Morgunblaðið - 28.07.1985, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JULl 1985
D &t>
ið búinn að ná sambandi og festa
sér það. Það er mikil og skemmti-
leg spenna í þessu, annars væri
maður ekki að því.
Dýrt sport? Jú, verðið er alltaf
að hækka. Kortin eru yfirleitt boð-
in á föstu verði, sem maður geng-
ur að eða ekki. Þá bíða þeir og
kemur fyrir að söluverð er lækkað
ef það reynist vera komið yfir
markið. Annars er líka hægt að
finna kort úti á landi í Englandi.
En í sambandi við þessi mót fé-
lagskaparins koma kortasalar
lengra að og sýna það sem þeir
hafa í sölubásum á staðnum. Voru
eitthvað um 35 slíkar sýningar nú
í sumar. En ég lít að sjálfsögðu á
söfn og kortasölur í öðrum löndum
ef ég er þar á ferð. Það er mjög
skemmtilegt. Til dæmis sá ég fyrir
nokkrum árum í Bibilioteque Nat-
ional í París kortin þar sem Nap-
oleon lét raða upp herjum sínum
fyrir orustur sínar. Annars er
ekkert orðið að hafa af kortum hjá
körlunum á Signubökkum, eins og
mun hafa verið áður. En mér þótti
mjög gaman að líta inn hjá forn-
ritasölunum í Rue de Seine, fá þar
m.a. dálítið af prenti frá þeim
tíma sem Frakkar voru hér mest á
miðunum. Annars geta leynst dýr-
gripir á ólíklegustu stöðum.
Eg hefi núna frá félagskap
kortasafnara skírteini, sem auð-
veldar mér aðgang að stöðum, þar
sem menn eru hræddir um að
eitthvað geti komið fyrir svona
gamla, dýrmæta muni. Þar er víða
gaman að koma. Til dæmis lagði
ég leið mína í kortadeildina í Libr-
ary of Congress í Washington og
spurði um kort með íslandi. Þeir
tóku mér ákaflega vel og tíndu
fram það sem til var. Kváðust ekki
muna eftir að hafa fengið íslensk-
an gest fyrr og vildu helst nýta sér
það og fá mig til að líta á ýmsa
hluti hjá þeim. Til gamans má
geta þess að þeir báru undir mig
mynt, einhverja „five island
mynt“, sem þeir höfðu ekkert vit-
að hvað var. „Fimm eyjarnar"
gátu þeir ekki fundið. En stúlka,
0, sem vann í veitingastofunni hjá
þeim og komið hafði til íslands,
hafði sagt þeim að þetta mundi
vera peningur frá íslandi. Og mik-
ið rétt. Þarna var kominn gamli
fimmeyringurinn íslenski. Ég fékk
að skoða þau kort sem ég vildi og
ljósrita þau. Til dæmis tók ég
ljósrit af gömlum uppdrætti af
Reykjavík, sem ég veit ekki hvort
er til hérna. Á eftir að spyrjast
fyrir um það hjá borginni. Ánnars
eru nær öll gömlu kortin sem
maður finnur rifin úr Atlasbók-
um. Söluaðilar hafa talið sig hafa
meira upp úr því að selja þau
þannig hlutuð í sundur, en þeir
hafa bara ekki áttað sig á því að
þessar kortabækur eru orðnar svo
fágætar að þær fara á gífurlegu
verði þá sjaldan þær koma á upp-
boð. Flestar eru þær orðnar fastar
á söfnum.
Frisland SV við ísland
Það er mikið af merkum og
skemmtilegum kortum í safni
Kjartans Gunnarssonar. Þarna
má sjá kort Orteliusar frá 1590,
sama kortið í útgáfu Mercators ca.
1595, en þeir voru báðir þekktir
kortagerðarmenn Hollendinga á
þeim tíma, kort eftir Antonio
Zappa prentað í Feneyjum 1781,
kort eftir Hollendinginn Mathias
Quad ( ca. 1600) með innfelldri
mynd af Kristjáni IV., Knopf-
kortið prentað í Nurnberg 1761,
íslandskort prentað í Prag 1808.
Þá er þar einnig kort Zeno-bræðra
(fyrst útgefið um 1560), frægt kort
sem sýnir Frisland sem stóra eyju
í Norður-Atlantshafi. Einnig sér-
kort af Frislandi eftir Coronelli.
