Morgunblaðið - 07.08.1985, Page 5
MORGUNBLADID, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1986
5
mælst
hefur
Bleikja úr Kringlu-
vatni spjarar sig í
söltu vatni í kerjum
Bíll út af vegi við Tjaldanes
Morgunbladih/Júlíus
BfLVELTA varð á Þingvallavegi aðfaranótt mánu-
dagsins. Bíll á leið frá Þingvöllum til Reykjavíkur fór
út af veginum og valt heilan hring áður en hann
hafnaði ofan í skurði. Tveir farþegar voru í bflnum
auk ökumanns og voru allir fluttir á slysadeild.
Meiðsli reyndust lítil.
Haft er eftir ökumanni að hestur hafi rásað í veg
fyrir bílinn og hann þá misst stjórn á honum. Að
sögn lögreglunnar í Hafnarfirði er talsvert um
óþægindi vegna kvikfénaðar sem heldur sig við
vegi og bændur alltof kærulausir við að halda
búsmala sínum frá umferðarleiðum. Ökumenn
verði því að sýna mikla varkárni, ekki síst á leið-
inni milli Þingvalla og Reykjavíkur.
mesta
STARFSMÖNNUM laxeldisstöðvarinnar Ölunns hf. á Dalvík hefur nú
tekist að flytja 500 bleikjur úr Kringluvatni í Reykjahvern í S-Þingeyjar-
sýslu, en þar hefur verið unnið að grisjun, og koma í eldi á Dalvík. En eins og
skýrt var frá hér í blaðinu mistókst fyrri tilraun laxeldisstöðvarinnar til að
flytja þaðan bleikju og ala.
Blm. hafði tal af Þórólfi Ant-
onssyni, framkvæmdastjóra öl-
unns hf., og innti hann eftir gangi
mála, hvað hefði mistekist í fyrra
skiptið og hvaða aðferðum hefði
verið beitt við síðari tilraunina.
„Undanfarin ár hefur verið
unnið að þvi að grisja Kringlu-
vatn og til þessa hefur fiskurinn
ekki orðið eigendum vatnsins að
neinum verðmætum," sagði Þór-
ólfur. „Við ákváðum því að gera
tilraun til að nýta bleikjuna, þ.e.
flytja fiskinn til Dalvíkur og ala
hann þar áfram. í byrjun júlí-
mánaðar fluttum við 1500 fiska
hingað til Dalvíkur og settum
beint sjó. Fiskarnir virtust hins
vegar ekki þola seltuna og að 10
dögum liðnum voru þeir allir
dauðir.
Um miðjan júlímánuð gerðum
við svo aðra tilraun, þá með að-
eins 500 fiska. Við létum þá í
vatnsker uppi á landi og höfum
svo smám saman verið að auka
seltumagnið i vatninu hjá þeim.
Þetta hefur gengið ágætlega, nú
höfum við látið rúmlega 20 pró-
mill af salti í vatnið og er það því
orðið % sjór. Enn hefur enginn
fiskur drepist og það sem meira
er, bleikjan er farin að taka fóður
hjá okkur, en við óttuðumst að
erfitt yrði að fóðra hana.
Auðvitað er aldrei að vita hvað
gerist þegar að fiskurinn verður
að lokum settur í sjó, en ég er þó
vongóður um að hann eigi eftir að
spjara sig. Ef þessi tilraun okkar
tekst þá er fundin leið til þess að
nýta smábleikju úr vötnum sem
þarf að grisja, og þau eru ófá um
landið," sagði Þórólfur Pétursson,
framkvæmdastjóri laxeldisstöðv-
arinnar Ölunns hf.
Umferðin um versliuiarmannahelgina:
Sú
sem
•t
Bjart um
land allt
I G/ER var bjart og gott veóur
um allt land. Besta veórið var á
Vesturlandi og komst hitinn hæst
í 19 stig í Síóumúla í Borgarfirói
og í 18 stig víða annars staðar á
vestanveróu landinu.
Undir kvöldið þykknaði
nokkuð upp, einkum á annesj-
um norðan- og austanlands og
fór hitinn þar niður í 5 til 7
stig. Einnig þykknaði upp við
Faxaflóa.
