voru hnepptir í þrældóm til Afríku, en 34 voru drepnir í Tyrkjaráninu svo- nefnda, mörgum misþyrmt af sjóræn- ingjum, konur svívirtar. Það var litlu samfélagi mikið högg, meira en eldgosið 1973. Kurteisi og háttvísi í fallegu umhverfi Umhverfið hefur verið eyjaskeggjum hvatning til að fegra bæinn, rækta og gera hann viðmótsgóðan og skemmtileg- an. Bæjarstjórn Vestmannaeyja á heið- ur skilið fyrir það, ekki síður en eyja- skeggjar sjálfir, hvað Vestmannaeyja- kaupstaður er snyrtilegt og fallega ræktað samfélag. Þar eru mörg eftir- minnileg listaverk, eins og Fæðing sálar MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚLl 1985' H 27 REYKJAVfKURBRÉF laugardagur 20. júlí eftir Einar Jónsson og Tröllkona Ás- mundar Sveinssonar, og nýlega var fal- legu minnismerki um Guðríði Símonar- dóttur (Tyrkja-Guddu) komið fyrir á Stakkagerðistúni gegnt ráðhúsinu. Hafði Árni Johnsen forystu um það, en hann er óforbetranlegur Eyjapeyi eins og kunnugt er. Guðríður var húsfreyja í Stakkagerði þegar henni var rænt og hún seld mansali. Eyjamenn hafa aldrei látið öðrum haldast uppi að segja þeim fyrir verk- um. Þeir hafa sjálfir verið brautryðj- endur um margt, lagt eigin síma, keypt fyrsta varðskipið, Þór — nú er skrúfa þess í minnisvarða undir Náttmála- skarði eða Klifinu, en aðrir munir úr því í stórmerkilegu og fallegu byggðasafni — stofnað eigin stýrimannaskóla og náttúrugripasafn sem er einstætt og öðrum til fyrirmyndar. Þór kom til landsins 1920 og var upphaf landhelgis- gæzlunnar. Þetta er óvenju skemmtilegt byggðasafn, sagði ungt fólk sem var í för með bréfritara til Vestmannaeyja ekki alls fyrir löngu, hér eru engir askar eða þessir leiðinlegu spænir sem eru alls staðar! Það var íhugunarefni út af fyrir sig og ekki siður hitt þegar bréfritara var sagt hvernig hugmyndin að stýri- mannaskóla varð til. Ársæll Sveinsson, bróðir Sveins í Völundi, sagði einn góð- an veðurdag við samsveitunga sína: Við skulum ekki vera að tvínóna við þetta, við skulum stofna stýrimannaskóla. Það er ómögulegt að vera háðir þeim uppi á landi. Þegar við höfum stofnað stýri- mannaskóla koma beztu sjómannsefnin hingað til Eyja að stunda nám og stúlk- urnar munu sjá um að halda í þá. I mörgum tilfellum hefur þetta farið eft- ir. Ársæll var sem sagt einn af þessum spámönnum sem leysa flókin vandamál með einföldum hætti. Og ekki nóg með að Vestmannaeyingar sjái sjálfir um aflaklær sínar sem fiska á fengsælustu miðum sem um getur og færa bezta hrá- efni sem til er í hendurnar á dugmiklu verkafólki í fiskvinnslustöðvunum, heldur reka þeir einnig Herjólf sem flytur vörur og farþega á milli Þorláks- hafnar og Vestmannaeyja og eykur á eftirvæntinguna, svo skemmtileg sem þessi sigling er í sæmilegu veðri. Skipið flytur nær 50.000 farþega árlega og um 10.000 bifreiðir, auk umfangsmikilla vöruflutninga. En sigling í litlum hrað- bátum umhverfis eyjarnar er ekki síður eftirminnileg og raunar ógleymanlegt ævintýri fastalandsmönnum. Þá blasir bjargfuglinn við, ritan og langvían sem hneigir sig fyrir ferðamönnum og ber kurteisi og háttvísi eyjaskeggja fagurt vitni. I Eyjum eru einnig ógleymanlegir drangar og sjávarhellar svo eftirminni- legir að þeim verður ekki lýst í dagblaði. I Stórhöfða situr vitavörður sem hefur merkt 36.000 lunda og eitthvað af öðrum svartfugli, auk þess sem hann hefur merkt nokkur þúsund fýla og kannski einhverja fleiri bjargbúa. Undanfarin ár .hafa veiðzt 