Morgunblaðið - 07.08.1985, Page 21

Morgunblaðið - 07.08.1985, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985 21 Kjaryalsstaðir: Sýning á Nor- rænni vefjarlist NORRÆN vefjarlistasýning var opnuft á Kjarvalsstöftum laugar- daginn 3. ágúst, sl. og hófst hún meft ávarpi Stefáns Jónssonar, fyrrverandi alþingismanns og formanns Norrsna menningar- málasjóftsins. Er hér um að ræfta farandsýninguna „Nordisk Text- iltriennale“, sem hleypt var af stokkunum í Moss í Noregi þann 8. júní sl. Sýningar þessar hafa nú verift haldnar meft reglulegu milli- bili í ein 11 ár. Samnorræn dómnefnd, skipuð einum fulltrúa frá hverju landi, sá um að velja 80 verk úr þeim 520, sem bárust að þessu sinni. Fulltrúar tslands á sýningunni eru þær Guðrún Gunnarsdóttir, Guðrún Marinósdóttir, Hólm- fríður Árnadóttir og Sigurlaug Jóhannesdóttir, en auk þeirra eru, meðal sýnenda, margir vel þekktir listamenn. „Við val á verkum til sýn- ingarinnar er tekið tillit til gæða listmunanna, þess gætt að bæði gamlar hefðir og nýir straumar fái að njóta sín, auk þess sem áhersla er lögð á fjöl- breytni í aðferðum," sagði Ása Ólafsdóttir, sem var fulltrúi Is- lands í dómnefndinni. „Fjöldi listaverka frá hverri þjóð lýtur engum reglum — ekki er miðað við fólksfjölda eða annað þvi- umlíkt, heldur eru það eingöngu gæðin sem gilda,“ bætti hún við. Þessi samnorræna sýning er styrkt af opinberum aðilum, Norræna menningarmálasjóðn- um, sem lagði fram þriðjung áætlaðrar fjárþarfar og mennta- og menningarmála- ráðuneytum landanna, sem lögðu það til, sem á vantaði. Einnig ber að geta þess að stað- irnir, sem hýst hafa sýninguna á ferðalaginu hafa fellt niður leigugjöld og jafnvel styrkt hana með beinum fjárframlög- um. Formaður og aðaldriffjöður framtaksins, allt frá upphafi, er danska listakonan Nanna Her- toft, en íslenska starfshópinn skipa þær Hildur Hákonar- dóttir, Ása Ólafsdóttir, Anna Þóra Karlsdóttir, Áslaug Sverr- isdóttir og Steinunn Pálsdóttir. „Það má eiginlega segja að textillistakonur vinni bæði að því að hefja til vegs og virðingar gamlar hannyrðir, svo og að ýta undir nýsköpun á því sviði,“ sagði Hildur, er hún var innt eftir þróun listgreinarinnar hér á landi. „Við höfum tekið gömul áhöld og tæki til notkunar aft- ur,“ bætti Ása við, „eins og kamba, snældur og rokka, auk þess sem hrosshárið nýtur nú sí- vaxandi vinsælda sem efniviður í listaverk." Var starfshópurinn sammála um að sýningar þessar hefðu reynst gífurleg lyftistöng fyrir alla listsköpun á Norðurlöndun- um og vakið athygli iðnfrömuða á greininni. Upplýstu þær stöll- ur að bæði framkvæmd og skipulagning sýningarinnar væri alfarið í höndum lista- kvennanna. „Þess ber þó að geta að okkar menn í norrænum nefndum hafa reynst okkur al- veg einstaklega hjálplegir," sagði Áslaug, „svo og mennta- og menningarstofnanir ýmis- konar og erum við að sjálfsögðu afar þakklátar fyrir þann skiln- ing, sem þau hafa sýnt listgrein- inni.“ Aðspurðar kváðu þær engin ellimörk á sýningunni né heldur merki um stöðnun. „Við erum líka nokkuð heppnar með sýn- ingarstað," sagði Anna Þóra, „Kjarvalsstaðir eru alveg kjör- inn sýningarstaður, mikið og stílhreint veggpláss, en lítið af gluggum, sem draga athyglina frá verkunum sjálfum. Held ég m.a.s. að óhætt sé að fullyrða að sýningin njóti sín einna best hér,“ hætti hún við. Sýningin mun standa til 25. ágúst og verður hún opin alla daga frá kl. 14—22. SUrfshépurinn sem sá um skipulagningu sýningarinnar: Ása Ólafsdóttir, Áslaug Sverrisdóttir, Hildur Hákonardóttir og Anna Þóra Karlsdóttir vift eitt verkanna á sýningunni. Á myndina vantar Steinunni Pálsdóttur. BROTNAR NEGLUR Llm fyrir brotnar og rifnar neglur. Einn dropi I brotið og nöglin verður sem óskemmd 45 sekúndum síðar. Síðan er nöglin lökkuð á eölilegan hátt. ★Quick Set^ er einföld lausn fyrir alla. ál/2virði! Um leið og filman fer í H-Lúx framköllun biður þú um Sumaraukann og þú færð aukaeintök af myndunum þínum á hálfvirði! Gildir frá 17. júní til 17. ágúst Gefðu ljósmynd. KODAK UMBOÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.