Morgunblaðið - 28.07.1985, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1985
B 39
Ivan Reítman viö gerð Ghost-
busters.
Spielberg um það leyti sem hann
fékk áhuga fyrir kvikmynduml
Spielberg
gerir
sjónvarps-
myndaflokk
Steven Spielberg heldur áfram
aö koma mönnum á óvart. Það er
hreint út sagt dæmalaust hverju
hann kemur í verk, hann leikstýr-
ir myndum, hann skrifar handrit
aö myndum sem hann fær aöra til
aö gera (Poltergeist, Gremlins,
Goonies), hann framleiðir þessar
myndir, hann eltir uppi efnilegt
fólk og ræöur það í vinnu hjá sór
eða öðrum og upptalningin er að-
eins rétt 9byrjuð.
Er þaö allra nýjasta hjá Spiel-
berg var aö gera myndaflokk fyrir
sjónvarp. Hann fékk nefnilega þá
hugmynd einn daginn sem hann
var aö leika sér aö tölvuspili sínu,
aö gera 44 klukkustunda langa
þætti, sérstaklega fyrir sjónvarp.
Þættirnir hafa fengiö nafniö Amaz-
ing Stories.
Spielberg samdi viö NBC-sjón-
varpsstööina, sem samþykkti að
kaupa alla þættina 44, í staö
6—22 eins og venjan er um nýja
myndaflokka. En ekki nóg meö
þaö; NBC greiöir 800 þúsund til 1
milljón dali fyrir hvern einasta þátt,
og er þaö hæsta gjald sem sjón-
varpsstöö hefur greitt.
Steven Spíelberg sést hér fyrir miðri mynd stjórna tökum á fyrsta þættinum í sjónvarpsmyndaflokknum
Amazing Stories, sem Spielberg gerir fyrir NBC. Það er annars af Spielberg að frétta aö hann er nýbyrjaður
að gera mynd eftír bók Alice Walkers, The Color Purple, og þykir hann þar með stíga mikilvægt skref í
efnisvali.
Bandaríkin:
sjálfum sér og John Belushi aöal-
hlutverkin, en þegar Belushi lést
snemma árs 1982, var Bill
Murray fengin í staöinn.
Reitman segist sjálfur hafa
trúaö á tilveru drauga, hann hafi
reyndar aldrei séö draug, en eigi
þá ósk heitasta að þeir séu hérna
einhvers staöar. Segir ennfremur
að hann hafi enga trú á aö
draugar séu grænir og slepju-
legir eins og í kvikmyndinni, en
hann undrast þaö stórum aö
ekkert trúarfélag hafi enn mót-
mælt þeirri matreiöslu sem
draugar fá í Ghostbusters.
Fyrsti þátturinn verður sýndur í
september næstkomandi, en
Spielberg leikstýrir sjálfur fjórum
fyrstu, hann hefur skrifaö handrit
aö fyrstu fimmtán. Hann mun hafa
yfirumsjón meö restinni, velja sög-
urnar en fá aöra tii aö skrifa þær.
En þaö sem vekur ekki minnsta
eftirtekt er aö Spielberg hefur tek-
ist aö fá nokkra topp-leikstjóra úr
kvikmyndaheiminum tii að gera
einn þátt hver. Meöal þeirra sem
hafa samþykkt eru Clint Eastwood
(Spielberg er svo góöur vinur minn
aö ég gat ekki sagt nei, segir
kappinn), Peter Hyams (2010),
Paul Bartel, Bob Clar (Porky’s),
Irvin Kershner (Stjörnustríö II), og
Martin Scorsese (Raging Bull).
Forvitnilegt veröur að vita hvort
þessir þættir komist hingaö til
lands fyrir aldamót.
HJÓ.
Sovéski kvikmyndaleikstjórinn Sergei Eisenstein.
mikla breytingatíma, kúgun keis-
arans, blóöbaö fyrri heimsstyrj-
aldarinnar, martröö Stalínismans
og stríö Rússlands og Þýska-
lands nasismans. Og þaö kemur
í Ijós aö hann var alla tíö mjög
undrandi á frægö sinni eins og
hann heföi veriö settur inní
kvikmynd sem hann skildi ekki,
fulla af viökynningum viö frægt
fólk.
Svo viröist sem hann hafi haft
mun meira gaman af því aö
teikna en af kvikmyndagerö.
Teikningin var öll svo smá í sniö-
um, þurfti ekki öll þau flóknu
tæki sem framleiösla á kvikmynd
getur ekki veriö án. Þaö var hægt
aö teikna á fundi eöa í hótelher-
bergi, teikning gat orðiö til í
stundarhrifningu á þann hátt,
sem kvikmynd gat aldrei oröiö.
Annað sem hann haföi unun af
voru bækur. Hann gat dundaö
sér tímunum saman í fornbóka-
verslunum eða draslbúöum eöa
flóamörkuðum í leit aö bókum.
Hann mundi bækur, sem hann
haföi lesiö í lestarferöum eöa
þær sem honum höföu veriö
gefnar á jólunum og bækurnar
sem hann fann í rykugum horn-
um. Hann dreymdi jafnvel um
bækur og bókabúöir og Ijúfustu
minningarnar eru úr bókabúö
Sylviu Beach í París eöa Shake-
speare og Co. í sömu borg.
