Morgunblaðið - 28.07.1985, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 28.07.1985, Qupperneq 26
26 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1985 NÁTTÚRUFRÆÐIDAGUR 28. JULI Kynning á náttúrugripasöfnum víðs vegar um landið Upplýsingar fyrir ferðafólk Þeir sem ferðast erlendis og vilja á sem skemmstum tíma kynnast náttúrufari landsins sem þeir ferðast um, fara oft fyrst á náttúrufræðisafn staðarins. Þar fá menn yfirlit yfir jarðfræði, plöntu- og dýralíf á staðnum og ýmsar ábendingar um hvernig best sé að kynnast því á sem skemmstum tíma. Þeir erlendu ferðamenn sem heimsækja ísland gera það undan- tekningarlítið einmitt vegna hinn- ar sérstæðu náttúru iandsins. en hvernig stöndum við íslendingar okkur í að undirbúa þá undir að njóta náttúrunnar, skilja hve við- kvæm hún er og umgangast hana af varfærni? Svarið er, að því mið- ur vantar mikið á að við komum fræðslu um umhverfi okkar nægi- lega vel til skila, hvort heldur er til erlendra ferðamanna eða til al- mennings hér á landi. Náttúru- gripasöfn eru til víða um iandið og reyna þau að sinna þessu hlut- verki eftir bestu getu, en eru flest í skammarlegu fjársvelti. Það kostar fé að setja upp vandaðar sýningar og endurnýja þær sem eldri eru, standa fyrir dagskrám og fræðslu af ýmsu tagi. Við viljum samt sem áður hvetja fólk til að nota sér söfnin og það er t.d. hægt að gera með því að heimsækja þau áður en farið er í sumarfríið, iagt er í sunnudags- ökuferð eða göngu og jafnvei eftir á. Þannig geta menn glöggvað sig á ýmsu sem fyrir augun ber í nátt- úrunni og jafnvel uppgötvað ým- islegt forvitnilegt sem auðvelt er annars að sjást yfir. Og söfnin eru ekki bara sýningar, safnverðirnir búa yfir mikilli þekkingu sem þeim er Ijúft að miðla af. Þeir eru þar til þess að spyrja þá, og á ýms- um stöðum er verið að gera for- vitnilega hluti, t.d. á Akureyri, í Kópavogi og í Vestmannaeyjum. Hvar eru söfnin? Náttúrugripasafnið í Keykjavík (sýningarsalur Náttúrufræði- stofnunar íslands), 91-29822, er við Hlemmtorg, á Hverfisgötu 116, 3. hæð. Safnið býr nú við þrengri húsakost en fyrir 70 árum, eða um 90 mz. Þar er því ekki aðstaða til að sýna nema örlítið brot af sýn- ingargripum safnsins, hvað þá að það hafi möguleika á að starfa á nútímalegan hátt og nýta sér nýj- ungar í sýningartækni, til þess að vekja áhuga safngesta og koma fræðslunni til skila á sem ánægju- legastan hátt. En safnið er engu að síður forvitnilegt og fallega upp sett og á sunnudaginn verða nátt- úrufræðingar til staðar á safninu og leiðbeina gestum. Þeir svara fyrirspurnum og tilvalið er að taka með steina, plöntur eða ann- að forvitnilegt sem þið eigið í fór- um ykkar og langar til að vita nánari deili á. Safnið er opið á sunnudögum, þriðjudögum, Hmmtu- dögum og laugardögum kl. 13.30-16.00. Bókasafn Náttúrufræðistofnunar er Hlemmtorgsmegin í húsinu og verður einnig opið á sunnudaginn. Þar verða m.a. til sýnis handbækur og tímarit sem henta almenningi. Forstöðumaður Náttúrufræðistofn- unar er Ævar Fetersen. Náttúrufræðistofa Kópavogs, Digranesvegi 12, kjallpra, sími 91-41863, er opin á laugardögum og miðvikudögum kl. 13.30—16.00. Þar stendur nú yfir stórmerkileg sýn- ing um allar hvalategundir sem finnast við Ísland, lífeðlisfræði þeirra og lífshætti. Einnig er þar gullfalleg skeldýrasýning, en stof- an á ýmis önnur söfn, t.d. steina, fugla og plöntur og utan við húsið er að koma upp vísir að grasgarði. Meðal markmiða stofunnar er að standa að rannsóknum í nágrenn- inu og virku samstarfi við skóla. í dag, sunnudag 28. júlí, verður safnið opið frá 13.30—16.00. Forstöðumaður er Árni Waag. Náttúrugripasafn Borgarfjarðar er í safnahúsinu Borgarbraut 61, Borgarnesi, ásamt fjórum öðrum söfnum, sími 93-7279. Þar er opið