Morgunblaðið - 07.08.1985, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985
21
Kjaryalsstaðir:
Sýning á Nor-
rænni vefjarlist
NORRÆN vefjarlistasýning var
opnuft á Kjarvalsstöftum laugar-
daginn 3. ágúst, sl. og hófst hún
meft ávarpi Stefáns Jónssonar,
fyrrverandi alþingismanns og
formanns Norrsna menningar-
málasjóftsins. Er hér um að ræfta
farandsýninguna „Nordisk Text-
iltriennale“, sem hleypt var af
stokkunum í Moss í Noregi þann
8. júní sl. Sýningar þessar hafa nú
verift haldnar meft reglulegu milli-
bili í ein 11 ár.
Samnorræn dómnefnd, skipuð
einum fulltrúa frá hverju landi,
sá um að velja 80 verk úr þeim
520, sem bárust að þessu sinni.
Fulltrúar tslands á sýningunni
eru þær Guðrún Gunnarsdóttir,
Guðrún Marinósdóttir, Hólm-
fríður Árnadóttir og Sigurlaug
Jóhannesdóttir, en auk þeirra
eru, meðal sýnenda, margir vel
þekktir listamenn.
„Við val á verkum til sýn-
ingarinnar er tekið tillit til
gæða listmunanna, þess gætt að
bæði gamlar hefðir og nýir
straumar fái að njóta sín, auk
þess sem áhersla er lögð á fjöl-
breytni í aðferðum," sagði Ása
Ólafsdóttir, sem var fulltrúi Is-
lands í dómnefndinni. „Fjöldi
listaverka frá hverri þjóð lýtur
engum reglum — ekki er miðað
við fólksfjölda eða annað þvi-
umlíkt, heldur eru það eingöngu
gæðin sem gilda,“ bætti hún við.
Þessi samnorræna sýning er
styrkt af opinberum aðilum,
Norræna menningarmálasjóðn-
um, sem lagði fram þriðjung
áætlaðrar fjárþarfar og
mennta- og menningarmála-
ráðuneytum landanna, sem
lögðu það til, sem á vantaði.
Einnig ber að geta þess að stað-
irnir, sem hýst hafa sýninguna á
ferðalaginu hafa fellt niður
leigugjöld og jafnvel styrkt
hana með beinum fjárframlög-
um.
Formaður og aðaldriffjöður
framtaksins, allt frá upphafi, er
danska listakonan Nanna Her-
toft, en íslenska starfshópinn
skipa þær Hildur Hákonar-
dóttir, Ása Ólafsdóttir, Anna
Þóra Karlsdóttir, Áslaug Sverr-
isdóttir og Steinunn Pálsdóttir.
„Það má eiginlega segja að
textillistakonur vinni bæði að
því að hefja til vegs og virðingar
gamlar hannyrðir, svo og að ýta
undir nýsköpun á því sviði,“
sagði Hildur, er hún var innt
eftir þróun listgreinarinnar hér
á landi. „Við höfum tekið gömul
áhöld og tæki til notkunar aft-
ur,“ bætti Ása við, „eins og
kamba, snældur og rokka, auk
þess sem hrosshárið nýtur nú sí-
vaxandi vinsælda sem efniviður
í listaverk."
Var starfshópurinn sammála
um að sýningar þessar hefðu
reynst gífurleg lyftistöng fyrir
alla listsköpun á Norðurlöndun-
um og vakið athygli iðnfrömuða
á greininni. Upplýstu þær stöll-
ur að bæði framkvæmd og
skipulagning sýningarinnar
væri alfarið í höndum lista-
kvennanna. „Þess ber þó að geta
að okkar menn í norrænum
nefndum hafa reynst okkur al-
veg einstaklega hjálplegir,"
sagði Áslaug, „svo og mennta-
og menningarstofnanir ýmis-
konar og erum við að sjálfsögðu
afar þakklátar fyrir þann skiln-
ing, sem þau hafa sýnt listgrein-
inni.“
Aðspurðar kváðu þær engin
ellimörk á sýningunni né heldur
merki um stöðnun. „Við erum
líka nokkuð heppnar með sýn-
ingarstað," sagði Anna Þóra,
„Kjarvalsstaðir eru alveg kjör-
inn sýningarstaður, mikið og
stílhreint veggpláss, en lítið af
gluggum, sem draga athyglina
frá verkunum sjálfum. Held ég
m.a.s. að óhætt sé að fullyrða að
sýningin njóti sín einna best
hér,“ hætti hún við.
Sýningin mun standa til 25.
ágúst og verður hún opin alla
daga frá kl. 14—22.
SUrfshépurinn sem sá um skipulagningu sýningarinnar: Ása Ólafsdóttir,
Áslaug Sverrisdóttir, Hildur Hákonardóttir og Anna Þóra Karlsdóttir vift eitt
verkanna á sýningunni. Á myndina vantar Steinunni Pálsdóttur.
BROTNAR NEGLUR
Llm fyrir brotnar og rifnar neglur. Einn dropi I brotið og nöglin
verður sem óskemmd 45 sekúndum síðar.
Síðan er nöglin lökkuð á eölilegan hátt. ★Quick Set^ er einföld
lausn fyrir alla.
ál/2virði!
Um leið og filman fer í H-Lúx framköllun biður þú um
Sumaraukann og þú færð aukaeintök af myndunum þínum
á hálfvirði!
Gildir frá 17. júní til 17. ágúst
Gefðu ljósmynd.
KODAK
UMBOÐIÐ