Morgunblaðið - 07.08.1985, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGCST 1985
29
Félagsfræði og
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Arnold Ilauscr:
SOZIOLOGIE DER KUNST
C.H. Beck’sche Verlangsbuchhandl-
ung, Miinchen 1974 — Deutscher
Taschenbuch Verlag 1983.
Arnold Hauser var meðal kunn-
ustu listasöguhöfunda. Fæddur í
Ungverjalandi 1892, fluttist frá
Vínarborg 1938 til Englands, þar
sem hann kenndi við háskólann f
Leeds til 1957 og lést í Budapest
1978. Hann er talinn frumkvöðull
lista-félagsfræðinnar. Meðal
helstu rita hans eru: „Sozialge-
schichte der Kunst und Literatur"
1953, „Der Ursprung der modern-
en Kunst und Literatur" 1973,
„Methoden moderner Kunstbe-
trachtung“ 1974. Þessi bók kom
fyrst út hjá C.H. Beck í Múnchen
1974.
Hauser segir í formála að efnið
hafi oftsinnis verið umfjallað
meira og minna, en að hann geri
tilraun til þess að fjalla um það í
heild, að svo miklu leyti sem gjör-
legt sé, víxlverkanir samfélags og
lista. Hann nefnir í þessu sam-
bandi rit sem snerta þetta efni, rit
Diderots, Lessings, Mme de Staél
og Hegels og af yngri höfundum
nefnir hann Sartre, Edmund Wil-
son, Walter Benjamin, Lukács og
Adorno.
Allir þessir höfundar hafa ritað
meira og minna um vissa þætti
þessa viðamikla efnis, sem Hauser
leitast við að kerfa og rýna í heild
með þessu riti sínu. Fyrst ræðir
hann grundvallarhugtök sem
snerta viðfangsefnið. List er upp-
haflega að hans dómi einn þáttur
lifsbaráttu steinaldarmannsins,
hann gerir myndir, sem voru mag-
ískar, til þess ætlaðar að lokka til
sín veiðidýrin. Hauser fjallar um
þessi efni í löngu og ítarlegu máli.
Listin er fyrst og síðast sköpun,
verkið lifir eigin lífi, en er jafn-
framt brýn nauðsyn og hluti
þeirra þátta sem tryggja líf
manns og samfélags, valdstjórnar,
trúarbragða, siða, „þekking og list
eru forsendur öryggiskenndar og
þar með nauðsynlegasti þáttur
lífsbaráttunnar".
Hauser ræðir um víxlverkanir
lista og samfélags og í þeim kafla
er nokkurskonar uppdráttur af
stöðu listamannsins frá upphafi.
Hann fjallar um mótunarsögu
lista á samfélagið og í því sam-
bandi um „l’art pour l’art“-kenn-
inguna, sem kemur fram einkum
með sérhæfingu samfélagshóp-
anna og vélvæðingu. Hauser telur
forsendur listar vera að finna í
samfélagstíma og sköpunargáfu
listamannsins. öll list er sköpuð
af einum; einstaklingurinn skapar
alla list, en hann mótast af tímun-
um og listaverk sem lifa, lifa alls
ekki í upphaflegri skynjun sköp-
unartímans, listaverk er hverjum
tíma nýtt, það er skynjað á annan
hátt og í samræmi við hvert tíma-
bil. Hauser fjallar um allar list-
greinar í þessu riti sínu, ekki síst
ljóðlist og myndlist. Hann leitast
við aö tíunda alla þá þætti sem
koma við sögu, t.d. ræðir hann ít-
arlega um þátt útgefanda og lista-
verkasala i sambandi við kynn-
ingu listaverka, gáfaður útgefandi
og listaverkasali gegna lykilhlut-
verkum í listasögunni og bók-
menntasögunni. Afstaða aðalsins
listir
til listamannsins var samkynja
afstöðu hans til þeirra, sem ekki
töldust til aðalsins, hann var
þjónn og hlutverk hans var að
ágæta ætt hans og hann sjálfan.
Með siðaðri borgarastétt breytist
afstaðan til listamannsins, „lista-
verkin verða algjör forsenda lífs-
fyllingar". Höfundur fjallar um
svonefnda „alþýðulist" og um þá
list sem upp kemur síðar með fjöl-
földuninni, „massalist", og sem
framhald af því er lokakafli bók-
arinnar: „Lok allra lista?"
