Morgunblaðið - 21.07.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ 1985
23
hverri vertíð, keypt siðan eigin bát
með lágan kvóta og gæti nú engan
veginn notið eigin verðleika. Erling-
ur kvaðst efast um að kvótakerfið
stæðist stjórnarskrána ef skoðað
væri. Hann sagði hart til að vita, að
þessar ráðstafanir nytu stuðnings
stjórnar LlÚ. Ef menn minntust svo
á þessi mál við þingmenn, þá
hummuðu þeir bara í barm sér flest-
ir hverjir.
Aldrei aftur kvóta
öttar Guðlaugsson skipstjóri á
Auðbjörgu, 50 tonna bát, sagði, að
kvótakerfið kæmi afar hart við þá
báta sem nær eingöngu hefðu fiskað
þorsk á viðmiðunarárunum. Þeir
ættu enga aukabita og skerðingin
skylli á þeim fyrst og fremst. Kvóta-
kerfið væri á flestan hátt ósann-
gjarnt, og margt skrýtið í þeim kýr-
haus.
óttar kvaðst til dæmis hafa séð í
riti Fiskifélagsins, Útveginum, að
bátur nokkur, 150 tonn að stærð,
hefði viðmiðunarárin þrjú fengið
900 tonnum meira en Auðbjörg, en
einungis skilað 500 þúsundum meira
í aflaverðmæti. Fyrsta kvótaárið
hefði svo þessi sami bátur haft 13
milljónir króna í aflaverðmæti, en
Auðbjörgin, sem þá landaði ein-
göngu úrvals dragnótafiski, aðeins 6
milljónir og hefði þó keypt viðbót-
arkvóta. Áhrifin af þessu dæma-
lausa kerfi sem skertu þorsksvæðin
svo mjög, væru nú að skila sér í
ólafsvík, þar sem fleiri hús væru nú
til sölu en nokkru sinni fyrr. Það
vantaði bara að stjórnvöld segðu
hreinlega hverja þau ætluðu sér að
drepa og hverja ekki, ef þau hygðust
halda þessum ósköpum áfram, þrátt
fyrir að vitað væri að nægur fiskur
væri um allan sjó og að náttúran
sjálf sé stærsti áhrifavaldurinn á
stofnstærðirnar.
óttar sagði að Sjálfstæðisflokkur-
inn ætti sér slagorð: Aldrei aftur
vinstri stjórn. Rétt vær að benda
flokknum á annað til að stefna sam-
tímis að: Aldrei aftur kvóta. Ef þeir
hefðu það í heiðri, yrði það ekki
ófisknara á fylgi en hið fyrra, því þá
sæist vottur þess að flokkurinn vildi
í raun vernda eitt það dýrmætasta
sem þjóðin á i hverjum manni,
sjálfsbjargarviðleitnina.
- Helgi
Mýyatnssveit:
Ohagstæð
heyskapartíð
Mjyatusreit 18. júlí.
MJÖG óhagstæð heyskapartíð hefur
verið hér að undanfornu í Mývatns-
sveit
Þeir sem hófu slátt í júni og
byrjun júií náðu inn allmiklum af-
bragðs verkuðum heyjum, en þeir
bændur sem byrjuðu heyskap síð-
ar hafa litlu sem engu náð inn og
sumir jafnvel ekki farnir að slá.
Grasspretta er orðin mjög góð, en
úrkomusamt hefur verið hér síð-
ustu daga og svalt.
í hretinu um síðustu helgi grán-
aði niður undir byggð. Mjög góð
veiði hefur verið i Mývatni um
tíma og silungurinn bæði feitur og
fallegur. Telja veiðimenn hann
betri en undanfarin ár, sem bendir
til hagstæðari átuskilyrða í vatn-
inu.
Kristján
Hestaleiga í
Höfðahverfi
Hestaleigan, Pólar-hestar, í
Höfðahverfi, hefur hafið starfsemi
sína. f fréttatilkynningu frá hestal-
eigunni segir að bæði sé hægt að
leigja besta og fylgdarmann í styttri
reiðtúra svo og í dagsferðir.
Einnig munu Pólar-hestar bjóða
upp á þriggja daga ferðir í Fjörðu
nú f sumar og hafa þegar verið
farnir tveir slfkir reiðtúrar.
(flr frílUtilkynBÍnpi)
Nýjung í heyverkun
Svörtum og teinréttum er turninum á Grund ætlað að standa vörð um fóðurgildi heysins.
MorgunblaÖið/J.S.
Blönduósi 16. júlí.
Á BÆNIJM Grund í Svínavatns-
hreppi hefur verið byggður rúmlega
24 metra hár votheysturn. Hér er um
innfluttan stálturn að ræaða. Þessi
turn er fyrstur sinnar tegundar á
Norðurlandi vestra og er hann 680m3
Forþurrka þarf grasið áður en
því er blásið í turninn. Blásarinn
sem notaður er til að koma heyinu
24 metra leið upp í turninn saxar
heyið um leið og þarf a.m.k. 14Q
hestafla vél til að þetta sé mögu-
legt. Áð sögn feðganna á Grund
tók það fimm daga að koma turn-
inum upp og öfugt við allar hús-
byggingar var byrjað á þakinu og
hlaðið undir það uns 24 metrum
var náð. Kaupverð turnsins er á
bilinu 2,5 til 3,0 milljónir króna.
Sláttur byrjaði almennt með
fyrra móti í Austur-Húnavatns-
sýslu f sumar og gera menn sér
vonir um að fóðurgildi heyja verði
meira heldur en oft áður. Hey-
skapartíð var góð framan af en
undanfarna daga hefur gengið
stirðlega vegna vætu. Hefur úr-
koman ýmist verið í föstu formi
eins og um síðustu helgi eða fljót-
andi. Nokkrir bændur eru það
langt komnir með fyrri slátt að
þeir þurfa ekki meira en 3—4 daga
til að ljúka honum.
JJS.
A ust ur-H únavat nssýsla:
POLONEZUMBOÐI O 23, slmi 685870 — 81733
Hagstæð
greiðstakjör
Hann er
að seljast
Viö erum nú aö selja síöustu bílana af Polonez 1500 árgerö 1985 á
aðeins 277.500 kr.
komnir á götuna meö ryövörn og fullan bensíntank.
Frábær kaup á stórum og rúmgóöum alhliöa fjölskyldubíl eöa
vinnubíl fyrir iönaöarmenn.
1100 lítra farangursrými er aftursætiö leggst fram.
Sterkur og traustur bfll eftir ítalskan hönnuð,
kjörinn fyrir íslenskar aðstæður.