Að sögn Guðmundar Haf-
steinssonar veðurfræðings er
austanátt ríkjandi á landinu og
verður svo að öllum líkindum í
dag og á morgun og mun góða
veðrið væntanlega haldast
meðan svo er, en þó má búast
við nokkurri úrkomu við suður-
ströndina. „En á föstudaginn
má búast við því að hann snúist
til norðanáttar með öllu sem
því fylgir og verði á norðan
fram yfir helgi," sagði Guð-
mundur að lokum.
Setti á sig
öryggisbeltið
nokkru fyrir
slysið
BÍLVELTA varó neóarlega í Bröttu-
brekku síódegis á sunnudag. Lítill
fólksbfll úr Reykjavík á leið í Noró-
urárdal fór þar út af veginum og
lenti á hvolfi í skurði. Ekki uróu
meiðsl á fólki, en ökumaður og far-
þegi í framsæti voru í bflbeltum.
Skömmu áður en slysið varð
spurði 10 ára gömul dóttir öku-
mannsins hvers vegna hann not-
aði ekki bílbelti. Faðirinn svaraði
því til, að hann gleymdi því alltaf,
en gæti svo sem sett á sig beltið.
Skömmu síðar sprakk hjólbarði
hægra megin að framan. öku-
manninum tókst að draga veru-
lega úr ferðinni áður en bíllinn fór
út af veginum og lenti hann á
hvolfi í skurði við vegarbrún. Fjöl-
skyldufaðirinn sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að hann vildi
ekki hugsa þá hugsun til enda ef
slysið hefði orðið 2—3 mínútum
fyrr; vegurinn hefði þá verið mun
brattari og hættulegri, þannig að
meiðsl á fólki hefðu vart verið um-
flúin.
SAMKVÆMT UPPLÝSINGUM Vegageróar ríkisins og Umferóarráós var
umferö um verslunarmannahelgina í
gerð ríkisins hóf talningar áriö 1978.
Bifreiðir voru taldar frá þriðju-
deginum 30. júlí til miðnættis síð-
astliðinn mánudag. Alls óku 71.204
bílar þar sem talið var, þ.e. á Vest-
urlandsvegi við Esjuberg, á Þing-
vallavegi við Helgafellsmel og á
Suðurlandsvegi vestan Biskups-
tungnavegamóta undir Ingólfs-
mesta sem mælst hefur síöan Vega-
fjalli. Övenjumargir óku Þingvalla-
veginn meðan á talningu stóð, eða
15.746 en þess var að vænta þar
sem Vesturlandsvegur var lokaður
síðastliðinn fimmtudag og umferð
því beint um Þingvelli. Af sömu
ástæðu taldist vegagerðarmönnum
18.570 bifreiðir fara um Vestur-
landsveg sem er aðeins um 1000
fleiri en í fyrra. Suðurlandsveginn
óku 36.888 bílar en 1984 voru taldir
30.394 á sömu slóðum.
Eins og fyrr greinir var hér um
metár að ræða en samkvæmt tölum
Vegagerðarinnar er meðaltal bif-
reiða um verslunarmannahelgina
síðustu átta ár 60.611. Flestar voru
bifreiðirnar árið 1981, eða 64.169
talsins. Óli H. Þórðarson fram-
kvæmdastjóri Umferðarráðs lagði
áherslu á að hér er aðeins um að
ræða sunnan- og vestanvert landið.
„Engar talningar hafa farið fram
annars staðar á landinu en vissu-
lega dreifist þessi mikli fjöldi um
allt landið og því má ætla að um-
ferð hafi verið meiri um landið en
oft áður.
Velkomin
vel klœdd í
Broadway
INNRÁS
BÍTLAÁRATUGARINS
HELDUR ENN ÁFRAM í
Allir muna eftir lögunum:
WILD THING • WITH A GIRL LIKE YOU •
ANYWAY SHE WANT • LOVE IS ALL
AROUND • I CANT CONTROL MYSELF
Þessi lög og miklu fleiri syngja þeir fyrir gesti á Broadway um næstu helgi.