Listaverkið lifir, einkenni
massalistar er að verkið er nokk-
urs konar uppákoma, tilbreyting
og síðan horfið. Þetta einkenni
hefur orðið mörgum áhyggjuefni
og ýtt undir kenningarnar um
dauða listanna. Þessar hugrenn-
ingar Hausers minna ónotalega á
kenningar Spenglers um þessi efni
í „Untergang des Abendlandes".
Auglýsingin, uppákoman og
dægur-popp virðast fullnægja
massa-smekknum og með niður-
koðnun þjóðtungnanna þrengist
meðvitund og þar með smekkur
stöðugt. Við slíkar aðstæður er
framtíðin harla óljós, svo ekki sé
meira sagt.
Þó eru teikn á lofti sem benda
til þess að nú sé að hefjast frá-
hvarf frá útþynningarstefnu síð-
ustu tæpra tveggja áratuga. Það
hefur reynst erfitt að stunda
þekkingarmiðlun, þegar þekking
viðtakenda á máli og hugtökum er
meira en lítið ábótavant. Endur-
mat fræðslukerfisins á Frakklandi
er fyrsti vísirinn þar í landi að
endurreisn þjóðtungunnar og
meðfylgjandi „meðvitundarheimt"
veldur skýrara mati á því hvað sé
list og skáldskapur og hvað ekki.
BETRI
ÁRANGUR MEÐ
ATLAS COPCO
öruggur búnaður fyrir:
1. Mannvirkjagerð
2. Verktakastarfsemi
3. Þungaðiðnað
4. Léttan iðnað
ATLAS COPCO LOFDRIFIN
HANDVERKFÆRI
☆ Borvélar
☆ Sllpivélar
☆ Herzluvélar
☆ Gjallhamrar
☆ Brothamrar
☆ Ryðhamrar
* Frœsarar
☆ Loftbyssur
☆ Sagir
☆ Klippur
☆ Móln.sprautur
☆ Sandblósturstœki
☆ Fylgihlutir
ATLAS COPCO er stærsti framleiðandi í heimi á loftþjöppum
og tækjabúnaði fyrír þrýstiloft. Fyrírtækið þekkir hvernig
minnka má framleiðslukostnað með notkun á loft- og gas-
þjöppum, þurrkurum, síum, kælum, iðnaðarverkfærum og
tækjum til yfirborðsmeðhöndlunar
■■IHHBHi Fyrírtæki með framleiðslu er ■■■■■
JUlasCopcO fyggir Þér bætta arðsemi og JUlasCopcc
góða þjónustu.
Allar nánari upplýsingar gefur
LANDSSMIÐJAN HF.
ISOLVHOLSGOTU 13 101 REYKJAVIK
SIMI (911 20680 TELEX 2207 GWORKS
ARNAR-VIDEO
MYNDBANDAUMBOÐ
BREKKUGERÐI 19 . 108 REYKJAVÍK SlMI 82128
MYNDBANDALEIGUR
Dreifing hefst á þessum fjórum nýju
myndum á morgun, fimmtudag
The Human Factor
BFSTSBllHG NOVEL.
RICHARD ATTENBOROUGH
JOHN GIBLGUD
DEREK JACO&
robert MORLET
NICOL WIUJAMSON
RICHARD ATTENBOROUGH
NICOL WILLIAMSSON
Myndin er byggð á samnefndri met-
sölubók Graham Greene. Bókin hefur
komið út í islenskri þýðingu og verið
lesin í útvarpi. Úrvalsleikarar í hverju
hlutverki. Stórmynd sem allstaðar
hefur fengið frábæra dóma.
It’s Called
Murder Baby
CAMERON MITCHELL
JOHN LESLIE
Hörkuspennandi sakamálamynd er
gerist í Los Angeles 1943 þegar svarta-
markaðsbrask, morð og aðrir ólöglegir
hlutir voru daglegir viðburðir og gerðu
heiðarlegu fólki lífið leitt.
Lisa and the Devil
TELLY SAVALAS
ELKE SOMMER
Mynd um ógnvekjandi atburði er ger-
ast á sveitasetri. Mynd með úrvalsleik-
urum.
Torchlight
P.VMEIASIHE MARTIN
She had one love .. .
her hush.md.
He had one secret...
r cocaine.
No one wants to go to hell alone
PAMELA SUE MARTIN
(Dynasty)
IAN MCSHANE
(Evergreen)
Mynd sem sýnir á ógnvekjandi hátt
hvernig eiturlyf geta farið með líf
manna. Úrvalsmynd með úrvalsleikur-
um. Mynd sem allsstaðar hefur fengið
mjög góða dóma.