— ai
Tímaferðalög
— ný stefna
Hvað eiga þessar myndir sam-
eiginlegt? Back to the Future
(Aftur til framtíðarinnar), The
Philadelphia Experiment (Fíla-
delfíutilraunin), The Terminator
(Tortímandinn) og Highlander
(Maðurinn frá hálöndunum). Þaö
er sjálfsagt fjöldamargt en það er
einkum tvennt sem einkennir
þær allar: þær eru nýlegar eða
glænýjar og þær fjalla allar um
ferðalög fram eða tilbaka í tíma.
Þaö er einsog ný tíska sé aö
myndast í Hollywood-kvikmynd-
um. Myndir, sem segja frá feröa-
lögum í gegnum tímann, fram og
aftur, hafa auövitaö veriö geröar í
gegnum árin, en nú bregöur svo
viö aö fjórar slíkar koma á mark-
aöinn á stuttum tíma og þá tekur
mann aö undra.
Aöeins ein þessara mynda, Tor-
tímandinn, hefur veriö og er sýnd
hér á landi. Hún segir frá vélmenni,
er austurríska vöövafjalliö Arnold
Schwarzenegger leikur, sem sent
er úr framtíðinni og inní nútímann
til þess aö drepa ákveöna konu
svo hún eignist ekki barn sem í
framtíöinni veröur uppreisnar-
seggur og ógnar veldi þeirra sem
þá stjórna heiminum. Þetta er auö-
vitaö ákaflega flókiö svo ekki sé
sagt fáránlegt því þeir sem sendu
Arnold aftur í nútímann vita auðvit-
aö aö uppreisnarseggurinn er til
og þessvegna hljóti vélmenninu aö
mistakast aö ganga frá mömm-
unni. Það hefur þó ekki aftraö
áhorfendum og aödáendum Arn-
olds frá því aö fara og sjá Tortím-
andann, þvi myndin var ákaflega
vinsæl vestra ef marka má aösókn.
Fíladelfíutilraunin fæst hér á
a.m.k. einni myndbandaleigu, en
hefur ekki verið sýnd í bíó. Meö
aöalhlutverk í þeirri mynd fer efni-
legasti hjartaknúsarinn vestanhafs
þessa dagana, Michael Paré
(Streets of Fire). Myndin gerist í
flotastöö bandaríkjamanna í Kali-
forníu áriö 1943. Einhverjir
vísindamenn eru aö gera tilraunir
meö tæki sem á aö sjá um aö skip
Bandaríkjamanna sjáist ekki á
ratsjám Þjóðverjanna, en svo illa
vill til í fyrstu tilraun aö skipiö sem
prófaði tækið hverfur eins og dögg
fyrir sólu. Skipverjar um borö líöa
óskaplegar kvalir og tveir þeirra
(annar er Paré) henda sér fyrir
borö og þaö skiptir engum togum,
þeir lenda einhverstaðar í Ameríku
áriö 1984 eöa fimm. Þeir lenda í
hinum mestu samskiptaerfiöleik-
um viö annaö fólk og þaö er eink-
um sjónvarpið sem veldur þeim
taumlausri undrun.
Svo gerist söguþráðurinn flókn-
ari því um svipað leyti og þessir
SCHWARZENEGGER
TERMINWOR
„The Terminator".
tveir lenda í framtíöinni endurtekur
sami vísindamaöurinn tilraunina,
en meö þeim afleiöingum aö nú
hverfur heil rannsóknarstöö inn
um timagat sem hefur opnast og
svo viröist sem öll jöröin eigi eftir
aö hendast uppí þaö. Þannig er
nefnilega mál meö vexti aö tækiö
um borö í skipinu frá '43 veldur
þessu tímagati og neitar að
stoppa. Og tímagatiö stækkar
óðum. Besta ráðiö er því að senda
Paré inní gatið og aftur um borö í
skipiö til aö stoppa tækiö og öll
þessi ósköp og myndina sjálfa.
Nú, Aftur til framtíöarinnar, er
mynd, sem meistari Spielberg hef-
ur veriö meö puttana í, en hún var
frumsýnd í Bandaríkjunum fyrir
stuttu. Hún segir frá ungum dreng,
sem þekkir sérkennilegan visinda-
mann, sem gert hefur tímavél og
drengurinn fær sér far aftur til árs-
ins 1955. Þar hittir hann móöur
sína, sem veröur skotin í honum,
en til þess aö tryggja þaö aö hann
fæðist einhverntíma í nánustu
framtíö reynir drengurinn aö fá
mömmu sína til að veröa skotin í
veröandi pabba sinum!
Maöurinn frá hálöndunum er
ekki frá Hollywood heldur Bret-
landi og skartar þeim Christopher
Lambert og Sean Connery. Þeir
feröast frá 16. eöa 17. öld yfir í
nútímann í New York til aö enda
bardaga, sem þeir háöu á sínum
tima.
Eins og sjá má eru möguleikarn-
ir í gerö söguþráöar næstum
óendanlegir í þessum timafærslu-
myndum og þaö er hægt aö gera
skondna hluti meö þeim. Kannski
myndir af þessari tegund eigi eftir
aö blómstra í framtíðinni eins og
„stórslysamyndirnar“ og „stjörnu-
stríðsmyndirnar” gerðu hér í eina
tíö. Hver veit?
— ai.