60—80 þúsund lundar á ári, en sumarið 1984 var sérlega góð veiði, en þá voru veiddir 100 þúsund fuglar í úteyjum og Heimaey. Flestar eyjarnar eru sæbrattar og erfiðar upp- göngu, en vanir fjallamenn, eins og bjarggöngumenn eru nefndir í Eyjum, sigra þær auðveldlega. Þó hafa björgin einnig heimtað sínar fórnir, hjá því verður ekki komizt. Milli Heimaeyjar og Stórhöfða er Klaufin þar sem eyjaskeggjar dýrka sól- ina og tala um að fara á Costa del Klauf, en þar er fjaran heil kennslustund í jarðfræði þar sem basalthraunið liggur ofan á móberginu og brotnar í brimrót- inu, en austar á Heimaey er Ræningja- tangi þar sem Hund-Tyrkinn gekk á land og kom aftan að eyjaskeggjum, þvi að hann hafði njósnir af Skansinum við höfnina, en þar voru fallbyssur sem hann óttaðist. Nú er Skansinn að mestu undir hrauni. Sumir telja að Islending- ur hafi verið um borð í skipum Algeirs- borgarmanna og vísað þeim veginn. Þannig eiga menn ávallt að gera ráð fyrir einhverjum akkillesarhæl ef gull og gersemar eru í boði. En þar norður af Ræningjatanga er nýja hraunið, austan við Helgafell og Eldfell, en þar kom Guðlaugur að landi, sá hjartaprúði og einlægi Eyjapeyi, og gekk yfir hraunið á milli eldfjallanna niður í bæinn að loknu ógleymanlegu þrekvirki sem vak- ið hefur heimsathygli og sannað okkur að Drangeyjarsund Grettis er slíkum köppum engin ofraun. Minnisstæd heimsókn, audugt mannlíf Þetta Reykjavíkurbréf er sprottið úr heimsókn til Vestmannaeyja. Slík ferð er ógleymanleg og leiðir óhjákvæmilega til meiri skilnings á því fólki sem í Vest- mannaeyjum býr. Þar er gott fólk. Þar er sérstætt fólk. Þar er fólk sem dregur dám af umhverfi sínu og þetta umhverfi er í senn ægifagurt og ógnvænlegt. Þetta umhverfi krefst sjálfsbjargarvið- leitni. Það krefst manndóms. Og sjálfs- bjargarviðleitni og manndómur setja mark sitt á Vestmannaeyjar. Þar býr fólk sem heimtar ekki allt af öðrum. Þar býr fólk sem gerir miklar kröfur til sjálfs sín. Þar býr fólk sem hefur verið hert í miklum eldi. Það er skemmtilegt og eftirminnilegt að kynnast þessu fólki í eigin umhverfi. Og það er mikilvægt að vita af því á næstu grösum við Island! En skemmtilegast af öllu er að íbúarnir eru aftur orðnir nær 5.000 og vonandi rís eftirminnileg menning úr þeirri deiglu sem eyjarnar eru eftir gos. Júlí- ana er úr Eyjum. Sverrir Haraldsson er fæddur í Eyjum. Þar er Sigurbjörn Sveinsson grafinn í kirkjugarði Landa- kirkju, en hann skrifaði fyrir börn með þeim hætti að Halldór Laxness hyllir hann í æviminningum sínum. I Vest- mannaeyjum var Sigurður frá Arnar- holti, þar var einnig Örn Arnarson. Og þar er meira útlán bóka en annars stað- ar á Islandi, að Siglufirði undanskild- um, eða 16 bækur að meðaltali á mann á ári. Eyjaskeggjar hafa ekki orðið mynd- bandaæðinu að bráð, ekki enn. Or þjóðflutningadeiglu landnáms ís- lands varð til heimsmenning, hvorki meira né minna. Það er gaman að sjá langvíuna hneigja sig á kórunum. En við skulum ekki láta Þingeyingum eftir að yrkja óðinn um Vestmannaeyjar þótt Einar Benediktsson hafi tekið að sér það hlutverk í upphafi þessarar aldar. Vestmannaeyingar hljóta að eignast mikil skáld eftir eldraun síðustu ára. Þeir halda uppi listræna húmornum á (slandi meðan Sigmund situr við púltið sitt í Heimaey og teiknar í Morgunblað- ið. Vestmannaey- ingar hljóta að eignast mikil skáld eftir eld- raun síðustu ára. 4.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.