Þarna er Norður-Evrópukort eftir
Ortelius frá 1570 og fallegt kort
þýska meistarans Sebastians
Munster (16. öldin). Heimskort
Ptolomeusar frá 1508, sem sýnir
austurströnd Ameríku er þarna,
skrautlegt kort af norðurheim-
skautasvæðinu eftir meistara
Mercator og annað svipað eftir
Emanuel Bowen og þannig mætti
áfram telja. Þótt ekki væri það
frumútgáfa þótti blaðamanni for-
vitnilegt að skoða endurprentað
kort frá 1300 eða frá þeim tima
Kort úr ferðabók Zeno-bræðra, fyrst prentað í Feneyjum 1561. Neðst til vinstri er Frisland, þessi eyja sem aldrei var
til en var lengi á kortum.
innsiglingunni að höfninni á ísa-
firði, þar sem dýptarmælingar
hafa verið gerðar með lóðningum
og hafa reynst vera ákaflega
nákvæmar. Það voru helst Frakk-
ar eða franski flotinn, sem gerði
slíkar mælingar, sendu til þess
skip á eigin vegum og jafnvel í
trássi við Dani. Ég á tvö kort frá
18. öld, sem gefin eru út af franska
flotanum með það í huga að
franskir fiskimenn hafi sjókort af
svæðinu kring um Island. Hefi
sérlegar taugar til þeirra þar sem
ég er að vestan, afi minn var
hreppstjóri og alþingismaður á
Þingeyri við Dýrafjörð og sjálfur
er ég alinn upp á ísafirði. íslands
kortlægning á ég. Dönsku kortin
eru miklu yngri og lítið spænnandi
fyrir kortasafnara."
Það er gaman að fá að skoða
þessi skemmtilegu landakort frá
fyrri tíma hjá Kjartani Gunnars-
syni jafnvel þótt alla þekkingu
skorti á slíkum gripum. Fróðlegt
er að sjá hvernig löndin breytast
með meiri þekkingu eftir því sem
tímar líða, taka smám saman á sig
þá lögun sem þau hafa nú. Og
gaman er að skoða skreytingarnar
á hafinu á þessum litfögru kort-
um, þar sem sjá má marga
skrýtna skepnu. Það er eins og að
gægjast inn í hugarheim fyrri
alda.
þegar Jerúsalem var miðja heims-
ins og veröldin öll svo í geisla út
frá henni.
„Það er erfitt að gera upp á
milli, þau eru öll skemmtileg,
hvert á sína vísu,“ segir Kjartan
þegar þegar hann er spurður hvert
af þessum kortum honum þyki
vænst um. Hann kveðst ekki
kaupa yngri kortin, geyma sér það
enda verði þau eflaust fáanleg
áfram. Á hans elstu kortum er ts-
land bara hringur og aðrar eyjar
þar í kring. Þau eru gerð í Mið-
jarðarhafslöndunum, sennilega ít-
ölsk, enda voru ítalir mjög fram-
arlega sem siglingaþjóð á þeim
tíma. „Á einu af frægustu kortun-
um frá 16. öld, sem gerð voru af
norðurhveli, er eyjan Frisland,
sem aldrei var til. Þetta kort á ég
og finnst gaman að því. Ég á líka
sérkort af Frislandi, sem átti að
vera suðvestur af tslandi. Þar er
það teiknað sem nokkuð stór eyja.
Þetta ímyndaða land, sem skráð er
með mörgum staðarnöfnum held-
ur svo áfram að vera til á kortum
í langan tíma, hver teiknari hefur
tekið það upp eftir öðrum án þess
að hafa komið á staðinn. Það hef-
ur verið allur gangur á þessu. Á
móti á ég líka kort gert var af
franska flotanum miklu seinna, af
Eitt af fyrstu kortum af íslandi, gert af ítalanum Girolamo Porro úr bék T.
Poracchi í Feneyjum 1572. Þama er tsland næstum hringlaga eyja og menn
hafa ekkert vitað hvernig það var í laginu.
Þetta kort af Reykjavik rakst Kjartan á f Library of Congress í Washington og tók afrit af þvf. Ártalið á því er 1801.
Fyrir aftan Kjartan Gunnarsson, þar
sem hann situr í sófanum heima hji
sér, hanga merkileg kort (því miður
glampar á glerin). Efst t.v. er kort úr
safni Abrahams Orteliusar, Ant-
werpen um 1590 (kort Guðbrands
biskups Þorlákssonar). Efst Lh. kort
úr safni Mercators, 1595 og síðar.
Neðst t.v. kort af Norður-Evrópu eft-
ir ftalann Giovanni Magini frá því
um 1600. Nr. 2 frá vinstri kort eftir
Pietrus Betius, þýska útgáfan frá
1612. Nr. 3 frá vinstri er þýzkt kort,
prentað í Weimar 1815. Nr. 4 frá
vinstri er kort úr safni Zeuedetto
Bordone frá því um 1540.
MYNDIR:
ÓLAFUR K. MAGN-
ÚSSON
VIÐTAL: E. PÁ