Morgunblaðið - 07.08.1985, Side 1

Morgunblaðið - 07.08.1985, Side 1
80 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 173. tbl. 72. árg. MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins ! I l|M1 • ?*» \ SSr • *^’'**^m*s • ■ .......j Minnast kjarnorkusprengingar AP/Símamynd Fjörutíu ár voru á þriðjudag liðin frá því kjarnorkusprengju var varpað á borgina Hiroshima í Japan og var þess minnst með ýmsu móti um heim allan. Meðfylgjandi mynd er frá minningarathöfn í Friðargarðinum svonefnda í Hiroshima á þriðjudagsmorgun. Þar voru samankomnar tugþúsundir manna víða að, m.a. fólk sem lifði árásina á Hiroshima af, einnig japanskir og útlendir leiðogar. Við athöfnina var einnar mínútu þögn á slaginu 8:15 að morgni þriðju- dags, klukkan 23:15 að íslenzkum tíma á mánudagskvöld, en þá voru nákvæmlega 40 ár liðin frá því sprengjan féll á Hiroshima. Sjá nánar forystugrein: „40 ár í skugga sprengjunnar“ á bls. 34. Hörð flugskeytaárás á Kabúl nær daglega I.slamabad, 6. ágúst AP. Frelsissveitirnar í Afganistan gera nær daglegar flugskeytaárásir á höfuðborg landsins, Kabúl, og heyja bardaga við stjórnarherinn á götum hennar á næturnar, að sögn vestrænna sendifulltrúa. Ráðist inn á heimili Mandela DtTejtoa, SuAur Afríku, 6. ágwL AP. Lögreglan í Suður-Afríku réðst í dag inn á heimili Winnie Mandela, eiginkonu Nelsons Mandela, leiðtoga Afríska þjóðarráðsins, í leit að mönnum, sem grýttu lögregl- una og vörpuðu að henni benz- ínsprengju við heimili frú Mandela. Lögreglan skaut gúmmíkúlum og braust í gegnum mannþröng fyrir utan heimili frú Mandela, sem var í heimsókn í Jóhannes- arborg. Þrjátíu manns voru hand- teknir innandyra og þar fundust sjö benzínsprengjur, að sögn lög- reglunnar. Desmond Tutu biskup kom í dag í veg fyrir að til átaka kæmi við útför unglingsstúlku, sem lög- reglan skaut til bana. Var syrgj- endum í fyrstu skipað að hypja sig á brott eftir kveðjuathöfn á heim- ili stúlkunnar. Eftir hálfrar ann- arrar stundar orðaskak féllst lög- reglan á að aka líkfylgdinni að gröf stúlkunnar. Tæplega eitt þús- und manns voru við útförina. Ferjan heim úr velheppn- aðri geimför .KdwirdH-nugHtoAiniii. 6. ágúnt AP. Geimferjan Challenger lenti heilu og höldnu í Kaliforníu í dag eftir vel heppnaða vísindaferð. Koma ferðalangarnir heim með miklar upplýsingar um sólkerfið og efstu lög andrúmsloftsins. Illa horfði í upphafi ferðar er einn þriggja hreyfla ferjunnar bil- aði skömmu eftir flugtak. Sakir þess var sporbraut ferjunnar nær jörðu en ætlað var. Þá störfuðu sum rannsóknartæki ekki í fyrstu, en þeim tókst að koma í lag og er nú rætt um að ferð Challenger hafi verið ein sú árangursríkasta frá byrjun geimferjuflugs. Sókn frelsisaflanna gegn stöðv- um stjórnarhersins og sovéska innrásarliðsins í Kabúl er þyngri en áður. Skjóta sveitirnar stórum landflugskeytum á skotmörk í borginni, m.a. bækistöð sovéska hersins. Hefur árás frelsissveit- anna jafnan verið svarað með gíf- urlegri stórskotahríð. Þá hafa mjög vel vopnaðir hóp- ar frelsisaflanna lagt til atlögu gegn stöðvum stjórnarhersins í vesturhluta Kabúl. Komið hefur til harðra