Morgunblaðið - 07.08.1985, Side 25

Morgunblaðið - 07.08.1985, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985 25 Þakkir frá Landssam- tökum hjartasjúklinga LAUGARDAGINN 6. júlí sl. af- henti Rúrik Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri merkjasölu Lands- samtaka hjartasjúklinga, form- lega gjaldkera samtakanna, Jó- hannesi Proppé, andvirði seldra merkja dagana 7.-8. júní sl., að upphaeð liðlega 3 milljónir króna. Að gefnu þessu tilefni þakkar stjórn Landssamtaka hjartasjúkl- inga þeim stóra hópi landsmanna sem studdu samtökin á einn eða annan hátt, segir í frétt frá Landssamtökunum. Fagnar ákvörðun menntamálaráðherra HIÐ íslenska náttúrufræðifélag efnir til fræðsluferðar 16. til 18. ágúst næstkomandi í Veiðivötn undir leiðsögn náttúrufræðinga. I fréttatilkynningu frá félaginu kemur ennfremur fram að það fagni mjög ákvörðun mennta- málaráðherra að reisa íslenskt náttúrufræðisafn. Telja félags- menn málefni félagsins hafa legið í láginni alltof lengi og sé nú von- andi að fólk fari að gera sér betri grein fyrir mikilvægi þess að þjóð- in fræðist um náttúru landsins og að til sé náttúrufræðisafn hér- lendis. Ályktar um skólamál MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi samþykkt til birtingar: Landsnefnd Bandalags jafnað- armanna fordæmir harðlega til- raun Sjálfstæðisflokksins til stéttaskiptingar barna á grunn- skólastigi og misnotkun almanna- fjár í því skyni. Landsnefndin er þeirrar skoð- unar að með þessum aðgerðum sé gefið hættulegt fordæmi og jafn- framt vegið að þvi viðurkennda markmiði íslenska velferðarkerf- isins að tryggja félagslegt jafn- rétti. TosMba ^ er í senn e'dMSS’a^v6rn>'°nda^ 9raf"m^ hrærWé'og'mo^ hokkove'.M m-,„gaboW ar'iS'en&"'tV'9'r- n'e\»ff t 4.900. t Verð tra Kr. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTAÐ ASTRÆTI 10A Sími 16995

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.