alla daga kl. 14—16. M.a. er til sýn- is fullkomið safn íslenskra fugla safnaði. Má þar telja fugla, egg, steina, steingervinga og margt fleira. Ennfremur er til sýnis ís- björn úr Grímsey, fjöldi þurrk- aðra plantna og skeljar. Ástæða er til að vekja sérstaka athygli á steingervingunum. í safninu er ennfremur gott safn bóka og tíma- rita. Safnahúsið gefur út ársritið Safni. Forstöðumaður er Finnur Kristjánsson. Náttúrugripasafnið í Neskaup- stað, Gilsbakka 13, sími 97-7606. Forstöðumaður er Einar Þórar- insson. Náttúrugripasafnið í Neskaup- stað var opnað til sýninga árið 1970. Meginhlutverk safnsins er tvíþætt: annars vegar kynning á náttúru landsins með höfuð- Frá Náttúrugripasafninu á Selfossi. Kúalubbi. Einn algengasti sveppur hérlendis. mat- Náttúrugripasafnið í Reykjavík. og úrval fallegra steina, en safnið á margt fleira sem ekki er unnt að sýna vegna þrengsla. Forstöðumaður er Bjarni Bach- mann. Náttúrugripasafnið á Akureyri, Hafnarstræti 81, sími 96-22983, er opið alla daga kl. II—14. Þar má einkum sjá íslenska fugla, fiska, berg- og steintegundir og plöntur. Vakin er athygli á að í safninu eru til sýnis íslenskir sveppir og skóf- ir, sem ekki munu vera til á sýn- ingum annars staðar hérlendis. Ekki er úr vegi að líta á sveppina núna þegar sveppatíminn er að fara í hönd! Safnið stundar all- mikla rannsóknastarfsemi og gef- ur út tvö tímarit, Týli, sem kemur út tvisvar á ári og er skemmtilegt og fræðandi rit fyrir alla, og Acta Botanica, sem er sérfræðirit á ensku um grasafræði. Forstöðumaður er Helgi Hall- grímsson. Náttúrugripasafnið á Húsavík að Stóragarði, sími 96-41330, er opið alla daga kl. 14—17. Uppistaða safnsins eru margskonar náttúru- fræðilegir munir sem Jóhann Skaptason, fyrrv. sýslumaður. áherslu á Austurlandi og hins veg- ar rannsóknir á náttúrufari. í húsnæði safnsins á Mýrargötu 37 er sýningarsalur þar sem sýnd- ir eru ýmsir náttúrumunir m.a. fuglar, spendýr, skeljar og ýmis önnur sjávardýr, skordýr, stein- tegundir og bergtegundir. Einnig er til gott safn plantna. Náttúrugripasafnið hefur á undanförnum árum annast nátt- úrufarsrannsóknir vegna mann- virkjagerða á Austurlandi, svo sem virkjana o.fl. og einnig hefur það annast eftirlit með verklegum framkvæmduin fyrir Náttúru- verndarráð. Sýningarsalur safnsins er opinn í júní til ágúst alla virka daga kl. 16—18 og laugardaga og sunnu- daga kl. 15—18. Skólar og ferða- hópar geta skoðað safnið á öðrum tímum eftir samkomulagi. Náttúrugripasafniö á Selfossi er í safnahúsinu, Tryggvagötu 23, sími 99-1467. Safnið er opið virka daga kl. 14—16 og á laugardögum og sunnudögum kl. 14—18. Uppistað- an í safninu eru dýr sem voru í eigu íslenska dýrasafnsins í Reykjavík, en auk spendýra eru Stundum er sagt að hvalir „sjái“ með hlustunarfærunum. þar einnig fuglar, fiskar, skeljar og kuðungar. Safnið er mikið sótt og skólar nota það mikið við kennslu. Forstöðumaður er Steingrímur Jónsson. Náttúrugripasafnið í Vestmanna- eyjum er til húsa á Heiðarvegi 12, sími 98-1997. Þar er opið alla daga kl. 16—18, en tekið er á móti hóp- um svo að segja hvenær sem er á sólarhringnum, ef tími er pantað- ur fyrirfram! Safnið er e.t.v. betur þekkt sem Fiskasafnið í Eyjum, en þar má sjá sprelllifandi yfirlit yfir flesta fiska og sjávardýr sem lifa þar í kring. Nú er að enda klak hjá hrognkelsi í safninu. Seiðin eru enn glær, svo vel má sjá alla lík- amsstarfsemi þeirra. Þar hefur einnig verið unnt að sjá hvernig loðna hrygnir, svo og ástalíf Tröllakrabba! Aldursforseti safns- ins er 19 ára gamall hlýri, sem hrygnir á hverju ári. Einnig eru til sýnis sjófuglar og egg, allar steintegundir Vest- mannaeyja og þarlendar plöntur sem safnað var fyrir gos.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.