skotbardaga á götum úti og hermt er að stjórnarherinn hafi misst tugi hermanna í bar- dögunum. Hafa skriðdrekasveitir jafnan verið kallaðar á vettvang til að stökkva frelsissveitunum á flótta. Hermt er að brugðist hafi verið við auknum árásum frelsissveit- anna með því að efla til muna hervörð í borginni og auka leit að stjórnarandstæðingum í ná- grenni Kabúl. Þá er skotið við og við með stórskotavopnum í allar áttir í þeirri von að hindra frels- issveitirnar í að draga liðsmenn sína saman til nýrra árása. Auk bardaga í Kabúl eiga mikil átök sér stað annars staðar í landinu, einkum í vesturhluta landsins. Barist er á götum úti i borginni Kandahar. Víða hafa frelsissveitirnar undirtökin, ráða t.d. mestum hluta borgarinnar Herat. Sendifulltrúar segja að stjórn- arherinn í Afganistan eigi við mikið mannfall að stríða í bar- dögum og stöðugan flótta úr hernum. Sérstakar sveitir hafa verið gerðar út af örkinni til að fá menn í herinn. Þá fer það eins og eldur í sinu um Kabúl að sjúkra- hús séu full af særðum hermönn- um i kjölfar harðra bardaga i Panjsher-dal. Deiian hjá BBC: Útvarpsráð staðfestir sýningarbann London, 6. áftúsL AP. lltvarpsráð brezka útvarpsins, BBC, ákvað að halda fast við fyrri ákvörðun sína um að banna sýningu sjónvarpsmyndar um írska hryðjuverkamenn. Af þess- um sökum stefndi í verkfall starfsmanna BBC og samúðar- verkfall annarra útvarps- og sjónvarpsmanna. Útvarpsráðið breytti ekki úr- skurði sínum þrátt fyrir verk- fallshótun og ásakanir um að sýn- ingarbannið jafngilti ritskoðun. í kvöldfréttum BBC sagði að deilan væri sú erfiðasta og viðkvæmasta i 63 ára sögu stofnunarinnar. Andstæðingar sýningarbanns- ins segja að deilan verði til að draga úr trausti manna á BBC. Reagan um tillögur Rússa um bann við tilraunum með kjarnorkuvopn: Rússar bjóða bann til að tryggja forskot sitt Geaf, 6. ágúst AP. Sovétmenn höfnuðu í dag boði Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta, um að fulltrúar þeirra yrðu viðstaddir kjarnorkutilraunir Bandaríkjamanna. Áður hafði Reagan vísað i bug hugmynd Rússa um fimm minaða bann við tilraunum með ný kjarnorkuvopn. Hann sagði Sovétmenn hafa lokið tilraun- um með nýjar SS-24 og SS-25 kjarnaflaugar og þvi hentaði þeim að bjóða tilraunabann nú. Bandaríkjamenn höfnuðu banni þar sem þeir vildu reyna að minnka forskot Rússa i þessu sviði vígbúnaðar. Stórveldin brigsluðu hvoru öðru um áróðursbrögð í dag og henti- stefnu. Talsmaður Hvíta hússins sagði að tilraunabanni yrði að fylgja samkomulag um gagn- kvæmt eftirlit, en slikt hefðu Rússar ekki nefnt í tillögu sinni og oftar en ekki hefðu tilraunir til raunhæfrar takmörkunar vigbún- aðar strandað á andstöðu Rússa við eftirlit. Reagan sagði að Rússar stæðu Bandaríkjamönnum framar i endurnýjun kjarnavopna. Banda- ríkjamenn ættu ólokið tilraunum með ný vopn, sem ætlað væri að koma i stað eldri vopna og brúa bilið á milli stórveldanna. Þegar þeim væri lokið, og ef Rússar væru þá fúsir til gagnkvæms til- raunabanns, væri ástæða til að setjast niður og komast að sam- komulagi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.